Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 18
ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hellu Dvalar- og hjúkrunarheimilið Lundur á Hellu, þar sem dveljast 33 heimilismenn og starfsfólk er um 60 talsins, hefur sloppið algerlega við kórónuveirusmit hingað til og verður það vonandi þannig áfram. Takmark- anir eru á aðgengi aðstandenda heimilisfólks og má aðeins einn gest- ur koma tvisvar í viku til hvers heim- ilismanns. Opnað var nýlega á þessar reglur, en áður var stofnunin lokuð að mestu fyrir heimsóknum. Sam- starf er með hjúkrunarheimilunum á Hellu og Hvolsvelli um þessar heim- sóknarreglur.    Sindri Freyr Seim Sigurðs- son hefur verið valinn úr hópi til- nefndra sem íþróttamaður Rang- árþings ytra 2019 en það er heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd sem ákveður hver það er sem hlýtur tit- ilinn eftir tilnefningar frá íþrótta- félögum í sveitarfélaginu. Sindri Freyr er 17 ára, einn efnilegasti frjálsíþróttamaður landsins og er hann í úrvalshópi Frjálsíþrótta- sambands Íslands. Sindri Freyr hef- ur á árinu 2019 keppt á 19 mótum og sett á þeim 10 HSK-met. Metin setti hann í 200 metra hlaupi, 4x200 metra hlaupi og svo 4x100 m hlaupi. Innan- hússmótin voru alls 8 og utanhúss- mótin 11. Helsta afrek Sindra á árinu 2019 var að hlaupa 200 metra hlaup á Gautaborgarleikunum þar sem kepp- endur koma alls staðar að innan Evr- ópu. Þar hljóp Sindri á 22,97 sek. í mótvindi upp á -1,6 sem er mikill mótvindur, þar varð hann í sjötta sæti af 61 keppanda. Þar bætti hann 32 ára gamalt HSK-met Ólafs Guð- mundssonar í flokki 18-19 ára. Sindri Freyr hefur sett sér háleit markmið og það verður svo sannarlega áhuga- vert að fylgjast með honum í framtíð- inni og honum eru sendar hamingju- óskir með útnefninguna.    Nú er orðið ljóst með endan- legar veiðitölur þessa árs í Rang- ánum, eystri og ytri. Flest undan- farin ár hefur verið meiri veiði í Ytri-Rangá, en nú síðustu tvö ár hef- ur þetta snúist við. Árið 2020 eru lokatölur í Eystri-Rangá 9.070 veidd- ir laxar en 2.642 í Ytri-Rangá. Þetta er þreföld veiði frá fyrra ári í Eystri- Rangá. Þessar ár eru báðar hafbeitarár og þar eru stundaðar seiðasleppingar að vori. Formenn veiðifélaganna, Birkir Tómasson á Móeiðarhvoli og Guðmundur Einarsson á Ægissíðu, kunna engar viðhlítandi skýringar á þessum mun milli ánna. Í Eystri- Rangá eru takmarkanir á hvað má hirða af fiski og geta því sleppingar verið þannig að hugsanlega 10% séu lax sem er veiddur tvisvar.    Faghópur um þróun skóla- svæðis á Hellu fundar stíft þessa dagana en verið er að undirbúa hönn- un á viðbyggingu við grunnskólann og byggingu á nýjum leikskóla. Raf- rænn íbúafundur var haldinn á dög- unum um þetta málefni sem heppn- aðist mjög vel og er kannski eitt fyrsta dæmið um íbúafund á Zoom, hér um slóðir a.m.k., og kannski fyrsti rafræni íbúafundurinn á land- inu.    Frumkvöðlar geta verið af ýmsum toga og ekki óalgengt nú um stundir að fólk stígi fram í matvæla- geiranum víðs vegar um landið. Tvö slík fyrirtæki hafa skotið upp koll- inum í Þykkvabænum. Annað þeirra er 1000 ára sveitaþorp ehf. sem fram- leiðir skræður og pakkar kartöflum í umhverfisvænar umbúðir. Skræður eru yfir 100 ára gömul matarhefð í Þykkvabænum, eru unnar úr hrossa- kjöti og má nota sem snakk. Hitt fyrirtækið er Hlöðueldhúsið sem býður hópum af ýmsum stærðum að koma á staðinn og taka þátt í elda- mennskunni fyrir hópana. Einnig er rekið kennslueldhús og veisluþjón- usta í tengslum við aðra sarfsemi.    Unnið er að því að finna stað undir akstursíþróttir og slíkt jaðar- sport og hefur svæðið norðan við nú- verandi matjurtagarða sveitarfé- lagsins komist í umræður. Vinna þarf að skipulagi og auglýsa ef slíkur stað- ur á að fara undir þessa starfsemi. Atli Már Guðnason á Lyngási og fleiri hafa verið í samstarfi við ung- mennafélagið Heklu að þrýsta á sveitarstjórnina að finna stað þar sem unglingar geta stundað þetta sport í stað þess að vera á götum Hellu með tilheyrandi hávaða og ónæði fyrir íbúana.    