Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 Á fimmta áratug síð- ustu aldar opnuðu þeir kumpánar Silli og Valdi fjarska lítilmótlegan veitingastað á Lauga- vegi 11. Um þetta leyti áttu þeir félagar tugi húseigna víða í borg- inni. Þessi staður var athvarf fjölmargra mennta- og listamanna árin frá 1948-1970, þeg- ar staðnum var breytt í dýrindis mat- sölustað. Ég var í Versló árin 1952- 1958 og sótti þennan stað með fé- lögum mínum, Alfreð Flóka teiknara, Helga úrsmið Guðmundssyni og fleirum. Þarna var fjölskrúðugt mannlíf. Þarna sátu þeir og blönduðu sér í kaffi og gosdrykki – mágur minn Jökull Jakobsson, Elías Mar, Steinn Steinarr, Hannes Pétursson, Sigfús Daðason, Jón Óskar, Þóra Elfa Björnsson, Helgi Kristinsson frá Þórustöðum, Ingimar Erlendur o.fl. o.fl. Einn gesturinn vakti sér- staka athygli mína. Hann var alltaf einn – með snarbeyglaðan hattkúf sat hann og yrti ekki á neinn og allir létu hann í friði. Mér lék hugur á að vita hver þetta væri. Eitt kvöldið gekk ég með honum heim til hans. Hann reyndist eiga heima á Hverfisgötu 32, gömlu gistihúsi, sem Þuríður Þórarinsdóttir, systir séra Árna á Stóra-Hrauni, átti. Þetta var forskalað timburhús, þrjár hæðir og kjallari. Skjólstæð- ingur minn bjó í her- bergi á þriðju hæð. Það var heldur ófélegt um að litast í herberginu. 20-30 hlandkoppar stóðu barmafullir á gólfinu. Fyrsta verk mitt var að sturta úr þeim í nærliggj- andi salerni og gekk það greiðlega. Svo fór ég að rekja garnirnar úr Har- aldi. Hann átti mjög erfitt um mál en með þolinmæði og biðlund kom ým- islegt í ljós. Steingrímur skáld Thorsteinsson, faðir Haraldar, lést 1913. Hann var þjóðskáld, dáður og virtur um allt land. Hafði þýtt „Þúsund og eina nótt“ og verið rektor Lærða skólans lengi. Haraldur hélt til náms í Lond- on upp úr 1910. Þar komst hann í kynni við „Bloomsbury-klíkuna“ sem svo var nefnd. Hún samanstóð af eft- irtöldum skáldum: Evelyn Waugh, T.S. Eliot, Esra Pound, Wyndham Lewis, bölsýnisskáldum og nokkrum myndlistarmönnum, þ.á m. Audrey Bearesey, Sainborough og fleirum. Nú nú. Haraldur skrifaði nokkur leikrit en hann sagði þau löngu týnd og tröllum gefin. Jæja. Nokkrum dögum síðar kom Axel bróðir Har- aldar því til leiðar að hann var flutt- ur, meistari Haraldur, hálfnauðugur á Hjúkrunarheimilið Grund við Hringbraut. Nokkrum dögum síðar fór hann út að labba og ætlaði að kaupa sér sígarettur hjá Silla og Valda á horni Furumels og Hring- brautar en varð fyrir bíl og lést. Þannig lauk lífi sonar þjóðskáldsins, sem hafði átt dularfulla skáldævi í Bretlandi. P.s. Haft var eftir próf. Níels P. Dungal, sem krufði aðiljann, að hann hefði aldregi séð aðra eins beina- hrúgu. Hver var Haraldur Hamar Thorsteinsson? Eftir Braga Kristjónsson »Einn gesturinn vaktisérstaka athygli mína. Hann var alltaf einn – með snarbeygl- aðan hattkúf sat hann og yrti ekki á neinn og allir létu hann í friði. Bragi Kristjónsson Höfundur var fornbókakaupmaður í Reykjavík í 40 ár. Þessa dagana rís þriðja bylgja Covid- 19-faraldursins sem hæst hér á landi og er óhætt að segja að við lifum á einstökum tímum í okkar sam- félagi. Mikilvægt er að allir aðilar í þjóð- félaginu standi saman í baráttunni gegn þessum vágesti þó ástandið sé sannarlega farið að reyna vel á þol- inmæði