Morgunblaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Veiran kæfiraðra um-ræðu hér sem annars stað- ar. Þó er ekki víst að umræðan eina geri nokkurt minnsta gagn. Ísland valdi sér leið. Það er ekki alveg ljóst hvernig það val fór fram, því að stjórnvöld landsins, þ.e.a.s. hin eiginlegu stjórnvöld samkvæmt bók- stafnum, reyndust næsta fjar- læg í öllu því ákvörðunarferli. Kannski það hafi átt að vera sniðugheit, af því að málið væri svo sannarlega heitt og hættulegt svo best væri að koma hvergi nærri, þó þannig að ekki yrði mikið eftir því tekið. Þannig varð það óhjá- kvæmilegt að hinn hluti valdsins, sá sem stjórnar- skráin og lagaramminn um stjórnskipunina nefnir ekki nema neðanmáls, átti loka- orðið, eins og er orðin lenska hér á landi. Sá hluti tók sér ekkert vald. Hann barst bara eins og óviljandi inn í tómið. Einhver varð að fylla það. Vissulega var víða margt hjalað. Meðal annars nokkuð um þann möguleika að vernda veikustu þegnana en stuðla að öðru leyti að því, að hér næð- ist svokallað hjarðónæmi sem myndi skera skorninga í braut veirunnar svo það yrði henni ekki hægðarleikur að komast á milli manna. Svo margir yrðu þá tiltölulega hratt ónæmir á tilteknum tíma, að smitaðir næðu ekki að koma veirunni af sér yfir á hina ósýktu, svo vísindamáli sé sleppt. En fullyrt var að sú leið dæmdi sig úr leik, því að heil- brigðiskerfið kæmist ekki í gegnum svo brattan kúf sem fylgdi slíkri aðferð. Í þessu sambandi var aldrei rætt um að hinum kostinum, þeim óhjákvæmilega, fylgdi það böl að fram undan yrðu ekki vikur, ekki örfáir mán- uðir, heldur langur óræður tími, þar sem veiran, með sín- um hótunum, réði ekki bara ferðinni, heldur lögum og lof- um í landinu. Ekki aðeins um skamma hríð heldur miss- erum eða jafnvel árum sam- an. Svo sannfærð vorum við flest um að við hefðum hitt bæði naglann og veiruna á höfuðið að opinber yfirvöld tóku að útbýta fálkaorðum í júníbyrjun í tilefni af því! Einhver hafði þá gleymt að gera þeim sem utan um það halda grein fyrir, að tímaskyn allra væri bersýnilega komið úr skorðum. Hún er alkunn óleysta spurn- ingin um hvort komi á undan egg- ið eða hænan. Um hitt er aldrei rætt, enda óumdeilt, að hænan og haninn eru fremst í röðinni, því án þeirra tilþrifa kemur ekkert egg. Við héld- um ekki upp á sigurinn í hálf- leik, heldur strax þegar hlaupið hafði verið í kortér. En vandinn við aðferðina, sem við höfum ekki komist fyrir, er að við erum ekki ein í heiminum. Felist okkar veiru- sigur í því, að einungis lítið sýnishorn af landsmönnum hafi komið sér upp virku mót- vægi gegn henni, þá er það gott og blessað. Það er að segja ef við erum ein í heim- inum. Það þurfti ekki nema örfáa knáa skíðagarpa sem komu meira eða minna úr sömu brekkunni, til að setja allt á hvolf hér. Ef við náum því í næstu viku að koma smitum aftur niður í núll, þá er eins gott að umheimurinn láti okkur í friði um langa framtíð. En það er ekki víst að hann muni gera það. Og hvað gerum við þá? Skellum við þá sjálf í lás eins og umheimurinn gerði fyrir okkur síðast og bíðum eftir bóluefni? Og þá með hvaða af- leiðingum? Það eru ekki efni og ekkert gagn að því að hefja nú leit að sökudólgum. Og það er fjarri því að vera víst að það séu ein- hverjir sökudólgar. Allir hafa hamast við að gera sitt besta. En það er þó augljóst að þeir sem helstu ábyrgð bera samkvæmt stjórnskipuninni þurfa að koma til byggða. Ekki til þess að tala til okk- ar eins og þjálfarar íþrótta- leikja: Stöndum saman, við erum öll í baráttunni, við er- um öll í almannavörn! Stönd- um