Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 32
Bíó Paradís mun næstu daga sýna þær fimm kvikmynd-
ir sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norður-
landaráðs í ár en vegna Covid-19 verður dagskráin með
breyttu sniði í ár. Sýningar hefjast í dag, 22. október, og
standa yfir til og með 26. október en myndirnar verða
einnig aðgengilegar á netinu frá og með deginum í dag.
Takmarkaður miðafjöldi er í boði á sýningar í bíóinu og
hver mynd aðeins sýnd einu sinni. Verðlaunin verða
veitt 27. október í beinni útsendingu á RÚV. Myndirnar
fimm eru hin íslenska Bergmál, Koirat eivät käytä hous-
uja frá Finnlandi, Onkel frá Danmörku, Charter frá Sví-
þjóð og Barn frá Noregi. Frekari upplýsingar um mynd-
irnar og sýningar má finna á bioparadis.is.
Tilnefndar kvikmyndir sýndar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þráinn Björn Sverrisson hefur starfað
sem þjónn í um 45 ár, en meistari hans
var Gunnar Stefánsson í Grillinu á
Hótel Sögu. Þar var hann meðal ann-
ars undir handleiðslu Hafsteins Egils-
sonar, sem byrjaði 1968, og allt bendir
til þess að þeir loki hringnum saman á
Rauða ljóninu á Seltjarnarnesi.
Aðalsmerki hvers þjóns er fáguð
framkoma, kurteisi og að sjálfsögðu
þjónustulund. Þráinn er ekki algengt
heiti en að minnsta kosti þrír með því
nafni hafa gert starf í veitingahúsum
að lífsstarfi sínu og allir eru prýddir
fyrrnefndum kostum. Þeir eru Þráinn
Kristjánsson, sem gjarnan hefur verið
kenndur við The Round Table í Winni-
peg í Manitoba í Kanada (sonur hans
Kristján tók við rekstrinum fyrir
nokkrum árum og breytti nafni stað-
arins í Brazen Hall Kitchen & Brew-
ery), Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari
kokkalandsliðsins kenndur við veit-
ingastaðina Sumac og ÓX, og Þráinn
Sverrisson.
Nágranni Þráins í Kópavogi kom
honum á bragðið. „Valur Jónsson var
þjónn á Mímisbarnum og átti heima í
sama húsi og ég,“ rifjar hann upp.
„Hann var alltaf flott klæddur, fínn í
tauinu. Mikill séntilmaður, bar sig vel
og heilsaði alltaf með bros á vör. Kurt-
eisin uppmáluð. Góð fyrirmynd. Ég
heillaðist af framkomu hans og ákvað
að fara í kokkinn og þjóninn. Ég tók
þjóninn á undan og þar við sat. Ekki
varð aftur snúið. Þetta var svo gaman
og starfið hefur verið skemmtilegt alla
tíð.“
Ekki verður beint sagt að starf á
veitingastöðum sé allra, allra síst stöð-
ug vinna á kvöldin og um helgar, en
Þráinn segir að kvöldvinnan hafi alla
tíð átt vel við sig. „Hún hefur aldrei
truflað mig en vinnan var ekki fjöl-
skylduvæn, þegar ég vann langt fram
á nætur.“
Komið víða við
Þráinn hefur komið víða við á
löngum ferli. Hann byrjaði að læra í
Grillinu á Hótel Sögu 1975, var um
hríð á Broadway í Mjóddinni áður en
hann fór aftur á Sögu, Holiday Inn og
aftur á Sögu, vann meðal annars á
Café Óperu og Kaffi Reykjavík og hef-
ur unnið hjá og með Hafsteini á Rauða
ljóninu undanfarin tæp níu ár. „Vinn-
