Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 52

Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF, veitti í gær hin árlegu verðlaun sín, Langspilið, auk þess sem veitt var heiðurs- merki sambandsins. Langspilið hlaut tónskáldið Anna Þorvalds- dóttir og heiðursmerkið tónlistar- maðurinn Þórir Baldursson. Anna er búsett í London og fylgdist með afhendingu Langspils- ins með fjarfundarbúnaði en fulltrúi hennar á staðnum tók við verðlaunagripnum. Áhrifamikið tónskáld „Anna Þorvaldsdóttir hefur verið nefnd ein af áhrifamestu tón- skáldum okkar tíma. Tónlist Önnu hafa tónlistargagnrýnendur m.a. lýst sem „tónlist sem er að því er virðist takmarkalaus ímyndun á áferð“. Í viðtölum hefur hún sjálf sagt að tónlist sín snúist fyrst og fremst um áferð,“ segir í tilkynn- ingu og að Anna hafi unnið til margra verðlauna og þá bæði inn- lendra og erlendra, m.a. Tónlistar- verðlauna Norðurlandaráðs árið 2012 og Kravis Emerging Com- poser Prize frá Fílharmóníuhljóm- sveitinni í New York 2015. Árið 2018 hlaut hún tvenn verðlaun frá Lincoln Center, Emerging Artist Award og The Martin E. Segal Award. Árið 2019 var hún tilnefnd til Grammy-verðlaunanna. Verk Önnu eru reglulega flutt víða um lönd af virtum hljóm- sveitum og var hún staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2018-2019 og vann m.a. að nýjum tónverkum fyrir hljóm- sveitina. Fyrsta portrett-plata Önnu, Rhi- zoma, kom út árið 2011 og komst á lista yfir bestu tíu klassísku plötur ársins í Bandaríkjunum. Sú næsta, Aerial, kom út 2014 hjá Deutsche Grammophon og komst á fjölda lista yfir bestu plötur ársins. Segir í tilkynningu að sjaldgæft sé að hið virta útgáfufyrirtæki gefi út plötu með samtímatónlist eftir einn höf- und. „Með þessu braut Anna enn eitt blaðið fyrir samtímatónskáld,“ segir í tilkynningunni og að þriðja portrett-plata Önnu, In the Light of Air, hafi svo komið út 2015 hjá bandarísku útgáfunni Sono Lum- inus og líkt og fyrri plötur hlaut sú mikið lof gagnrýnenda. Langur og farsæll ferill Þórir Baldursson hlaut heiðurs- merki STEFs í gær. Hann hóf ung- ur að fikta við harmonikku á heim- ili sínu, eins og segir í tilkynningu, og á unglingsaldri fór hann að leika með danshljómsveit föður síns og skólahljómsveitum í heimabæ sínum Keflavík. Hann flutti svo til Reykjavíkur og á með- an hann stundaði nám í mennta- skóla lék hann með Svannatríóinu, árin 1963-1968. Árið 1966 gerði hljómsveitin Dátar lag hans „Leyndarmál“ gríðarvinsælt og Savannatríóið hljóðritaði þriðju plötu sína í London árið 1967 sem leiddi til þess að Decca-útgáfan gaf út tveggja laga plötu með Þóri, að því er fram kemur í tilkynningu. Árið 1969 bauðst honum að leika með hljómsveit Karls Lilliendahl í Finnlandi og þaðan lá leiðin til Sví- þjóðar þar sem Þórir gekk til liðs við hljómsveit og kynntist fyrri eiginkonu sinni, söngkonunni Ninu Lizell. Þórir fór víða um Evrópu með hljómsveitinni og árið 1973 settist hann að í München, komst þar inn í hljóðversbransann og kynntist hinum víðfræga Georgio Moroder, lagahöfundi og upptöku- stjóra. Þórir var þá fastamaður í stúdíósveit Moroders, eins og seg- ir í tilkynningu, og var hljóm- sveitin kennd við hljóðverið Mu- sicland. Lék Þórir m.a. inn á plötur Donnu Summer og Boney M og árið 1979 hljóðritaði hann m.a. með Grace Jones og Elton John. Eftir að hafa búið og starfað í Bandaríkjunum flutti Þórir aftur heim til Íslands árið 1982 og varð áberandi í upptökubransanum, starfaði m.a. fyrir Geimstein sem rekinn var af Maríu, systur Þóris, og eiginmanni hennar Rúnari Júl- íussyni. Þórir hefur á löngum ferli stjórnað fjölmörgum upptökum og hljómsveitum og verið virkur í fé- lagsstarfi höfunda, að því er fram kemur í tilkynningunni og um ára- bil sat hann í ýmsum nefndum og stjórnum sambandsins. „Engum dylst að Þórir hefur lagt mikið af mörkum við framfaramál fyrir tón- og textahöfunda á liðnum áratug- um og er það stjórn STEFs sönn ánægja að mega nú sæma hann heiðursmerki STEFs,“ segir í enda tilkynningar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Heiður Langspilið og heiðursmerki STEFs voru afhent í húsnæði sambandsins í gær og fylgdist Anna með á netinu. Anna hlaut Langspilið  Þórir Baldurs- son tónlistarmað- ur hlaut heiðurs- merki STEFs í ár Fyrsti vetrardagur boðaróvissu í veðurfarinu ogdimmar nætur, en