Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 19

Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 ✝ SveinbjörgGuðmunds- dóttir fæddist í Hafnarfirði 19. október 1929. Hún lést 13. október 2020 á hjúkr- unarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Illugason, f. 21. júní 1899 að Skógum í Flókadal, Borg., fv. rannsóknarlögreglumaður og hreppstjóri á Seltjarnarnesi, d. 25. sept. 1986, og Halla Guðrún Markúsdóttir, f. 26. september 1901 að Hafursstöðum í Hnappadal, d. 5. júní 1988. Systkini Sveinbjargar eru: Guðrún, f. 1. maí 1923, d. 30. nóv. 2018, Laufey, f. 10. mars 1926, d. 6. des. 2010, Lilja, f. 10. mars 1926, d. 24. ágúst 2013, Kristín, f. 18. júní 1937, og Albert Sævar, f. 14. júlí 1946 (kjörsonur). Sveinbjörg (Silla) ólst upp í Reykjavík. Hún stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík, varð síðan ritari hjá Sakadóm- araembætti ríkisins og síðar hjá Sambandi ísl. samvinnu- félaga. Björg. 3) Gunnhildur, f. 18. feb. 1955, börn hennar eru Íris, Daníel, Sara og Lilja. Árið 1962 giftist Silla Óskari Elínbert Sigurðssyni, f. 1. apríl 1913, d. 24. apríl 1974. For.: Sigurður Marís Þorsteinsson og k.h. Guðrún Oddsdóttir, bændur á Stóra-Kálfalæk. Þau eignuðust tvo syni 1) Hlynur, f. 28. ágúst 1960, maki Guðríður Ester Geirsdóttir, f. 10. okt. 1975, barn þeirra er Melkorka Mýr, fyrir átti Guðríður soninn Alex Mána og 2) Víðir, f. 24. des. 1961, maki Klara Gunn- arsdóttir, f. 3. mars 1955, synir þeirra eru Hlynur og Birkir, fyrir átti Klara börnin Ragnar Frey og Helgu Lind. Óskar átti fyrir soninn Gunnar Sigurð, f. 3. apríl 1943, d. 1. jan. 1983. Árið 1998 giftist Silla Andr- ési Bjarnasyni, f. 21. febr. 1921, d. 8. apríl 2002. For.: Bjarni Bjarnason Austmann og Stefanía Markúsdóttir. Andrés átti fyrir tvö börn, Margréti, f. 5. des. 1945, og Dúa, f. 7. sept. 1950. Þá lætur hún eftir sig fjölda langömmubarna. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 22. október 2020, kl. 15. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstand- endur viðstaddir en athöfninni verður streymt á https://youtu.be/LmrBKaStcvs Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Silla gekk í söfnuð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (mor- mónakirkjuna) ár- ið 1976 og starfaði þar sem þýðandi þar til hún lét af störfum vegna ald- urs. Hún var með- höfundur að Borg- firskum æviskrám, 8. til 13. bindi, og að Niðjatali Benjamíns Jóns- sonar og Katrínar Mark- úsdóttur á Hrófbjargastöðum. Silla giftist árið 1949 Ingólfi Sigurðssyni, f. 1. nóv. 1926. For.: Sigurður Guðmundsson, f. í Meðallandi, V-Skaftafells- sýslu 16. júlí 1900, d. í Rvík 21. ág. 1989, og k.h. Rannveig Ingveldur Runólfsdóttir f. á Hólmi í Landbroti 28. nóv. 1897, d. í Rvík 1. okt. 1968. Þau skildu. Þeirra börn eru 1) Bjarni Runólfur, f. 29. júní 1950, maki Þórunn Kristjónsdóttir, f. 15. nóv. 1951, börn þeirra eru Rannveig, Rúnar Þór og Anna Rut. 2) Guðmundur, f. 4. júlí 1953, maki Auður Marinós- dóttir, f. 17. jan. 1953, börn þeirra eru Birgir Már og Una Þegar við kveðjum Sillu eins og tengdamóðir mín var alltaf kölluð þá er margs að minnast enda tæp 50 ár frá því að ég kom inn í fjölskylduna. Hún tók mér vel frá fyrstu kynnum, var alltaf elskuleg við mig og fylgdist vel með okkur, elsta syninum og kærustunni þegar við voru að byrja okkar sambúð og eignast okkar fyrsta barn. Hún var allt- af tilbúin að gefa góð ráð þegar við leituðum til hennar og hafði eflaust meiri áhyggjur af okkur þá en við gerðum okkur grein fyrir. Þarna var hún með stóra fjöl- skyldu og eina fyrirvinnan vegna