Morgunblaðið - 02.11.2020, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020
Kári Stefánsson viðraði þá hug-
mynd í hlaðvarpi Viljans, við Björn
Inga Hrafnsson þáttastjórnanda, að
álitlegt væri að hlúð yrði að Covid-
sjúklingum annars staðar en á
Landspítalanum. Covid-starfsemi
myndi flytjast í annað húsnæði svo
að starfsemi Landspítalans kæmist
að einhverju leyti til síns hefð-
bundna forms. Kári segir þó í sam-
tali við Morgunblaðið að þessi hug-
mynd sé ekki frá sér komin. Fólk úr
framlínunni hafi nefnt þetta áður.
„Þetta hlýtur að vera eitt af því
sem við verðum að horfa til, það er
ekki hægt að láta fólk búa við að hér
sé ekki hægt að viðhalda hefðbund-
inni starfsemi spítalans,“ segir Kári.
Þá þykir mörgum erfitt að
ímynda sér hvernig starfsemi Land-
spítala getur staðist kröfur, ef far-
aldrinum slotar ekki í einhverja
mánuði í viðbót. „Þetta verður erfitt
ef þetta teygist í heilt ár. Það hlýtur
einhver niðri á Landspítala að vera
að brjóta heilann um það hvernig
megi hátta því að hlúa að Covid-
sjúklingum annars staðar. Til þess
þarf auðvitað sérútbúið húsnæði.“
Mbl.is spurði Þórólf Guðnason
sóttvarnalækni út í þetta í gær.
Hann segir að það sé spítalans
sjálfs að ákveða þetta. „Ég hef nú
ekkert mikið verið að spekúlera í
þessu. Það er auðvitað spítalans
sjálfs og þeirra sem þar ráða að
stýra því hvernig hlutum þar er
háttað.“
Engin svör að fá
Það var þó fátt um svör þegar eft-
ir frekari upplýsingum var leitað.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir gaf
lykilfólk ekki kost á sér til að svara
fyrirspurnum um mögulega tilhög-
un heilbrigðisþjónustu fyrir sjúk-
linga sem smitaðir eru af kórónu-
veirunni; heilbrigðisráðherra,
landlæknir, yfirlæknir á smitsjúk-
dómadeild, forstjóri Landspítalans
og aðstoðarmaður hans svöruðu
ekki. oddurth@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Landspítalinn starfar nú á neyðarstigi í fyrsta sinn síðan far-
ladurinn hófst og engar valkvæðar aðgerðir eru framkvæmdar.
Kári segir tillög-
una ekki vera sína
Engin svör frá LSH eða ráðuneytinu
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráð-
herra segir markmið nýrrar reglu-
gerðar um takmarkanir á skólastarfi
miðast við að setja menntun í fyrir-
rúm, án þess að slaka í neinu á sótt-
vörnum. „Ríkisstjórnin hefur lagt
áherslu á að forgangsraða í þágu
menntunar, við viljum auka sóttvarn-
ir í skólunum, en um leið tryggja að-
gengi barna og ungs fólks að mennt-
un,“ segir Lilja í samtali við
Morgunblaðið.
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra
um takmarkanir á skólastarfi var
gefin út í gærkvöldi og tekur gildi á
morgun, þriðjudaginn 3. nóvember.
Hún gildir um allt skólastarf í land-
inu, en nær einnig til frístundaheim-
ila, félagsmiðstöðva og íþrótta- og
tómstundastarfs barna og ung-
menna.
Reglugerðin gildir í tvær vikur
Lilja segir ekkert ráðið um fram-
haldið og hvort skólastarf muni taka
mið af þessum ráðstöfunum það sem
eftir er af skólastarfinu. „Þessi reglu-
gerð gildir í tvær vikur,“ segir Lilja.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að til umræðu sé að gera áætlanir
út skólaárið, þannig að skólastarfið
verði ekki háð einstaka hópsmitum.
Reglugerðin hefur það markmið að
sem minnst röskun verði á skóla-
starfi og að starf á leikskólastigi og á
fyrsta stigi grunnskóla verði óskert.
Mismunandi grímuskyldu eftir aldri,
börn fædd 2011 og síðar þurfa ekki að
bera grímur, segir Lilja byggða á
samráði við sóttvarnalækni og heil-
brigðisráðherra, sem jafnframt taki
mið af ráðleggingum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar. „Það er mitt
hlutverk að tryggja menntun í land-
inu, en það verðum við að gera í sam-
ræmi við ýtrustu sóttvarnir.“
Reglugerðin tekur til leikskóla,
grunnskóla, tónlistarskóla, fram-
haldsskóla, framhaldsfræðslu og há-
skóla, hvort sem um ræðir opinbera
eða einkarekna skóla. Reglugerðin
tekur einnig til annarrar starfsemi,
svo sem frístundaheimila og fé-
lagsmiðstöðva, íþrótta-, æskulýðs- og
tómstundastarfs.
Ekki skulu vera fleiri en 50 leik-
skólabörn í hverju rými. Leikskóla-
börn eru undanþegin 2 metra ná-
lægðartakmörkun, en starfsfólk skal
halda 2 metra nálægðartakmörkun-
um sín á milli. Sé það ekki hægt skal
nota grímur. Skipulagt íþrótta-,
æskulýðs- og tómstundastarf barna á
leikskólaaldri er óheimilt, jafnt innan
og utan leikskóla.
50 nemendur og 25 nemendur
í sama rými
Á fyrsta skólastigi, í 1.-4. bekk, eru
nemendur undanþegnir 2 metra ná-
lægðartakmörkun og þurfa ekki að
nota grímur, alls 50 nemendur í
hverju hólfi eða sama rými. Sömu
reglur gilda um þá í frístundaheim-
ilum. Í 5.-10. bekk mega nemendur
mest vera 25 í hverju hólfi, með 2
metra reglu eða grímu ef það er ekki
hægt. Hið sama á við um starfsfólk.
Hólfaskiptingin komi í
veg fyrrir lokun skóla
Lilja segir hólfaskiptingu skólanna
ekki einfalda en hún sé vel gerleg.
„Við höfum gert þetta áður. Við höf-
um verið í þessu ástandi meira og
minna í 8 mánuði. Nú erum við að
vinna með 50 barna hólf á yngstu
skólastigunum í leikskólum og
grunnskólum fram að 5. bekk, en í 5.-
10. bekk er miðað við 25 barna hólf.
Þar má samt víkja frá nándar-
reglunni þegar börnin nota grímu og
í sameiginlegum rýmum ber að nota
grímur til þess að gæta ýtrustu sótt-
varna.“
Lilja segir þetta miðast við að komi
upp smit þurfi ekki að loka heilu skól-
unum eða senda heilu árgangana
heim, heldur aðeins viðkomandi hólfi.
„Þannig tryggjum við sóttvarnir og
menntun.“
Í grunnskólum skulu ekki vera
fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými,
en starfsmönnum verður heimilt að
fara á milli hópa.
Óskert skólastarf með takmörkunum
Ný reglugerð um sóttvarnir í skólum tekur gildi á morgun Hólfaskipting í skólum 50 barna
hólf í 1.-4. bekk 25 manna hólf í eldri bekkjum Víkja má frá 2 metra reglunni beri fólk grímur
Morgunblaðið/Eggert
Grímur Nemendur Borgarholtsskóla voru ekki mikið að kippa sér upp við það að grímuskylda væri tekin upp.