Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 26

Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Salzburg – Lokomotiv Moskva ............... 2:2 Bayern München – Atletico Madríd....... 4:0 Staðan: Bayern München 3 stig, Lokomotiv Moskva 1, Salzburg 1, Atletico Madríd 0. B-RIÐILL: Real Madríd – Shaktar Donetsk............. 2:3 Inter – Borussia Mönchengladbach ....... 2:2 Staðan: Shaktar Donetsk 3 stig, Gladbach 1, Inter 1, Real Madrid 0. C-RIÐILL: Manchester City – Porto ......................... 3:1 Olympiacos – Marseille........................... 1:0  Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Staðan: Manchester City 3 stig, Olympiacos 3, Mar- seille 0, Porto 0. D-RIÐILL: Ajax – Liverpool ....................................... 0:1 Midtjylland – Atalanta ............................ 0:4  Mikael Anderson kom inn á hjá Midtjyll- and á 87. mínútu. Staðan: Atalanta 3 stig, Liverpool 3, Ajax 0, Midt- jylland 0. Ítalía C-deild: Arezzo – Padova ...................................... 0:5  Emil Hallfreðsson var ekki í leikmanna- hópi Padova. Danmörk B-deild: HB Köge – Fredericia ............................. 0:1  Elías Rafn Ólafsson var ekki í leik- mannahópi Fredericia. Undankeppni EM kvenna B-RIÐILL: Danmörk – Ísrael ..................................... 4:0  Meistaradeild karla B-RIÐILL: Aalborg – Kiel...................................... 23:31  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Þýskaland B-deild: Bietigheim – Grosswallstadt ......... Frestað  Aron Rafn Eðvarðsson leikur með Bie- tigheim. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Gummersbach – Hüttenberg ............. 30:29  Elliði Snær Viðarsson skoraði 1 mark fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. Elbflorenz – Aue ............................. Frestað  Arnar Birkir Hálfdánsson og Sveinbjörn Pétursson leika með Aue. Frakkland B-deild: Nice – Nancy ........................................ 25:30  Grétar Ari Guðjónsson varði 8 skot í marki Nice og var með 22% markvörslu.   Meistaradeild Evrópu Lublin – Zaragoza ............................... 85:86  Tryggvi Snær Hlinason tók fimm frá- köst og gaf eina stoðsendingu hjá Zara- goza. Evrópubikarinn Lokomotiv Kuban – Andorra............. 76:61  Haukur Helgi Pálsson skoraði níu stig fyrir Andorra, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar.   Starfsmaður knattspyrnu- sambands Íslands, KSÍ, greindist með kórónuveiruna á mánudag- inn síðasta samkvæmt heimildum mbl.is. Umræddur starfsmaður er í starfsliði íslenska karlalands- liðsins og því ljóst að hann hefur smitast af liðsstjóra íslenska liðs- ins sem greindist með kór- ónuveiruna fyrir leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeild UEFA sem fram fór á Laugardalsvelli 14. október síðastliðinn. Starfsmaðurinn sem greindist á mánudaginn er nú í einangrun en allir starfsmenn KSÍ voru próf- aðir fyrir veirunni eftir að liðs- stjóri karlalandsliðsins greindist. Aðeins einn úr starfsliðinu reyndist smitaður af þeim sýnum sem voru tekin og er hann nú í einangrun. bjarnih@mbl.is Annað smit í starfsliðinu Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands sendi frá sér fréttatilkynn- ingu í gærkvöld þar sem fram kem- ur að afreksíþróttafólk geti hafið æfingar á ný í mannvirkjum á höf- uðborgarsvæðinu en tilkyninguna má lesa á mbl.is. Er það gert með því skilyrði að tveggja metra regl- an og önnur skilyrði séu virt. „Ég fagna sérstaklega því skrefi að náðst hafi að koma af stað af- reksstarfi á höfuðborgarsvæðinu og við vonumst til að annað íþrótta- starf fylgi fljótlega í kjölfarið,“ seg- ir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ. Afreksstarf fer í gang á ný Morgunblaðið/Golli ÍSÍ Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ. Úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, mun