veikinda eiginmannsins en aldrei heyrði maður hana kvarta og alltaf tókst henni að láta hlutina ganga upp. Hún hafði mikinn metnað og áhuga fyrir vinnu sinni og sinnti öllum sínum störfum af mikilli sam- viskusemi og virtist stundum hafa fleiri klukkutíma í sólar- hringnum en aðrir. Seinna þeg- ar hún var farin að vinna við þýðingar fékk hún mig til að hjálpa sér við vélritun og dáðist ég þá oft að hæfileikum hennar og dugnaði. Hún var fróðleiks- fús, hafði mikla tungumálahæfi- leika og átti gott með að skrifa fallegan texta og það er engin spurning að hún hefði viljað mennta sig meira ef aðstæður hefðu verið aðrar. Silla var trúuð kona, tæplega fimmtug gekk hún í Mormóna- kirkjuna, Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu og starfaði mikið innan þeirrar kirkju alla tíð. Seinna á ævinni þegar hún fór að hafa tækifæri til að ferðast fór hún til fjölda landa og naut þess mikið og hafði gaman af því að rifja upp þessar ferðir og segja okkur fjölskyldunni frá því sem hún sá og upplifði. Tvisvar bauð hún okkur tengda- dætrunum og dóttur sinni í ferðalög erlendis og það voru skemmtilegar ferðir, mikið spjallað, skoðað og hlegið. Henni þótti mjög vænt um börnin sín og þeirra fjölskyldur, fylgdist vel með öllum hópnum og vildi vita hvernig þeim gengi og hvað væri að gerast í þeirra lífi. Síðustu árin bjó hún í Hvera- gerði með eiginmanni sínum og þar leið henni vel og átti góða tíma og valdi að búa þar áfram eftir að hann lést. Það eru margar minningar sem ég á um tengdamóður mína og allar fallegar. Hún var kona sem umgekkst alla af virðingu og vinsemd, var hjálpsöm og ljúf og ég er þakklát fyrir öll árin sem ég fékk með henni. Þórunn (Tóta). Elsku Silla amma það er sárt að kveðja þig í dag. Við erum þó svo þakklát fyrir að hafa haft þig svo lengi hjá okkur. Minn- ingarnar eru margar og góðar og þær munu alltaf ylja okkur og gleðja. Þú varst svo hæfileikarík og mikill listamaður og það lék allt í höndunum á þér, hvort sem um var að ræða prjónaskap, út- saum, postulínsmálun eða ein- stakar kveðjur á afmæliskortun- um. Þú hafðir svo víðtækan bókmenntaáhuga og gast alltaf mælt með bók fyrir mann að lesa eða farið með ljóð fyrir mann sem tengdist umræðuefn- inu. Enda bjóstu yfir ótrúlegu minni þegar kom að ljóðum, bókum og greinum sem þú hafð- ir lesið. Þú fylgdist vel með þjóðmálaumræðunni og íþrótt- um, þú vissir líka alltaf nýjustu úrslitin í boltanum og fylgdist vel með öllum leikjum. Elsku amma okkar var nefni- lega svo skemmtilega marg- slungin kona, hafði bæði gaman af ljóðum og krimmum, fótbolta og handavinnu, algjörlega ein- stök amma sem lét mann segja borðbænirnar, jafnvel þótt við værum bara að gæða okkur á heimsendri pizzu. Við systkinin vorum svo lán- söm að fá að vera hjá þér á Þor- láksmessu árin sem mamma og pabbi voru í sjoppurekstri. Það var ætíð mikil eftirvænting hjá okkur fyrir því hvað við mynd- um föndra með þér en þú varst alltaf tilbúin með jólaskrauts- verkefni sem við bjuggum til saman, þetta voru notalegar og dýrmætar samverustundir. Þú gerðir allt með svo mikilli natni og hlýju. Á páskunum bjóstu til metnaðarfullar og skemmtilegar vísbendingar og leyfðir okkur barnabörnunum að leita að páskaeggjum út um allt í litlu íbúðinni þinni. Á jóladag hittist stórfjöl- skyldan hjá þér og þá var oft gripið í spil enda hafðir þú mjög gaman af því að spila. Þú varst líka dugleg við að hjálpa okkur krökkunum að reyna að vinna kappsama foreldrana. Mesta eftirvæntingin hjá okk- ur var þó líklegast stundin þeg- ar kom að því að giska á hve há peningaupphæð var í sparigrísn- um