Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 51
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Mammút er langlíf sveit (og núætlaði ég að koma meðhnyttinn samanburð á aldri
sveitarinnar og líftíma loðfílsins en
brandarinn gekk ekki upp. Þannig að
ég sleppi honum). En já, sextán ár er
talsvert, og Mammút hefur slípað
steininn frá morgni til kvölds að heita
má eða allt síðan hún sigraði í Mús-
íktilraunum með glæsibrag árið 2004.
Mammút hefur síðan þá verið ein af
okkar helstu rokksveitum, stöðugt að
í gegnum hljómleikahald sem og
plötuútgáfu.Vinátta og tilfinnanleg
stemning hefur
ávallt leikið um
þann hóp sem
Mammút skipar
hverju sinni,
eitthvað sem er
síst gefið í þess-
um fræðum en
ábyggilega stór
þáttur í velgengni hljómsveitarinnar.
Sígandi lukka er best og það á ekki
síst við um plötur Mammút. Fyrstu
tvær, Mammút (2006) og Karkari
(2008), voru um margt ójafnar en
sveitin sýndi loks hvers hún var
megnug á Komdu til mín svarta syst-
ir (2013). Mikilúðlegt verk og „full-
orðins“. Síðasta verk, Kinder Ver-
sions (2017), sem gefið var út af Bella
Union í Bretlandi er þá margverð-
launað og ekki að ósekju. Sú plata tók
m.a. áhrif frá nýrokki níunda áratug-
arins, U2 (The Unforgettable Fire)
og Cocteau Twins. Gotablær og grúv-
andi síðpönk yfir.
Eins og fjallið eina
Ride The Fire var tekin upp á Ís-
landi og í London. Árni Hjörvar,
bassaleikari The Vaccines, sá um upp-
tökustjórn, Sam Slater hljóðblandaði
(Hildur Guðnadóttir) og um hljóm-
jöfnun sá Mandy Parnell (Björk og
Sigur Rós). Trommuleikarinn Valgeir
Skorri Vernharðsson hefur nú gengið
til liðs við hljómsveitina og þreytir hér
frumraun sína, leysir Andra Bjart
Jakobsson af.
Mammút hefur fyrir margt löngu
tálgað til ákveðinn einkennishljóm og
liggur hann yfir plötunni. Útfærslur
eru nýjar og öðruvísi, en grunnurinn
er sá sami. Og eins og ég lýsi hér í
upphafi, það tók tíma að draga gæðin
fram, svona eins og þegar pottréttur
er látinn malla hálfan daginn eða svo.
Þolinmæði, saman með seiglu, borgar
sig. Mammút hefur, sérstaklega á síð-
ustu þremur plötum, unnið gagngert
með skandinavísk rökkurminni (gota-
blærinn) og það er svöl síðpönksára
yfir líkt og venjulega. Hljóðmynd
plötunnar er frábær. Allt skýrt og
gott, allir „levelar“ réttir. Það er allt-
af erfitt að lýsa hljómi með orðum en
myndin sem maður fær er af dökkri
og umlykjandi plötu. Gítarar klingja
og eru hvassir, bassinn er feitur,
djúpur og töffaralegur og Katrína
Mogensen söngkona leiðir lögin eins
og sú sem valdið hefur. Innkoma
Vernharðs er líka mjög öflug, hann
veldur starfinu með glans. „Sun and
Me“ er vel til fundið opnunarlag og
kynnir allt það sem ég var að tala um
til leiks. Það er drjúgt á næstu þrem-
ur lögum svo, hálfgerðar myrkra-
ballöður en um leið mikill leikur í út-
setningum (sjá skothríðina í „Pow
Pow“). „Prince“ kemur svo þægilega
inn, skammlaust popplag og hin fal-
legasta smíð. Gotagangan heldur svo
áfram („Forever on your mind“ kall-
ar fram Joy Division, Killing Joke,
Interpol o.fl.) og „Still Like A Mount-
ain“ er glæst, styðst við hálfgerðan
spagettívestragítar, ísi lagður eyði-
merkuróður!? „Fire“ er hálfgert
varðeldalag (og algerlega frábært) og
sýnir vel það fjölskrúðuga vopnabúr
sem sveitin býr að eftir öll þessi ár.
Ride the Fire er stöndug plata.
Það blasir ekkert við í fyrsta rennsl-
inu en ef fólk leyfir henni að marin-
erast eru verðlaun. Þú finnur nefni-
lega þá og heyrir að þetta er band
sem var ekki stofnað í gær, reynslan
og telepatískt samband meðlima á
milli skilar sér inn í lögin og heild-
armyndina. Eldurinn beislaður, já
svo sannarlega!
»Mammút hefurfyrir margt löngu
tálgað til ákveðinn ein-
kennishljóm og liggur
hann yfir plötunni. Út-
færslur eru nýjar og
öðruvísi, en grunnurinn
er sá sami.
Fimmta plata Mamm-
út kallast Ride the
Fire. Nýr trommuleik-
ari er genginn til liðs
við sveitina en hljóm-
urinn er nokk auð-
þekkjanlegur samt
sem áður. Eða hvað?
Hersing Spánný
Mammút stillir sér upp
vegna spánnýrrar plötu.
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Hrekkjavökuvika
í Sambíóunum
Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma