Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 19
Árlega má rekja 1600–1800 beinbrot áÍslandi til beinþynningar en ætla máað önnur hver kona um fimmtugt
og fimmti hver karl á Íslandi megi eiga von
á broti síðar á lífsleiðinni. Beinþynning (e.
Osteoporosis) er sjúkdómur sem ber að taka
alvarlega en beinbrot verða þá við lítið álag
og vegna áverka sem nægja að öllu jöfnu
ekki til að brjóta heilbrigð bein.
Kalk og D vítamín minnka líkur á
beinbrotum vegna beinþynningar
Fjöldi rannsókna gegnum tíðina hafa
sýnt fram á að dagleg inntaka á kalki
og D vítamíni getur dregið verulega úr
líkum á beinbrotum vegna beinþynningar.
Nýleg rannsókn leiddi í ljós að líkur á
„beinþynningar-beinbrotum“ minnkaði um
15% prósent ef fólk tók inn 1.000 mg af kalki
og 15 mcg (600 i.e.) af D vítamíni daglega.
Inntaka á þessum næringarefnum skiptir því
máli alveg frá fæðingu.
Áhættuþættir
Beinþynning hefst oft hjá konum við
tíðahvörf en aðrir þættir sem við getum ekki
haft áhrif á eru aldur, kyn og kynstofn.
Þættir sem geta haft áhrif á beinþynningu
eru t.d.:
Of grannt holdafar (vannæring)
Kalk- og/eða D-vítamínskortur
Reykingar
Hreyfingarleysi
Óhollir lífshættir
Hreyfing styrkir beinin
Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem
einstaklingur hefur beinþynningu eða ekki.
Nægileg kalk- og D-vítamín neysla, ásamt
reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg til
að fyrirbyggja beinþynningu. Hvað varðar
hreyfinguna þá eigum við að hreyfa okkur
alla daga og það þarf ekki að kosta neitt.
Til að styrkja beinin þá eru þungaberandi
æfingar bestar en þá er átt við æfingar þar
sem við berum okkar eigin líkamsþyngd
gegn þyngdaraflinu (göngur og skokk).
Einnig er mjög gott að lyfta lóðum.
Osteo Advance - fullkomin
beinablanda
Natures Aid hefur nú framleitt blöndu
af vítamínum og steinefnum sem eru
nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðum
beinum og tönnum. Kalk og
magnesíum ásamt D-vítamíni,
K2 vítamíni og sinki byggir upp
og hjálpar til við að viðhalda
heilbrigðum beinum.
K-vítamín bindir kalk í beinum
Næringarefnin, bæði vítamín og steinefni
vinna saman í líkamanum og bæta þau hvort
annað upp við að sinna þeirri vinnu sem þau
eiga að gera. 99% af kalkinu í líkamanum er
í beinunum og til þess að upptaka kalksins
eigi sér stað er D-vítamín nauðsynlegt. Í
einföldu máli er það D-vítamín sem sér
um að taka kalkið úr blóðinu og K-vítamín
(MenaQ7) sér svo um að kalkið bindist í
beinunum.
Sölustaðir: Heilsuhillur verslana, apótek og
heilsubúðir.
Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem einstaklingur hefur
beinþynningu eða ekki. Nægileg kalk- og D-vítamín neysla ásamt
reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg til að fyrirbyggja beinþynningu.
60 ára 70 ára40 ára
Eitt af algengustu vandamálum stoðkerfisinseru eymsli í liðum. Mismunandi er í hvaðaliðum verkirnir eru en oft eru það hnéin
eða fingurnir sem láta mest finna fyrir sér.
Margir finna líka fyrir verkjum í mjöðmum,
öklum eða öðrum liðum, en sama hvar er þá
skal ávallt hafa í huga að kyrrseta er aldrei til
bóta og það er ýmislegt hægt að gera til að láta
sér líða betur.
Leiðir til úrbóta
Það er ýmislegt í lífsstílnum sem hefur áhrif á
liðheilsu og því er um að gera að huga vel að
ákveðnum þáttum sem geta haft jákvæð áhrif
og jafnvel dregið úr eymslum. Þar ber helst að
nefna mataræði og hreyfingu.
Mikilvægt er að borða sem mest af hreinni
fæðu og taka inn bæði D-vítamín og Omega-3.
Þegar við tökum mataræðið í gegn getur það
leitt til þess að við léttumst, sem er í flestum
tilfellum jákvætt því ofþyngd reynir meira á
liðina. Ofþyngd leiðir oft af sér hreyfingarleysi
eða minni hreyfingu en annars og þannig
myndast vítahringur þar sem þyngd, eymsli og
hreyfingarleysi ýta undir hvert annað.
Stundaðu hreyfingu við hæfi og styrktu vöðvana
kringum liðina. Köld böð geta einnig hjálpað,
en númer 1, 2 og 3 er að hafa mataræðið í
lagi því það sem við látum ofan í okkur hefur
ótrúlega mikil áhrifin á líðan okkar.
Glúkósamín og kondrotín
bætiefnablanda
Glucosamine & Chondroitin Complex frá
Natures Aid er vel samansett liðbætiefnablanda
þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem
tengjast aumum liðum. Auk glúkósamíns
inniheldur þessi bætiefnablanda kondtrótín
súlfat sem er byggingarefni brjósks og geta
þessi tvö efni því verið afar góð blanda fyrir
liðina, en dagsskammtur inniheldur 1.000
mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni,
ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin
(rosehips). C -vítamín stuðlar að eðlilegri
myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi
brjósks.
Líkaminn framleiðir sjálfur glúkósamín, en sú
framleiðsla minnkar þó með aldrinum og því
getur verið mikilvægt að taka inn glúkósamín
þar sem það eykur framboð þess í líkamanum,
sem þýðir að viðgerðarhæfni hans eykst umfram
það sem annars væri mögulegt.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og
heilsuhillur stórmarkaðanna
Eru eymsli í liðum
að hrjá þig?
Fullkomin
blanda fyrir
beinin
„Samhliða heilbrigðu mataræði, réttri hreyfingu
og að sjálfsögðu góðum svefni, getur blanda eins og
Glucosamin & Chondroitin Complex nýst á jákvæðan hátt.“
Glúkósamín sem hefur verið eitt
vinsælasta liðbætiefnið erlendis um
langa hríð fæst nú í bætiefnaformi
hér á landi og vinsældir þess
færast sífellt í aukana.
Talið er að glúkósamín auki
viðgerðarhæfni líkamans og geti
dregið úr eymslum í liðum.
Beinvernd
mikilvæg alla ævi