Morgunblaðið - 09.10.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Agnes
* The Secret : Dare to
Dream
* Unhinged
* A Hidden Life
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
HEIMSFRUMSÝNING
FORSÝNINGAR UM HELINGA
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
Bandaríska ljóðskáldið og greina-
höfundurinn Louise Glück hlýtur
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í
ár. Glück, sem er 77 ára, er fyrsti
Bandaríkjamaðurinn til að hljóta
verðlaunin í 27 ár og 16. konan af
116 verðlaunahöfum.
Glück hefur um langt árabil verið
meðal virtustu ljóðskálda Banda-
ríkjanna þótt hún sé ekki mjög
þekkt utan heimalandsins og nafn
hennar var til dæmis ekki á listum
veðbanka yfir þá höfunda sem þóttu
líklegastir til að hreppa Nóbels-
verðlaunin í ár. En Glück hefur unn-
ið til margra verðlauna, til að
mynda Pulitzer-verðlauna og Nat-
ional Book-verðlauna, frá 2003 til
2004 var hún lárviðarskáld Banda-
ríkjanna og fyrr á þessu ári hlaut
hún Tranströmer-verðlaunin en þau
eru kennd við Svíann Tomas
Tranströmer sem var síðasta ljóð-
skáldið til að hreppa Nóbels-
verðlaunin, fyrir níu árum.
Verðlaunaféð nemur tíu millj-
ónum sænskra króna, um 155 millj-
ónum íslenskra króna.
Einlæg og orðheppin
Glück hefur sent frá sér 12 ljóða-
bækur, auk ljóðasafna, og tvö
greinasöfn. Í greinargerð sænsku
akademíunnar er talað um einstaka
ljóðræna rödd hennar „sem með
íburðarlausri fegurð gerir upplifun
einstaklingsins sammannlega“. Í
verkunum tekst hún iðulega á við
bernskuna og fjölskyldulíf og vinnur
þá oft með og vísar í fornar grískar
og rómverskar goðsagnir.
Í tölu sem formaður valnefndar
Nóbelsverðlaunanna, Anders Ols-
son, hélt í beinni útsendingu á net-
inu í gær þegar tilkynnt var um
verðlaunahafann, bar hann til að
mynda lof á einlæga og óhagganlega
rödd Glück, sem sé bæði „hlaðin
húmor og beittri orðheppni“. Sagði
hann eitt einkenni ljóða Glück vera
látlausa leit að skírleika og bar hann
ljóðheiminn saman við verk Emily
Dickinson hvað varðar það vægðar-
leysi og tregðu sem sjá má í ljóð-
unum til að samþykkja hverskonar
trúar- og kennisetningar. „Í ljóð-
unum hlustar sjálfið eftir því hvað
sé eftir af draumum þess og ímynd-
unum, og enginn getur verið
ákveðnari en hún í að takast á við
draumsýnir sjálfsins,“ sagði Olsson.
Hann bætti við að þótt Glück myndi
seint hafna því að sitthvað sjálfs-
ævisögulegt mætti finna í ljóð-
heimum hennar þá væri alls ekki lit-
ið á hana sem neitt „játningaskáld“.
Kom ánægjulega á óvart
Ritari sænsku akademíunnar
sagðist hafa vakið væntanlegan
verðlaunahafa með símtali skömmu
áður en tilkynnt var opinberlega að
hún hlyti verðlaunin en þá var enn
nótt vestanhafs. „Tilkynningin kom
henni á óvart, en ég gat ekki betur
heyrt en það væri með ánægju-
legum hætti svo snemma morguns,“
sagði hann.
Fyrsta ljóðabók Louise Glück,
Firstborn, kom út árið 1968. Les-
endahópurinn stækkaði með hverri
bók en fyrir þá fjórðu, The Triumph
of Achilles (1985), hreppti hún Nat-
ional Book Critics Circle-verðlaun-
in. Aararat (1990) og The Wild Iris
(1992) hlutu einig mikið lof og hlaut
Glück Pulitzer-verðlaunin fyrir þá
síðarnefndu. Sex ár eru nú frá út-
komu síðustu ljóðabókar hennar,
Faithful and Virtuous Night, en fyr-
ir bókina hlaut hún National Book-
verðlaunin. Auk ljóðabókanna má
nefna að árið 2004 sendi hún frá sér
langan ljóðabálk í sex hlutum,
„October“, þar sem hún tekst á við
árásina á Tvíburaturnana í New
York 11. september 2001 og vinnur
með grískar goðsagnir þar sem hún
yrkir um áfallið og þjáninguna.
