Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Timberland Kringlunni | Sími 533 2290 | timberland.is STATTU TRAUSTUM FÓTUM MEÐ TIMBERLAND VATNSHELDIR ÚR GÆÐALEÐRI Ég komst loksins inn í leiklistina í Listaháskól- anum eftir að ég átti Krumma, hann var átta mánaða gamall þegar ég var í prufunum. Ég er ekki viss um að ég hefði komist inn ef ég hefði ekki eignast hann, ég fullorðnaðist svo mikið við það og var í kjölfarið alveg rosalega tilbúin bara. Í skólanum hef ég svo nefnilega tekið út heilmikinn þroska. Við höfum talað um það þar að við nemendurnir séum eins og humrar. Þegar humar vill stækka fer hann undir stein, í öruggt umhverfi, fer úr skelinni og stækkar. Svo fer hann í nýja skel og kemur undan stein- inum stærri humar. Eins erum við leiklistar- nemendurnir. Komum inn í skólann í ákveð- inni stærð og í öruggu umhverfi tökum við af okkur skelina og höfum þá rými til að stækka og dafna. Þegar við útskrifumst komum við svo út stærri en við vorum eða alla vega reynslunni ríkari. Frekar fyndin samlíking en mér finnst hún æðisleg.“ Besta uppeldisaðferðin að vera góð fyrirmynd Ellen segir áhugavert að muna hvernig var að vera barn sjálf. „Ég var einmitt að rifja upp bernskusögur í valáfanga í skólanum fyrir stuttu síðan og það var ýmislegt sem kom upp. Það sem mér fannst áhugavert í þeim upprifjunum var hvað allar tilfinningar sem maður var að upplifa sem barn voru raunverulegar. Til dæmis ef ég týndi einhverju dóti sem mér þótti vænt um þá man ég hvað ég fann raunverulega til og fannst það virkilega sorglegt þó að núna horfi ég til baka og finnist hitt og þetta hafa verið smámál. En það var af því að það var það sorg- legasta sem ég hafði upplifað á þeim tíma og því var sorgin djúp. Í raun og veru er það mjög fallegt. Ég sé þetta líka hjá syni mínum hvað hann lifir sig sterklega inn í aðstæður og ég geri mitt besta til að sýna honum alltaf skiln- ing, hlusta á hann og gera ekki lítið úr tilfinn- ingum hans þótt aðstæður séu kannski spaugi- legar, eins og þær geta gjarnan verið. Annað sem ég sé í syni mínum sem minnir á mína æsku er ímyndunaraflið. Ég hef alltaf haft ríkt ímyndunarafl og elskaði að fara í hlut- verkaleiki sem barn. Einu sinni lét ég kalla mig Mjall- hvíti í heila viku í leikskól- anum, lét eins og ég heyrði ekki nafnið Ellen og svar- aði engu nema ég væri ávörpuð sem Mjallhvít. Svo man ég eftir að hafa leikið sama atriðið úr Pocahontas með vinkonu minni á leið- inni heim úr skólanum á hverjum einasta degi þeg- ar við gengum fram hjá ákveðnum kletti. Ég sé þetta svo vel í syni mínum sem er alltaf að leika eitt- hvað annað en sig sjálfan, oftast risaeðlur en líka kis- ur, engisprettur, strúta og allt þar á milli.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar þegar kemur að móðurhlutverkinu? „Þær eru margar og endalaust af góðum for- eldrum allt í kringum mig. Meðal annars mínir eigin foreldrar, en mér dettur einnig í hug bandaríski rithöfundurinn Glennon Doyle, en hún skrifaði bókina Un- tamed sem ég las í sumar. Bókin er ekki ein- göngu um móðurhlutverkið en mér finnst hennar viðhorf til þess mjög fallegt og hún veltir upp mörgum þörfum pælingum sem höfðu mikil áhrif á mig. Til dæmis bara hvað það er að vera góð móðir. Ég held að allir for- eldrar vilji vera góðir foreldrar en stundum höldum við að til þess þurfum við að fórna okk- ur sjálfum og okkar löngunum, þörfum eða þrám. Doyle leggur til að fólk líti inn á við, elti sína eigin drauma og langanir og lifi eins og því sjálfu finnst sannast og fallegast. Mín skoðun er sú að börn læra það sem fyrir þeim er haft en ekki endilega það sem þeim er sagt þannig að ef foreldrarnir lifa sinn sannasta og fallegasta raunveruleika er líklegra að börnin þeirra eigi eftir að gera slíkt hið sama. Ef for- eldrarnir fórna sjálfum sér í sífellu og elta ekki eigin drauma er kannski líklegt að börnin þeirra geri það ekki heldur og þá verða til kyn- slóðir fólks sem eltir ekki drauma sína. Þannig að ég held að það sé rétt hjá henni að besta uppeldisaðferðin sé að vera góð fyrirmynd.“ Dreymir um að verða leikkona Hvaða hugmyndir um lífið viltu kenna áfram til sonar þíns? „Að elska sjálfan sig og aðra. Að miðla kær- leik og jákvæðni. Að vera góður og hafa gam- an. Við erum öll að reyna okkar besta. Svo langar mig að hjálpa honum að finna út hvað skiptir hann máli og hvað veitir honum ham- ingju og styðja hann í að elta það.“ Þegar kemur að framtíðinni þá er Ellen með stóra drauma. „Það er svo margt sem mig langar að gera. Eftir útskrift er náttúrulega draumurinn að fá vinnu við að leika. Mig langar að vinna bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu, mig lang- ar að fá hlutverk í bíó og mig langar að prufa að vinna í sjálfstæðu leiksenunni. Svo væri líka gaman að gera eitthvað í útlöndum. Mig lang- ar að prófa þetta allt og ég hef stóra drauma, eins og sést. Ég hef líka drauma fyrir litlu fjöl- skylduna mína og er ofsalega forvitin að fylgj- ast með Krumma og vonandi fleiri afleggjur- um, vaxa og dafna. Ég elska að eldast og einn daginn langar mig að verða amma, svo langamma og helst líka langalangamma. Ég reyni samt að lifa í núinu. Að lokum óska ég mér friðar á jörðu, meiri samkenndar á meðal valdafólks og sameiningar mannkyns í barátt- unni við loftslagsbreytingar. Svo væri líka flott að fá bóluefni við kórónuveirunni. Ég er draumóramanneskja eins og heyrist og skammast mín ekki fyrir það.“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Krummi kom reyndar út með aðra höndina samferða höfð- inu eins og Súperman svo ég get ekki sagt að það hafi verið þægilegt, þvert á móti. Ég rifnaði við það og það þurfti að sauma mig saman í 40 mínútur að fæð- ingu lokinni og það var eig- inlega bara ógeðslega vont. Ellen er sú eina í sínum bekk í leiklist sem er móðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.