Morgunblaðið - 10.10.2020, Page 48
Sendum um land allt
552 2201
Eftir að stjórnendur
helstu safna Hollands,
þar á meðal Rijksmus-
eum, lýstu yfir stuðn-
ingi við tillögu þess
efnis er talið líklegt að
hollensk söfn þurfi að
skila allt að 100 þús-
und listgripum og öðr-
um munum til fyrrver-
andi nýlendna Hollands. Í tillögunni er gert ráð fyrir því
að hollensk yfirvöld viðurkenni að gripirnir hafi verið
teknir á sínum tíma án samþykkis heimamanna og þeir
séu ómetanleg menningarverðmæti fyrir umræddar
þjóðir sem flestar eru hluti Indónesíu í dag. Í The
Guardian er haft eftir forstöðumanni Rijksmuseum að
starfsmenn þar séu þegar farnir að kanna uppruna
allra gripa í safninu og undirbúa að mörgu sem sé þar
frá fyrrverandi nýlendum þurfi að skila. Þar á meðal eru
einstakir eðalsteinar. Setja þurfi saman nefnd sérfræð-
inga frá báðum aðilum sem meti þær kröfur sem berist.
Hollendingar undirbúa að skila
verðmætum til fyrrv. nýlendna
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 284. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Ég hef lagt hart að mér í sumar og hef fengið þau við-
brögð frá fólki að maður hafi staðið sig mjög vel. Sem
er mjög ánægjulegt að heyra enda hefur maður lagt
mikið á sig. Til dæmis með aukaæfingum. Þegar maður
hefur lagt mikið á sig fylgir því góð tilfinning að upp-
skera. Ég er kannski þannig leikmaður að ekki er endi-
lega tekið eftir manni á vellinum en það er gott að ein-
hver taki eftir því,“ segir Andrea Rán Hauksdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu, meðal annars í Morgun-
blaðinu í dag. »41
Hefur lagt hart að sér og vann sér
sæti í landsliðinu á nýjan leik
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Úrvalshópur bókbindara og bók-
bandsmeistara, svonefndur JAM-
hópur, kom saman í liðinni viku, en
vegna kórónuveirufaraldursins hef-
ur samvera einu sinni í mánuði legið
niðri síðan í febrúar. „Þetta var
kærkomin stund,“ segir Stefán Jón
Sigurðsson, gjaldkeri félagsins, sem
15 manns stofnuðu 1991. „Við hitt-
umst annars fyrst og fremst til þess
að komast út úr hefðbundinni
vinnu.“
Guðlaug Friðriksdóttir var kjörin
formaður JAM-hópsins í ársbyrjun
og er fyrsta konan til að gegna for-
mennskunni. „Þetta var bara af
praktískum ástæðum,“ segir hún
hæversk, en hún tók við af eigin-
manni sínum Ragnari Einarssyni.
Upphafi hópsins má rekja til heim-
sóknar tveggja Dana, Jakobs Lund
og Arnes Möller Pedersen, sem
bókbindarar fengu til þess að halda
námskeið og kynna danska bók-
bandið og pappírslitun fyrir um 30
árum. „J, A og M er tilvísun í upp-
hafsstafi þeirra,“ segir Stefán.
Guðlaug var á lokasprettinum í
bókbandsnáminu í Iðnskólanum,
sótti námskeið Dananna og var einn
af stofnfélögum félagsins. „Ég var
orðin rígfullorðin og mig langaði til
þess að læra eitthvað, ætlaði að fara
í klæðskeranám og kjólasaum, en
þar var allt fullt. Hins vegar var
hægt að komast í bókbandið.“
Félagar mæta með eigin verkefni
á fundina og Stefán segir að félags-
menn noti þá tækifærið og bindi inn
öðruvísi en venjulega, inn í alskinn
eða þvíumlíkt. Um það bil á fjögurra
ára fresti séu norrænar bókbands-
keppnir og áður en að þeim komi
noti menn gjarnan tækifærið og
bindi inn verk, sem síðan séu send í
viðkomandi keppni.
„Svo reynum við að fá erlenda
sérfræðinga til þess að halda nám-
skeið og erum einmitt að vinna í því
að reyna að fá sænskan bókbindara
til landsins.“
Í fremstu röð
Íslenskir bókbindarar hafa staðið
sig vel í keppni erlendis. Í norrænu
keppninni eru 25% innsendra verka
valin í svokallaðan heiðursflokk og
þar hafa Íslendingar átt bækur, síð-
ast Hrefna Ársælsdóttir og Ragnar
Einarsson í Finnlandi 2018. Ragnar,
sem hefur unnið við bókband frá 16
ára aldri, hefur reyndar átt verk í
heiðursflokki í undanförnum tveim-
ur keppnum, en keppnin var síðast á
Íslandi 2009.
Þeir sem hafa tekið þátt í keppni
eða átt innbundnar bækur á sýn-
ingu eru gjaldgengir í JAM-hópinn.
Stefán segir að virkum meðlimum
hafi fækkað frá því sem var í byrjun
og nú sé svo komið að aðeins um
átta til tíu manns mæti reglulega á
fundina. „Endurnýjun er mjög lítil,“
segir hann og bætir við að ástæða sé
til þess að óttast að íslenskt bók-
band heyri sögunni til verði ekki
spyrnt við fótum. „Prentverkið
stendur mjög höllum fæti og fag-
maður þarf að vera til staðar til þess
að þetta gangi upp.“
Guðlaug er á sama máli. Hún seg-
ir að margt hafi breyst og almenni-
legt bókband víða verið lagt niður í
landinu. „Engu að síður er alltaf
áhugi fyrir handbandi og handa-
vinnu og kjarninn í félaginu heldur
handbragðinu á lofti.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Í Landsbókasafninu Félagar í JAM-hópnum. Frá vinstri: Hjörleifur Hjörtþórsson, Einar Sveinn Ragnarsson,
Ragnar Einarsson, Guðlaug Friðriksdóttir, Hrefna Ársælsdóttir og Stefán Jón Sigurðsson.
Haldið í handbragðið
Úrvalshópur bókbindara og bókbandsmeistara í JAM-hópnum