Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 12
Fjarskipti Huawei-búnaður gæti skipt öll íslensku fjarskiptafélögin máli í framtíðinni ef þeim verður heimilt að vinna meira saman. Svíar hafa bæst í hóp þeirra ríkja sem leyfa ekki Huawei-búnað í fjarskiptainnviðum sínum. AFP BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær hefur sænska póst- og fjarskiptastofnunin útilokað þau fyrirtæki frá útboði á tíðnisviðum tengdum uppbyggingu 5G-fjar- skiptakerfis í landinu sem notast við búnað frá kínversku fyrirtækj- unum Huawei og ZTE í uppbygg- ingarferlinu. Þau farsímafyrirtæki sem til þessa hafa notast við búnað frá fyrirtækjunum tveimur hafa frest til 1. janúar 2025 til þess að losa sig við hann, sé hann á annað borð notaður í 5G-kerfi innan rík- isins. Ótti manna varðandi Huawei, sem er stærsti framleiðandi fjar- skiptabúnaðar í heiminum, snýr að því hvort kínversk yfirvöld muni notfæra sér búnaðinn til njósna eða til að trufla fjarskipti, en sam- kvæmt lögum þar í landi ber fyrir- tækjum að leggja ríkinu lið, krefjist það þess í þágu öryggis. Hér á Íslandi nota fjarskipta- fyrirtækin Sýn og Nova Huawei- tækni í sínum fjarskiptakerfum. Fylgjast náið með Kjartan Briem, framkvæmda- stjóri tækni og innviða hjá Sýn, segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið fylgist náið með þróun þessara mála annars staðar á Norð- urlöndunum. Hingað til hafi Svíar og Finnar ekki gefið færi á neinum útilokunum eins og nú hefur verið ákveðið að gera í Svíþjóð. „Þannig að þetta er nýtt,“ segir Kjartan, en bætir við að ákvörðun Svía hafi engin bein áhrif á Vodafone. Fyrr í vikunni fór fram fyrsta umræða á Alþingi um frumvarp til nýrra fjarskiptalaga, en í því er ekki að finna neinar heimildir sem gæfu íslenskum yfirvöldum tæki- færi til þess að útiloka búnað frá einstaka framleiðendum. „Ég vona bara að stjórnvöld hér á landi taki skynsamlegar ákvarð- anir um þessi mál og líti fyrst og fremst til mikilvægis öryggismál- anna og tryggi gott regluverk í kringum netöryggi fjarskiptakerf- anna eins og annarra mikilvægra innviða.“ Kjartan segir að Sýn muni ræða málið við Huawei og áfram ráðfæra sig við samstarfsaðila sína hjá Vodafone Group, sem sé langt kom- ið með að móta sér framtíðarsýn í innleiðingu 5G-tækninnar. Óþægilegt fyrir geirann Kjartan segir að málefni Huawei séu óþægileg fyrir fjarskiptageir- ann, enda sé Huawei mjög framar- lega í þróun fjarskiptatækni. „Virkni kerfanna þeirra er framúr- skarandi, og þeir bjóða hagkvæmt verð. Stórir keppinautar eru í raun bara Ericsson og Nokia. Aðrir framleiðendur eru minni.“ Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um val á framleiðanda fyrir fulla innleiðingu á 5G hjá Sýn, þótt félagið hafi staðið í prófunum og notað þar tækni Huawei. „Ákvörðun verður tekin að vel at- huguðu máli, en það er erfitt að segja hvenær hún verður tekin.“ Samkeppniseftirlitið hefur heim- ilað Símanum, Sýn og Nova að halda áfram að ræða mögulegt sam- starf um rekstur 5G-kerfis, og segir Kjartan að það samtal haldi áfram. Samnýting innviða farsímakerfanna sé þar til umræðu. Umræðan ákaflega pólitísk Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, segir í samtali við Morgun- blaðið að fyrirtækið fylgist mjög vel með umræðunni og leggi gríðarlega áherslu á áreiðanleika og öryggi kerfa sinna. „Við gerum reglulega áhættumat á kerfum Nova og upp- færum það mat með tilliti til um- ræðunnar. Ennþá hefur ekkert komið fram um óeðlilega eða óvið- unandi veikleika og því miður virð- ist umræðan ákaflega pólitísk. Ör- yggið er ávallt í fyrirrúmi hjá Nova. Það er sjálfsagt að það eigi sér stað umræða um þessi mál en hún ætti að fara fram á faglegum grunni frekar en ein- göngu pólitísk- um,“ segir Mar- grét. Fyrirtækið hóf 5G-þjónustu 5,5 á þessu ári og seg- ir Margrét að fyrirtækið stefni á hraða uppbygg- ingu kerfisins. Eins og Margrét útskýrir hóf Nova fyrst prófanir á 3G hér á landi árið 2006. Fyrirtækið hafi ver- ið fyrst til að bjóða upp á 4G- þjónustu árið 2013 og 4,5G-þjónustu 2017. „Netnotkun viðskiptavina Nova í farsímum hefur stóraukist milli ára og áætlað er að aukningin vaxi áfram um tugi prósenta á ári. Það er fyrst og fremst streymi afþrey- ingar og samskipta í háum gæðum sem kallar á aukna afkastagetu fjarskiptakerfa. Hver ný kynslóð þessara kerfa hefur haft í för með sér margföldun á hraða og þar með á notkunarmöguleikum farsíma, úr- vali smáforrita og annarra sam- skipta. Stór stökk í nethraða hafa yfirleitt leitt af sér stofnun fjölda nýrra fyrirtækja og jafnvel beinar samfélagsbreytingar. Því er upp- bygging fjarskiptakerfa í flokki afar mikilvægra innviðafjárfestinga.