Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR
Þungar og öflugar undirstöður
DVERGARNIR R
HNERRIR
DURGURJÖTUNN
DRAUPNIR
ÞJARKUR
Þessir dvergar henta vel sem
undirstöður þar sem þung og
öflug festing er aðalatriði.
Óvenjuhægviðrasamt hefur verið
það sem af er októbermánuði. Með-
alvindhraði í byggðum landsins hef-
ur ekki verið jafnlítill sömu daga
síðan í október 1960. Þetta kemur
fram á bloggi Trausta Jónssonar
veðurfræðings.
Spár gefa nú í
skyn að breyt-
inga kunni að
vera að vænta,
segir Trausti.
Alla vega virðist
þær sammála um
að lægðir verði
ágengari og
dýpri heldur en
að undanförnu.
Þetta rímar við spá Veðurstofunnar
sem segir að í dag gangi í austan
13-18 m/s, 18-23 syðst um kvöldið,
en hægari vindur verði norðan
heiða. Rigning eða slydda um land-
ið SA-vert, annars úrkomulítið. Hiti
2 til 7 stig. Á morgun, föstudag, er
spáð austan og norðaustan 13-20
m/s, en heldur hægari NA-lands.
Rigning verður, einkum SA-til en
úrkomulítið á NV- og V-landi. Hiti
verður 2 til 7 stig.
Meðalhiti fyrstu 20 daga októ-
bermánaðar er 6,0 stig í Reykjavík,
segir í yfirliti Trausta. Það er 0,4
stigum ofan meðallags áranna 1991
til 2020, en 0,2 stigum neðan meðal-
lags sömu daga síðustu tíu ár og
raðast í tíunda hlýjasta sæti (af 20)
á öldinni. Hlýjastir voru þessir
sömu dagar árið 2016, meðalhiti þá
var 9,1 stig, en kaldastir voru þeir
2008, meðalhiti 4,2 stig. Á langa
listanum er hitinn nú í 43. sæti (af
145). Hlýjastir voru dagarnir árið
1959, meðalhiti 9,5 stig, en kald-
astir voru þeir 1981, meðalhiti -0,3
stig.
Á Akureyri er meðalhiti í mánuð-
inum til þessa 4,1 stig, 0,2 stigum
neðan meðallags 1991 til 2020 en
1,0 neðan meðallags síðustu tíu ára.
Lítið hefur rignt í borginni
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst
17,5 millimetrar og er það innan við
þriðjungur meðalúrkomu. Úrkoma
hefur aðeins níu sinnum mælst
minni sömu daga, minnst 10,3 mm
1993. Úrkoma á Akureyri hefur
mælst 52,9 mm og er það um
fimmtungur umfram meðallag.
Sólskinsstundir hafa mælst 72,2 í
Reykjavík það sem af er mánuði og
er það í ríflegu meðallagi.
sisi@mbl.is
Mestu stillur í
veðrinu í 60 ár
Breytingar eru í veðurkortunum
Trausti Jónsson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Verkalýðshreyfingin á skýlausa
kröfu til aðkomu að öllum stórum
ákvörðunum sem nú eru teknar,“ seg-
ir í ályktun um vinnumarkaðsmál,
sem samþykkt var á þingi ASÍ sem
haldið var í gær. Þar er þess krafist
að ríkisfjármálum verði beitt af full-
um þunga til að milda höggið af
kreppunni og er því með öllu hafnað
„að almenningur eigi að bera kostn-
aðinn af björgunaraðgerðum stjórn-
valda með niðurskurði á opinberri
þjónustu og hærri tekjusköttum og
gjaldtöku“.
Einnig krefst þingið þess m.a. að
komið verði í veg fyrir langtíma-
atvinnuleysi og að grunnatvinnuleys-
isbætur verði hækkaðar þegar í stað.
Þingið var mjög óvenjulegt að
þessu sinni vegna kórónuveiru-
faraldursins og fór fram á fjarfundi
með þátttöku tæplega 300 þingfull-
trúa. Afgreidd voru kjarnaatriði sam-
kvæmt lögum ASÍ og þinginu því-
næst frestað fram á vor.
Tillaga um að fjölga varaforsetum
ASÍ úr tveimur í þrjá var samþykkt
„með naumum mun eftir fjörugar
umræður“, eins og segir í frétt ASÍ
en sá hluti þinghaldsins var lokaður
öðrum en skráðum þingfulltrúum.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, bauð sig fram í nýtt embætti
þriðja varaforseta. Var hann einn í
framboði og því sjálfkjörinn 3. vara-
forseti ASÍ. „Ekki bárust nein mót-
framboð um embætti forseta ASÍ, 1.
varaforseta né 2. varaforseta og eru
Drífa Snædal, Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson og Sólveig Anna Jóns-
dóttir því sjálfkjörin í þau embætti.
