Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
Rafhlöðutími u.þ.b. 45 mínútur • Takmarkað magn í boði.
Næsta kynslóð skúringarvéla er komin
Ä R FC 7 PREMIUM
ÞRÁÐLAUS SKÚRINGARVÉL
Lagið „Dreams“ af hinni víðfrægu
plötu Fleetwood Mac, Rumours, er
nú komið aftur í eitt af tíu efstu
sætum bandaríska lagalistans Bill-
board. Platan kom út árið 1977 og í
febrúar 1978 komst lagið „Dreams“
í efsta sæti Billboard-listans.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times rifjar upp að þá hafi
Jimmy Carter verið forseti Banda-
ríkjanna, diskótónlist í algleymingi
og rúmur mánuður í frumsýningu
fyrsta þáttar sápuóperunnar
Dallas.
En hvað veldur skyndilegum vin-
sældum þessa lags af hinni rómuðu
plötu Rumours, 42 árum eftir að
það komst í toppsæti Billboard? Jú,
vinsældirnar má þakka TikTok-
myndbandi sem farið hefur sem
eldur í sinu um heima nets og
snjalltækja og jafngilda vinsældir
lagsins nú um 33.000 eintaka sölu í
Bandaríkjunum og hefur því verið
streymt yfir 30 milljón sinnum, skv.
samantekt Nielsen Music.
Á bretti með brúsa
Forsaga málsins er sú að Nathan
nokkur Apodaca, miðaldra verka-
maður í Idaho, tók upp vídeó af
sjálfum sér að renna sér niður götu
á hjólabretti með lagið „Dreams“
ómandi undir. Apodaca hreyfir var-
irnar við lagið á milli þess sem hann
tekur gúlsopa af trönuberjasafa úr
stórum brúsa. Varð þetta mynd-
band ógnarvinsælt meðal fylgjenda
TikTok og hafa yfir 60 milljónir nú
horft á það. Mick Fleetwood, einn
stofnenda og meðlima Fleetwood
Mac, frétti af myndbandinu og end-
urgerði það með sjálfum sér á
bretti að drekka sams konar trönu-
berjasafa og söngkona Fleetwood
Mac, Stevie Nicks, lét ekki sitt eftir
liggja og tók líka upp myndband
heima hjá sér á hjólaskautum við
píanóið með safabrúsa. Leiddi
þetta fár allt til ógnarstreymis á
„Dreams“ og mikillar fjölmiðlaum-
fjöllunar.
Hefur gerst áður
Á vef Billboard kemur fram að
lagið hafi áður tekið slík stökk í vin-
sældum, síðast árið 2018. Þá var
það vegna svokallaðs „meme“
(brandarar, myndir eða myndbönd
sem fljúga um netheima og er deilt
áfram, skv. skilgreiningu á Vís-
indavefnum) þar sem Golden Girls,
dansflokkur Alcorn State-
háskólans í Bandaríkjnum, steig
dans við lagið. Varð það gríðar-
vinsælt á Twitter og lagið þar af
leiðandi en þó langt í frá eins vin-
sælt og það hefur orðið nú vegna
TikTok. Ekki er öll vitleysan eins
kunna nú einhverjir að segja sem
komnir eru um og yfir miðjan
aldur.
„Draumar“ Fleetwood Mac hafa
á síðustu árum náð reglulegum vin-
sældaskotum vegna samfélags-
miðla og dúkkað upp á lista Bill-
board, nánar tiltekið „Rock Digital
Song Sales“-listanum, þ.e. lista yfir
stafræna sölu á rokklögum. Hefur
svo verið undanfarnar sex vikur. Í
fyrra náði það fimmta sæti og það í
marsmánuði. Lagið hefur líka náð á
lista Billboard sem nær yfir fleiri
gerðir tónlistar en rokks, Hot Rock
& Alternative Songs.
Sjálfsagt hefur hljómsveitina
Fleetwood Mac ekki órað fyrir því
að lagið yrði enn gríðarvinsælt 43
árum eftir að það kom út á plötu og
hvað þá að það yrði eitt þeirra
rokklaga sem Bandaríkjamenn
hafa hlustað hvað mest á, að vísu
með hæðum og lægðum. Mögulega
verður lagið aftur á Billboard-
listum eftir 43 ár, árið 2063. Ef
Billboard verður þá enn þá til.
Líka í Bretlandi
Breska dagblaðið The Guardian
fjallar um málið líkt og flestir aðrir
vestrænir fjölmiðlar og nefnir að
vinsældir myndbandsins hafi leitt
til þess að laginu var streymt 8,47
milljón sinnum í Bandaríkjunum á
einni viku í byrjun þessa mánaðar.