ljúka hinn 30. nóvember næstkomandi samkvæmt nýrri leikjaniðurröðun KSÍ fyrir lokaleiki Íslandsmótsins. Í gær sendi KSÍ frá sér yfirlýs- ingu þess efnis að allt kapp yrði lagt á að ljúka Íslandsmótinu 2020. Keppni í úrvalsdeild kvenna á að ljúka hinn 18. nóvember næstkom- andi og keppni í 1. deild karla, Lengjudeildinni, hinn 14. nóv- ember. Stefnt er að því að hefja leik að nýju, ef hægt verður, hinn 3. nóvember. sport@mbl.is Leikið verður út nóvember Morgunblaðið/Kristinn Magnússon KSÍ Guðni Bergsson, formaður KSÍ. VAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Þegar horft er yfir sviðið á sam- félagsmiðlum þá tjá íþróttaunn- endur sig reglulega um VAR, mynd- bandstæknina í knattspyrnunni. Ekki síst þau sem fylgjast grannt með ensku knatt- spyrnunni. Ekki er óvarlegt að segja að óánægja ríki með hvernig til hefur tekist hjá Englending- unum hvað notk- un á þessari tækni varðar. Í þriðjudags- blaðinu skrifaði fréttastjóri íþróttafrétta á Morgunblaðinu, Víðir Sigurðsson, til að mynda Bakvarð- arpistil um málið þar sem hann sagði meðal annars að „Englendingar væru á algjörum villigötum“. En ekki snertir þetta einungis þá sem spila knattspyrnu í ensku úr- valsdeildinni því VAR kom til Ís- lands í fyrsta skipti á dögunum þeg- ar Ísland vann Rúmeníu í umspili um sæti á EM karla. Ísland vann 2:1 og skoraði Rúmenía mark úr víta- spyrnu. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að dæma vítaspyrnu eftir að hafa horft á skjáinn drykklanga stund og vakti það töluverða athygli hér heima. Morgunblaðið hafði samband við Gunnar Jarl Jónssson, fyrrverandi knattspyrnudómara, en Gunnar er mikill áhugamaður um íþróttina og hefur spilað sjálfur og þjálfað yngri flokka. Blaðið leitaði álits hjá Gunn- ari á því hvernig til hefði tekist. „Ef ég horfi aðeins um öxl þá var ég enginn sérstakur aðdáandi þegar til stóð að setja VAR á laggirnar. Maður er ef til vill pínulítið af gamla skólanum hvað það varðar og finnst dómgæslan vera hluti af leiknum hvort sem hún er góð eða slæm. Sjálfur var ég enn að dæma þegar þetta var og ef til vill hafði það eitt- hvað að segja. Ljóst var að störfum myndi fækka en á þeim tíma voru endalínudómarar við störf í leikjum erlendis og við Íslendingar fengum stundum slík verkefni. Þegar myndbandstæknin hafði verið prófuð í Álfukeppninni árið 2017 þá hafði ég hreinlega miklar áhyggjur af þessu því það gekk skelfilega. En það verður að segjast eins og er að þetta gekk bara mjög vel á HM í Rússlandi árið 2018 og þá tók ég VAR í sátt ef svo má segja. Þá hafði mönnum tekist að laga eitt og annað enda varð maður ekki var við óánægju eftir þá keppni. Ég skil einnig hvað menn eru að hugsa með þvi að nýta tæknina. Leikirnir eru orðnir hraðari en áður og hlutverk dómarans er því mun erfiðara. Þess vegna er ekki skrítið að menn velti því fyrir sér hvort hægt sé að hjálpa dómurum. Til dæmis varðandi atvik sem dómarinn snýr baki í svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Gunnar en er ekki hrifinn af framkvæmdinni hjá Englendingunum. VAR er komið til að vera „Ég stökk kannski ekki á VAR- vagninn eftir HM í Rússlandi en ég fann þá að þetta væri komið til að vera. Ekki yrði aftur snúið. Í ensku úrvalsdeildinni hefur þetta bara gengið illa ef maður á að vera alveg heiðarlegur. Vandamálið finnst mér vera hversu langt menn seilast eftir því að finna eitthvað. Fyrir mér ætti þetta að snúast um eitthvað sem er augljóst, eða augljós mistök hjá dómaranum. Það virðist ekki ná í gegn í Englandi. Ef þú þarft að skoða atvik oft, þá er ekki augljóst hvað gerðist, og þá á bara að halda áfram að mínu mati án þess að grípa inn í. Dómarinn veltir þessu fyrir sér í langan tíma og það fer líklega mest í taugarnar á fólki eins og ég skynja þetta á