Þá voru 11 einstaklingar sem kjör-
nefnd gerði tillögu um sjálfkjörnir
þar sem engin mótframboð bárust,“
segir í frétt ASÍ.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er óánægja meðal forystu-
manna á landsbyggðinni með að eng-
inn fulltrúi af landsbyggðinni tilheyri
hinu nýja forsetateymi ASÍ en forset-
arnir fjórir koma öll af höfuðborgar-
svæðinu. Það stangist á við fyrri
venju hjá ASÍ. Nokkrir fulltrúar af
landsbyggðinni eiga þó sæti í mið-
stjórn ASÍ sem kjörin var.
Gegn arðvæðingu grunnstoða
Í setningarræðu sinni við upphaf
þingsins í gærmorgun sagði Drífa
Snædal, forseti ASÍ, að það væri aldr-
ei meiri þörf á sterkri verkalýðs-
hreyfingu en þegar völd atvinnurek-
enda aukist á kostnað launafólks.
„Við erum í þannig stöðu núna að
óprúttnir atvinnurekendur geta boðið
örvæntingarfullu fólki laun og að-
stæður sem teljast ekki boðleg. Þá
kemur það til okkar kasta að heyja
baráttuna gegn félagslegum undir-
boðum og fyrir því að samningar séu
virtir. Það þarf að vera refsivert og
ekki áhættunnar virði að svína á
launafólki. Við eigum enn töluvert í
land þar og sú barátta stendur yfir,“
sagði Drífa m.a. Verkefnin til
skamms tíma væru áframhaldandi
barátta fyrir hækkun atvinnuleysis-
bóta og að verja heimilin. „Til lengri
tíma skulum við muna það að þegar
einhver býður einfaldar lausnir eins
og að selja ríkiseignir eða „nýta
einkaframtakið“ í heilbrigðisþjónustu
þá skulum við ekki pissa í skóinn okk-
ar. Þessi öfl eru komin á fullt skrið en
það alversta sem við getum gert núna
er að arðvæða okkar grunnstoðir,“
sagði hún.
Ásmundur Einar Daðason félags-
málaráðherra ávarpaði þingið og fór
yfir þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa
gripið til vegna afleiðinga heimsfar-
aldurs kórónuveirunnar og sagði að
þrátt fyrir allar aðgerðir stefndu at-
vinnuleysistölur í eitthvað sem Ís-
lendingar hefðu aldrei séð áður og al-
gjört hrun í ákveðnum
atvinnugreinum blasti við. Því miður
þyrfti að gera ráð fyrir að fjölda-
atvinnuleysi myndi dragast á langinn.
Gagnrýndi harðlega frumvarp
um fæðingarorlof
Ástþór Jón Ragnheiðarson, vara-
formaður ASÍ-UNG, gagnrýndi fæð-
ingarorlofsfrumvarpið harðlega í
ræðu sinni á þinginu. Sagði hann að
þótt ASÍ hefði komið að vinnu við
frumvarpið og styddi það þá gerði
ASÍ-UNG það ekki. „Fljótt á litið er
þetta flott, þarna er verið að auka
jafnrétti kynjanna með jafnri skipt-
ingu. En þegar betur er að gáð koma
ýmsir vankantar í ljós. Jafnrétti er
nefnilega mikilvægt, en velferð
barnsins á ávallt að vera í forgrunni.
Þannig er mál með vexti að þetta er
frumvarp sem hentar hálauna- og for-
réttindafólki vel,“ sagði hann og benti
á að tökutíminn færi úr 24 mánuðum í
18, börn einstæðra mæðra fengju
styttra orlof eða í mesta lagi sjö mán-
uði. Færri myndu fullnýta rétt sinn.
„Það að ASÍ taki þátt í aðgerðum sem
henta forréttinda- og hálaunafólki
vel, í nafni jafnréttis og á kostnað
þeirra sem minna mega sín, er með
öllu óviðunandi.“
Bæturnar hækki þegar í stað
Varaforsetum fjölgað í þrjá með naumum mun á þingi ASÍ Óánægja með að landsbyggðin eigi ekki
fulltrúa í forsetateymi ASÍ Um þrjú hundruð tóku þátt í þingstörfum í gegnum fjarfundabúnað
Ljósmynd/ASÍ
Fjarþing ASÍ Þingstörfin fóru fram við óvenjulegar aðstæður. 300 fulltrúar tóku þátt í þeim gegnum fjarfundabúnað.
Ljósmynd/ASÍ
Þingsetning Drífa Snædal var endurkjörin forseti ASÍ á þinginu í gær.