“ Nota ekki Huawei Síminn er eina fyrirtækið af stóru fjarskiptafyrirtækjunum þremur á Íslandi sem ekki reiðir sig á Huawei. „Við notum ekki þennan búnað, heldur erum við með samn- ing við Ericsson. Ef fjarskiptafyr- irtækjunum hér á landi verður heimilt að vinna meira saman munu þessi atriði snerta okkur með aukn- um hætti í framtíðinni, en þá ein- ungis ef komin er sannfæring fyrir öryggisatriðum og því að yfirvöld hér á landi gefi búnaðinum grænt ljós fram á við,“ segir Orri Hauks- son, forstjóri Símans. Hann segist vera í sambandi við fjarskiptafélög í öðrum löndum þar sem skipta þurfi út búnaði. Erfitt og kostnaðarsamt geti verið fyrir fyrirtæki að þurfa að fara úr við- skiptasambandi við mikilvægan birgi. Stíga þurfi varlega til jarðar.  Engin bein áhrif af ákvörðun Svía  Vill faglega umræðu Orri Hauksson Margrét Tryggvadóttir Vonar að stjórnvöld taki skynsamlegar ákvarðanir Kjartan Briem 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Silver/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.250.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Carbon Black/ Walnut að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.250.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque, 4X4, 10-speed Automatic transmission, 6-manna. Heithúðaður pallur. VERÐ 11.290.000 m.vsk 2020 Ford F-350 XLT STUTT ● Hagnaður Origo nam tæpum 90 milljónum á þriðja ársfjórðungi, sam- anborið við 74 milljóna hagnað yfir sama tímabil í fyrra. Tekjuvöxtur mili tímabila var 15% og seldi fyrirtækið vörur og þjónustu fyrir tæpa fjóra millj- arða á fjórðungnum. Hagnaður Origo á fyrstu níu mánuðum ásins nam 461 milljón króna og eykst úr 366 milljónum á fyrstu níu mánuðum ársins 2019. Jón Björnsson, forstjóri fyrir- tækisins, segir gengið á síðasta fjórð- ungi hafa reynst umfram vætningar og það sýni að Origo hafi unnið vel úr þeim aðstæðum sem uppi hafa verið í sam- félaginu á síðustu mánuðum. Hagnaður Origo eykst á þriðja ársfjórðungi 22. október 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 138.88 Sterlingspund 179.58 Kanadadalur 105.29 Dönsk króna 22.036 Norsk króna 14.959 Sænsk króna 15.798 Svissn. franki 152.94 Japanskt jen 1.3142 SDR 196.54 Evra 164.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 194.1265 Hrávöruverð Gull 1906.35 ($/únsa) Ál 1848.0 ($/tonn) LME Hráolía 42.45 ($/fatið) Brent ● Í gær barst tilkynning gegnum kerfi Kauphallar Íslands um að Samherji Holding hefði bætt við hlut sinn í Eimskipafélagniu. Eftir þau viðskipti nam eignarhlutur félags- ins 30,28% og þar af var 2,93% hlutur gegnum framvirka samninga með hlutabréf í félaginu. Lögum samkvæmt þarf að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð þegar eign- arhlutur eins aðila eða aðila í samstarfi fer yfir 30%. Í tilkynningunni var greint frá því að Samherji myndi gera það en á sama tíma greint frá því að fyrirtækið stefndi ekki á að skrá Eimskipafélagið af markaði. Þetta er raunar í annað sinn á þessu ári sem Samherji fer yfir 30% markið í Eim- skipafélaginu. Það gerðist einnig 10. mars síðastliðinn og fór þá hluturinn í 30,11%. Stuttu síðar urðu mikil tíðindi á mörkuðum með útbreiðslu kórónuveirunnar og ósk- aði Samherji þá eftir því við Fjármálaeftirlitið að fá að falla frá yfirtökutilboði. Var það samþykkt og seldi félagið sig að nýju undir 30% mörkin hinn 23. mars. Velta með bréf Eimskipafélagsins nam 587 milljónum króna í gær og hækkuðu bréfin um 8,66% í þeim. Stendur gengi bréfa félagsins í 182. Þegar Samherji keypti fjórðungs hlut í Eimskipafélaginu um mitt ár 2018 fóru viðskiptin fram á genginu 220. Samherji gerir yfirtökutilboð í Eimskipafélaginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.