Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 47
DÆGRADVÖL 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Skiltagerð
Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„TAKTU EINA SVONA MEÐ VATNI Á
FJÖGURRA ÁRA FRESTI.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að það er
hann sem er að hringja
bjöllunni.
ÞÁ ERTU
KÖTTUR
HANN GLEYMDI
„krútt”
ERTU LATUR?…
GEÐSTIRÐUR?…
DÓNALEGUR?… SVIKULL?…
HROKAFULLUR?…ÓHLÝÐINN?…
UNDIRFÖRULL?… SJÁLFSELSKUR
OG SAMVISKULAUS?
HRÓLFUR! ÉG SÉ EKKI ÚT UM ÞENNAN
DRULLUSKÍTUGA GLUGGA! HVERS VEGNA MÁ
ÉG EKKI ÞVO HANN?
AF ÞVÍ AÐ ÉG VIL EKKI AÐ NEINN
SJÁI INN UM HANN!
JAN.
GÓSS
FEB.
GÓSS
„HÚN GERIR ALLTAF LÍTIÐ ÚR MÉR.”
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
MARS
stjórn LHÍ og Kvikmyndasjóðs svo
aðeins fátt sé dregið fram.
Pétur var gerður að heiðursfélaga
Leikfélags Reykjavíkur árið 2017.
Fjölskylda
Eiginkona Péturs er Birgitte
Heide, f. 17.4. 1959, listdansari og
fagstjóri hjá Listdansskóla Íslands.
Hún er dóttir Paul E. Heide, f. 27.5.
1925, d. 2003, úrsmiðs og Guðrúnar
Ágústsdóttur, f. 27.7. 1929, d. 2008,
húsmóður.
Börn Péturs eru Margrét Kristín,
f. 9.3. 1962, leikari og kennari, og á
hún eitt barn; Sólveig, f. 17.8. 1970,
bókavörður og á hún eitt barn; Þór-
unn Elín, f. 3.8.1972, kennari og
söngkona, en maður hennar er Þor-
steinn Arnalds, f. 5.9. 1972, verk- og
tölfræðingur, og eiga þau tvö börn;
Guðrún Lára, f. 9.2. 1976, bók-
menntafræðingur en maður hennar
er Einar Þór Þórarinsson læknir og
eiga þau þrjú börn; Elís, f. 13.4.
1980, hagfræðingur en kona hans er
Brynja Gunnlaugsdóttir, f. 17.7.
1987, hagfræðingur og eiga þau eitt
barn; Pétur Heide, f. 3.10. 1990, við-
skiptafræðingur en kona hans er
Aðalheiður Snæbjarnardóttir, f.
6.12. 1981, viðskiptafræðingur og
eiga þau tvö börn.
Áður var Pétur giftur Soffíu Jak-
obsdóttur, f. 2.12. 1939, leikkonu og
Ingibjörgu Elsu Guðmundsdóttur, f.
16.8. 1951, menntunarfræðingi.
Einnig á Pétur barn með Svanhildi
Valsdóttur, f. 25.11. 1950, kennara.
Systkini Péturs eru Páll, f. 22.1.
1937, d. 2008, flugmaður; Gutt-
ormur, f. 15.3. 1938, kerfisfræðingur
í Reykjavík; Sólveig Fríða, f. 21.8.
1945, ljósmóðir í Garðabæ og Sig-
fús, f. 11.8. 1951, d. 2020, doktor í
líffræði.
Foreldrar Péturs eru Einar Gutt-
ormsson, f. 15.12. 1903, d. 1984, yfir-
læknir Sjúkrahússins í Vest-
mannaeyjum, og Margrét Kristín
Pétursdóttir, f. 29.12. 1914, d. 2001,
húsmóðir.
Pétur Einarsson
Jóhanna Rakel Jónsdóttir
verkakona á Akureyri.
Benedikt Ólafsson
vinnum. í Hamarkoti,Hrafnagilssókn
og húsmaður áAkureyri
Jóhanna Sólveig Benediktsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Símon Pétur Jónatansson
bátsmaður á Akureyri
Margrét Kristín Pétursdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Margrét Kristín Símonardóttir
húsfreyja í Syðstabæ nr. 5,
Stærri-Árskógssókn, Eyj.
Jónatan Magnússon
húsmaður í Syðstabæ nr. 5, Stærri-Árskógssókn, Eyj.
Guðfinna Oddsdóttir
húsfreyja, Meðalnesi, Ássókn, N.-Múl.
Sigfús Oddsson
bóndi, Meðalnesi, Ássókn, N.-Múl.
Oddbjörg Sigfúsdóttir
vinnukona og húsfreyja
Guttormur Einarsson
bóndi í Geitagerði í Fljótsdal
Sigríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja Hrafnsgerði
Einar Guttormsson
bóndi í Hrafnsgerði og Fjallsseli
Úr frændgarði Péturs Einarssonar
Einar Guttormsson
sjúkrahúslæknir, Vestm.eyjum
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Fleygur lítt er fuglinn sá.
Flughratt snýst hann löngum.
Buna honum fellur frá.
Fljótfærinn þann kalla má.
Guðrún B. svarar:
Sjaldan hani hefst á loft.
Hani snýst og mælir rok.
Brunahani bestur oft.
Ber vindhani flumbrukok.
Helgi R. Einarsson á þessa
lausn:
Fyrst við lítum hana á haug,
svo hana tengdan vindi.
Hanar henta líka á laug
og leysa allt í skyndi.
Helgi Þorláksson leysir gátuna
svona:
Hananum vængirnir varla bifa,
vindhana flugið aldrei gengur,
vatnið úr hana er haft til þrifa,
hani nefnist fljótfær drengur.
Eysteinn Pétursson svarar:
Haninn flýgur lítt um loft.
Líst mér snúast vindhaninn.
Vatn frá hana vellur oft.
Víst er hani fljótfærinn.
Guðmundur Stefánsson á þessa
lausn:
Vappar hani velli á.
Vindhani mun áttum ná.
Úr vatnshana er buna blá.
Brátt fer morgunhani á stjá.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Hraðfleygur er haninn síst.
Hani fyrir vindi snýst.
Vatn úr hana víða fer.
Vindhaninn mjög fljótfær er.
Þá er limra:
Tveir herramenn hanaslagi
heyja af versta tagi.
Þeir Biden og Trump
minna báðir á strump
en samt hvor með sínu lagi.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Sólin skín á himni hlý,
hverfa næturinnar ský,
lengur ekki boða bíð,
brýnt að ljúka gátusmíð:
Framan á gildvöxnu Gunnu.
Gjarnan á katli og tunnu.
Nafni því kalla má kúna.
Kynni ég hljóðfæri núna.
Sigurður Breiðfjörð orti:
Feginn nú ég fer á kreik
frá því öllu saman.
Best er að hætta hverjum leik
hæst þá stendur gaman.
Halldór Blöndal
halldorblondal@siment.is
Vísnahorn
Heima er haninn frakkastur