Miklar framkvæmdir standa nú yfir hjá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps. Með þessum fram- kvæmdum er verið að auka til muna afköst vatnsveitunnar og afhending- aröryggi. Þessi áfangi sem nú er í framkvæmd felur í sér að reistur var 400 m3 miðlunartankur í Fögru- brekku sem stendur það hátt að vatn verður sjálfrennandi nánast um allt þjónustusvæði veitunnar. Auk þess samtengjast m.a. veiturnar í Lækjar- botnum og Bjálmholti sem er gríðar- legt atriði til að tryggja afhendingar- öryggi. Auk miðlunartanksins verður um að ræða 8,5 km af vatnslögnum í þessum áfanga. Verktaki er Þjótandi ehf. en um er að ræða 178 m.kr. verk og er miðað við verklok 1. nóvember 2021. Að sögn Guðna G. Krist- inssonar veitustjóra gengur verkið afar vel og er lokið við uppsteypu miðlunartanksins, vatnslagnir að honum og innivinna er hafin.    Verið er að vinna að breyt- ingum á deiliskipulagi miðbæjar- svæðisins á Hellu þar sem áform eru um fjölgun bílastæða og gegnum- akstur að austanverðu svo eitthvað sé nefnt. Samkomutorg er einnig í bí- gerð á svæðinu sunnan við Menning- arsalinn eða sem tengist við Miðjuna. Einnig er unnið að breytingu á skipu- lagi á athafnasvæðinu við Dynskála þar sem mikil eftirspurn hefur orðið á síðustu misserum eftir lóðum Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Lundur Kórónuveirusmit hafa ekki plagað íbúana á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi fram að þessu. Hafa sloppið við kórónuveiruna 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Of mikill hæðarmunur er á milli væntanlegs Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar til þess að hægt sé með góðu móti að láta veginn koma beint inn á Breiðholtsbrautina með ljósum að vestanverðu. Þess vegna var ákveðið að láta umferðina fara á brú yfir Breiðholtsbraut og inn á hana með ljósum að austan- verðu. Þetta segir Bryndís Friðriks- dóttir, svæðisstjóri höfuðborgar- svæðisins hjá Vegagerðinni, þegar leitað er skýringa. Bryndís bendir á að í fyrstu drög- um hafi Arnarnesvegur verið sýnd- ur ganga beint inn á Breiðholts- braut á ljósum. Við nánari skoðun hafi komið í ljós að of bratt væri niður að gatnamótunum og einnig heldur stutt í hringtorg fyrir um- ferð inn í íbúðahverfi Kópavogs. Þetta hefði leitt til lakara umferð- aröryggis og minni afkasta en ef umferðin væri leidd yfir brúna. Í umhverfismati hafi verið gert ráð fyrir brú á fullum mislægum gatna- mótum og þess vegna hafi verið ákveðið að nota brú. Breyta þarf skipulagi Bryndís segir að nú liggi fyrir að forhanna gatnamótin og gera deili- skipulag fyrir svæðið og það fari í formlegt kynningarferli. Þá verði leitað til Skipulagsstofnunar um það hvort umhverfismatið sem gert var á sínum tíma standi. Við forhönnun verður farið yfir tengingar og stíga, í samvinnu við sveitarfélögin. Gert er ráð fyrir stígum meðfram Arnarnesvegi og á brúnni yfir Breiðholtsbraut þannig að gangandi og hjólandi vegfar- endur geti komist leiðar sinnar. Þá sé gert ráð fyrir brú á Arnarnesvegi á milli hverfa sem tilheyra Reykja- vík og Kópavogi. helgi@mbl.is Of mikil brekka að gatnamótunum  Arnarnesvegur leiddur yfir brautina Breiðholtsbraut Ar na rn es ve gu r Loftmyndir ehf. KÓPAVOGUR REYKJAVÍK Fell Vatnsendavegur Tillaga að útfærslu vegamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar Feti er nú að verða uppseldur í verslunum Bónuss og í hillur er kominn salatostur eins og varan heitir nú. Á dögunum beindi Matvælastofnun þeim tilmælum til framleiðslufyrirtækja að breyta vöruheitum sem njóta alþjóð- legrar verndar samkvæmt milli- ríkjasamningum. Þeir samningar byggjast á lögum um vernd af- urðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða sérstöðu á ein- hvern máta. Feta, sem gjarnan er meðlæti grænmetis, er til dæmis grískt afurðaheiti og bayonne, samanber skinkuna góðu, er heiti á franskri vöru. Mjólkursamsalan og Arna í Bolungarvík hafa lengi framleitt fetaost og raunar fleiri. „Við höfum lengi verið með feta í okkar verslunum og fáum fram- leiðsluna frá Vogabæ. Úrskurður um að nafninu skyldi breytt í salatost kom í september og tók gildi 1. október en gefið var svigrúm til þess að selja þær birgðir sem til voru og búið að merkja. Salatostur heitir varan núna og er kominn í verslanir,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Þessi vara og sýrður rjómi voru fyrstu mjólkurafurðirnar sem Ólafur Magnússon í Mjólku kom með á markað fyrir Bónus í samkeppni við sambærilegar vörur frá Mjólkursamsölunni. Sagan nær því talsvert langt aft- ur.“ sbs@mbl.is Feti er nú salatostur  Vara fær vernd Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Salatostur Úrval í hillum Bónuss. Litirnir eru á netinu Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Skoðaðu vinsælu litina okkar á slippfelagid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.