Morgunblaðið - 09.10.2020, Side 19

Morgunblaðið - 09.10.2020, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 ✝ Sigurrós Gísla-dóttir fæddist á Hesteyri, Sléttu- hreppi 18. október 1929. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 28. sept- ember 2020. Foreldrar henn- ar voru Sigfúsína Halldóra Bene- diktsdóttir, f. á Sæ- bóli í Sléttuhreppi 1891, d. 1989, og Gísli Rósenberg Bjarnason, f. á Vöglum í Þela- mörk í Eyjafirði 1882, d. 1936. Bræður Sigurrósar voru Kristinn Finnbjörn, f. 1917, d. 2012, og Hjálmar Benedikt, f. 1918, d. 2015. Samfeðra þeim er Adolf, f. 1919, d. 1995. Sigurrós giftist 15. janúar 1949 Guðmundi Björnssyni raf- virkjameistara, f. 23.10. 1927, d. 28. ágúst 2012. Foreldrar hans voru Sigurlín Jónsdóttir, f. 1903, d. 1953, og Baldur Guðmunds- son, f. 1905, d. 1947. Börn Sigurrósar og Guð- mundar eru: 1) Lilja, f. 3. október 1948, maki Stefán Þór Sigurðs- son, f. 1951. Dóttir Lilju frá fyrra hjónabandi er: a) Hulda Rós, f. 1966, maki Kristján Jónsson, f. 1963. Dætur Lilju og Stefáns eru: berti Leifi Vigfússyni, f. 1993. Langömmubörnin eru 18 og langalangömmubörnin þrjú. Sigurrós var húsmóðir og hugsaði af myndarskap um heimili sitt og börn þrátt fyrir langvinn veikindi sem fylgdu henni alla ævi. Þegar börnin voru uppkomin starfaði hún auk heimilisstarfanna við ýmis störf, meðal annars í dósaverksmiðj- unni í Kópavogi, á saumastofu og á leikskólum. Þar var hún á heimavelli og tók upp á því að læra á gítar til að geta sungið og spilað fyrir börnin. Hún var söngelsk og tók þátt í kórastarfi síðari árin meðan hún gat. Sigurrós og Guðmundur hófu búskap sinn í Reykjavík, í Ein- holti 11, en fluttu síðan í Kópa- vog árið 1950 og voru þar frum- byggjar. Þau bjuggu í Kópavogi allan sinn búskap, lengst af í Bræðratungu 4, þar sem þau byggðu sér raðhús árið 1959 og bjuggu þau þar í 28 ár. Þau fluttu í Gullsmára 9 árið 2003 og þar bjó Sigurrós þar til hún flutti á Skjól í ársbyrjun 2019. Útför Sigurrósar fer fram frá Digraneskirkju í dag, föstudag- inn 9. október 2020, og hefst at- höfnin klukkan 13. Í ljósi að- stæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en at- höfninni verður streymt á net- inu: https://www.digraneskirkja.is Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat b) Aðalheiður, f. 1973, maki Helgi Jökull Hilmarsson, f. 1973. c) Margrét, f. 1974, maki Stefán G. Stefánsson, f. 1970. 2) Halldóra, f. 23. nóvember 1952, maki Friðgeir Snæbjörnsson, f. 1947. Börn Hall- dóru frá fyrra hjónabandi eru: a) Birgitta, f. 1970. b) Silja Björg, f. 1974, maki Sigurður Jónsson, f. 1972. c) Vaka Dóra, f. 1979, maki Ari Már Heimisson, f. 1975. d) Róbert, f. 1989, maki Sandie Boyer, f. 1990. 3) Björn, f. 19. október 1959, maki Natalía Jak- obsdóttir, f. 1961. Dóttir Björns af fyrra sambandi: Dagný Ósk, f. 1988, í sambandi með Kristjáni Kristjánssyni og fóstursonur: Kristján Freyr, f. 1981. Sonur Natalíu og fóstursonur Björns: Dimitri, f. 1980, maki Alex- andra, f. 1984. 