saman um hvað og hvað lengi. Við erum ekki öll í sömu baráttunni. Hagur manna er ólíkur og það er þegar gengið hart að mörgum. Og þótt allir vilji leggjast á árar þarf að vera ljóst hvert er stefnt. Ef það er svo að okkar barátta gangi alls ekki upp nema hinn íslenski Palli sé til og hann sé raunverulega einn í heim- inum. En sú einvera reyndist Palla reyndar stutt gaman skemmtilegt. Við erum vissulega sam- hentir félagar þegar á þarf að halda en við erum ekki endi- lega (P)allar ef stefnan og markmiðin eru enn, meira en hálfu ári síðar, harla óljós. Í lúdó kom oft fyrir að lent var aftur á byrjunarreit. En þar var ekkert undir} Vantar alvöruleiðsögn Þ að eru áttatíu ár í dag síðan John Lennon söng sitt fyrsta lag. Lista- maður sem var snillingur og galla- gripur, samdi grípandi laglínur, stóð glaðlegur á sviðinu og fékk alla til þess að brosa með hnyttnum tilsvörum. Þegar hann var lítill strákur heima í Liverpool sagði mamma hans honum að hann væri frá- bær. Var hann frábær? Sjálfur sagði Lennon að öllum þætti vænt um þá sem væru komnir undir græna torfu, sem er auðvitað ekki rétt. Hann var óneitan- lega virtur og dáður á sinni stuttu ævi. Bítlarnir sömdu hundruð frábærra laga og hættu aldrei að reyna eitthvað nýtt. Margir listamenn semja sífellt sama lagið eða skrifa aftur og aftur sömu bókina. Í hvert skipti sem John og Paul náðu nýjum hæðum datt þeim ekki í hug að hvílast þar heldur héldu ótrauðir áfram. Lennon var enginn venjulegur rokkari. Lögin eiga eftir að lifa í margar aldir, en hann hafði líka eitthvað að segja. En það var ekki allt flókið: All you need is love. Boðskapur sem er svo einfaldur að einhverjir hlæja að honum og telja slíka speki í besta falli duga fyrir blómabörn, fólk sem þor- ir að beita ímyndunaraflinu. Hugsaðu þér hvergi nein landamæri lögð að drepa og deyja fyrir né deilt um trúarbrögð. Já, hugsaðu þér heiminn halda grið og frið. Mér er sagt ég sé með óra en ég er ekki einn um það. (Þýðing Þórarins Eldjárns) John Lennon spurði: Hver er ég? Enginn veit það nema ég. Hver ætli hann hafi verið? Slagsmálahundur sem var vondur við konur fram eftir ævinni? Eða femínisti sem söng um ást og frið? Þann Lennon viljum við muna. Þann sem söng: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Enn í dag – alveg eins og fyrir hálfri öld – þrífast hópar á hatri. Stjórnmálamenn, trúar- leiðtogar, ritstjórar og svo miklu fleiri gera lít- ið úr öðrum – hinum – meðan „við“ erum borin til betra lífs af því að við erum betri. Falsfréttir og matreiðsla á sannleikanum eru lýðskrum- urum eiginleg meðan venjulegt fólk segir eins og skáldið: Við viljum bara sannleikann, segið okkur bara satt. Skömmu fyrir andlátið raulaði Lennon: Fólk spyr spurninga og veit ekkert í sinn haus. Og ég segi þeim að það séu engin vandamál, bara lausnir. Svo skruppu þau John og Yoko í stúdíóið að kvöldi 8. desember 1980. Hann kom aldrei heim aftur. Ég bjó í Bandaríkjunum og var að horfa á amerískan fótbolta þetta kvöld. Ég man það eins og það hefði gerst í dag þegar þulurinn sagði: „Vinsælasti Bítillinn er dáinn.