Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 41
Hver er allra vinsælasta útlitsbætandi meðferð sem þið bjóð-
ið upp á?
„Bótoxið (toxín) og fylliefni hafa verið langvinsælasta
meðferðin til þessa, sem er alveg skiljanlegt þar sem um
frekar einfaldar meðferðir er að ræða sem skila mjög góðum
árangri. Toxín eru og hafa verið vinsælasta fegurðarmeð-
ferðin um allan heim í mörg ár. En við verðum að segja, að við
höfum aldrei fengið svona mikil viðbrögð við neinni meðferð
sem við höfum byrjað með eins og við þessari húðþéttingar-
meðferð núna. Ekki ólíklegt að hún verði vinsælasta með-
ferðin okkar í ár.“
Hvaða aðgerð hentar best ef til dæmis fólk vill alls ekki að
það sjáist að það sé búið að eiga við það?
„Ég myndi segja Ultraformerinn eða Picolaserinn (djúpur
fractionell laser). Þessar meðferðir báðar tvær örva bandvefs-
frumurnar til að framleiða nýtt kollagen. Þessar frumur eru
mjög seinar að taka við sér og því kemur árangurinn fram á
löngum tíma, hægt og þétt á nokkrum mánuðum. Þar af leið-
andi verður árangurinn mjög náttúrulegur og fáir sem taka eft-
ir að viðkomandi hafi gert nokkuð. Hér gildir góðir hlutir ger-
ast hægt. Munurinn á þessum tveimur meðferðum er sá að
laserinn vinnur meira á yfirborði húðarinnar en Ultraform-
erinn, til dæmis vinnur betur á opnum svitaholum, en Ultra-
formerinn þéttir húðina meira en Picolaserinn.“
Hver verður aðal-hittarinn í húðmeðferðum 2020?
„Ég held að Ultraformerinn eigi eftir að slá í gegn og svo er
það einnig meðferð sem kallast Aquagold þar sem örþunnu
fylliefni (skin booster) er blandað saman við mjög lága
skammta af toxíni og því sprautað undir húð í andliti. Þetta er
verulega vinsæl meðferð um allan heim. Þetta er mjög kröftug
andlitsmeðferð þar sem þú færð mikinn raka og microtoxínið
jafnar verulega áferð húðarinnar og minnkar svitaholurnar.
Vaxandi eftirspurn er eftir þessari meðferð hjá okkur líka.“
Hér sést hvernig
undirhaka hefur
minnkað með
meðferðinni.