okkar allra. Veiran fer ekki í manngreinarálit og getur komið upp hvar sem er. Veiran veldur ekki bara ótímabærum andlátum og erfiðum veikindum hjá áhættuhóp- um. Sumir þeirra sem sýkjast og fá jafnvel ekki mikil einkenni geta samt verið að glíma við eftirstöðv- arnar í langan tíma eftir sýkingu. Það er því ekki í boði að leyfa veir- unni að leika lausum hala. Enginn vill hafa það á samviskunni að smita aðra manneskju þannig að hún hljóti varanlega skaða af. Endurhæfing covid-sjúklinga á Reykjalundi Í upphafi faraldursins gerðu Reykjalundur og Landspítali samn- ing um að Reykjalundur myndi sinna endurhæfingu covid- sjúklinga af Landspítala. Það voru sjúklingar sem lagst höfðu inn á spítalann vegna covid-sýkingar og þurftu endurhæfingu til að geta út- skrifast; komast á fætur og aftur út í hið daglega líf. 16 einstaklingar fóru í gegnum þetta ferli á Reykja- lundi í vor. Í sumar og haust hefur orðið töluverð umræða um eftirköst þeirra sem sýkst hafa af covid og endurhæfingu þeirra. Þetta er hóp- ur fólks sem sýktist en fékk ekki endilega mikil einkenni, a.m.k. ekki það mikil að þurfa að leggjast inn á spítala. Hins vegar hafa borist margar beiðnir á Reykjalund um endurhæfingu þessa hóps þar sem fólkið glímir við einkenni löngu eft- ir smit. Nú eru komnir sjö í með- ferð á Reykjalundi með þessa lýs- ingu. Yfir fjörutíu einstaklingar eru á biðlista og fjölgar beiðnunum í viku hverri. Þessa dagana er Reykjalundur að setja í gang sér- stakt úrræði til að þjónusta þennan hóp með það að markmiði að koma þeim aftur út á vinnumarkaðinn og út í lífið eins og hægt er. Um 10% sjúklinga virðast fá langvarandi einkenni Enginn veit með vissu hvað sá hópur er stór sem fær langvarandi einkenni eftir covid-smit. Þótt ná- kvæmar rannsóknir skorti hafa sér- fræðingar erlendis leitt að því lík- um að það séu að minnsta kosti 10%. Þessi hópur er að glíma við eftirstöðvar mörgum vikum eða mánuðum eftir sýkingu. Þetta lýsir sér í fjölbreytilegum einkennum svo sem síþreytu, þrekleysi, verkj- um og öndunarfæraeinkennum svo dæmi séu nefnd. Merkja má við- horfsbreytingu hjá almenningi gagnvart smiti síðan í vor. Hjá yngra og miðaldra fólki var hugs- unin oft sú að viðkomandi vildi ekki smitast til að verða ekki valdur að því að smita aðra, til dæmis nána ættingja eða vini sem væru í áhættuhópum og gætu orðið alvar- lega veikir eða jafnvel dáið. Í dag er vitað að hluti þeirra sem sýkjast getur þurft að glíma við langvar- andi einkenni sem leiða til skerð- ingar á starfsorku og lífsgæðum, jafnvel í mjög langan tíma. Þar sjáum við að frískt fólk, t.d. í yngri kantinum og miðaldra, getur vel lent í þessum hópi. Ákvarðanir byggðar á gögnum og þekkingu á eðli smitsjúkdóma Við Íslendingar getum hrósað happi að hafa „þríeykið“ okkar við stjórnvölinn. Þótt margir hafi sann- arlega lagt hönd á plóginn í barátt- unni við covid hér á landi þarf samt öfluga leiðtoga með bein í nefinu til að stýra málum, lesa í aðstæður á hverjum tíma og hafa dug til að láta ekki undan alls kyns þrýstingi og sérhagsmunum. Þótt margt sé vitað um hvernig samfélög eiga að bregð- ast við alvarlegum smitsjúkdómum þá er ný veira með óþekkta eigin- leika ávallt mikil áskorun. Meta þarf stöðuna og taka ákvarðanir á degi hverjum. Oftar en ekki þarf