Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra Mikið fyrir að hugsa út fyrir kassann Hvernig lýsir þú heim- ilinu þínu? „Heima er ég rétt eins og í vinnunni þar sem ég geri bara það sem mér dettur í hug hverju sinni. Ég fylgi ekki tískusveifl- um og lifi mig bara inn í það sem ég er að gera hverju sinni. Sem dæmi um þetta er ljósið í borð- stofunni sem er ekki látið hanga fyrir ofan borð- stofuborðið. Það er ekki allt í sama stíl hjá mér. Heldur raða ég hlutum á óvæntan og skemmtilegan hátt sam- an.“ Fatastíll Birgittu er einfaldur og minimal- ískur í grunninn. „Ég er mikið í íþrótta- fatnaði og er þá mikið fyrir að setja á mig áber- andi skartgripi. Ég er ekki með perlur við fínan fatnað, nema að ég vilji klæða mig upp á í anda Chanel.“ Birgitta lærði útstillingahönnun í Iðnskól- anum í Hafnafirði. Spurð um hvernig henni líði í vinnunni segir hún vinnuna vera áhugamálið sitt. „Ég er mjög mikið í flæðinu og hugsa ekki mikið um álit annarra á mér eða því sem ég er að vinna við. Ég er smáveg- is öryggisfíkill í eðli mínu en reyni að vera for- dómalaus í minn garð og annarra og reyni eftir fremsta megni að leyfa fólki að vera það sem það er. En þannig hef ég ekki alltaf verið. Hér áður lifði ég meira með það að markmiði að þóknast öðrum meira en sjálfri sér. Mér finnst frelsi mitt hafa komið með aldrinum, lífs- reynslu minni og aukn- um þroska. Það gerðist eitthvað þegar ég varð fimmtug og þá byrjaði mér bara að vera meira sama um hlutina. Þá fór ég að treysta sjálfri mér betur fyrir því sem ég var að gera. Þetta við- horf hefur aðstoðað mig við að vera skapandi í vinnunni.“ Notar hælaskó við íþróttafatnaðinn Hvað keyptir þú þér síðast í fataskápinn? „Fataskápurinn minn er fullur af flottum fötum. Ég kaupi mér mikið af fatnaði og í raun er fatnaður það sem ég leyfi mér í lífinu. Þann- ig að ef einhvern vantar mór- alskan stuðning í að kaupa sér eitthvað, þá er gott að hafa núm- erið mitt að hringja í. Það síð- asta sem ég keypti mér í fat- skápinn minn voru æðislegir skór frá Billi Bi í Evu. Þeir eru rosalega sætir, támjóir með litlum hæl og spennu yfir ristina. Þeir gætu verið frá árinu verið frá 1940 en það tíma- bil sem heillar mig mest í tísk- unni er seinnihluti áttunda ára- tugarins. Ég er mikið fyrir alls konar liti og hef í seinni tíð verið að færa mig upp á skaftið þegar kemur að litum. Annars finnst mér svartur litur og grár alltaf klassískur og það sama má segja um hvítan.“ Hvernig notarðu íþróttafatn- að? „Ég nota íþróttafatn- aðinn minn með hæla- skóm. Ég kaupi íþrótta- buxurnar mínar hér og þær, stundum sauma ég þær jafnvel sjálf. Það er fallegt að vera með perlufesti við hælaskóna og buxurnar, klæðast stórri peysu við og þá er ákveðið útlit komið sem ég heillast að. Þegar ég fer á stefnumót með manninum mínum, þá fer ég í svartar útvíðar buxur, falleg stígvél, huggulega peysu og svo kápu.“ Birgitta fær nýjar hugmyndir héðan og þaðan. „Þetta er eitthvað sem ég lærði í náminu mínu. Ég sanka ólíkum hugmyndum saman í huganum og get gripið í þær þegar mér dettur í hug. Ég bý einnig til fleira en skart- gripi þegar kemur að útstillingum. Sem dæmi get ég búið til allskonar skraut því það getur verið erfitt að nálgast það sem mig langar að hafa í hönnun. Ég hef búið til risastóra köngla fyrir jólin en einnig smærri hluti sem eru þá í rétta forminu eða litnum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Perlufesti eftir Birgittu. Birgitta velur þæg- indi og gæði um- fram allt annað. Birgitta í huggulegum sportfatnaði. Birgitta bjó til köngla fyrir jólin í Evu. Birgitta gerir skart- gripi úr perlum. Birgitta gerir perlur sem eftir er tekið. Birgitta notar kjóla yfir buxur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.