Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 34

Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 ✝ Ólafía Ólafs-dóttir fæddist í Áshól í Ásahreppi 31. október 1926. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 9. mars 2020. For- eldrar hennar voru Ólafur Krist- inn Ólafsson bóndi, f. 31. mars 1895, d. 9. september 1937, og Sigríður Sig- urðardóttir húsfreyja, f. 4. ágúst 1893, d. 1. ágúst 1927. Ólafía giftist 24. mars 1956 Guðmundi Guðmundssyni, for- stjóra Trésmiðjunnar Víðis hf., f. 4. júní 1910, d. 13. desember 1987. Foreldrar Guðmundar voru Guðmundur Bjarnason bóndi í Önundarholti, f. 10. júlí 1864, d. 7. janúar 1910, og Hild- ur Bjarnardóttir, f. 3. desember 1871, d. 13. nóvember 1961. Synir Guðmundar og Ólafíu eru: 1) Ólafur Kristinn, f. 6. ágúst 1956, í hjónabandi með Sigrúnu Konráðsdóttur, f. 17. ágúst 1956, börn þeirra eru a) Þorsteinn Konráð, f. 25. júlí 1975, sambýliskona Svava Sig- dóttir hennar er Emelía, f. 12. nóvember 2006. Ólafía, sem ævinlega var kölluð Lóa, ólst upp í Áshól í Ásahreppi, fyrstu árin í umsjá Kristínar ömmu sinnar eftir að móðir hennar lést frá henni barnungri. Hún missti föður sinn aðeins 10 ára gömul og ólst eftir það upp hjá ömmu sinni, föðurbræðrum sínum, Ingivaldi og Stefáni, og konu Stefáns, El- ínu. Lóa hlaut barnaskóla- menntun eins og þá tíðkaðist í sveitum, en síðan fór hún til náms í Húsmæðraskólanum á Hverabökkum og brautskráðist þaðan 1947. Í framhaldinu lá leiðin til Reykjavíkur, þar sem hún vann nokkur misseri á elli- heimilinu Grund, þar til hún réð sig til Guðmundar í Víði, en sú ráðning varð að ævilöngu hjónabandi. Fyrst bjuggu þau á Víðimel 31 í Reykjavík, en nokkrum árum síðar byggðu þau sér hús rétt utan Reykjavík- ur á Víðivöllum við Elliðavatn. Þar var hún búsett til æviloka. Útför Lóu fór fram í kyrrþey vegna aðstæðna í þjóðfélaginu í Fossvogskapellu 20. mars 2020 og var hún lögð til hinstu hvílu í Fossvogskirkjugarði hjá eig- inmanni sínum og syni. urþórsdóttir, f. 21. janúar 1978. b) Guðmundur Bjarni, f. 8. apríl 1982, son- ur hans er Haf- steinn, f. 10. febr- úar 2012. c) Lóa Sigríður, f. 11. nóv- ember 1983, í hjónabandi með Tryggva Knut Fa- restveit, f. 30. ágúst 1979, dætur þeirra eru Vala Fanney, f. 10. sept- ember 2009, Ásta Laufey, f. 20. febrúar 2012, og Lena Sóley, f. 1. ágúst 2013. 2) Gísli Ísfeld, f. 5. nóvember 1957, d. 23. mars 2015. 3) Björn Ingi, f. 5. maí 1964. 4) Sigurður Vignir, f. 26. september 1966, í hjónabandi með Þórdísi Guðmundsdóttur, f. 19. ágúst 1968, dætur þeirra eru a) Valgerður, f. 17. mars 1992, í hjónabandi með Karli Pálssyni, f. 15. október 1989, b) Hulda Ólafía, f. 10. febrúar 2003, c) Ragnhildur Helga, f. 8. október 2009. 5) Guðmundur Víðir, f. 15. september 1969, í sambúð með Kolbrúnu Ýri Sig- fúsdóttur, f. 12. október 1979, Tengdamóðir mín hún Lóa lést þann 9. mars síðastliðinn. Hún var í hvíldarinnlögn á Hrafnistu þegar hún varð bráðkvödd. Tíð- indin komu okkur á óvart þrátt fyrir að Lóa væri komin á háan aldur því hún var heilsuhraust og skýr í hugsun fram á það síðasta. Ég kom inn í fjölskylduna haustið 1988 og hitti þá Lóu í fyrsta sinn. Mér var vel tekið og einnig myndaðist gott samband á milli hennar og Huldu móður minnar og varð þeim vel til vina enda með mörg sameiginleg áhugamál. Lóa skaut yfir okkur skjóls- húsi haustið 2002 þegar við vor- um í húsbyggingum og með barn á leiðinni og áttum við góða mán- uði hjá henni þar til við fluttum inn í eigið húsnæði. Stúlkan sem fæddist þennan vetur var nefnd eftir ömmum sínum, Hulda Ólafía, og tókst okkur að koma Lóu á óvart með nafngiftinni þar sem hún var ekki ýkja hrifin af Ólafíu nafninu og vildi frekar vera þekkt sem Lóa. Okkur var þó samstundis fyrirgefið og ekki að sjá annað en að hún væri harð- ánægð með nöfnuna. Ást hennar á bókmenntum var það sem skilgreindi hana alla tíð og hún las sér til ánægju fram á síðasta dag. Hún gat farið með heilu ljóðabálkana eftir minni og mundi hvert einasta orð kórrétt. Bókatíðindin voru lesin spjald- anna á milli fyrir jólin og hún var alltaf með á hreinu hvaða bók hún vildi gefa hverjum og einum í jólagjöf og eins vissi hún alveg hvað hún vildi lesa sjálf og því var aldrei vandamál að velja gjafir handa henni. Jólin voru svo tekin í lestur, oft fram á nótt til að kom- ast yfir sem mest. Lóa var hagleiksmanneskja og hafði yndi af góðu handverki og eftir hana liggur heilmikið af út- saumuðum myndum og dúkum. Hún var prjónandi fram á síðasta dag og nutum við Siggi og börnin okkar góðs af prjónaskapnum. Hún var einnig liðtækur teiknari og með gott auga fyrir umhverf- inu. Dætrum mínum var hún ein- staklega góð. Hún var dugleg að deila með þeim bókum sem henni fannst nauðsynlegt að ungar stúlkur þyrftu að kynnast og fylgdist vel með hvað þær voru að gera í lífinu. Yngri dæturnar, Hulda Ólafía og Ragnhildur Helga, höfðu gaman af því að heimsækja ömmu sína og komu gjarnan með köku með sér og fengu hlýjar kveðjur og gott spjall í staðinn. Sérstaklega gott samband var á milli Lóu og Valgerðar elstu dóttur minnar, ekki síst eftir að móðuramma Valgerðar lést árið 2000. Lóa gat mætt í brúðkaup Valgerðar og Kalla sem var hald- ið norður í Bárðardal sumarið 2016. Að því loknu var Sprengi- sandsleið ekin heim á leið, nokk- uð sem ekki allir jafnaldrar henn- ar hefðu treyst sér í. Von er á fjölgun hjá Valgerði og Kalla nú í haust og þótt Lóa hafi ekki náð að hitta langömmudrenginn í lif- anda lífi, trúi ég því að hún vaki yfir honum. Sof, ástríka auga, sof, yndisrödd þýð, hvíl, hlýjasta hjarta, hvíl, höndin svo blíð! Það hverfur ei héðan, sem helgast oss var: vor brjóst eiga bústað, - þú býrð alltaf þar. Hið mjúka milda vor sín blóm á þig breiði og blessi þín spor. (Jóhannes úr Kötlum) Ég kveð elsku tengdamóður mína með ást og virðingu og þökk fyrir allt. Þórdís Guðmundsdóttir. Nú þegar nokkrir mánuðir eru liðnir frá fráfalli ömmu Lóu er auðveldara að ná hugsunum í orð. Tárin streyma þó fram og söknuðurinn er enn jafn sterkur. Það hefur verið gæfa okkar og lukka að hafa ömmu hjá okkur í öll þessi ár og verður skrítið að hún verði ekki hjá okkur núna á 94 ára afmælinu. Ég minnist hennar ömmu með svo gífurlegu þakklæti fyrir allar stundirnar þegar ég var að vaxa upp. Allar stundirnar á Víðivöll- um þar sem ég var svo oft í pöss- un, kaffitímarnir með flóaðri mjólk og kókómalti, og auðvitað mátti ekki gleyma að borða mjólkurhimnuna sem myndaðist á heitu mjólkinni. Hún geymdi í huga sér svo mörg ljóð, ég reyni að rifja upp þau örfáu sem ég ennþá man, en þau eru því miður ekki skýr og ég gleymi einstaka línum. Öll tæki- færisljóðin sem hún mundi, sem einhver á árum áður hafði samið á staðnum við eitthvert tilefni, og amma mundi það enn mörgum árum síðar. Ein sterkasta minningin frá æsku minni er þegar við vorum einar heima á Víðivöllum, raf- magnið hafði farið og