Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
30 ára Þóra fæddist í
Óðinsvéum í Dan-
mörku en ólst upp í
Seljahverfinu í Breið-
holti. Þóra er heil-
brigðisverkfræðingur
og er núna í dokt-
orsnámi í því fagi í Há-
skólanum í Reykjavík. „Ég starfa, með-
fram náminu, sem þjálfari á
Æfingastöðinni Grandi 101 og ég hef
mikinn áhuga á almennri heilsurækt og
líkamsrækt.“ Einnig teiknar Þóra og
málar mikið í frístundum.
Foreldrar: Sigmar Knútsson, f. 1961,
rafmagnstæknifræðingur og Ólafía
Svandís Grétarsdóttir, f. 1965, lífeinda-
fræðingur og deildarstjóri sýkla- og
veirufræðideildar Landspítalans.
Þóra Björg
Sigmarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Yfirmaður þinn mun hugsanlega
færa þér óvænt tíðindi í dag. Láttu stoltið
ekki hindra þig í að leita aðstoðar annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki smámunasemina hefta
þig. Ef þú hefur trú á sjálfri/sjálfum þér
mun allt annað fylgja í kjölfarið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu á varðbergi í fjármálum
svo ekkert, hvorki smátt né stórt, geti
komið þér þar á óvart. Gefðu börnunum
tíma og sýndu vinum væntumþykju.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð oft góðar hugmyndir en
týnir þeim jafnóðum niður. Fáðu aðra til að
vinna með þér – ekki á móti þér. Nú er erf-
iður tími til að hefja ástarsamband.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Í dag breytist allt í gull sem þú snert-
ir. Láttu velgengnina ekki stíga þér til höf-
uðs heldur gefa þér kraft til að halda
áfram og gera enn betur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að fá sem mest út úr starfi
þínu þannig að óleyst verkefni hrúgist ekki
upp á skrifborðinu. Gríptu tækifærið og
farðu út í náttúruna við fyrsta tækifæri.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í viðskiptum geta margir fletir verið
uppi á teningnum. Lykilatriðið er ekki
hversu miklar tekjur þú ert með heldur
hversu mikið þú getur sparað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hagaðu orðum þínum svo að
ekkert fari á milli mála hvað þú átt við.
Brjóttu daginn upp með einhverju
skemmtilegu. Forðastu að detta niður í
sjálfsásakanir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sýndu fyrirhyggju í fjármálum
því óvæntir atburðir geta gerst. Þér verður
boðin vinna sem þér virðist vera frábær.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gefðu þér tíma til hugleiðslu.
Hvernig þú bregst við atburðum segir mik-
ið um andlegan styrk þinn og af honum
hefur þú nóg.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert hrókur alls fagnaðar og
allir vilja vera nálægt þér. Gefðu þér tíma
til þess að kanna fasteignamarkaðinn vel
áður en þú lætur til skarar skríða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Aukið álag í vinnunni gæti komið
niður á þér seinna. Ef þú þarft ráðgjöf þá
verður þú að kunna að biðja um hana. Ekki
er allt sem sýnist í ástamálum.
Sölumaður deyr. Síðasta hlutverk
hans var þjónninn í Kirsuberjagarð-
inum 2011, en þá var Pétur kominn
á eftirlaun.
ett, Bazarov í Feðrum og sonum ár-
ið 1998. Árið 2000 lék hann Lé
konung í Borgarleikhúsinu og 2002
lék hann hlutverk Willy Lomans í
P
étur Einarsson leikari
fæddist 31.10. 1940 í
Vestmannaeyjum og
ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA
1961 og segist hafa fengið leiklistar-
bakteríuna eftir að hann lék í skóla-
sýningum MA. Hann fór í Leiklist-
arskóla LR og útskrifaðist þaðan
árið 1964. Hann fékk fyrsta hlut-
verkið á öðru ári í Leiklistarskól-
anum, en það var hlutverk unga
herrans í Ástarhringnum eftir
Arthur Schnitzler.
Ákvað að snúa heim
Eftir útskrift var Pétur lausráð-
inn hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en
ákvað þá að víkka sjóndeildarhring-
inn og fór í meistaranám í háskól-
anum í Georgia í Bandaríkjunum og
var þar árið 1965-6. Leiklistar-
deildin rak sitt eigið leikhús og Pét-
ur lék margs konar hlutverk og
hann var um tíma að huga að því að
starfa vestanhafs þegar hann fékk
boð um að leika Arnes í Fjalla-
Eyvindi heima á Íslandi. Ári síðar
var hann fastráðinn hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, þar sem hann vann
lengst af, bæði sem leikari og leik-
stjóri. Pétur vann líka mikið hjá
Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi
Akureyrar, þar sem hann var leik-
hússtjóri.
