Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Mikið fyrir að hugsa
út fyrir kassann
Hvernig lýsir þú heim-
ilinu þínu?
„Heima er ég rétt eins
og í vinnunni þar sem ég
geri bara það sem mér
dettur í hug hverju sinni.
Ég fylgi ekki tískusveifl-
um og lifi mig bara inn í
það sem ég er að gera
hverju sinni. Sem dæmi
um þetta er ljósið í borð-
stofunni sem er ekki látið
hanga fyrir ofan borð-
stofuborðið.
Það er ekki allt í sama
stíl hjá mér. Heldur raða
ég hlutum á óvæntan og
skemmtilegan hátt sam-
an.“
Fatastíll Birgittu er
einfaldur og minimal-
ískur í grunninn.
„Ég er mikið í íþrótta-
fatnaði og er þá mikið
fyrir að setja á mig áber-
andi skartgripi. Ég er
ekki með perlur við fínan
fatnað, nema að ég vilji klæða mig upp á í anda
Chanel.“
Birgitta lærði útstillingahönnun í Iðnskól-
anum í Hafnafirði. Spurð um hvernig henni líði
í vinnunni segir hún vinnuna vera áhugamálið
sitt.
„Ég er mjög mikið í flæðinu og hugsa ekki
mikið um álit annarra á
mér eða því sem ég er að
vinna við. Ég er smáveg-
is öryggisfíkill í eðli mínu
en reyni að vera for-
dómalaus í minn garð og
annarra og reyni eftir
fremsta megni að leyfa
fólki að vera það sem það
er. En þannig hef ég ekki
alltaf verið.
Hér áður lifði ég meira
með það að markmiði að
þóknast öðrum meira en
sjálfri sér. Mér finnst
frelsi mitt hafa komið
með aldrinum, lífs-
reynslu minni og aukn-
um þroska. Það gerðist
eitthvað þegar ég varð
fimmtug og þá byrjaði
mér bara að vera meira
sama um hlutina. Þá fór
ég að treysta sjálfri mér
betur fyrir því sem ég
var að gera. Þetta við-
horf hefur aðstoðað mig
við að vera skapandi í
vinnunni.“
Notar hælaskó við
íþróttafatnaðinn
Hvað keyptir þú þér síðast í fataskápinn?
„Fataskápurinn minn er fullur af flottum
fötum. Ég kaupi mér mikið af fatnaði og í raun
er fatnaður það sem ég leyfi mér í lífinu. Þann-
ig að ef einhvern vantar mór-
alskan stuðning í að kaupa sér
eitthvað, þá er gott að hafa núm-
erið mitt að hringja í. Það síð-
asta sem ég keypti mér í fat-
skápinn minn voru æðislegir
skór frá Billi Bi í Evu. Þeir eru
rosalega sætir, támjóir með
litlum hæl og spennu yfir
ristina. Þeir gætu verið frá
árinu verið frá 1940 en það tíma-
bil sem heillar mig mest í tísk-
unni er seinnihluti áttunda ára-
tugarins. Ég er mikið fyrir alls
konar liti og hef í seinni tíð verið
að færa mig upp á skaftið þegar
kemur að litum. Annars finnst
mér svartur litur og grár alltaf
klassískur og það sama má
segja um hvítan.“
Hvernig notarðu íþróttafatn-
að?
„Ég nota íþróttafatn-
aðinn minn með hæla-
skóm. Ég kaupi íþrótta-
buxurnar mínar hér og
þær, stundum sauma ég
þær jafnvel sjálf. Það er
fallegt að vera með
perlufesti við hælaskóna
og buxurnar, klæðast
stórri peysu við og þá er
ákveðið útlit komið sem
ég heillast að. Þegar ég
fer á stefnumót með manninum mínum, þá
fer ég í svartar útvíðar buxur, falleg stígvél,
huggulega peysu og svo kápu.“
Birgitta fær nýjar hugmyndir héðan og
þaðan.
„Þetta er eitthvað sem ég lærði í náminu
mínu. Ég sanka ólíkum hugmyndum saman
í huganum og get gripið í þær þegar mér
dettur í hug. Ég bý einnig til fleira en skart-
gripi þegar kemur að útstillingum. Sem
dæmi get ég búið til allskonar skraut því
það getur verið erfitt að nálgast það sem
mig langar að hafa í hönnun. Ég hef búið til
risastóra köngla fyrir jólin en einnig smærri
hluti sem eru þá í rétta forminu eða litnum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Perlufesti
eftir Birgittu.
Birgitta velur þæg-
indi og gæði um-
fram allt annað.
Birgitta í
huggulegum
sportfatnaði.
Birgitta bjó til
köngla fyrir
jólin í Evu.
Birgitta gerir skart-
gripi úr perlum.
Birgitta gerir perlur
sem eftir er tekið.
Birgitta notar
kjóla yfir buxur.