an snýst um að gefa af sér, þjóna fólki
og gera það vel, vera vandvirkur,“ seg-
ir Þráinn yfirvegaður. „Starfið er gef-
andi og það hefur mikið að segja.“
Lengst af hefur Þráinn unnið á barn-
um en hann segir ekki síður skemmti-
legt að þjóna fólki til borðs. Hann seg-
ist eiga góðar minningar frá öllum
stöðum en að öðrum ólöstuðum standi
Hótel Saga upp úr. „Vinnan var svo
fjölbreytt og þar kynntist ég helstu
skemmtikröftum þjóðarinnar, þar sem
Raggi Bjarna, sá öðlingur, fór fremst-
ur. Það var líka gaman að taka þátt í
öllum stórviðburðunum á Broadway
með Ólaf Laufdal í hásætinu.“
Félagarnir Hafsteinn og Þráinn
hafa lengi unnið saman og Þráinn ber
vini sínum sérlega vel söguna. „Við
náum vel saman, skiljum hvor annan
vel og hann er algjör ljúflingur, mikill
höfðingi og vinur vina sinna,“ segir
Þráinn. „Við höfum verið á bak við
barinn lengur en elstu menn muna, er-
um með tæplega 100 ár í saman-
lögðum starfsaldri og höfum oft gant-
ast með það að við ættum að kunna vel
til verka.“
Þeir eru báðir á sjötugsaldri og Þrá-
inn segir að vissulega styttist í starfs-
lok þótt ekkert sé ákveðið í því efni.
„Enginn veit sína ævina og allt það en
ég sé ekki fyrir mér að ég eigi eftir að
skipta um starfsvettvang,“ segir Þrá-
inn.
Ljósmynd/Erling Aðalsteinsson
Á Rauða ljóninu Hafsteinn Egilsson og Þráinn Björn Sverrisson hafa lengi unnið saman.
Á barnum í 97 ár
Þráinn og Hafsteinn loka hringnum á Rauða ljóninu
Frí heimsending
á höfuðborgarsvæðinu
ef verslað er fyrir
5.000 kr. eða meira
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
CERVO SKEMILL.
60x60x34 cm. 18.900 kr.
NÚ 15.120 kr.
CLEVELAND HÆGINDASTÓLL.
Soft 451 grátt áklæði. 31.900 kr.
NÚ 25.520 kr.
CINDY SKEMILL. Ýmsir litir.
Ø100 cm. 59.900 kr. NÚ 44.900 kr.
CODY RUGGUSTÓLL.
Grátt áklæði. 59.900 kr.
NÚ 44.900 kr.
2o-25%
Sparadu-
af öllum sófum,
sófaborðum og
hægindastólum
8. október - 2. nóvember
20%
20%
20%
25%
25%
20% afsláttur af sérpöntuðum sófum
ATALAYA SÓFABORÐmeð tímarita-
hirslu. Keramik borðplata og málmgrind.
115x58x45 cm. 64.900 kr.NÚ 51.920 kr.
SPAraðu 58.00
Nú 171.900
FLUENTE TUNGUSÓFI.
Opinn endi + 2ja sæta.
L221 x D200 cm. Ljósgrátt áklæði.
229.900 kr.NÚ 171.900 kr.
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 296. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Stefán Arnarson, þjálfari Fram í úrvalsdeild kvenna,
viðurkennir að það sé erfitt að skipuleggja næstu æf-
ingar liðsins í ástandinu sem nú ríkir vegna kórónu-
veirufaraldursins. Síðast var leikið í Olísdeild kvenna
hinn 26. september síðastliðinn. HSÍ stefnir á að hand-
boltinn byrji aftur að rúlla hinn 13. nóvember næstkom-
andi. Framarar, líkt og önnur lið á höfuðborgarsvæðinu,
mega æfa undir mjög ströngum takmörkunum en leik-
menn liðsins mega sem dæmi ekki kasta bolta á milli
sín, sem er hausverkur fyrir þjálfarann.
Þjálfari Fram segir rökleysi á bak
við þær takmarkanir sem eru í gildi
ÍÞRÓTTIR MENNING