aðeinsviku síðar birtir til, því 1. nóvember kemur út glæpasaga eftir Arnald Indriðason. Á miðnætti verður það Þagnarmúr, enn eitt meistarastykkið, og Konráð Jós- epsson, fyrrverandi rannsóknar- lögreglumaður, er í aðalhlutverki eins og í bókum höfundar undan- farin ár. Sögur Arnaldar eru úthugsaðar og með ólíkindum er hvernig hann tengir gjarnan gömul mál við það sem er efst á baugi í hverri bókinni á eftir annarri. Konráð smellpassar inn í þennan heim enda fastur í óleystum málum fortíðar. Frásögnin er hnökralaus, sveifl- ast frá nútímanum til áranna um og skömmu eftir 1960 og til baka með markvissum hætti. Persónusköpun- in fellur vel að efninu að vanda og jafnvel fangavörðurinn á Litla- Hrauni, sem gegnir veigalitlu hlut- verki, er ljóslifandi fyrir augum þess sem aldrei hefur þangað kom- ið. Samræðurnar eru eðlilegar og auðvelt er að gleyma sér í sviðs- myndinni hverju sinni án þess að láta glepjast af Seppa og Engilbert. Sumir virðast vera sléttir og felldir á yfirborðinu en þegar betur er að gáð hafa margir sinn djöful að draga. Gróft ofbeldi er víða, en þöggunin er alger, hver sem á í hlut. Því er ekki hlaupið að því að brjóta niður múrinn. Samviskan hefur nagað Konráð í áratugi og hún er leiðandi stef í þessari glæpasögu. Svo lengi sem menn muna hefur sannleikurinn verið sagna best- ur og þegar menn leiðast út á breiða vegi lyga og svika getur verið vand- ratað á beinu brautina. Ekki vegna þess að viljann vanti, heldur vegna þess að vinir og vandamenn eiga erfitt með að sætta sig við síendurtekin brot af nefndu tagi og snúa því baki við þeim sem hefur nítt niður af þeim skóinn. Fyrrverandi lögreglumaðurinn finn- ur heldur betur fyrir því í leitinni að sannleikanum, sem að þessu sinni snýr fyrst og fremst að óleystu máli fyrir tæplega 60 árum. Erna, látin eiginkona Konráðs, hafði líkt merkingu rauðvínsins The Dead Arm, sem virðist vera í uppá- haldi hjá Konráð, við hann. „Vínvið- urinn hafði þau einkenni að frá hon- um óx bækluð grein sem féll að lokum ónýt af trénu en það setti aukinn kraft í þær greinar sem voru heilar og þetta þótti gera vínið kröftugra. Erna hafði séð sitthvað af eiginmanni sínum í þessum náttúrufurðum.“ (bls. 177). Að sama skapi má segja að Þagnarmúr sé eins og marggreina jurt með sterkum stofni. Konráð fer frá einum stað til annars í leit sinni að sannleikanum og þó hann komi yfirleitt að lokuðum dyrum eða því sem næst nægir glæta honum til þess að setja púslin saman, kornin taka jafnt og þétt á sig mynd og blómin á greinunum springa út hvert af öðru þar til þau mynda blómstrandi haf. Ekki verður bjart- ara í skammdeginu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leitin að sannleikanum Glæpasaga Þagnarmúr bbbbb Eftir Arnald Indriðason. Vaka-Helgafell 2020. Innb., 303 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Höfundurinn „Sögur Arnaldar eru úthugs- aðar og með ólíkindum er hvernig hann tengir gjarnan gömul mál við það sem er efst á baugi,“ segir gagnrýn- andinn um nýja bók Arnaldar Indriðasonar, Þagnarmúr, en bókin kemur út á morgun. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is HönnunarMars, stærsta hönn- unarhátíð landsins, verður haldin 19.-23. maí á næsta ári en ekki í mars eins og vant er. Vegna Co- vid-19 fór hátíðin í ár fram síðustu helgina í júní og hefur stjórn hátíð- arinnar ákveðið að hún skuli næst haldin í maí, í ljósi yfirstandandi heimsfaraldurs og óvissunnar sem honum fylgir. „HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Hátíðin mun halda áfram að koma inn með krafti, veita innblástur og gleði ásamt því að varpa ljósi á þann kraumandi skapandi kraft sem hönnunarsamfélagið hér á landi hef- ur að geyma. Við vitum hvorki hvað framtíðin ber í skauti sér né hvernig hátíðarhald verður en ljóst er að alltaf verður þörf á samtalinu. Því ber okkur skylda til að halda ótrauð áfram. Það eru bjartari tímar fram undan, HönnunarMars 2021 verður með nýju sniði í takt við nýja tíma,“ skrifar Þórey Einarsdóttir, stjórn- andi HönnunarMars. Opnað verður fyrir umsóknir þátttakenda næsta mánudag, 2. nóv- ember, og er umsóknarfrestur til 30. nóvember. 2020 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við setningu HönnunarMars í júní á þessu ári. HönnunarMars verður í maí 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.