samfélagsmiðlum. Auk þess hljóta að vera einhver skekkjumörk í tækninni og því er best að sleppa því að grípa inn í ef ekki er augljóst hvað gerðist. Ég hef séð allt of margar slæmar ákvarðanir í VAR á Englandi og þetta tekur of langan tíma. Fólk verður þreytt á þessu og þetta þarf að laga. Til dæmis í leik Íslands og Rúm- eníu virtist manni dómarinn horfa á atvikið hátt í tuttugu sinnum. Þar erum við að tala um leik með færri myndavélum en annars staðar myndi ég halda. Sjónarhornið sem dómarinn hafði var alla vega ekki gott. Mér finnst að reglan ætti að vera að ef þú sérð ekki hvað gerðist eftir að hafa horft þrisvar á atvikið þá geturðu ekki dæmt.“ Var undirbúningurinn í lagi? Nú virðist vera mun meiri óánægja í kringum VAR í ensku úr- valsdeildinni en víða annars staðar. Ekki ber til dæmis á mikilli óánægju í Þýskalandi. „Já, stemningin er misjöfn eftir löndum. Þjóðverjunum gengur miklu betur en Englendingum. Í fyrstu varð maður var við einhverja óánægju í Þýskalandi en svo er eins og þeir hafi náð tökum á þessu enda er skipulagning ekki vandamál hjá Þjóðverjum. Sennilega hafa vídeó- dómararnir ekki verið nógu góðir í ensku úrvalsdeildinni. Styrkleikar manna eru mismunandi og því þarf að velja fólk vel í þetta. Fólk sem er einbeitt og getur haldið athygli fyrir framan skjáinn þegar það er lokað inni í herbergi. Einnig þarf það að koma skilaboðunum vel frá sér. Og geta unnið undir álagi. Kannski hafa Englendingar ekki æft þetta nóg? Ég velti því fyrir mér. Það kann að hljóma fáránlega en það er möguleiki í stöðunni. Áður en myndbandstæknin var notuð á HM voru dómarar til dæmis ítrekað boðaðir til æfinga í Sviss. Það er eins og menn þurfi að fá meiri kennslu frá FIFA í ensku úrvalsdeildinni. Ég held einnig að það væri til bóta að eiga samtal um þetta við leik- menn og þjálfara. Fá fram þeirra skoðun. Þegar þessu var komið á höfðu menn í knattspyrnuhreyfingunni pottþétt horft til Bandaríkjanna þar sem tæknin er notuð í nokkrum íþróttagreinum og gengur nokkuð vel. Bandaríkjamenn eru líka á und- an með margt í íþróttum þótt þeir séu ekki fræg knattspyrnuþjóð. En þar eru einnig fleiri aðferðir sem hafa verið notaðar. Eins og sú að þjálfarar geti efast um dóm og þá sé tæknin notuð en þeir geta ekki gert það eins oft og þeim sýnist. Það hefði verið til bóta að prófa fleiri útgáfur af þessu áður en menn fóru að nota tæknina af fullum krafti.“ Vankantana þarf að slípa til Gunnar segist hafa trú á því að vinnubrögðin muni batna og tæknin gæti einnig átt eftir að verða betri. „Ég held að niðurstaðan sé sú að umræða um dómgæslu hafi síst minnkað með tilkomu VAR. Hún er meiri ef eitthvað er. Mér fannst ekki sjarmerandi að sjá svo miklar breyt- ingar á íþrótt sem mér finnst sú skemmtilegasta í heimi en ég er heldur ekki að reka knattspyrnu- félag sem veltir milljörðum. Úr því sem komið er ætla ég að vera bjart- sýnn og spá því að þetta muni lagast. Ég trúi því að þetta muni batna. Vankantar eru á framkvæmdinni en tæknin er orðin nógu góð. Mögulega vantar áhorfendur betri útskýringar á hvernig unnið er með VAR. En vankantana þarf að slípa til. Á end- anum snýst þetta alltaf um mann- legar ákvarðanir. Bestu dómararnir taka bestu ákvarðanirnar. Myndbandstæknin gæti þess vegna verið tekin upp í minni deild- um eins og á Íslandi eftir nokkur ár. Ef tæknin verður þannig að þetta verði aðeins minna mál í fram- kvæmd. En það þarf að nást meiri sátt um VAR áður en menn halda áfram að dreifa því frekar,“ segir Gunnar Jarl Jónsson. Fólk er þreytt á hversu langan tíma glápið tekur  Englendingum gengur illa að færa sér tæknina í nyt í dómgæslunni Morgunblaðið/Eggert Í Laugardal Damir Skomina horfir á skjáinn í leik Íslands og Rúmeníu áður en hann dæmdi víti. Gunnar Jarl Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.