Langur leikferill
Það er vart hægt að hafa tölu á
öllum þeim leikritum sem Pétur
hefur leikið í á fjölum leikhúsanna,
enda var hann eitt af þekktustu
andlitum leikhússins um fimmtíu
ára skeið og sýningarnar farnar að
nálgast 100. Má þar nefna Dúfna-
veisluna, Fjalla-Eyvind, Leynimel
13, Atómstöðina, Skáld-Rósu, Hart í
bak, Höll sumarlandsins, Íslensku
mafíunni, Hinu ljósa mani svo að-
eins séu örfá nefnd. Hann lék
Greger Werle í Villiöndinni árið
1975 og ári seinna titilhlutverkið í
Makbeð, Pabba Joad í Þrúgum reið-
innar 1992, heimilisföðurinn Orgon í
Tartuffe árið 1993. Sama ár lék
hann einleikinn Býr Íslendingur
hér, bæði heima og á þýsku í Berlín.
Hann lék Rodriguez í Evu Lúnu ár-
ið 1994 og ári seinna Max í Kabar-
Pétur Einarsson leikari – 80 ára
Á sviðinu í meira en hálfa öld
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hjónin Hér eru Pétur og eiginkona hans, Birgitte Heide listdansari.
Margir muna eftir Pétri í hlut-
verki Galdra-Lofts sem sýndur var
annan í jólum 1970 í sjónvarpi allra
landsmanna. Bæði var sýningin ein
stærsta íslenska uppsetning sem
sjónvarpið hafði tekist á við og síð-
an þótti Pétur sýna stjörnuleik í
hlutverki Lofts. Í gagnrýni Krist-
jáns Bersa Ólafssonar sem birtist í
Vísi 4.1. 1971 segir hann Pétur hafa
unnið leiksigur í túlkun sinni á
Lofti: „Hann [Pétur] hafði hlut-
verkið á valdi sínu frá byrjun, túlk-
aði geðsveiflur Lofts, ofsa hans og
örvæntingu á sterkan hátt en sann-
færandi, tókst að forðast að detta í
þá gryfju að ofleika og breyta þar
með tragedíu í gleðileik, en upp á þá
hættu býður hlutverk Lofts óneit-
anlega.“
Pétur lék einnig hlutverk Gunn-
ars í sjónvarpsmynd Lárusar Ýmis
Óskarssonar eftir leikverki Birgis
Sigurðssonar, Degi vonar, árið 1988,
í Gullna hliðinu, í Njálssögu, í Rétti
og Hrauninu, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig hefur Pétur leikið eftir-
minnileg hlutverk á hvíta tjaldinu,
og má þar nefna Morðsögu, Engla
alheimsins, Nóa albinóa, Mömmu
Gógó og Kurteist fólk.
Kennslan
Pétur var fyrsti skólastjóri Leik-
listarskóla Íslands (1975-1983) og
byggði þar upp grunn að leiklist-
armenntun, sem fluttist síðar yfir í
Listaháskóla Íslands. Hann kenndi
leiktúlkun bæði meðan hann var
skólastjóri og síðar. Auk þess leik-
stýrði hann fjölda verkefna, m.a.
poppleiknum Óla, rokkóperunni
Súperstar og Lokaæfingu.
Síðan hafa margir Íslendingar
notið hjálpar Péturs við að losa sig
við tóbaksdjöfulinn, en hann hélt
vinsæl námskeið um árabil eftir að-
ferð Allen Carr, Auðveldu leiðinni
til að hætta að reykja.
Pétur var í leikhúsráði LR og
einn af stofnendum Félags leik-
stjóra á Íslandi og formaður þess
um tíma. Hann var einnig formaður
Sambands félaga leikstjóra á
Norðurlöndum um nokkurt skeið.
Auk þess var hann formaður leik-
listarráðs 1980-1985, fulltrúi Íslands
í Norræna leiklistarsambandinu, í
Leikhúsið Hér er Pétur í
hlutverki Willy Lomans í
Sölumaður deyr, eftir
Arthur Miller, árið 2002.
30 ára Kolfinna ólst
upp í 101 og París en
býr núna í Laugar-
dalnum. Hún er leik-
stjóri og var að ljúka
við æfingar á óper-
unni KOK, sem verður
sýnd í Borgarleikhús-
inu. Áhugamálin eru leikhús, kvikmyndir,
kajak, sjórinn og dýpið og að sjálfsögðu
hrekkjavakan eða „dagur hinna dauðu“.
Maki: Sigurður Möller Sívertsen, f. 1990,
kvikmyndaleikstjóri.
Börn: Unnur, f. 2016 og Eysteinn, f.
2019.
Foreldrar: Helena G.S. Magneudóttir, f.
1967, kvikmyndagerðarkona og Nicolas
Pétur Blin, f. 1967, taugalífeðlisfræð-
ingur.
Kolfinna
Nikulásdóttir
Til hamingju með daginn
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is