Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 43
Kremið sem
vinnur á
hrukkum að
næturlagi
N
ýja næturkremið
frá Shiseido, Future
Solution LX er
kremið sem
kröfuharðar
konur hafa beðið eftir.
Kremið kemur í ein-
staklega fallegri
krukku sem stend-
ur á glerbakka með
skeið sem aðstoðar við
rétta magnið af næt-
urkreminu.
Allar konur þrá að
halda í æskuljómann
sama á hvaða aldri þær
eru. Kremið hentar sér-
staklega þeim konum sem eru með þroskaða húð og þrá meiri ljóma og
færri línur í kringum augun.
Kremið er að margra mati náttúruleg lyfting í krukku með ein-
stökum raka sem dregur úr bólgum á svæðinu sem skiptir hvað mestu
máli á andlitinu.
Þær konur sem þrá slétt og fallegt augnsvæði
þurfa ekki að örvænta lengur því nýja næt-
urkremið frá Shiseido gerir kraftaverk.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Shiseido Future Solution LX næturkremið.
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 43
F
rá japanska snyrtivörumerkinu
kom nýlega vara sem er fullkomin í það
verkefni. Sensai Dual Essence er
tveggja þrepa elexír sem veitir
húðinni fullkominn raka.
Í henni er að sjálfsögðu að
finna eitt af aðalsmerkjum Sensai-
snyrtivaranna, Koishimaru-silki, eða hið
konunglega silki eins og það er kallað í
Japan. Silkið var á sínum tíma aðeins
framleitt fyrir keisarafjölskylduna í Jap-
an. Auk silkisins er að finna hágæða olíur
úr jurtaríkinu sem veita húðinni enn
meiri næringu.
Sensai er þekkt fyrir áralangar rann-
sóknir sínar á innihaldsefnunum sem
fyrirtækið notar í húðvörurnar sínar og
hér er engin undantekning frá því.
Rannsóknir sýna að einstök efna-
samsetning á Koishimaru-silki Sensai
dregur verulega úr hrukkumyndun og
kemur í veg fyrir að húðin verði hrjúf,
auk þess sem það styrkir varnarkerfi
húðarinnar gagnvart skaðlegu ut-
anaðkomandi áreiti.
Nærandi olía sem stíflar ekki húðina
Í Dual Essence er að finna ólífuolíu
sem er unnin úr sjálfu ólífualdininu þeg-
ar það er sem ferskast. Einnig er þykkni
úr laufum perilla-jurtarinnar og squalane-
olía sem unnin eru úr þroskuðum syk-
urreyr. Með því að sameina tvær formúlur í
eina veitir tveggja þrepa tæknin húðinni samtímis
alla kosti bæði olíu og annarra vel valinna efni.
Kostir olíanna í Dual Essence eru
meðal annars þeir að þær stífla ekki
húðina og þau sem eru með bólur þurfa
því ekki að hafa áhyggjur af því að
nota vöruna.
Áður en þú notar Dual Essence á að
hrista flöskuna rólega til að blanda
innihaldsefnunum saman. Þumalputt-
areglan þegar notaðar eru fleiri en
ein vara í einu er að byrja á að nota
þynnstu vöruna fyrst og síðast þykk-
ustu vöruna. Þannig tryggir maður
hámarksvirkni í hverri vöru.
Fyrst skaltu þrífa húðina með
mildum hreinsi. Næst skaltu setja
þynnstu vöruna sem þú ætlar að
nota. Það getur til dæmis verið Ab-
solute Silk Micro Mousse Treat-
ment sem er létt rakafroða sem
smýgur hratt inn í húðina og veitir
henni raka. Næst skaltu bera Dual
Essence á þig. Eftir nokkrar mín-
útur skaltu svo bera á þig gott
rakakrem, til dæmis Absolute Silk
Cream eða Absolute Silk Fluid frá
Sensai. Það má líka blanda 1-2 drop-
um af Dual Essence út í rakakrem og
bera þannig á andlitið. Sömuleiðis má
gjarnan nota það á líkama og neglur
til að laða fram silkigljáa. Vöruna er
hægt að nota bæði kvölds og morgna.
Dragðu fram ljómann
í skammdeginu
Nú þegar dagurinn tekur að styttast og við verðum öll frekar grá í framan er
nauðsynlegt að fríska upp á andlitið og draga fram ljómann og birtuna.
Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonja@mbl.is
Mundu að
hrista flöskuna
rólega áður en
þú notar hana til
að blanda inni-
haldsefnunum
saman.