Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 12

Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 12
E llen býr ásamt unnusta sínum Arnmundi Ernst Björnssyni og syni þeirra Hrafni Jóhanni í Vesturbænum. Ellen er að hefja lokaárið sitt í leiklist við Listaháskóla Íslands. Hún er um þessar mundir að æfa fyrir fyrstu sýninguna á árinu í skólanum. „Sýningin heitir Þrjár systur og er eftir Anton Tsjekov. Við erum að vinna að uppsetn- ingunni undir leiðsögn Halldóru Geirharðs- dóttur. Þetta eru mjög sérstakir tímar í skól- anum því við erum öll að leika leikritið með grímur og með metra á milli okkar. Við spritt- um alla leikmuni stöðugt og reynum að vanda okkur eins mikið og hægt er. Það gengur vel miðað við aðstæður en það getur verið mjög sérstakt að nota röddina undir grímunni og að lesa í mótleikarana þegar maður sér bara aug- un í þeim og líkamsbeitinguna. Eins og staðan er núna er maður bara þakklátur fyir að geta mætt í skólann. Við krossum fingurna fyrir að hægt verði að sýna sýninguna fyrir einhverja utanaðkomandi áhorfendur. Utan skóla er ég líka að taka þátt í sýning- unni „Ég býð mig fram“ eftir Unni Elísabetu Gunnarsdóttur sem frumsýnd verður þann 22. október í Hafnarhúsinu. Ég er náttúrulega alltaf í móðurhlutverkinu svo ég þarf að skipu- leggja mig vel. Ég er þannig að ég vil ekki að það bitni á syni mínum og tímanum hans að ég er í krefjandi námi og að sama skapi vil ég ekki að það bitni á náminu að ég sé móðir. Ég er eina foreldrið í bekknum mínum.“ Reynir að vera mild við sjálfa sig Ellen á það til að gera miklar kröfur til sín að eigin sögn. „Auðvitað er ekki alltaf hægt að vera hundr- að prósent í öllu þannig að ég er líka alltaf að æfa mig í að mæta sjálfri mér í mildi.“ Ellen á jákvæða upplifun að því að ganga með og fæða barnið sitt. „Ég var mjög heppin. Meðgangan mín gekk vel og fæðingin sömuleiðis. Krummi kom reyndar út með aðra höndina samferða höfð- inu eins og Súperman svo ég get ekki sagt að það hafi verið þægilegt, þvert á móti. Ég rifn- aði við það og það þurfti að sauma mig saman í 40 mínútur að fæðingu lokinni og það var eiginlega bara ógeðslega vont. Engu að síður gæti ég ekki verið þakklátari fyrir fæðinguna. Krummi kom öruggur í heiminn og ég var örugg og það voru bara 12 klukkutímar frá því ég fór að finna fyrstu verki og þar til ég var komin með litla drenginn minn í hendurnar. Hugur minn og hjarta er alltaf hjá þeim kon- um sem þurfa að vera í heilan sólarhring eða meira að koma börnunum sínum í heiminn. Ég bara get ekki ímyndað mér þreytuna sem þær ganga í gegnum.“ Hefur lífið breyst mikið frá því þú eignaðist barn? „Já það hefur margt breyst. Sumt tengi ég beint við það að hafa eignast barn en svo breytist líka bara ýmislegt eftir því sem tíminn líður. Ég hef til dæmis öðlast meiri jarðteng- ingu og er öruggari í eigin skinni. Að bera ábyrgð á lífi einhvers annars en sínu eigin er hollt og þroskandi en líka mjög krefjandi og ástin fer náttúrulega á algjörlega nýtt hæðar- plan. Það er rosalega mikið nýtt til að taka inn og læra á. Það er komin heil ný manneskja í heiminn svo að það þarf að finna jafnvægi í öllu. Að verða foreldri hefur því krafið mig um mikla sjálfsskoðun og sjálfsvinnu sem stoppar aldrei og það er bara jákvætt. „Ég er eina foreldrið í bekknum mínum“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ellen og sonurinn Hrafn Jóhann. Ellen Margrét Bæhrenz, leikaranemi og dansari, er á lokaári sínu á leiklistarbraut í Listaháskóla Íslands. Hún er eina móðirin í bekknum og segir það dásamlega tilfinningu en oft flókið að vera til staðar hundrað prósent alls staðar. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is SJÁ SÍÐU 14 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.