4) Sóley, f. 22. mars 1963, maki Einar Unn- steinsson, f. 1962. Dætur þeirra eru: a) Aníta Berglind, f. 1982, maki Ómar Ingason, f. 1982. b) Helena Rut, f. 1984, maki Ragn- ar Ómarsson, f. 1984. c) Elín Rós, f. 1997, í sambandi með Al- Elsku hjartans amma Rósa hefur kvatt okkur. Við eigum svo margar góðar minningar um þig, elsku amma. Þú varst góðhjörtuð og þú hugs- aðir svo vel um okkur. Eins og þegar þú sendir okkur skyr og mysing þegar við systurnar bjuggum í Danmörku af því að þú vissir að við gátum ekki lifað án þess. Það var einstök til- hlökkun tengd því að fara í strætó í bæinn til að hringja heim til Íslands úr símstöðinni og heyra í ykkur afa. Við minn- umst þess hversu notalegt okk- ur þótti að koma til ykkar afa í Bræðratunguna, að fá Sinalco í eldhúsinu, leika okkur að öllum gömlu, skemmtilegu leikföngun- um og sitja tímunum saman og lesa bækur í litla herberginu uppi á lofti. Þú hafðir alla tíð unun af því að vera innan um börn og þú naust þess sérstak- lega að koma á „barnaheimilið“ og spila á gítarinn fyrir börnin í söngstund. Þar áttir þú líka góðar stundir með Róberti þar sem þið sunguð og spiluðuð saman. Þú ræktaðir ekki bara okkur barnabörnin heldur minnumst við þess hversu fal- legir garðarnir þínir voru og hversu mikið það gladdi þig að sjá börnin okkar á hlaupum inn- an um fallegu blómin þín í Vall- argerðinu. Allar sögurnar sem þú sagðir okkur frá æsku þinni og þegar þú varst ung eru okk- ur svo ómetanlegar núna, og okkur þykir vænt um að hafa komið með þér á æskustöðv- arnar á Hesteyri og í húsið okk- ar í Aðalvík. Við erum svo þakk- lát fyrir ástina og athyglina sem þú sýndir okkur og börnunum okkar, þú hafðir alltaf áhuga á því sem við vorum að gera og þú fylgdist svo vel með okkur öllum. Elsku amma Rósa okkar, við kveðjum þig með söknuði með uppáhaldslaginu hans afa um Rósina sína. Takk fyrir allt og allt. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængjavíddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristalstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson) Þín, Birgitta, Silja Björg, Vaka Dóra og Róbert. Elsku Rósa amma og langamma. Það er erfitt að kveðja þig, svo falleg sál og hlý kona. En við getum huggað okkur við það að nú ertu hjá Mumma afa. Þið afi voruð svo stór hluti af lífi okkar. Á milli okkar var mjög náið og gott samband sem aldrei bar skugga á. Þú varst aðeins 36 ára gömul þegar ég, Hulda Rós, fæddist. Mér var gefið fallega nafnið þitt Rós. Margs er að minnast á þeim 54 árum sem við vorum samferða í lífinu. Það er svo minnisstætt hvað það var alltaf gott að koma á heimili ykkar afa. Margar fallegar og skemmtilegar minningar frá Bræðratungunni í Kópavogi. Þar var afi oft í bílskúrnum að dunda og þú amma naust þín við að reyta arfa og rækta blóm. Þú varst mikill sóldýrkandi og lágum við oft og spjölluðum í sólinni. Margt er að þakka. Þeg- ar ég, Hulda Rós, var 17 ára gömul bjuggu foreldrar mínir sitt á hvoru landshorninu og Kristján mikið í burtu vegna síns knattspyrnuferils. Þá fund- um við hvað það var gott að eiga ykkur afa að, sem alltaf voruð til staðar fyrir okkur. Ég man þegar ég, Hulda Rós, heimsótti þig á spítala, þá hafðir þú nývöknuð eftir aðgerð verið að hlusta á lýsingu á knatt- spyrnulandsleik þar sem Krist- ján spilaði með. Þú varst alltaf svo áhugasöm um allt sem sneri að okkur. Seinna þegar börnin okkar fæddust var alltaf hægt að leita til ykkur afa með aðstoð og leiðbeiningar. Heimilið ykkar afa var alltaf opið fyrir okkur, við fengum gistingu þegar við þurftum á því að halda. Þegar við fjölskyldan bjuggum bæði í Noregi og Svíþjóð voruð þið dugleg að hafa reglulega sam- band við okkur. Þið afi gáfuð okkur ómælda ást og umhyggju gegnum árin og stuðning í veik- indum. Síðustu árin hefur verið ljúft að heimsækja þig í Gull- smára, alltaf var stutt í brosið og gestrisnina. Þegar þú bauðst okkur kaffi, spurðir þú alltaf „er þetta ekki hálfgert te?