Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 43

Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Agnes * The Secret : Dare to Dream * Unhinged * A Hidden Life SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is MÖGNUÐ MYND SEM GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI : ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ Roger Ebert.com San Fransisco Cronicle The Playlist 88% HEIMSFRUMSÝNING FORSÝNINGAR UM HELINGA SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Vinur minn einn á Fjasbók-inni, sem er þræltengdurinn í bandaríska tónlistar- bransann, er í áfalli. Þegar fréttin um andlát Eddies Van Halens „gaus“ upp í vikunni (náðuð þið þessum?) fóru margir hans líkar, og rokkaðdáendur almennt af ákveðinni kynslóð, einfaldlega á hliðina. Risi fallinn. Og þessi vinur minn staðhæfir: „Það er Hend- rix … og Edward.“ Hver var þessi maður eigin- lega og hvers vegna er hann kall- aður til sem einn áhrifamesti gítarleikari sögunnar? Fyrstu kynni almennings af honum voru í gegnum frumburð hjómsveitar- innar Van Halen, árið 1978, en sveitina hafði hann stofnsett ásamt stóra bróður sínum Alex ár- ið 1972. Tímasetningin á nefndri plötu var fullkomin. Tónlistar- landslagið var uppfullt af töturs- legum poppstjörnum frá sjöunda áratugnum og pönki sem var ekki endilega allra. Van Halen upp- færði og eiginlega endurreisti hart rokk eins og það kemur af kúnni. Stuðvænt og beint af aug- um en með sjarma og glitri frá söngspírunni mögnuðu David Lee Roth. Jú jú, Aerosmith og Kiss höfðu verið að gera gott mót en þessi fyrsta plata Van Halen er einstök. Engin ein plata átti eftir að reynast jafn áhrifamikil upp á þróun töffararokksins á níunda áratugnum, en allir þessir tappar; Guns‘n‘ Roses, Mötley Crue, Pois- on, Bon Jovi o.s.frv. signdu sig við altari Van Halen. Nóg er að hlusta á hið óviðjafnanlega „Runnin’ with the Devil“, sem keyrir allt í gang, til að sannfærast um þetta. Gítarleikur Eddies er þó það sem gerir plötuna, fyrst og síðast. Byltingarkennd spilamennska („Eruption“) og tækni sem fékk rokkunnendur til að missa andlit- ið. Hendrix særður fram, að ein- hverju leyti, en stíllinn tilheyrði um leið Eddie og engum öðrum. Eddie Van Halen fæddist árið 1955 í Amsterdam, mamman indó- nesísk en pabbinn hollenskur. Faðirinn var starfandi tónlistar- maður, lék á klarínett og saxófón og bræðurnir fengu tónlistarlegt uppeldi. Eddie var sjö ára er fjöl- skyldan fluttist til Pasadena í Kaliforníu. Móðirin starfaði sem þerna en faðirinn sem húsvörður og uppvaskari en svo lék hann tónlist um helgar. Eddie hefur sagt frá því að faðir sinn hafi ávallt fellt tár á tónleikum hjá sér enda lifði hann ameríska draum- inn í gegnum syni sína. Van Halen átti eftir að verða afar vinsæl sveit, aðlagaðist vel MTV-ára- tugnum, og varð að rokkstofnun, ef svo mætti segja. Eddie Van Hal- en, enn undir þrítugu, var þegar orðinn goðsögn, gítarguð á pari við Hendrix og Clapton. Quincy Jones fékk hann t.a.m. til að spila gítarsólóið inn á smell Michaels Jacksons, „Beat it“. Áfengissýki setti strik í reikn- inginn hjá okkar manni og grimm baráttan við Bakkus rataði einatt í fjölmiðla. Samkvæmt heimildum náði hann að halda sér þurrum frá árinu 2008 og Van Halen lék sína síðustu tónleika sem hljómsveit árið 2015. Það var síðan munn- krabbamein sem lagði hann að lokum. Eftir stendur tónlistin. Van Halen var al-amerísk sveit og hafði engan tíma fyrir oft og tíð- um dumbungslegt, jafnvel epískt rokk Zeppelin og Sabbath. Aero- smith var þá of mikið í skugga Stones til að komast inn á vetrar- braut Van Halen. Nei, þetta var rígbundið í kalifornísk viðhorf og lífsstíl, stuð og keyrsla í öllum regnbogans litum, skilgreint afkvæmi draumaverksmiðjunnar sem var úti á næsta horni. Og í stafni stóð Eddie Van Halen, „Mozart rafgítarsins“. Goslok hjá gítarguði Ljósmynd/Carl Lender (Wikicommons) Sóló! Eddie Van Halen lætur gamminn geisa í upphafi ferilsins. Myndin er tekin á tónleikum í Coliseum-höllinni í New Haven í Bandaríkjunum. AFP Grallaralegir Söngvarinn David Lee Roth með vini sínum Eddie Van Halen á tónleikum Van Halen í Inglewood í Kaliforníu 7. febrúar árið 2012. »Hendrix særðurfram, að einhverju leyti, en stíllinn tilheyrði um leið Eddie og engum öðrum. Einn merkasti rafgítar- leikari sögunnar, Eddie Van Halen, lést í vik- unni, aðeins 65 ára að aldri. Krabbamein lagði þennan snilling en áhrif hans og arfleifð hvað rokkgítarleik varðar munu lifa hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.