“ Oh boy. Benedikt Jóhannesson Pistill Á eilífa jarðarberjaakrinum Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ídag eru áttatíu ár liðin frá þvíað John Lennon fæddist íLiverpool árið 1940. Tón-smíðar hans með Bítlunum og síðar þegar hann var á eigin veg- um hafa fyrir löngu tryggt Lennon sess sem einn fremsti dægurlaga- höfundur 20. aldarinnar. Lennon samdi með meðhöfundi sínum Paul McCartney um 180 lög, þó að framlag þeirra væri mismikið eftir hverju lagi. Þar á meðal eru ódauðleg listaverk á borð við A Day in the Life, I am the Walrus og Strawberry Fields Forever, játn- ingar eins og I am a Loser og Help!, og lög sem ekki bara fönguðu tíð- arandann heldur ýttu einnig upp- tökutækni þess tíma lengra fram á við og ruddu brautina fyrir tónlist- armenn síðari tíma, samanber lagið Tomorrow Never Knows. Lennon hélt áfram lagasmíðum sínum eftir að Bítlarnir slitu sam- starfi sínu, en hann gaf út sjö sóló- plötur á árunum milli 1970 og 1980, og má þar einnig finna sumar af mestu dægurlagaperlum síðustu aldar, lög eins og Working Class Hero, Jealous Guy og (Just Like) Starting Over, sem kom út á Double Fantasy, síðustu plötunni sem John náði að taka upp fyrir andlát sitt ár- ið 1980. Barðist fyrir heimi án átaka Frægasta lag Lennons er þó án nokkurs vafa Imagine, sem kom út á samnefndri plötu árið 1971, en þar bað John áheyrandann að ímynda sér heim án eigna, trúarbragða, eða nokkurs þess sem gæti gefið mann- fólkinu ástæðu til þess að deila og drepa hvert annað. Lagið er um margt lýsandi fyrir þá baráttu fyrir friði sem John og síðari eiginkona hans, Yoko Ono, tókust á hendur, en sú barátta átti sér ýmsar birtingarmyndir. Árið 1969 nýttu hjónin sér athyglina sem brúðkaup þeirra gaf til þess að mót- mæla Víetnamstríðinu með því að liggja uppi í rúmi á hóteli, bjóða fjöl- miðlum til sín og ræða við gesti og gangandi. Í leiðinni samdi John lag- ið Give Peace a Chance, mótmæla- lag, sem hefur yljað baráttufólki fyrir friði (og því að fá handritin heim) um hjartarætur í rúm fimm- tíu ár. Tveimur árum síðar, eða um jólin 1971, vöktu hjónin aftur athygli, að þessu sinni fyrir að kaupa auglýs- ingaskilti í tólf stórborgum þar sem stóð í svörtu letri á hvítum bak- grunni að stríð væru á enda ef fólk vildi. Þetta athæfi vakti mikla at- hygli, þótt einhverjir teldu friðar- boðskapinn ekkert nema auglýs- ingabrellu til þess að vekja athygli á jólasmáskífu Johns og Yoko, Happy XMas (War is Over). Þá hafði bar- átta þeirra þau áhrif að bandarísk yfirvöld reyndu um hríð að vísa John úr landi, en hann hafði þá flust til New York. Dýrlingur eftir andlátið Hið voveiflega fráfall Lennons í desember 1980 varð til þess að gera John nánast að dýrlingi í huga al- mennings, friðarpostula og íkoni sem vart hefði stigið feilspor. Sjálfur hefði John varla tekið undir þá lýsingu, enda var hann um margt þversagnakenndur. Móður- missir í æsku, reiði unglingsáranna, skyndileg heimsfrægð og misheppn- að hjónaband mörkuðu spor sem fæstir myndu tengja við dýrling. John Lennon átti sér vissulega ýmsar hliðar. En á sama tíma náði hann með tónsmíðum sínum að lyfta öllum, þar á meðal sjálfum sér, á að- eins hærra plan. Og til lengri tíma litið er heimurinn fegurri, því að John Lennon var til. Margbrotinn en breyskur snillingur AFP John Lennon Í dag eru áttatíu ár frá fæðingardegi Johns Lennon. Friðarsúlan í Viðey, listaverk Yoko Ono, verður tendruð í kvöld í 14. sinn, og hefst athöfn- in kl. 21. Friðarsúlan mun varpa ljósi upp í himininn til 8. desem- ber næstkomandi. Vegna kórónuveirufaraldurs- ins verður enginn viðburður í Viðey í tengslum við tendrun- ina, en þess í stað verður streymt beint frá henni. Mun Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri flytja stutt ávarp og að því loknu verður kveikt á Friðar- súlunni, að því er kemur fram í tilkynningu. Tendruð í 14. sinn í kvöld FRIÐARSÚLAN Í VIÐEY Morgunblaðið/Styrmir Kári Friðarsúlan Athöfninni verður streymt vegna faraldursins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.