Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er nú á lokametrunum, en kosið verður til bæði þings og forseta næsta þriðjudag. Joe Biden, forseta- frambjóðandi demókrata og fyrrver- andi varaforseti, heldur inn í loka- helgi baráttunnar með vænlega stöðu ef marka má skoðanakannan- ir, en Donald Trump Bandaríkjafor- seti hefur síður en svo lagt árar í bát. Þannig ferðuðust báðir frambjóð- endurnir um miðvesturríkin í gær, en þau skiptu sköpum í baráttunni fyrir fjórum árum og gætu hæglega gert það aftur nú. „Þetta er stór dagur,“ sagði Trump en hann eyddi gærdeginum í að halda kosninga- fundi í Minnesota, Wisconsin og Michigan. Tvö síðarnefndu ríkin studdu Trump óvænt fyrir fjórum árum, þrátt fyrir að hafa verið talin meðal sterkari vígja Demókrataflokksins. Biden hélt hins vegar sína fundi í Minnesota og í Iowa, sem einnig kaus Trump eftir að hafa kosið demókrata í sex af síðustu sjö kosn- ingum þar á undan. Ferð Bidens til Minnesota vakti nokkra athygli, en ríkið hefur ekki kosið repúblikana frá því að Richard Nixon sóttist eftir endurkjöri 1972, og kannanir nú benda ekki til þess að nein breyting verði þar á í þetta sinn, þrátt fyrir að Trump hafi sett mikla fjármuni í ríkið og telji sig eiga góða möguleika á að vinna það frá demókrötum. Biden sagðist hins vegar ekki taka neitt sem gefið, þrátt fyrir að kannanir sýndu hann í góðri stöðu. „Við ætlum að vinna fyrir hverju einasta atkvæði til síðustu stundar,“ sagði Biden áður en hann hélt til Iowa í fyrsta sinn í kosningabarátt- unni, en kannanir þar hafa bent til þess að munurinn á milli hans og Trumps sé nú vel innan skekkju- marka. Fjórtán fundir á þremur dögum Ferðalög frambjóðendanna tveggja síðustu dagana fyrir kosn- ingar sýna annars áhugaverða sögu. Þannig hyggst Trump halda fjórtán kosningafundi þá þrjá daga sem enn lifa af kosningabaráttunni. Þar af verða fimm þeirra í Pennsylvaníu- ríki, en baráttan þar hefur harðnað mjög á síðustu dögum. Biden hefur enn um fimm prósentustiga forskot í ríkinu, en heldur hefur þó dregið saman með honum og Trump. Forsetinn hyggst því halda fjóra kosningafundi í ríkinu í dag, og þann fimmta á mánudaginn, daginn fyrir kosningarnar. Þann sama dag hyggjast Biden og Kamala Harris, varaforsetaefni hans, ferðast vítt og breitt um Pennsylvaníu, en niður- staðan þar gæti reynst lykillinn að Hvíta húsinu, sér í lagi ef mjótt verður á munum. Auk Pennsylvaníu hafa báðir frambjóðendur rennt hýru augu til Flórída, en þar hefur Biden mælst með um tveggja prósentustiga for- ystu að undanförnu. Ríkið er þó með fjölbreytt landslag, og ekki þarf mikið að breytast til þess að það fari aftur til Trumps, en sigur hans þar árið 2016 var ein fyrsta vísbendingin um það sem koma skyldi á kosn- inganótt. Mikil kjörsókn eykur óvissu Eitt stærsta spurningarmerkið í kosningunum verður hvað muni ger- ast í Texas-ríki, en það hefur lengi verið eitt helsta vígi Repúblikana- flokksins. Breytt íbúasamsetning hefur hins vegar orðið til þess að jafna þann mikla mun sem var á milli demókrata og repúblikana í ríkinu, og fyrir tveimur árum mun- aði mjög litlu á milli öldungadeild- arþingmannsins Teds Cruz og mót- frambjóðanda hans, Beto O’Rourke. Eitt af því sem eykur á óvissuna er að kjörsókn í ríkinu hefur sjaldn- ast verið góð, en samkvæmt opin- berum tölum í gær höfðu um níu milljónir Texas-búa þegar kosið ut- ankjörfundar. Það eru fleiri en kusu í ríkinu í heild sinni árið 2016. Demókratar eygja því von um að þeir muni geta gert repúblikönum skráveifu þar, sér í lagi í ljósi þess að það yrði nánast ómögulegt fyrir Trump að tryggja sér endurkjör ef Texas fellur. Kamala Harris hyggst heimsækja ríkið um helgina, en fá- títt er að frambjóðendur geri það. Trump hefur hins vegar látið sér fátt um finnast, og Bill Stepien, kosningastjóri Trumps, sagði í vik- unni að framboð forsetans myndi þiggja það með þökkum, ef Biden hygðist sóa tíma sínum í ríkjum, þar sem hann ætti enga sigurvon. Hvað gerist á lokasprettinum?  