að bregðast hratt við og byggja á þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Sumt af því sem gert er má eflaust gagnrýna í baksýnisspegli, en þegar ákvarðanir hafa verið teknar er mjög mikilvægt að fylgja þeim. Auðvitað bitnar ástandið mjög mismunandi á okkur sem samfélagsþegnum og því þarf að sýna skilning og umburðarlyndi. Stöndum saman! Á tímum sem þessum er mikil- vægt að við stöndum saman. Sundr- ung og sérhagsmunir eru besti vin- ur veirunnar. Nú ríður á að við Íslendingar vinnum saman, fylgjum leiðbeiningum og sigrum þessa veiru. Aðeins þannig vinnum við okkur út úr þessu ástandi. Það er því vel við hæfi að enda á orðum Þórólfs sóttvarnalæknis: Sam- staðan er besta smitvörnin! Eftir Pétur Magnússon og Stefán Yngvason Stefán Yngvason » Við erum með öfluga leiðtoga með bein í nefinu til að stýra mál- um, lesa í aðstæður á hverjum tíma og hafa dug til að láta ekki und- an alls kyns þrýstingi og sérhagsmunum. Pétur er forstjóri Reykjalundar. Stef- án er framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Pétur Magnússon Samstaðan er besta smitvörnin Náunginn á undan mér í röðinni var með skítugt sítt hár. Hann virtist sveittur og hall- ærislegur, í fáránlegum lörfum. Engan veginn í takt við tímann. Það var fnykur af honum. Ætlaði hann aldrei að ljúka erindinu? Hann var farinn að fara veru- lega í taugarnar á mér. Hélt hann að ég gæti eytt öllum deginum í að bíða vegna hans? Svo leit hann við og horfði ákveðið en afar vingjarnlega í augun á mér. Þetta var einhvern veginn allt öðru vísi maður en ég hafði ímyndað mér. Eitt augnablik fannst mér ég mæta augnaráði frelsarans. Fer hans minnsti bróðir eða systir kannski bara í taugarnar á mér eftir allt? Ég leit undan, varð niðurlútur. Ég skammaðist mín. Við erum öll einhvern veginn Í skóginum leynast margvísleg tré, stór og smá. Ólíkar tegundir með misjafnt vaxtarlag og fjölbreyttar greinar. Öll eru þau þó sprottin úr sama jarðveginum. Sum blómgast vel. Eru tignarleg. Berast á. Halda lífi. Og bera mikinn og góðan ávöxt. Önnur ná sér einhvern veginn aldrei alveg almennilega á strik. Hrörna fljótt, visna og deyja. Ástæðuna þekkjum við ekki. Og varla er við sjálf trén að sakast! Ástæðan er ráðgáta sem okkur er ekki gefið að skilja né útskýra með nokkru móti, þótt við sann- arlega vildum. Við setjum okkur í stellingar, gerumst spekingsleg, höldum ráðstefnur og reynum að komast að því hvers vegna trén eru eins og þau eru. Við mannfólkið er- um líkt og trén í skóg- inum eða greinar trjánna. Einungis sem blaktandi strá í vindi sem reyna að laufgast, ná áttum og sanna sig í lífsins stormi. En okkur tekst það greinilega ekki alltaf, þrátt fyrir einlægan ásetning og einbeitt- an vilja. Munum bara að dæma ekki trén í skóginum því þau eru bara eins og þau eru. Þau þarf að rækta og að þeim að hlúa. Þau þarfnast um- hyggju, skilnings og samstöðu rétt eins og við. Þau þurfa að vera vinir og standa saman, þótt ólík séu. Því þau þurfa hvert á öðru að halda til að komast af og mynda skjólgóðan skóg. Litróf Við erum alls konar og allir eru einhvern veginn. Sumir eru öðruvísi og aðrir hinsegin. Samt göngum við öll, misjöfnum takti, sama veg í átt til lífsins sólar. Undir regnboga him- insins sem götu okkar greiðir. Í kær- leikans faðm sem