Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Timberland Kringlunni | Sími 533 2290 | timberland.is
STATTU TRAUSTUM
FÓTUM MEÐ
TIMBERLAND
VATNSHELDIR ÚR GÆÐALEÐRI
Ég komst loksins inn í leiklistina í Listaháskól-
anum eftir að ég átti Krumma, hann var átta
mánaða gamall þegar ég var í prufunum. Ég er
ekki viss um að ég hefði komist inn ef ég hefði
ekki eignast hann, ég fullorðnaðist svo mikið
við það og var í kjölfarið alveg rosalega tilbúin
bara. Í skólanum hef ég svo nefnilega tekið út
heilmikinn þroska. Við höfum talað um það þar
að við nemendurnir séum eins og humrar.
Þegar humar vill stækka fer hann undir stein, í
öruggt umhverfi, fer úr skelinni og stækkar.
Svo fer hann í nýja skel og kemur undan stein-
inum stærri humar. Eins erum við leiklistar-
nemendurnir. Komum inn í skólann í ákveð-
inni stærð og í öruggu umhverfi tökum við af
okkur skelina og höfum þá rými til að stækka
og dafna. Þegar við útskrifumst komum við
svo út stærri en við vorum eða alla vega
reynslunni ríkari. Frekar fyndin samlíking en
mér finnst hún æðisleg.“
Besta uppeldisaðferðin að vera
góð fyrirmynd
Ellen segir áhugavert að muna hvernig var
að vera barn sjálf.
„Ég var einmitt að rifja upp bernskusögur í
valáfanga í skólanum fyrir stuttu síðan og það
var ýmislegt sem kom upp. Það sem mér
fannst áhugavert í þeim upprifjunum var hvað
allar tilfinningar sem maður var að upplifa
sem barn voru raunverulegar. Til dæmis ef ég
týndi einhverju dóti sem mér þótti vænt um þá
man ég hvað ég fann raunverulega til og
fannst það virkilega sorglegt þó að núna horfi
ég til baka og finnist hitt og þetta hafa verið
smámál. En það var af því að það var það sorg-
legasta sem ég hafði upplifað á þeim tíma og
því var sorgin djúp. Í raun og veru er það mjög
fallegt. Ég sé þetta líka hjá syni mínum hvað
hann lifir sig sterklega inn í aðstæður og ég
geri mitt besta til að sýna honum alltaf skiln-
ing, hlusta á hann og gera ekki lítið úr tilfinn-
ingum hans þótt aðstæður séu kannski spaugi-
legar, eins og þær geta gjarnan verið.
Annað sem ég sé í syni mínum sem minnir á
mína æsku er ímyndunaraflið. Ég hef alltaf
haft ríkt ímyndunarafl og elskaði að fara í hlut-
verkaleiki sem barn. Einu
sinni lét ég kalla mig Mjall-
hvíti í heila viku í leikskól-
anum, lét eins og ég heyrði
ekki nafnið Ellen og svar-
aði engu nema ég væri
ávörpuð sem Mjallhvít. Svo
man ég eftir að hafa leikið
sama atriðið úr Pocahontas
með vinkonu minni á leið-
inni heim úr skólanum á
hverjum einasta degi þeg-
ar við gengum fram hjá
ákveðnum kletti. Ég sé
þetta svo vel í syni mínum
sem er alltaf að leika eitt-
hvað annað en sig sjálfan,
oftast risaeðlur en líka kis-
ur, engisprettur, strúta og
allt þar á milli.“
Hverjar eru fyrirmyndir
þínar þegar kemur að
móðurhlutverkinu?
„Þær eru margar og
endalaust af góðum for-
eldrum allt í kringum mig.
Meðal annars mínir eigin foreldrar, en mér
dettur einnig í hug bandaríski rithöfundurinn
Glennon Doyle, en hún skrifaði bókina Un-
tamed sem ég las í sumar. Bókin er ekki ein-
göngu um móðurhlutverkið en mér finnst
hennar viðhorf til þess mjög fallegt og hún
veltir upp mörgum þörfum pælingum sem
höfðu mikil áhrif á mig. Til dæmis bara hvað
það er að vera góð móðir. Ég held að allir for-
eldrar vilji vera góðir foreldrar en stundum
höldum við að til þess þurfum við að fórna okk-
ur sjálfum og okkar löngunum, þörfum eða
þrám. Doyle leggur til að fólk líti inn á við, elti
sína eigin drauma og langanir og lifi eins og
því sjálfu finnst sannast og fallegast. Mín
skoðun er sú að börn læra það sem fyrir þeim
er haft en ekki endilega það sem þeim er sagt
þannig að ef foreldrarnir lifa sinn sannasta og
fallegasta raunveruleika er líklegra að börnin
þeirra eigi eftir að gera slíkt hið sama. Ef for-
eldrarnir fórna sjálfum sér í sífellu og elta ekki
eigin drauma er kannski líklegt að börnin
þeirra geri það ekki heldur og þá verða til kyn-
slóðir fólks sem eltir ekki drauma sína. Þannig
að ég held að það sé rétt hjá henni að besta
uppeldisaðferðin sé að vera góð fyrirmynd.“
Dreymir um að verða leikkona
Hvaða hugmyndir um lífið viltu kenna áfram
til sonar þíns?
„Að elska sjálfan sig og aðra. Að miðla kær-
leik og jákvæðni. Að vera góður og hafa gam-
an. Við erum öll að reyna okkar besta. Svo
langar mig að hjálpa honum að finna út hvað
skiptir hann máli og hvað veitir honum ham-
ingju og styðja hann í að elta það.“
Þegar kemur að framtíðinni þá er Ellen með
stóra drauma.
„Það er svo margt sem mig langar að gera.
Eftir útskrift er náttúrulega draumurinn að fá
vinnu við að leika. Mig langar að vinna bæði í
Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu, mig lang-
ar að fá hlutverk í bíó og mig langar að prufa
að vinna í sjálfstæðu leiksenunni. Svo væri líka
gaman að gera eitthvað í útlöndum. Mig lang-
ar að prófa þetta allt og ég hef stóra drauma,
eins og sést. Ég hef líka drauma fyrir litlu fjöl-
skylduna mína og er ofsalega forvitin að fylgj-
ast með Krumma og vonandi fleiri afleggjur-
um, vaxa og dafna. Ég elska að eldast og einn
daginn langar mig að verða amma, svo
langamma og helst líka langalangamma. Ég
reyni samt að lifa í núinu. Að lokum óska ég
mér friðar á jörðu, meiri samkenndar á meðal
valdafólks og sameiningar mannkyns í barátt-
unni við loftslagsbreytingar. Svo væri líka flott
að fá bóluefni við kórónuveirunni. Ég er
draumóramanneskja eins og heyrist og
skammast mín ekki fyrir það.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Krummi kom
reyndar út með
aðra höndina
samferða höfð-
inu eins og
Súperman svo ég
get ekki sagt að
það hafi verið
þægilegt, þvert á
móti. Ég rifnaði
við það og það
þurfti að sauma
mig saman í 40
mínútur að fæð-
ingu lokinni og
það var eig-
inlega bara
ógeðslega vont.
Ellen er sú eina í sínum bekk
í leiklist sem er móðir.