Forsetaframbjóðendurnir héldu báðir til miðvesturríkjanna í gær  Trump hyggst halda fjórtán fundi á næstu þremur dögum  Ofuráhersla á að vinna Pennsylvaníu  Demókratar reyna að ná Texas Líkleg niðurstaða forsetakosninganna ef kosið væri nú Kjörmenn demókrata / Joe Biden: 319 Kjörmenn repúblikana / Donald Trump: 154 Heimild: Spálíkan fi vethirtyeight.com 9 11 6 55 9 29 16 4 20 11 6 6 8 8 4 16 10 6 10 3 56 4 5 29 15 3 18 7 7 20 9 3 11 38 6 3 13 12 5 10 3 2 1 1 2 1 11 11MA 14NJ 4RI 3DE 7CT 10MD 3DC WA OR NV CA AZ 3 AK 4HI UT ID MT WY CO NM ND SD NE KS OK TX MN IA WI IL MI IN KY WV VA NC SC GAMS AR MO LA FL AL TN OH PA NY VT ME NH 210 68 41 65 4338 73 Örugg ríki fyrir Biden Líkleg Hallast að Biden Mjótt á munum LíklegHallast að Trump Örugg ríki fyrir Trump 270 kjörmenn þarf til að ná kosningu Ríki Biden Trump Munur Pennsylvanía 52,2% 47,1% Biden +5,1% Flórída 50,7% 48,6% Biden +2,1% Wisconsin 53,6% 45,4% Biden +8,1% Michigan 53,5% 45,4% Biden +8,1% Minnesota 53,3% 45,2% Biden +8,1% Ohio 49,5% 49,5% 0,0% Ríki Biden Trump Munur Arizona 50,6% 48,1% Biden +2,5% Norður-Karólína 50,5% 48,7% Biden + 1,8% Texas 48,4% 50,6% Trump +2,1% Georgía 50,0% 49,2% Biden +0,8% Iowa 49,0% 49,7% Trump +0,7% Nevada 52,8% 45,7% Biden +7,1% Að minnsta kosti fjórtán manns lét- ust og fjölmargir urðu fyrir áverkum þegar öflugur jarðskjálfti varð í Eyjahafi í gær. Hrundu byggingar í bæði Grikklandi og Tyrklandi, og olli skjálftinn einnig mikilli flóðbylgju sem olli miklum usla á eyjunni Sam- os en upptök skjálftans voru um 14 km frá henni. Björgunarsveitir eyddu mestöll- um gærdeginum í að grafa sig í gegnum húsarústir í leit að eftirlif- endum, en áætlað er að skjálftinn hafi verið um 7,0 að stærð. Í Tyrklandi varð mestur skaði í borginni Izmir, sem stendur við Eyjahaf, en þar búa um þrjár millj- ónir manna og er mikið um háreistar íbúðablokkir. Tunc Soyer, borgar- stjóri Izmir, sagði að tuttugu bygg- ingar hefðu fallið í skjálftanum, og að björgunarmenn einbeittu sér að leit í sautján þeirra. Almannavarnir Tyrklands greindu frá því að tólf manns hefðu látist í skjálftanum og 419 slasast. Í Grikklandi létust tveir táningar á eyjunni Samos þegar veggur hrundi á þá, en þeir voru á leið heim úr skóla. Grísk yfirvöld segja að fjórir til viðbótar hafi slasast svo vitað sé. Talið var líklegt að tala látinna gæti hækkað á næstu dögum eftir því sem nánari mynd fæst á þann skaða sem jarðskjálftinn olli. Sendi Erdogan samúðarkveðju Kyriakos Mitsotakis, forsætisráð- herra Grikklands, hringdi í Recep Tayyip Erdogan í gær til þess að votta samúð sína og bjóða aðstoð við björgunarstarf. Mikil spenna hefur ríkt milli Grikkja og Tyrkja síðustu mánuði vegna deilna þeirra um orku- auðlindir í Miðjarðarhafi. Sagði Mitsotakis á twitter-síðu sinni að á sorgarstundum sem þessum yrðu þjóðirnar tvær að standa saman, óháð því hvaða ágreiningur væri á milli þeirra. Þá buðu Frakkar einnig fram að- stoð sína ef þörf krefði, en samskipti Frakka og Tyrkja hafa verið mjög stirð síðustu daga vegna deilna um það hvort rétt sé að birta skopmynd- ir af Múhameð spámanni. 14 látnir eftir jarðskjálfta  Jarðskjálfti af stærð 7,0 olli miklum usla í Tyrklandi og Grikklandi  Óttast að tala látinna eigi enn eftir að hækka AFP Jarðskjálfti Björgunarmenn í Izmir flytja hér slasaðan mann úr húsa- rústum eftir jarðskjálftann. Lögreglan í Frakklandi yfirheyrði í gær mann, sem er talinn vera vit- orðsmaður árásarmannsins sem myrti þrjá í borginni Nice í fyrra- dag. Maðurinn er 47 ára gamall, en hann var handtekinn í fyrrakvöld eftir að upp komst um tengsl hans við hinn 21 árs gamla Brahim Issa- ou, sem sagður er hafa framið voða- verkið. Issaou var í gær enn á sjúkrahúsi, en hann særðist illa þegar lögreglan yfirbugaði hann, en hann var skotinn mörgum sinnum. Er ástand hans sagt alvarlegt. Issaou er upphaflega frá Túnis, en hann var nýkominn til Frakklands eftir að hafa verið vísað frá Ítalíu. Gerald Darmanin, innanríkis- ráðherra Frakklands, sagði í gær að Issaou hefði ekki verið á neinum gát- lista, hvorki hjá frönskum né evr- ópskum öryggisstofnunum. Sagði Darmanin að Frakkar ættu nú í stríði við íslamista, og að ógnin af þeim kæmi bæði að utan og innan. Óttast stjórnvöld að íslamskir hryðjuverkamenn muni reyna að láta til skarar skríða á sunnudaginn, en þá er allraheilagramessa, sem margar franskar fjölskyldur nýta til þess að minnast hinna látnu. Meintur vitorðsmaður tekinn til yfirheyrslu  Árásarmaðurinn enn á sjúkrahúsi AFP Nice Kveikt var á kertum til minn- ingar um fórnarlömhin í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.