líf útbreiðir svo við komumst af, lífi höldum og rötum heim. Ekki veit ég hvers vegna þú ert eins Við erum alls kon- ar en einstök og öll jafn mikilvæg Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson Ekkert mótar mann- lífið meir í heiminum nú um þessar mundir en sú veira, sem kom upp á markaði með fisk og ferskar kjötvörur í Wuhan í Kína í lok árs 2019 og stafaði af yfir- þyrmandi sóðaskap og í kjölfarið síðbúnum við- brögðum kínverskra stjórnvalda. Leiddi það síðan eins og alkunna er til útbreiðslu veirunnar um allan heim með hörmu- legum afleiðingum, sem engan veginn er séð fyrir endann á í dag, bæði hvað snertir tölu látinna og umfang fjár- tjónsins. Að geta rústað umheiminum eingöngu með eigin sóðaskap er at- hyglivert, en skelfilegt tilhugsunar. Er ljóst nú þegar, að afleiðingar þessa veirusmits frá Kína eru farnar að koma fram í eyðileggingu á efna- hag allra þjóða heimsins og hefur að auki eitrað daglegt líf allra íbúa land- anna með einum eða öðum hætti. Get- ur þá hver og einn litið í eigin barm hvað það snertir. Hversu gífurlega mikið og beint efnahagslegt tjón þjóða heimsins verður af völdum þessarar veiru, þeg- ar upp verður staðið, er að sjálfsögðu ekki hægt að áætla í dag. Þó má færa rök fyrir því, að fjártjónið muni alla vega skipta þúsundum milljarða, sem tjónvaldurinn Kína ber fulla bóta- ábyrgð á. Það að fjártjónið sé gríð- arlegt að umfangi og nái til allrar heimsbyggðarinnar dugar ekki tjón- valdi til að fría sig skaðabótaábyrgð, né að hann geti borið fyrir sig gagn- vart tjónþolum, að hann hafi sjálfur orðið fyrir efnahagslegu tjóni vegna veirunnar, sem eigi af þeim sökum að leiða til sýknu hans. Ættu allar þjóðir heims að sameinast varðandi kröfugerð á hendur Kína og fylgja því fast eftir, þótt slíkar skaða- bætur muni aldrei geta bætt fjártjón þjóðanna að fullu, sem þessi veira hefur og mun valda þeim, enda horfir í mestu alþjóðakreppu síðustu 100 ára. Mann- fallið verður þó aldrei bætt eða eyðileggingin á daglegu lífi fólks og á mannlegum samskiptum, sem þessi veira hefur leitt af sér um allan heim. Hvað þá annað óbeint tjón, sem af veirunni stafar. Að sjálfsögðu ber í þessu sam- hengi að þakka fyrir þá aðstoð, sem Kínverjar hafa veitt, en hvað vænt- anlega kröfugerð okkar Íslendinga snertir munu stjórnvöld væntanlega taka tillit til þeirra 35 milljón króna, sem kínversk fyrirtæki gáfu til kaupa á hlífðarbúnaði, grímum o.þ.l., að frumkvæði kínverska sendiráðsins. Varðandi skaðabótaskyldu Kín- verja þá gæti maður til samanburðar í dæmaskyni spurt sig, hvort það væri nóg, að sá sem t.d. veldur gríðar- legum eldsvoða, sem leiðir til fjölda- dauða og gífurlegs fjártjóns og á sjálfur alla sökina á upptökum elds- ins, sé þá þar með laus allra mála, ef hann hefur sjálfur náð að slökkva eld- inn í eigin húsi, þar sem upptök elds- ins voru. Hafi jafnframt að einhverju leyti tekið þátt í að slökkva eldinn í húsum annarra, sem standa öll í ljós- um logum um alla borgina. Gefið eig- endum þeirra góð ráð um hvernig standa eigi að slökkvistarfinu og til viðbótar slakað út einhverju fé hinum til handa til kaupa á hlífðarbúnaði og reykgrímum. Skaðabótaskyldan Kínverska Covid-19-veiran Eftir Jónas Haraldsson Jónas Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.