Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
AF BÓKMENNTUM
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Bókmenntaverðlaun Norð-urlandaráðs eru jafnan af-hent í tengslum við þing
ráðsins sem jafnan er haldið í 44.
viku hvers árs í því landi sem fer
með formennsku í ráðinu. Kór-
ónuveiran kom í veg fyrir það og í
stað þingsins koma fjarfundir
stjórnmálamanna, en verðlaun ráðs-
ins verða afhent í sjónvarpsútsend-
ingu næstkomandi þriðjudag, 27.
október, þar með talin bókmennta-
verðlaunin. Hér verður fjallað um
þær bækur sem tilnefndar eru, sagt
frá sjö skáldsögum í dag, en ljóða-
bækurnar þrjár fá sitt rými á morg-
un. Íslensku bækurnar sem til-
nefndar voru eru Lifandilífslækur,
eftir Bergsvein Birgisson, og Kláði,
eftir Fríðu Ísberg. Fjallað var um
þær bækur í blaðinu á sínum tíma
og verður þeirra því ekki getið frek-
ar hér.
Hanne Højgaard Viemose –
HHV, FRSHWN – Dødsknaldet
i Amazonas
Því sérkennilega nafni HHV,
Frshwn heitir skáldsaga dönsku
skáldkonunnar Hönnu Højgaard
Viemose og þarf ekki mikla
athyglisgáfu til að átta sig á að
HHV stendur einmitt fyrir Hanne
Højgaard Viemose. Nafn hennar
kemur einnig oft fyrir í bókinni,
enda er hún að skrifa um sjálfa sig,
eða einhvers konar útgáfu af sjálfri
sér, kannski útgáfur því hún heitir
ýmist Hannah, Ann Virmosch,
Anita, Hanuta, h, Anna frá Eyrar-
bakki eða bara h, svo dæmi séu
tekin, en nöfnin eru fleiri og fjöl-
breyttari. Í upphafi bókarinnar
segir Hanna frá því er þáverandi
eiginmaður hennar gengur af göfl-
unum í maníukasti á Ránargötunni
og síðan fer sögukonan á flakk,
kemur víða við á Íslandi en líka í
Frederikshavn, Cusco og regn-
skógum Amazon. Frásögnin er
fjörmikil, fyndin og á köflum
óþægilega nærgöngul. Sprellfjörug
óreiða.
Oddfríður Marni Rasmussen –
Ikki fyrr enn tá
Ikki fyrr enn tá eftir færeyska
rithöfundinn Oddfríður Marni
Rasmussen segir frá skáldinu Ja-
nusi. Elsa eiginkona hans er dauð-
vona vegna heilaæxlis. Í fyrri hluta
sögunnar segir frá lífi Janusar með
Elsu, en sá seinni frá lífinu án Elsu
og það hvort Janus geti átt sér líf á
Elsu, hvort skáldskapurinn og ást-
in lifi dauðann. Textinn er blátt
áfram, skýrslukenndur á köflum,
en víða skáldlegur og skrifaður af
mikilli næmni.
Steve Sem-Sandberg – W.
Sænski rithöfundurinn Steve
Sem-Sandberg sló í gegn með
skáldsögunni Öreigarnir í Lódz
sem gefin var út víða um heim, þar
á meðal hér á landi. Sú gerðist á
árum seinni heimsstyrjaldarinnar
en í W. leitar hann lengra aftur í
tímann og staðnæmist á nítjándu
öld, segir sögu Johann Christian
Woyzeck sem myrti Christiane
Woost, sambýliskonu sína 1821.
Saga Woyzecks hefur áður verið
sögð, fræg er ópera Georg Büchn-
ers, en Sem-Sandberg er að segja
sögu tíðaranda og tíma, en ekki
bara morðingja. Sá Woyzeck sem
birtist í bókinni er nær raunveru-
leikanum en í óperu Büchners, til
að mynda dregur hann vel fram
andlegt ástand Woyzeck og gerð-
sjúkdóminn sem hrjáði hann lík-
lega. Kannski ekki skemmtilesning,
en gríðarlega vel skrifað.
Juha Itkonen – Ihmettä kaikki
Skáldævisagan Allt er undur, eft-
ir finnska rithöfundinn Juha Itkon-
en, hefst þar sem Itkonen situr og
horfir á Ólympíuleikana í Ríó haust-
ið 2016. Eiginkona hans, sem er
ófrísk, er farin í rúmið og synir
þeirra tveir löngu komnir í háttinn.
