Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 39

Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is Jólavörurnar frá Holmegaard komnar í verslanir okkar ÓRÓAR Frá 2.790,- KRÚSIR 2. stk. – 5.690,- KARAFLA 7.990,- KÖKUKRÚS 9.190,- KERTASTJAKAR 2. stk. – 5.790,- SNAFSAGLÖS 2. stk. – 3.890,- SKÁL – 4.590,- AÐVENTUKERTI 2.290,- tímamót. „Mér finnst dýrmætt þeg- ar kynslóðir ná að tengjast nánum böndum. Við móðir mín vorum afar nánar og ég kallaði hana húsengilinn og bjargvætt heimilisins. Oft hef ég saknað þess að börnin mín skyldu ekki hafa notið þess að kynnast föður mínum. Hann var svo stoltur afi og byrjaður að kenna nafna sínum Gísla Erni tæplega tveggja ára að tefla. Ég er hins vegar svo lánsöm að eiga tengdamömmu á 93. aldursári og nýt þess að hitta hana.“ Fjölskylda Eiginmaður Eyrúnar er Sturla Rafn Guðmundsson, f. 22.10. 1950, rafmagnstæknifræðingur, deild- arstjóri hjá Rarik. Foreldrar hans eru hjónin Brynhildur J. Bjarnar- son, fv. starfsm. hjá Pósti og síma, f. 28.3. 1928, og Guðmundur Bjarnason rafvirkjameistari, f. 27.3. 1927, d. 11.5. 2017, búsett í Reykjavík. Börn Eyrúnar og Sturlu eru: 1) Gísli Örn, f. 2.3. 1974, flugmaður og tölv- unarfræðingur. Sambýliskona hans er Marie Persson, f. 5.10. 1973, kenn- ari við Laugalækjarskóla. Dætur þeirra eru: Eyrún Linnea, f. 4.3. 2008, Hanna Ísabella, f. 17.12. 2009, og Lisa Marie Karin, f. 1.8. 2014. 2) Snorri Björn, f. 6.11. 1980, lögmaður og fasteignasali; 3) Guðrún Jóhanna, f. 18.2. 1986, fatahönnuður, flug- freyja og nemi við Tækniskólann. Foreldar Eyrúnar eru hjónin Guð- rún Jóhanna Vigfúsdóttir, f. 3.11. 1921, d. 9.2. 2015, vefnaðarkennari og listvefari á Ísafirði og í Kópavogi, og Gísli Sveinn Kristjánsson, f. 25.11. 1906, d. 22.10. 1978, forstjóri sundhallarinnar á Ísafirði og sund- kennari. Eyrún Ísfold Gísladóttir Hanna Gísladóttir frá Svínárnesi, Látraströnd, húsfreyja á Hinriksmýri, Árskógsströnd Jóhann Jóakimsson frá Geldingsá, Látraströnd. Hákarla- og fiskiskipstjóri við Eyjafjörð og bóndi á Hinriksmýri, Árskógsströnd Elísabet Jóhannsdóttir húsfreyja í Litla-Árskógi, Árskógsströnd, Eyjafirði Vigfús Kristjánsson útvegsbóndi í Litla-Árskógi, Árskógsströnd, Eyjafirði Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttir vefnaðarkennari við húsmæðra- skólann Ósk á Ísafirði, og veflistakona í Kópavogi Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttir húsfreyja á Litlu-Hámundarstöðum, Árskógsströnd, Eyjafirði Kristján Jónsson bóndi á Litlu-Hámundarstöðum, Árskógsströnd, Eyjafirði Borghildur Þorkelsdóttir húsfreyja á Grundarhóli, Bolungarvík Hávarður Sigurðsson bóndi á Grundarhóli, Bolungarvík Sigríður Hávarðardóttir húsfreyja á Grundarhóli, Bolungarvík Kristján Gíslason sjómaður Grundarhóli, Bolungarvík Salóme Kristjánsdóttir húsfreyja í Reykjarfirði, Ísafjarðardjúpi Gísli Sveinn Gíslason bóndi í Reykjarfirði, Ísafjarðardjúpi Úr frændgarði Eyrúnar Ísfold Gísladóttur Gísli Sveinn Kristjánsson íþróttakennari frá Bolungarvík, Sundhallar-forstjóri á Ísafirði Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Við það hestur vaninn er. Vini tengir saman. Vakri Skjóni á völlinn ber. Vandað spinnur daman. Guðmundur Stefánsson svarar: Bandvanur nú Blakkur er. Bandið vina síst til ama. Skjóni hey í böndum ber. Bandið spunnið nýtir dama. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Bandvanur er Vakur hér. Vinabandið hugnast mér. Nafn á beisli bandið er. Um bandið höndum daman fer. Gísli A. Bjarnason leysir gátuna svona: Bandvanan folann er búið að gera Býsna traust vinabönd oft munu vera. Vakri Skjóni band sitt á vellinum bar. Voða fínt bandið á rokki ömmu var. Guðrún B. á þessa lausn: Varla bandvön í blaki, á bandi vinkonu sinnar, lék Skjóna með band á baki, bönd spann með rjóðar kinnar. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Við band hestur vaninn er. Vinabandið tengir saman. Votaband Skjóni á völlinn ber. Vandað bandið spinnur daman. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Hestur band er vaninn við. Vina traust er sambandið. Skjóni bandið bagga flytur. Við band að spinna konan situr. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Band er hestur vaninn við. Vinaband menn tengir saman. Hestur flytur heybandið. Hárfínt bandið spinnur daman. Þá er limra. Kristófer Klausen af Ströndum var klofinn upp að höndum þannig lá í því að láðst hafði í að lengja hans axlaböndum. Og loks ný gáta eftir Guðmund nr. 49: Létt er mér um ljóðastef úr litlu samt að moða hef gerð í flýti gátan er getur þá að líta hér: Blasir nú við sjónum svað. Sýslar með hann barnunginn. Margur þetta klaufi kvað. Kaffibolli og diskurinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bönd eru óðum best

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.