Morgunblaðið - 09.10.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HERRA DÓMARI, SKJÓLSTÆÐINGI MÍNUM
FINNST TÍU ÁRA DÓMUR FULL ÞUNGUR OG
BIÐUR UM LEYFI TIL AÐ RÆÐA VIÐ ÞIG.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta ferðalagsins.
JAMM … TÍMARNIR
BREYTAST 0G …
ÁTTU
KÆRASTA?
ÉG Á NOKKRA! EN ÉG ER
ORÐIN LEIÐ Á AÐ ÞURFA
AÐ DEILA NIÐUR TÍMA
MÍNUM MEÐ ÞEIM!
MYNDIR ÞÚ
HAFA MIG Í
HUGA??
Í ALVÖRU? GÆTIR ÞÚ HUGSAÐ
ÞÉR AÐ SJÁ UM DAGSKRÁNA
FYRIR MIG?
„MARGRÉT, ÞETTA ER KARLAKLÚBBUR.
HVERNIG GASTU LAUMAÐ ÞÉR FRAM HJÁ
DYRAVERÐINUM?”
Núna eru þau flutt í Hafnarfjörðinn
og njóta bæjarbragsins þar og njóta
þess að vera í golfi.
Fjölskylda
Eiginkona Jóhannesar er Ása
Finnsdóttir, f. 23.11. 1944. Foreldrar
hennar voru Hermína Sigurjóns-
dóttir, f. 30.3. 1920, d. 10.5. 2019, og
Finnur Th. Jónsson, bóksali, f. 25.8.
1918, d. 6.6. 1976. Fósturforeldrar
Ásu frá 1947 voru Lára Jónsdóttir,
f.11.2. 1904, d. 9.1. 1993, og Sigurður
Grímsson, hrl. og borgarfógeti, f.
20.4. 1896, d. 10.2.1975.
Börn Jóhannesar og Ásu eru 1)
Lára Bergþóra, flugumferðarstjóri í
Malmö, f. 2.11. 1969, gift Martin Bai-
ley, stjórnanda öryggismála í Afgan-
istan, f. 20.12. 1969; 2) Guðlaug Sif,
verkefnastjóri hjá Per Aarsleff, f.
17.9. 1972, búsett í Kaupmannahöfn,
gift Gesti Rúnari Guðmundssyni
húsasmið, f. 29.7. 1979;
3) Sigurður, forstöðumaður upp-
lýsingatæknisviðs Bláa lónsins, f.
25.12. 1977, býr í Kópavogi og er í
sambúð með Guðnýju Fanney Frið-
riksdóttur, fjármálafulltrúa hjá Ið-
unni fræðslusetri, f. 2.7. 1982. Barna-
börnin eru 8. Elsta barnabarnið
okkar, Sandra Líf Long, lést af slys-
förum 9. apríl sl. og er hennar sárt
saknað.
Systkini Jóhannesar eru Guð-
laugur Magnús, húsasmíðameistari í
Reykjavík, f. 26.10. 1947; Steingrímur
blikksmiður, búsettur á Selfossi f. 5.6.
l951; Ásta, fv. skrifstofustjóri Reykja-
fells, f. 4.10. 1952, búsett í Reykjavík
og Árni, vélvirki og verkstæð-
isformaður, f. 6.5. 1962, búsettur í
Mosfellsbæ.
Foreldrar Jóhannesar eru Árni
Theodór Long, verslunarmaður í
Reykjavík, f. 13.4. 1920, d. 4.10. 1979,
og Guðlaug Steingrímsdóttir, hús-
freyja og verslunarmaður, f.11.6.
1926.
Jóhannes Long
Ágústa Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Einar Jónsson
í Reykjavík
Kristjana Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Steingrímur Magnússon
fiskkaupmaður í Fiskhöllinni
í Reykjavík
Guðlaug
Steingrímsdóttir
húsfr.og verslunarmaður
hjá Eros og síðar hjá
Mæðrabúðinni
Guðlaug Steingrímsdóttir
húsfreyja frá Holti á Síðu
Magnús Magnússon
bóndi Gullberastaðaseli í
Lundarreykjadal
Jóhanna Lárusdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Árni Árnason
bóndi og sjómaður í
Vestmannaeyjum
Bergþóra Ástrós Árnadóttir
húsfreyja frá Vestmannaeyjum
Jóhannes Hróðnýr Long
verslunarstjóri fráSeyðisfirði og
síðar búsettur í Vestmannaeyjum
Jóhanna Jóhannesdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
Jóhann Matthíasson Long
verkamaður á Seyðisfirði
Úr frændgarði Jóhannesar Long
Árni Theodór Long
verslunarmaður hjá G.J.
Fossberg í Reykjavík
Illt í efni er yfirskrift vísu eftirÞórarin Eldjárn á fésbók:
Ekki beint af illmennsku
ýmsir dellu letra.
Aðallega af illheimsku
en er það nokkuð betra.
Góður vinur minn sendi mér
tölvupóst: „Sá góðkunni og vinsæli
fréttamaður Gísli Einarsson skrif-
aði á facebook: „Starfs míns vegna
drekk ég sennilega meira kaffi í
vegasjoppum landsins heldur en
heima hjá mér. Kaffið er misgott,
eins og gengur, en það að maður
skuli ekki lengur geta fengið soð-
brauð með hangiketi í KS í Varma-
hlíð eru umtalsverð vonbrigði!
Skýringin er sú að nú er þetta orðið
að Olíssjoppu og þær eiga víst allar
að vera eins!“
Gunnar Rögnvaldsson, sem býr í
nágrenni Varmahlíðar, nánar til-
tekið á Löngumýri, bauð honum af
þessu tilefni snarlega í kaffi til sín
með soðbrauði og hangiketi. Og í
framhaldinu varð til þessi kveð-
skapur“:
Gunnar orti:
Dauði eins er annars brauð
svo eftir nauð í Gísla
birtist kauða bragð af sauð
bauðst hann við að sýsla.
Gísli svaraði:
Vænt er að eiga vin í nauð
með væna flís af gildum sauð.
Afi minn fór á honum Rauð
en ekki fékk hann soðið brauð!
Og Gunnar átti síðan lokaorðin:
Eftir þvæling, norp og nauð
nýjan fola amma bauð.
Þá afskaffaði afi Rauð,
endaði sem legg á brauð
Ólafur Stefánsson horfir vestur
um haf og yrkir um það sem fyrir
ber:
Ekki liðinn alveg var
annar dagur hálfur,
þá, orðinn karlinn alveg snar,
útskrifar sig sjálfur.
Ingólfur Ómar Ármannsson slær
á rómantíska strengi á Boðnarmiði:
Fuglahljómur fjarri er
fölva blómin skarta.
Senn í dróma foldin fer
finn ég tóm í hjarta.
Sigurlaug Ólöf svaraði með bestu
kveðju:
Þar sem græna grundin lá,
glitrandi við sólareld
sölnuð lauf og sinustrá
saman vefa gulan feld.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
spann áfram:
Blómin við þér brosa,
björt er gleði þín.
Allt það leynda losa,
líst mér ásýnd fín.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Soðbrauð, hangiket og stökur