Morgunblaðið - 09.10.2020, Page 22

Morgunblaðið - 09.10.2020, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á hennm sjálfri, sem hér segir Grensásvegur 10, Reykjavík, fnr. 201-5598, þingl. eig. Sólbakki ehf., gerðarbeiðendur Kvika banki hf. og E - fasteignafélag ehf., þriðju- daginn 13. október nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 8. október 2020 Uppboð Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Hafnarstræti 107, 600 Akureyri, s. 458 2600 Eftirtalin ökutæki og annað lausafé verða boðin upp á lóð Hafnarsamlags Norðurlands, við Fiskitanga á Akureyri, mánudaginn 19. október 2020, kl. 14:00 eða á öðrum stað eftir ákvörðun uppboðshaldara, sem verður kynnt á staðnum: 1 Bifreiðar og önnur ökutæki: 2 Annað lausafé: Mýrarfell ÍS13 skipaskárnr. 2428 Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera. Ekki er tekið við greiðslukortum. Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu embættisins og þar verða einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað er. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 8. október 2020 Halla Einarsdóttir, ftr. UPPBOÐ NBJ64 TM921 IKF31 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Kæru gestir, félagsstarfið okkar er enn opið en vegna fjöldatakmarkana verður að skrá fyrirfram á viðburði til að tryggja að ekki séu fleiri en 20 manns í rými. Við munum halda áfram að passa upp á 1-2 metra regluna. Nánari upplýsingar og skráning í síma 4112701 / 4112702. Tilkynningar um breytingar koma líka fram á face- booksíðu okkar Samfélagshúsið Aflagranda. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Stólajóga með Hönnu kl. 9. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kem- ur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffi- sala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 411-2600. Boðinn Félagsstarf er lokað, einungis opið í hádegismat í Boðanum. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf fyrir eldri borgara verður í Bústaða- kirkju í október vegna covid-19. Guð blessi ykkur öll og við sjáumst hress þegar að öllu er óhætt. Hólmfríður djákni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Minnum á grímuskyldu í félagsmiðstöðinni. Allir vel- komnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar i síma 411-2790. Gjábakki Allt félagsstarf liggur niðri nema hádegismaður. Verður endurskoðað 19. okt. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa- vinna, opin vinnustofa kl. 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Gönguhópur, styttri ganga, u.þ.b. 1 km, kl. 13.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga fellur niður í dag, ganga kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum frestast vegna hertra aðgerða í sóttvarnamálum. Skráning í mat og kaffi, gestum úthlutaður tími þannig er hægt að virða 20 manna hóp og 2 metra regluna. Grímuskylda í Borgum en opnunartími óbreyttur 8 til 16. Við erum öll almannavarnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Við byrjum daginn á dansleikfimi kl. 9.30, í setustofu 2. hæðar. Að henni lokinni hittist föstudags-spjall- hópur í handverksstofu kl. 10.30. Handaband fellur niður í dag. Við minnum á mikilvægi sóttvarna og grímuskyldu hjá þeim sem koma inn í félagsstarfið. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Engin dagskrá verður á vegum félags og tómstunda- starfsins í dag föstudag vegna ráðlegginga og hertra aðgerða sótt- varnaryfirvalda. Allur samgangur í félagsaðstöðunni er eingöngu heimill fyrir íbúa á Skólabraut. Ath. að skylda er að allir gestir og starfsmenn noti hlífðargrímur. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni kl. 13-14. Kaffi eftir söng. Allir velkomnir. Vantar þig fagmann? N nnr þ þa sm þ itar a  FINNA.is Smáauglýsingar Húsgögn Hästens hjónarúm 2m x 2m Hästens Superia hjónarúm (tvö rúm 1m x 2m). Tæplega ársgamalt, annað rúmið er ,,Firm", hitt er ,,Soft". Yfirdýna sem nær yfir bæði rúmin. Uppl. í síma 8944343. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Með haustvind- inum barst sú harmafregn að Jakob Steingríms- son bankamaður væri látinn. Jakob var eftirminnilegur maður sem fór eigin leiðir. Það var fyrir um áratug að ég tók eftir því að aðstoðarmað- urinn í Árbæjarþreki, norðan við sundlaugina, lét kalda vatn- ið renna úr krananum allan morguninn. Þegar ég spurði manninn hverju sætti, af tillits- semi við Gvenndarbrunna, sagðist hann vilja bjóða gestum upp á kalt vatn. Að sama skapi stillti hann ofnana hátt og hafði gluggana opna til að lofta betur út. Maðurinn hét Jakob og reyndumst við vera nágrannar í Árbænum. Það var heiður að kynnast honum. Árbæjarþrek skipti um eig- endur og loks keypti World Class-keðjan stöðina. Nýjum eigendum fylgdu nýj- ar áherslur. Sú hefð að bjóða fastagestum upp á setukrók til að ræða heima og geima hefur hins vegar haldist. Yfir daginn komu inn ólíkir hópar með ólík áhugamál. Jak- ob var árrisull og gjarnan mættur klukkan að ganga sex um morguninn. Með þetta í huga fór ég stundum fyrr af stað en ella til að geta hlustað á samræðurnar í setukróknum. Jakob kallaði þennan fé- lagsskap Nóbelsnefndina. Jakob gegndi ábyrgðarstöðu í Landsbankanum og vissi margt um menn og málefni. Hann hafði mikla þekkingu á viðskiptalífi landsins og hafði kynnst mörgum áhrifamönnum í íslensku þjóðlífi. Hann sagði sögur af mönnum sem höfðu fengið meiri framgang en þeim bar vegna ættartengsla. Það er Jakob Steingrímsson ✝ Jakob Stein-grímsson fædd- ist 20. desember 1943. Hann lést 27. september 2020. Útför hans fór fram 8. október 2020. eðli valdsins. Hann sagði sögur af mönnum sem höfðu einsett sér að verða sterkefnaðir en glatað einhverju á leiðinni. „Þrái menn ekkert heitar geta þeir komist yfir býsna mikið,“ sagði Jakob. Einn þessara manna reisti sér mikinn minnisvarða en þegar vígslan nálgaðist reyndust kornin í stundaglasi lífsins tæmd. „Því þú leitar eftir einhverju sem hopar/undan þegar færir þú þig nær,“ orti skáldið. Dauðir hlutir veita ekki sanna hamingju. Jakob var maður réttsýnn og drengur góður. Mennirnir í sög- unum voru ekki nafngreindir og frásögninni fylgdi ekki illur hugur. Jakob var alltaf virðulegur og vel til fara og höfðum við fé- lagarnir stundum á orði að hann væri eins og breskur yfir- stéttarmaður á leið á golfvöll- inn. Gjarnan klæddist hann í ermalausa peysu yfir skyrtuna en hann var maður þrekinn og sterklegur. Allt var í röð og reglu hjá honum. Hann lagði bláa Cherokee-jeppanum alltaf á sama hátt, hvort sem það var við Þrekið eða heima í Vorsa- bænum, og hann lét aðra vita ef hann taldi sig geta gert hlutina betur. Vegna þess ávana var hann ekki allra. Hann gat líka verið sérgóður. Jakobi leið vel í eigin skinni. Held ég því að mönnum með óróa í hjarta hafi liðið vel í ná- vist hans. Það var þægilegt að sitja við hlið hans í setukrókn- um í Þrekinu og heyra hann gera upp málefni líðandi stund- ar. Hann var orðheppinn og með sterka réttlætiskennd. Þætti honum menn ekki njóta sannmælis lét hann þá skoðun eindregið í ljós. Gilti þá einu hvort hann var sammála þeim sem um var rætt eða ekki. Vegna veirunnar er nokkuð síðan ég sá Jakob síðast. Bless- uð sé minning hans. Baldur Arnarson. Elsku afi. Mikið erum við lánsöm að hafa fengið að hafa þig svona lengi hjá okkur. Þú varst alltaf svo góður og ég man sárasjaldan eftir að hafa séð þig skipta skapi. Þú nenntir alltaf að fara með mér í göngutúr og við löbbuðum út um allan Hafnarfjörð þar sem við skoðuðum álfasteina og leituðum að álfum. Og þegar við fórum í göngutúrana okkar í sumarbú- staðnum kenndir þú mér hvað öll blómin hétu. Svo tíndum við lúp- ínur og sáðum fræjunum við bú- staðinn. Þú nenntir líka alltaf að leika við mig og lita og perla. Það var svo gaman að skoða gömlu litabækurnar og sjá myndir merktar „Erla Hadda og afi“. Ég hef alltaf verið svo stolt af nafn- inu mínu. Hver er svo heppin að heita í höfuðið á bæði ömmu sinni og afa? En ég er enn mjög oft spurð út í Höddunafnið. Þú Hörður Reynir Hjartarson ✝ Hörður ReynirHjartarson fæddist 9. ágúst 1929. Hann lést 27. september 2020. Útför Harðar fór fram 8. október 2020. nenntir líka alltaf að lesa fyrir mig á kvöldin. Norsku Grimms-ævintýra- bækurnar voru í uppáhaldi hjá mér, en þú sagðir mér sögurnar því ég kunni ekkert í norsku. Ég gat allt- af leitað til þín og bað þig oft um ráð. Til dæmis, þá fórst þú með mér ár eftir ár þegar ég keypti mér sumarblóm, því þú hafðir mikið meira vit á blómum. Þú gerðir allt fyrir mig, alveg sama hvað það var, alveg fram á síðasta dag. Þú vildir alltaf að ég hefði það besta sem völ væri á. Eins og þegar ég bjó í innrétt- uðum bílskúr án opnanlegs glugga, það fannst þér mér ekki samboðið og varst fljótur á stað- inn til að græja glugga fyrir mig. Það er svo ótrúlega margt sem ég get skrifað hérna elsku afi, en efst í huga mér núna er þakklæti. Það er svo sárt að geta ekki fylgt þér til grafar. Ég myndi vilja vera í sóttkví það sem eftir er ársins ef ég bara mætti vera með þér í dag. Takk fyrir að hafa verið til. Takk fyrir allt. Erla Hadda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.