Hann fer seint af sofa, en undir
morgun vekur eiginkona hans hann
því það hefur eitthvað gerst með
fóstrið og í kjölfarið standa foreldr-
arnir frammi fyrir efiðri ákvörðun.
Ári síðar eru þau aftur komin upp á
sjúkrahús, en nú vegna tvíbura sem
fæðast allt of snemma. Stíllinn er
tær og þótt verið sé að skrifa um
erfiðleika og djúpstæða sorg gerir
Itkonen það áreynslulaust.
Bjørn Esben Almaas
– Den gode vennen
Á fimmtudegi í júlí 2013 fer sögu-
maður í gardínubúð með eiginkonu
sinni að kaupa rimlagardínur. Þar
hittir hann verslunareigandann og
áttar sig á að hann þekkir hann, en
hefur ekki séð í fjölda ára, reyndar
eiginlega ekki síðan þeir voru börn
að aldri. Við endurfundinn verður
honum erfitt um andardrátt, það
slær um hann svita, hann finnur
torkennilegan verk í vinstri fæti og
þyngsli undir hægra herðablaðinu.
Það er minning að brjóta sér leið út
og áður en varir er lesandinn kom-
inn aldarfjórðung aftur í tíma, aftur
til 30. nóvember 1987. Þaðan rekur
Almaas svo söguna fram til 24.
október það ár og þess sem gerðist
þá. Listilega vel skrifuð saga eftir
norska rithöfundinn Bjørn Esben
Almaas og þrungin tilfinningum.
Matias Faldbakken – Vi er fem
Siv Danielsen og Tormod Blystad
búa í Råset, smábæ skammt norður
af höfuðborginni, eiga þar hús sem
Tormod reisti þeim. Þau eiga
hnokkann Alf og hnátuna Helene og
hafa verið par frá því í barnaskóla
og una glöð við sitt. Tormod dreym-
ir um að fjölskyldan verði fimm
manna, en Siv segir nei. Hún fellur
þó fyrir hvolpinum Snusken og um
hríð eru allir hamingjusamir. Þar til
Snusken týnist. Tormod er ekki af
baki dottinn, hann fær börnin í lið
með sér að búa til dýr úr rauðleir
og hnoðar síðan saman dýr úr leir
og áburði sem lifnar við. Og stækk-
ar. Og stækkar. Þetta er nefnilega
ekki dæmigerð norsk sósíalrealísk
skáldsaga um hvað það sé erfitt að
vera til heldur líka vísindaskáld-
saga. Og hryllingssaga. Óvenjuleg
og framúrskarandi skemmtileg.
Monika Fagerholm
– Vem dödade bambi?
Skáldsaga Moniku Fagerholm
hefst þar sem Gusten Grippe snýr
aftur til Kallsjön skammt frá Villa-
stan, uppeldisbæ sínum, en þangað
hefur hann ekki komið í fjölda ára
og ætlaði aldrei að snúa aftur.
Smám saman birtist mynd af lífinu
sem var, af æsku Gustens sem lauk
eiginlega þegar félagar hans nauðg-
uðu skólasystur sinni í kjallaranum
á heimili Nathans, besta vinar Gust-
ens. Samviskan hefur nagað Gusten
í öll þessi ár þótt hann hafi leitað til
lögreglunnar og ekki verið sakfelld-
ur fyrir verkið. Það sem gerðist á
undan og eftir nauðgunina leitar
upp á yfirborðið þegar kvikmynda-
gerðarmaðurinn Cosmo, sem var í
jaðri vinahópsins, ákveður að gera
kvikmynd um hana, mynd sem
hann nefnir Hver drap Bambi?
Þetta er afskaplega vel skrifuð bók
og á köflum átakanlega erfið af-
lestrar vegna þess að ekkert er
dregið undan.
Tímaflakk og tilfinningarót
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Sagt frá skáldsögum sem eru tilnefndar
Oddfríður Marni
Rasmussen
Bjørn Esben
Almaas
Hanne Højgaard
Vemose
Matias Faldbakken
Juha Itkonen
Steve Sem-
Sandberg
Monika Fagerholm