við sátum í eldhúsinu við kertaljós og amma las fyrir mig sögu. Þegar raf- magnið komst loks á og aðrir heimilismeðlimir komu heim, þá vildi ég endilega klára söguna, þannig að við lokuðum bara að okkur inn í eldhús með slökkt ljósin og kláruðum einhverjar síður í viðbót. Eitt af síðustu skiptunum sem ég hitti hana ömmu var ég nýbúin að komast að því að ég ætti von á mínu fyrsta barni. Mér þótti svo leitt að fá ekki að deila fréttunum með henni þar sem meðgangan var komin svo stutt á veg. En örfáum dögum eftir að hún féll frá dreymdi mig að ég og Kalli værum stödd í eldhúsinu á Víðivöllum. Amma sat í horninu við eldhúsborðið og við náðum þá að segja henni fréttirnar augliti til auglitis. Ég er alveg viss um að hún hafi verið að kíkja þarna í heimsókn til að fá fréttirnar stað- festar sem hún vissi ábyggilega nú þegar. Þó að hún nái ekki að kynnast litla drengnum okkar persónu- lega veit ég að hann mun eiga allra bestu verndarenglana til að vaka yfir sér. Og hver veit; kannski mun hann koma í heim- inn á afmælisdeginum hennar ömmu. Þegar ég gisti hjá ömmu fór- um við alltaf með bænirnar okkar og trúarjátninguna saman. Í lokin læt ég fylgja bænirnar tvær sem mér þótti vænst um og kveð með orðunum sem þú end- aðir alltaf bænirnar á. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. (Höf. ók.) Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, guð í faðmi þínum. (Höf. ók.) Guð gefi okkur öllum góða nótt. Góða nótt elsku amma Lóa mín. Valgerður Sigurðardóttir. Við erum svo heppin systkinin að eiga margar góðar og dýr- mætar minningar frá æsku okkar hjá ömmu Lóu. Sem börn eydd- um við miklum tíma hjá henni á Víðivöllum við Elliðavatn. Að gista hjá ömmu var ávallt ævin- týri. Amma var yfirleitt í eldhúsinu að lesa, hlusta á Gufuna, eða við baksturinn. Það var jafn gaman að borða það sem hún bakaði eins og að horfa á hana baka og fá að hjálpa til. Hún gerði margt við baksturinn öðruvísi en við vorum vön. Hún blandaði hráefnum saman á borðinu, gerði fjall og bjó síðan til holu í miðjunni þar sem egg og mjólk fóru ofan í. Hún átti til hrærivél en í minningunni var hún mjög sjaldan notuð og allur bakstur var gerður í höndunum. Amma bjó til allra bestu kleinur og það var fátt betra en að fá sér heitar kleinur og ískalda mjólk. Á jólunum stóð amma alltaf fyrir sínu og bakaði fallegar smákökur og við fengum yfirleitt frjálsar hendur ofan í smákökuboxin hjá henni. Amma sagði okkur oft skemmtilegar sögur og ævintýri. Það var svo notalegt á kvöldin að hjúfra sig undir sæng hjá ömmu, með hitapoka undir fótunum og hlusta á hana segja sögur fyrir okkur. Við báðum ömmu iðulega að endurtaka sögurnar og með bros á vör endurtók hún söguna fyrir okkur. Hverri sögustund lauk með að amma fór með bænir með okkur. Á veggjunum í eldhúsinu hjá ömmu var fallegt veggfóður sem við sáum sem áskorun til þess að plokka í. Amma var dugleg að segja okkur að hætta þessu en aðdráttaraflið við litlu holurnar sem við höfðum myndað var stundum yfirþyrmandi og litlir puttar fóru fljótt að plokka aftur. Það einkenndi ömmu að hún var sjaldan reið og fyrirgaf okkur fljótt þetta óþarfa plokk í okkur enda varð veggfóðrið skreytt mörgum litlum götum eftir okkur systkinin. Amma var mikill dýravinur, yfirleitt með kött eða tvo og hund á heimilinu. Við systkinin fengum yfirleitt að eiga í dýrunum með henni. Hafsteinn, langömmubarn ömmu Lóu, er einnig mikill dýra- vinur, og hafa