“ Þar sem þú dvaldir á hjúkrunarheimilinu Skjóli síðustu mánuði, þá gátum við talað við þig á facetime og sýnt þér lömbin í vor. Það vakti gamlar minningar hjá þér, þú talaðir um dýrin sem foreldrar þínir áttu. Elsku Rósa amma og langamma, við erum þakklát fyrir að þú skulir hafa alltaf verið hress og ung í anda fram á síðasta dag. Takk fyrir allt og allt, guð geymi þig. Hulda Rós, Kristján, Hilmar og Lilja Dís. Í dag kveðjum við föðursyst- ur okkar Sigurrós Gísladóttur, sem kölluð var Rósa af fjöl- skyldu og vinum. Rósa bjó á heimili foreldra okkar fyrstu ár- in sín í Reykjavík. Á 17. afmæl- isdegi Rósu fæddist Halldóra, annað barna þeirra hjóna. Var það Rósu mikið gleðiefni að hafa fengið bróðurdóttur í af- mælisgjöf. Milli þeirra mynd- uðust sterk tengsl sem héldust alla tíð. Þegar Halldóra amma okkar fluttist til Reykjavíkur settist hún að á heimili okkar og því var mikill samgangur á milli fjölskyldu Rósu og okkar. Rósa missti Gísla föður sinn árið 1936 þegar hún var sjö ára gömul og bjó áfram með móður sinni og bræðrum, þeim Kristni og Hjálmari, á Hesteyri. Bræð- urnir fluttu fljótlega að heiman en vorið 1943 fluttu þær mæðg- ur til Þingeyrar þar sem Hjálm- ar bjó. Til stóð að Rósa myndi fermast í Hesteyrarkirkju á hvítasunnudag og var áætlað að Hjálmar fengi bát til að sækja þær strax eftir ferminguna. Það atvikaðist þó þannig að í vikunni fyrir hvítasunnu fékkst bátur til flutninganna. Hesturinn Blesi og kýrin voru sett um borð ásamt búslóðinni og var siglt til Þingeyrar. Morguninn eftir var Rósa svo send með ferju yfir að Mýrum í Dýrafirði til þess að hitta prestinn þar, og var hún fermd að Mýrum á hvítasunnu- dag. Móður hennar þótti sárt að Rósa skyldi missa af því að eiga þessa stund með félögum sínum í Hesteyrarkirkju og ljóst að það hefur ekki verið auðvelt fyr- ir unga stúlku að þurfa að sætta sig við það. Þegar amma okkar lést var ákveðið að grafa jarðneskar leif- ar hennar í leiði afa á Hesteyri. Sumarið 1990 fóru afkomendur þeirra og fjölskyldur til Hest- eyrar og minntust þeirra við leiði afa um leið og duftkerið var jarðsett. Þau Rósa og Mummi, eiginmaður hennar, voru bæði með í för og héldu ut- an um okkur sem yngri vorum. Á þessum fagra stað fundum við vel fyrir rótum okkar og sú hugmynd fæddist að reyna að koma okkur upp aðstöðu til að geta dvalið þar á sumrin. Ekki varð þó úr að við gætum komið okkur fyrir á Hesteyri en ákveðið að byggja sumarhús á Sæbóli í Aðalvík á arfleifð okkar eftir Hjálmfríði langömmu. Það voru Rósa og Kristinn faðir okkar og fjölskyldur þeirra sem sameinuðust um þetta verkefni með góðfúslegu leyfi Hjálmars bróður þeirra. Minningarnar frá byggingar- árunum í Aðalvík eru margar og voru Rósa og Mummi alltaf með í för og drógu ekki af sér við framkvæmdirnar. Rósa var ein- staklega hjartahlý og lét sér annt um að öllum liði vel. Börn- in okkar hændust að henni eins og hennar eigin barnabörn og minnast þau hennar með hlýju og þakklæti. Við þökkum Rósu fyrir ánægjulega samfylgd og færum börnum hennar og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðj- ur. Jakob, Halldóra, Gísli og Jónína Vala. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Það er ljóst að minningar um Sigurrós – eða Rósu, eins og hún var alltaf kölluð – munu lifa með eftirlifendum hennar alla tíð. Manngæzka hennar lýsti af öllum hennar gjörðum og alltaf tókst henni að finna jákvæðni í umhverfinu. Rósa fæddist og átti fyrstu ár sín á Hesteyri við Hesteyrarfjörð vestra. Þar átti hún heima á Langavelli ásamt foreldrum sínum og tveimur eldri bræðrum. Minntist hún alltaf æskuslóða sinna með mik- illi hlýju en vegna mikilla breyt- inga í þjóðfélaginu og háttum manna lagðist byggð þar vestra af á árunum 1945-50 og flutti móðir hennar, Sigfúsína Hall- dóra Benediktsdóttir, sem þá var orðin ekkja, til Þingeyrar til sonar síns, Hjálmars. Þaðan lá síðar ferð þeirra suður í Reykjavík þar sem Rósa giftist síðar Guðmundi Björnssyni, sem lézt árið 2012. Ég kynntist Rósu þegar dótt- ir hennar, Lilja, kynnti mig fyr- ir móður sinni í Kópavoginum, sitjandi við hannyrðir í stofunni, og var hlýlega tekið á móti mér. Varð okkur strax hlýtt hvoru til annars og hélzt það alla tíð. Alltaf reyndi Rósa að sjá bjart- ari hlið málsins og draga fram. Aldrei gat Rósa annað en sagt sannleikann í hverju máli og kunni ekki þá list að skreyta um atvik. Er mér sérstaklega minn- isstætt þegar við vorum stödd vestur í Aðalvík við byggingu sumarhúss ættarinnar að ég límdi „TAXI“-miða á gamlan jeppa sem Sveinn í Þverdal, Að- alvík, átti. Þegar hann tók eftir því gekk hann á milli manna og spurði hver hefði gert þetta og lét sem mikil alvara væri. Enginn sagð- ist hafa tekið eftir því og endaði hann á að spyrja Rósu, sem hann vissi að gæti ekki annað en sagt sannleikann. Höfðu menn gaman af. Rósa var mikill ættfræðari og komst að því að við værum skyld langt aftur í ættir. Rósa var einstaklega barngóð og hændust börn því mjög að henni. Allra síðustu árum hennar var, eftir hennar óskum, eytt á Skjóli. Heimsóttum við hana þangað og urðum vör við hve öllum starfsmönnum var hlýtt til hennar. Stefán Þór. Sigurrós Gísladóttir er dáin, á tíræðisaldri. Bræður hennar tveir, einnig frændfólk mitt, náðu og líka góðum aldri. Síðast hitti ég Sigurrós (Rósu) og dæt- ur hennar fyrir nokkrum árum er hún mætti nokkrum sinnum á árlega samkomu Lækjamóts- ættarinnar, er ég hélt þá heima hjá mér. Ljúfust minninga varð þó til í gamla daga í Kópavogi okkar, er okkur systkinunum var kom- ið fyrir hjá henni og fjölskyldu á meðan foreldrar okkar voru í ferðalagi. Var ég þá á unglings- aldri og fékk þá ljúfan þokka fyrir henni og dætrum hennar síðan. Mun það hafa verið í kringum árið 1965. Var hún jafnan einkar ljúf og nærgætin í sinni nálgun. Mér er þannig minnisstætt að hún sagði á næstsíðasta fundinum hjá mér, að nú væri bróðir hennar, Kristinn, ekki lengur til staðar til að leiða fjölskyldu- samkomur, en að nú væri ég víst kominn í það hlutverk! Anna, litla systir mín, mun einnig hafa dvalist hjá henni með okkur bræðrunum 1965, en hún býr nú í útlöndum. Þó finnst mér nú að eitthvað af fjölskyldunálægðinni við fjöl- skyldu Rósu hafi birst í eftirfar- andi ljóði mínu um Önnu, er hún var síðast á ferðinni hér, en það heitir: Bræður um sína systur, en þar skrifa ég sem svo: Hver hún er, skýrist af hnjánum: Kannski sleit hún þeim út sem hlaupagikkur; hún veit ekki hvort það var arfgenga gigtin; en hún er líka alltaf hlaupandi í blaki; og hún er alltaf á einhverri hreyfingu! Þrátt fyrir að hún sé svo fræðilega menntuð er hún líka svo hræðilega jarðbundin að hún er ekki búin að afgreiða félagsmálin fyrr en hún veit hvað þú velur þér í langlokur þínar! Tryggvi V. Líndal. Sigurrós Gísladóttir en Ronja, klárari en Hermione og flygi hærra og hraðar en Wonder Woman … Lífshlaup Aldísar var hvorki ævintýri né hefðbundin ástar- saga en samt dýrmætara en orð fá lýst. Það kenndi öllum sem henni kynntust hvað það er sem virkilega skiptir máli í lífinu; að hafa kærleikann að leiðarljósi og að stærsta gjöfin er að líkna þeim sem á þurfa að halda. Í mínum huga er það tilgangur- inn. Elsku Rakel mín, Doddi, Indriði, Jón Vilberg, Silló amma, Jóna amma, Steini afi og þið öll sem unnuð Aldísi; ég votta ykkur mína dýpstu sam- úð. Hún lifir áfram í hjarta okk- ar og hug. Inga Vala Jónsdóttir. Elsku Dísin mín, ég man svo vel daginn sem þú fæddist. Ég vonaði svo heitt og inni- lega að þú fengir að lifa og það fékkstu. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fylgjast með þér þessi ár sem þú varst hjá okkur. Oft var baráttan hörð og erf- ið bæði fyrir þig og þína nán- ustu en ég trúi því að þér líði vel núna, þú sért frjáls, dans- andi um í tjullkjól, með fallegu lokkana þína og sitjandi á skýi með bleikan ís. Ég er viss um að það var vel tekið á móti þér í himnaríki og þar klingir örugglega fallegi hláturinn þinn. Þú stoppaðir stutt hjá okkur en kenndir okkur svo margt. Það er svo dýrmætt. Elsku Rakel, Doddi, Indriði, Jón Vilberg, Jóna, Steini og Silló systir, Guð styrki ykkur og blessi í sorginni. Minningin um fallegu Aldísi lifir. Leiddu mína litlu hendi ljúfi faðir þér ég sendi Bæn frá mínu brjósti sjáðu blíði Jesú að mér gáðu (Ásmundur Eiríksson) Kveðja frá Sóleyju frænku Guðmundsdóttur og fjölskyldu. Við kveðjum þig í dag, elsku Aldís okkar. Þökkum fyrir allar stundirn- ar með þér og fjölskyldunni þinni. Þann 11. mars 2010 fæddist lítið viðkvæmt ljós og það litla ljós slokknaði þann 27. sept- ember 2020. Þetta ljós var Al- dísin okkar sem við vorum svo heppin að fá að kynnast og eyða dýrmætum stundum með. Vegferðin hennar var ekki auð- veld en hún sýndi mikla seiglu á sinni stuttu ævi og þurfti að berjast við margar hindranir. En hún átti fallegasta brosið og augunum hennar gleymir eng- inn. Við viljum kveðja Aldísi sem var okkur svo kær með þessum fátæklegu orðum og erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Sofðu nú blundinum væra, blessuð sé sálin þín hrein. Minningin, milda og tæra, merluð, í minningar stein. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Elsku Doddi, Rakel, Indriði, Jón Vilberg og aðrir ástvinir, okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra og megi Guð styrkja ykkur. Arna, Guðrún Linda og annað starfsfólk sérdeildar Giljaskóla. Elsku Baldur, svo einstök og falleg sál. Þú varst svo list- ræn og hugmynda- rík manneskja. Þú gafst mér ástæður til þess að brosa þegar stundir voru erfiðar í lífinu, þú veittir mér von og styrk. Þú gerð- ir mig að betri manneskju. Baldur Bjarnarson ✝ Baldur Bjarn-arson fæddist 21. mars 2003. Hann lést 26. júlí 2020. Baldur var jarð- sunginn 5. ágúst 2020. Mér þykir svo vænt um þig, orð geta ekki lýst hversu sárt þetta er. Minning þín lifir í huga mér. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þín vinkona, Belinda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.