Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 É g er maður á miðjum aldri, vel menntaður, í góðri stöðu og vel metinn út á við, fjöl- skyldumaður, eiginmaður, faðir og afi, lífs- glaður og sáttur við guð og menn, einn dag í einu,“ segir viðmælandi sem kýs að koma ekki fram undir nafni. „Klám er andlegt eitur. Fyrir mér er klám uppspretta ótal sjúkra hugmynda um kynlíf, konur og karlmenn, sem hefur sterka tilhneigingu til að má út eðlileg mörk um hvað er eðlilegt og heilbrigt í nánum sam- skiptum og grefur undan siðferðislegum gildum. Klám reynir að fá okkur til að sjá fólk ekki sem manneskjur með eðlilegar kenndir, mörk eða mannvirðingu, heldur sem leikföng og losta- vaka, til að nota og misnota, þar sem allt leyfist og mörk eru ekki virt. Klámið gerir allt sem það getur til að tengja sig við kynferðislega spennu og örvun og smám saman getur óhófleg klámneysla svo auðveldlega farið að móta það hvernig maður skynjar og sér, hugsar og finnur til, og fer að lita hvernig maður upplifir þessa eðlilegu mannlegu grunnþörf, kyn- hvötina og þörfina fyrir nánd og að tengjast annarri manneskju. Órar og blæti sprottið úr klámi geta sest að í huganum og orðið að hálfgerðri þráhyggju sem truflar og þvælist fyrir. Ég tala nú ekki um ungt fólk sem fær sínar fyrstu hugmyndir um kynlíf og hitt kynið úr klámi. Auk allra áhrifanna sem klám hefur á klámnotandann og hans eða hennar nánustu þá byggist klám- framleiðsla á óhugnanlegri misnotkun á manneskjunum sem taka þátt í kláminu og við erum þannig að misbjóða okkur til fróunar. Bara það eitt og sér gerir klám að óverjandi fyr- irbæri.“ Notaði sjálfur klám óhóflega í gegnum tíðina Hvernig komstu að þessari niðurstöðu og hefur þú haft aðra skoðun á klámi hér áður? „Ég komst að þessu í gegnum eigin reynslu. Sjálfur hef ég notað klám óhóflega í gegnum tíðina. Ég kynntist klámi sem barn og unglingur og þótti það strax óheyrilega spennandi. En það sem í fyrstu var spennandi og skemmtileg dægradvöl stöku sinnum varð smátt og smátt að óstjórnlegri þörf sem ég réð á endanum ekkert við. Í mörg ár komst ég varla í gegnum daginn án þess að skoða klám. Síðustu árin mátti kalla mig bæði dag- drykkjumann og túramann á þessu sviði. Klámið sem ég skoð- aði þróaðist líka. Ég þurfti stöðugt sterkara stöff til að vekja upp gömlu góðu áhrifin. Að skoða klám hafði hugbreytandi áhrif á mig svipað eins og vímuefni. Fyrir mér var klám bæði Ljósmynd/Colourbox „Fyrir mér er klám andlegt eitur“ Maður sem er í bata frá klámfíkn segir samfélagið vanta meiri mannvirðingu, minni hlutgervingu og meira kvenfrelsi. Hann segir fólk af gagnstæðu kyni ekki vera bara kyntákn eða leikföng. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Í mörg ár komst ég varla í gegnum daginn án þess að skoða klám. Síðustu árin mátti kalla mig bæði dagdrykkjumann og túramann á þessu sviði.  VIÐTAL SMARTLAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.