sem þú varst búin að safna klinki í yfir árið. Sá sem komst næst því að giska á rétta upp- hæð mátti nefnilega eiga inni- haldið þannig að það var til mik- ils að vinna. Elsku amma það var alltaf svo mikið ævintýri að fá að vera í passi hjá þér, klifra upp bíl- skúrsþak í Löngubrekkunni, hnupla rifsberjum úr garði ná- grannans, fara í sundferðir á Seltjarnarnesinu, borða heima- bakaða pizzu með pylsu og grjónagraut með extra miklum kanilsykri. Þú varst líka alltaf með okkur á gamlárskvöldi, þá settist þú niður með krossgáturnar og myndþrautirnar sem yngsta barnið var samviskusamlega bú- ið að taka til fyrir þig. Þú varst svo ótrúlega klár í að leysa þess- ar þrautir og við munum ekki eftir öðru en að þú hafir leyst þetta allt fyrir nýtt ár. Þú endaðir svo kvöldið hjá okkur með því að horfa á flug- eldana út um gluggann með yngsta skottinu, þar gat hún áhyggjulaus fylgst með í öruggu skjóli ömmu sinnar. Takk amma fyrir þolinmæð- ina, takk fyrir glettnina og gleðina, takk fyrir viskuna og umhyggjuna, takk fyrir ástina Elskum þig, alltaf Rannveig Bjarnadóttir, Rúnar Þór Bjarnason, Anna Rut Bjarnadóttir og fjölskyldur. Enginn banki er verðmætari en minningabankinn og hann vex með hverju árinu. Hann er líka ólíkur öðrum bönkum að því leyti að við ráðum litlu um það sem bankinn sá geymir. Með aldrinum verður æ forvitnilegra að skoða hvað geymist í þessum einkabanka. Það gerist ekki síst þegar vinir og ættingjar kveðja. Sveinbjörg Guðmundsdóttir var bæði frænka og vinur sem gott er að minnast. Leiðirnar lágu saman í gamla SÍS við Sölvhólsgötuna eins og stundum er sagt. Það var ekki lakara að uppgötva að þarna ætti ég glæsilega frænku á þeim hlýlega vinnustað sem hvíta húsið svo- kallaða var. Þetta var á árunum 1970-80. Á þessum árum var mikið um að vera í félagslífinu hjá sam- vinnustarfsmönnum. Hið gamla heimili Jónasar frá Hriflu – Hamragarðar var gert að fé- lagsheimili starfsmanna og stofnað var landssamband þeirra, byggður fjöldi orlofsbú- staða við Hreðavatn og gengið í norræn samtök samvinnustarfs- manna. Síðast en ekki síst var tekið við útgáfu starfsmanna- blaðsins Hlyns og þar vorum við Sveinbjörg saman í ritstjórn. Hún kom líka mikið að norræna samstarfinu, m.a. stóðum við að sérstökum vináttuvikum, bæði hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum. Sérstaklega er minnisstæð ferð á vináttuviku í Finnlandi sumarið 1976. Betri ferðafélaga en Sveinbjörgu var varla hægt að hugsa sér. Alls þessa er einstaklega gott að minnast. Rætur okkar Sveinbjargar lágu svo saman í samliggjandi dölum á Vesturlandi – Hítardal og Hnappadal. Á mínum æsku- slóðum að Hraunholtum í Hnappadal hefur Bjarni, sonur Sveinbjargar, og fjölskyldu hans reist sér sumarbústað, þar sem þessi tilkomumikli dalur blasir við. Ég var svo heppinn á fal- legum sumardegi að hitta þar Sveinbjörgu með fjölskyldu sinni. Ógleymanleg minning varð til. Ég kveð Sveinbjörgu frænku með mikilli virðingu. Það er gæfa hvers manns að eiga sam- leið með og kynnast gefandi ein- staklingum og inneign Svein- bjargar í mínum einkabanka er stór. Ég votta börnum hennar og fjölskyldum þeirra innilega sam- úð. Reynir Ingibjartsson frá Hraunholtum. Þegar Bergmál - líknar- og vinafélag, var stofnað 1994, var það mikil gæfa að okkar kæra Sveinbjörg valdist til stjórnar- starfa. Hún var einstök kona, kærleiksrík, bráðgreind og dugnaðarforkur. Þetta litla félag var upphaf- lega söngkór, sem varð til er elskaður kennari, Jón H.J. Jóns- son, slasaðist lífshættulega í bíl- slysi. Gamlir nemendur hans frá Hlíðardalsskóla, ákváðu að gefa