þau gert ýmis sam- komulög um hvaða part hann mætti eiga. Síðast var það allur feldurinn, að undanskildu í kring- um afturendann. Amma hefur verið dugleg að prjóna og gerði það enn þrátt fyr- ir háan aldur. Öll langömmubörn- in hennar eiga enn mörg pör af fallegum ullarvettlingum sem hún prjónaði og eru þeir í miklu uppáhaldi. Þeir gefa okkur systk- inunum hlýju á annan máta þar sem þeir minna okkur á elsku ömmu okkar. Ömmuknús var samt alltaf best og veitti okkur mikið öryggi og vellíðan. Elsku amma, við er- um þakklát fyrir allar þær stund- ir sem við áttum með þér og takk fyrir að hafa skipað stóran sess í æsku okkar og lífi. Guðmundur og Lóa. Ólafía Ólafsdóttir Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HREFNA MARÍA SIGURÐARDÓTTIR, Vallartúni 5, Keflavík, lést á Hlévangi Hrafnistu laugardaginn 17. október. Útförin fer fram frá safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi, þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðu: Útför Hrefnu Maríu Sigurðardóttur eða á slóð https://bit.ly/3osqACw. Gunnar Jónsson Lovísa Steinunn Gunnarsd. Hermann F. Ólason Jón Hrólfur Gunnarsson Jóhanna Helga Gunnarsd. John Dunn Hulda S. Gunnarsdóttir Sigríður Gunnarsdóttir Viðar Kristjánsson Kolbrún Jenný Gunnarsd. Björgvin Filippusson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI PÉTURSSON, fv. deildarstjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ fimmtudaginn 29. október. Útför fer fram síðar. Guðrún Bjarnadóttir Melchior Lippisch Pétur Bjarnason Brynja Ástráðsdóttir Sigurður Bjarnason Dröfn Guðmundsdóttir afabörn og langafabarn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGMUNDSDÓTTIR, yfirlæknir á sóttvarnasviði Embættis landlæknis, lést á heimili sínu, Fjarðarási 2, Reykjavík, þriðjudaginn 27. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. nóvember klukkan 11. Viðstaddir verða einungis fjölskylda og nánustu vinir. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/vE8jGqR_9wA. Fjölskyldan þakkar starfsfólki heimaþjónustu HERU og þeim fjölmörgu læknum og öðru starfsfólki Landspítalans sem önnuðust hana í veikindum hennar. Gylfi Óskarsson Guðlaug Gylfadóttir Hlynur Daði Sævarsson Hólmfríður Gylfadóttir Einar Sigurvinsson Magnús Atli Gylfason Daría Lind Einarsdóttir Egill Arnar og Guðrún Freyja Hlynsbörn FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, REYNIR KJARTANSSON trésmiður, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum mánudaginn 26. október. Útför verður auglýst síðar. María Olafson Þuríður Reynisdóttir Ágúst Guðmundsson Viðar Reynisson Anna Lilja Másdóttir María, Guðrún, Þuríður og Katla Okkar ástkæra, KRISTBJÖRG FREYDÍS STEINGRÍMSDÓTTIR, Bogga í Hrauni, lést á Dvalarheimilinu Hvammi 23. október. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 11. Aðeins nánustu aðstandendur geta verið viðstaddir en streymi verður á https://facebook.com/bogga.oggrimur Innilegar þakkir færum við því yndislega fólki sem annaðist hana í veikindum hennar. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningar- og gjafasjóð Hvamms. Hólmgrímur Kjartansson Arndís Á. Hólmgrímsdóttir Methúsalem Einarsson Harpa Þ. Hólmgrímsdóttir Rafn Stefánsson Elín D. Methúsalemsdóttir Þorsteinn Halldórsson Hólmdís F. Methúsalemsd. Hamidreza Jamshidnia Oddný Björg Rafnsdóttir Stefán Grímur Rafnsson Súsanna Svansdóttir og langömmustrákarnir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.