Greinasöfn Glück, Proofs and
Theories og American Originality,
fjalla bæði um ljóðlistina. Frá árinu
2004 hefur hún kennt við Yale-
háskólann. efi@mbl.is
Glück fær Nóbelinn
Bandaríska ljóðskáldið Louise Glück hlýtur Nóbelsverð-
launin í bókmenntum í ár Margverðlaunað og virt skáld
AFP
Nóbelsskáld Tilkynnt var í gær að Louise Glück hlyti Nóbelsverðlaunin í
ár. Hér er hún á mynd frá 2014 og hampar National Book-verðlaununum.
Brúðulistahátíðin Hvammstangi Int-
ernational Puppet Festival, eða HIP,
hefst í dag á Hvammstanga og stend-
ur yfir í þrjá daga, til og með 11.
október. Brúðuleiksýningar og -kvik-
myndir verða þar
í hávegum hafðar,
boðið verður upp
á 12 sýningar með
listamönnum frá
níu þjóðlöndum,
úrvali vinnu-
smiðja fyrir fólk á
öllum aldri og þá
bæði byrjendur
og atvinnumenn
og úrval brúðu-
bíómynda sem eru sérvaldar af
Handmade Puppet Dreams, fyrir-
tæki Heather Henson, dóttur Jims
Hensons, í Bandaríkjunum. Ókeypis
er inn á yfir 60% viðburða hátíð-
arinnar og má nálgast dagskrána á
vef hennar, thehipfest.com.
Handbendi brúðuleikhús stýrir há-
tíðinni sem nú er haldin í fyrsta sinn
og stefnt að því að halda annað hvert
ár. Boðið verður upp á uppfærslur á
litlum til miðlungsstórum verkum
eftir heimafólk og alþjóðlega lista-
menn, bæði fyrir börn og fullorðna,
lifandi tónlistarviðburði, mast-
erklassa fyrir fagmenn og áhuga-
menn um brúðugerð, sýningar og
smiðjur fyrir börn og fullorðna, leik-
brúðustuttmyndir sem og leik-
brúðumyndir í fullri lengd, fyrir-
lestra og viðburði til tengsla-
myndunar. Vegna Covid-19 verður
gripið til nauðsynlegra ráðstafana í
samræmi við fyrirmæli embættis
landlæknis og almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra og segir í tilkynn-
ingu að HIP uppfylli þau skilyrði sem
sett hafa verið.
Burlesque og smábarnasýning
Greta Clough, listrænn stjórnandi
Handbendis, segir að alþjóðlegu
listamennirnir sem taka þátt í hátíð-
inni séu nú komnir úr sóttkví og allt
til reiðu svo hægt sé að halda hátíð-
ina. Farið verði að öllum fyrirmælum
um sóttvarnir og aðeins hafi þurft að
hætta við eina erlenda sýningu vegna
breytinga á flugferðum. Alþjóðlegu
listamennirnir eru 13 talsins og segir
Greta að svigrúm sé til breytinga, ef
einhverjar verða. Nægt pláss sé í
sveitasælunni á Hvammstanga.
Greta fagnar því að hægt sé að
halda hátíðina á tímum Covid-19.
„Það er eiginlega galið að við séum
að byrja á þessu ári,“ segir Greta og
hlær við. „Ég tel afar mikilvægt að
styðja við fólk sem er að missa vinn-
una og sviðslistamenn hafa orðið illa
fyrir barðinu á ástandinu víða um
heim,“ bætir hún við.
Hvað sýningarnar varðar segir
Greta sumar eingöngu fyrir full-
orðna, til dæmis Fröken Lychee,
burlesque-sýningu japönsku lista-
konunnar Ayu Nakamura og enska
leikfélagsins Rouge28 Theatre. „Það
er burlesque-fatafellusýning,“ segir
Greta um hana og bendir á aðra sýn-
ingu sem ætluð er börnum frá sex
mánaða aldri upp í þriggja ára og
nefnist POP!.
Greta hefur búið á Hvammstanga í
fimm ár og kann afar vel við sig þar.
Hún bjó áður í London og segist nú
vilja gera Hvammstanga sýnilegri.
Að láta brúður taka bæinn yfir ætti
að vera skref í þá átt en sýningarnar
verða í félagsheimili staðarins og
myndirnar sýndar á Hótel Laugar-
bakka. helgisnaer@mbl.is
Baðönd Úr brúðusýningunni POP!
sem ætluð er börnum frá fimm mán-
aða aldri upp í þriggja ára.
Greta Clough
Brúður taka yfir
Hvammstanga
Brúðulistahátíðin HIP hefst í dag