honum gamla skólakórinn í end- urhæfingargjöf, ef það krafta- verk gerðist að Jón kæmist til heilsu á ný. Kær vinur Sveinbjargar, Ólafur Ólafsson, var einn af hvatamönnum að stofnun kórs- ins. Þannig kynntumst við Sveinbjörg og þegar kórinn breyttist í líknarfélag var Svein- björg með. Sveinbjörg var mikil fyrir- mynd og hafði alltaf gott til mál- anna að leggja. Hún var mjög trúuð og bænin var hennar styrkur. Þegar Sveinbjörg hætti stjórnarsetu vegna heilsubrests, Parkinsons-sjúkdómurinn tók yfir þrek hennar, hélt hún áfram að fylgjast með og biðja fyrir okkur félögunum og Bergmáli. Bergmálsfélagar þakka henni öll hennar störf fyrir félagið og ég, þakka henni vináttuna, ógleymanlega samveru og gleði- stundir sem aldrei bar skugga á. Börnum hennar og ástvinum öllum sendum við Bergmáls- félagar innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi ykkur öll og minn- ingu einstakrar konu. Kolbrún Karlsdóttir. Sveinbjörg Guðmundsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Okkar ástkæri, ÞORGRÍMUR EIRÍKSSON verkfræðingur, lést á Vífilsstaðaspítala mánudaginn 5. október. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 29. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni http://y2u.be/ARN-HWJtGUQ Ansa Súsanna Hansen Sigrún Þorgrímsd. Høiberg Arve Høiberg Eiríkur Þorgrímsson Martha Holst Sigríður Þorgrímsdóttir Páll Ingi Haraldsson Guðbjörg Gísladóttir Andrea J. Gísladóttir Aas Annar Aas Marís Rúnar Gíslason Sigríður Ellertsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, LÚÐVÍK VILHJÁLMSSON flugumferðarstjóri, verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju föstudaginn 23. október klukkan 13. Aðeins nánustu aðstandendur geta verið viðstaddir en streymi frá athöfninni verður hægt að nálgast á mbl.is/andlát. Einnig á slóðinni: https://youtu.be/-A5U32L0JXQ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Ingveldur Fjeldsted Vilhjálmur Albert Lúðvíksson Kristín Lúðvíksdóttir Björn Ágúst Björnsson Guðrún Karítas Bjarnadóttir Halldór Sveinn Kristinsson og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞRÖSTUR H. ELÍASSON sendibílstjóri, Melabraut 46, Seltjarnarnesi, andaðist 11. október á hjúkrunarheimilinu Eir. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 23. október klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á https://youtu.be/1vXk18tzkEE Lilja Þrastardóttir Skúli Þorsteinsson Helgi Leifur Þrastarson Guðrún R. Maríusdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HREFNA MARÍA SIGURÐARDÓTTIR, Vallartúni 5, Keflavík, lést á Hlévangi Hrafnistu laugardaginn 17. október. Útförin fer fram frá Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi, þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt. Gunnar Jónsson Lovísa Steinunn Gunnarsd. Hermann F. Ólafsson Jón Hrólfur Gunnarsson Jóhanna Helga Gunnarsd. John Dunn Hulda S. Gunnarsdóttir Sigríður Gunnarsdóttir Viðar Kristjánsson Kolbrún Jenný Gunnarsd. Björgvin Filippusson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær móðir mín, tengdamamma, amma og langamma, SIGURBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR frá Stöng, Mývatnssveit, lést fimmtudaginn 15. október á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 24. október klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir útförina. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðu Húsavíkurkirkju. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlíð fyrir góða umönnun og hlýju. Trausti Jón Gunnarsson Helga Eyrún Sveinsdóttir og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.