Fyrra streymismet lagsins, sett í
september, var 3,83 milljónir
streyma. Og vinsældirnar eru ekki
bara bundnar við Bandaríkin því
lagið komst líka inn á breskan vin-
sældalista og platan Rumours er í
22. sæti yfir mest seldu plöturnar í
Bretlandi. Rumours hefur nú verið
41 viku á breska listanum yfir 40
vinsælustu plötunar og hefur frá
útgáfu árið 1977 verið í 856 vikur
samanlagt á lista yfir 100 vinsæl-
ustu plöturnar þar í landi. Apodaca
má líka vel við una þar sem hann
hefur fengið þúsundir bandaríkja-
dala fyrir myndbandið. Geri aðrir
betur. helgisnaer@mbl.is
„Dreams“ slær í gegn enn á ný
TikTok-myndband við lagið ógnarvinsælt en í því rennir miðaldra maður sér
á hjólabretti, drekkur safa og syngur lagið Mikill fjöldi fólks hefur apað eftir
Rumours Mick Fleetwood og Stevie
Nicks á umslagi Rumours, plötu
Fleetwood Mac sem kom út 1977.
Þyrstir Mick Fleetwood vinstra megin og Nathan Apocada hægra megin með væna brúsa af berjasafa.
Dagný Guðmundsdóttir sýnir um
þessar mundir í Gallerí Stokki á
Stokkseyri innsetninguna „Svo
grænt!“ Sýningin er opin á morgun,
föstudag, og um helgina kl. 13 til 17
en henni lýkur á sunnudag. Hún var
sett upp af Dagný og Ingu Jóns-
dóttur. Í tilkynningu segir að hugað
sé að sóttvörnum.
Dagný hefur haldið nokkrar
einkasýningar þar sem viðfangs-
efnið var karlmannslíkaminn.
Undanfarin ár hefur hún stundað
vistrækt á Skyggnissteini í Blá-
skógabyggð. Það hefur haft áhrif á
myndlist hennar. Dagný skrifar:
„Ég hófst handa í mikilli gleði þeg-
ar ég byrjaði að rækta á Skyggn-
issteini. Gerði allt sem mér datt í
hug. Prófaði mig áfram, horfði,
gerði tilraunir, lærði. Blandaði
saman og reyndi að finna út áhrifin
sem það hafði. Fylgdist með hvern-
ig náttúran hagar sér. Nýtti allt
sem einhver möguleiki var á. Gam-
alt dót var endurnýjað eða fékk
nýtt hlutverk. Reyndi að skynja
tenginguna milli alls. Þetta var mín
sköpun … Á þessari innsetningu er
Skyggnissteinn og umhverfið þar
viðfangsefnið.“
Innsetning Dagný Guðmundsdóttir á sýn-
ingu sinni í Gallerí Stokki á Stokkseyri.
„Svo grænt!“ Dagnýjar á Stokkseyri
Höfuðpaur hljómsveitarinnar sem
bar nafn hans, Spencer Davis
Group, og var meðal allra vinsæl-
ustu rokkhljómsveita sjöunda ára-
tugarins, er látinn 81 árs að aldri.
Hryngítarleikarinn og söngv-
arinn Spencer Davis var frá Wales
en stofnaði sveitina ásamt nokkrum
félögum sínum í Birmingham á
Englandi árið 1963. Aðalsöngvari
sveitarinnar, Steve Winwood, var
aðeins 15 ára þegar Davis uppgötv-
aði hann í annarri hljómsveit.
Winwood varð með tímanum skær-
asta stjarnan í Spencer Davis
Group en Davis hélt henni saman
og áfram eftir að Winwood hætti
1967. Meðal laga sveitarinnar sem
slógu í gegn má nefna „Gimme
Some Lovin’“, „I’m a Man“ og
„Keep On Running“.
Hljómsveitarstjóri Spencer Davis á sviði
með hljómsveit sinni um aldamótin.
Leiðtogi Spencer
Davis Group allur
Útgáfu þriggja ljóðabóka verður fagnað í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20 í Gröndalshúsi en vegna veirufarald-
ursins munu skáldin sem lesa úr verkum sínum streyma
frá viðburðinum á vefslóððinni www.facebook.com/
events/268707087604942.
Í tilkynningu segir að ljóðverkin Blýhjarta eftir Stef-
aníu, dóttur Páls, Loftskeyti eftir Sigrúnu Björnsdóttur
og Jarðvegur eftir Rebekku Sif eigi sér hvert og eitt sína
einstöku sköpunarsögu sem lauk á þessu ári í meistara-
námi í ritlist við Háskóla Íslands.
Jarðvegur er fyrsta ljóðabók Rebekku Sifjar (f. 1992),
Loftskeyti er fjórða ljóðabók Sigrúnar Björnsdóttur (f. 1956) og Blýhjarta
fyrsta ljóðverk Stefaníu (f. 1990). Höfundarnir eru því misreyndir en sam-
einast um útgáfuna.
Nýju ljóðverkin.
Þrjú skáld lesa upp í Gröndalshúsi
Sú ákvörðun
borgaryfirvalda í
Dyflinni að leyfa
að breyta bygg-
ingu sem fræg er
úr skrifum
James Joyce í
gistiheimili hefur
mætt hörðum
mótmælum, með-
al annars rithöf-
unda á borð við Sally Rooney og
Colm Tóibín.
Byggingin kemur við sögu í
þekktri smásögu Joyce, The Dead,
frá 1914 en frænkur höfundarins
kunna áttu þar heima. Yfirvöld
segja húsið, sem er frá 18. öld,
liggja undir skemmdum og að nýtt
hlutverk muni bjarga því.
Vilja breyta húsi
tengdu Joyce
James Joyce