Morgunblaðið - 02.11.2020, Page 8

Morgunblaðið - 02.11.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Forsætisráðherra hefur lagtfram frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Allnokkrar umsagnir hafa borist Alþingi vegna málsins, meðal ann- ars frá Alþýðu- sambandi Íslands og Samtökum atvinnu- lífsins. Athygli vek- ur að hvor tveggja telja að tímabært sé að leggja niður Jafnréttisráð.    Þetta er ekki vegna þess að ASÍog SA vilji ekki framgang jafn- réttis eða séu andsnúin lagasetn- ingunni í heild sinni. Þau telja Jafn- réttisráð hins vegar úrelt. ASÍ segir það hafa „að miklu leyti misst hlutverk sitt sem ráðgefandi vett- vangur fyrir stjórnvöld eftir því sem aðrar stofnanir á sviði jafnrétt- ismála hafa styrkst,“ og nefnir í því sambandi Jafnréttisstofu sem starf- að hafi í tuttugu ár og í tæp tvö ár hafi að auki starfað sérstök skrif- stofa jafnréttismála í forsætisráðu- neytinu.    Jafnréttisráð var sett á laggirnarárið 1976 þegar aðstæður í jafnréttismálum voru allt aðrar en nú. Ætli ráðið geti ekki líka hafa misst hlutverk sitt af þeim ástæð- um? Síðan hefur bæst við mikil lagasetning og stofnanaumgjörð. Árlega fara yfir þrjú hundruð millj- ónir króna í málaflokkinn á fjár- lögum. Það er mikil umgjörð.    Miklu skiptir að stofnanir, stof-ur, nefndir og ráð, eða hvað það er kallað hjá hinu opinbera, séu ekki bara til af því að enginn treyst- ir sér til að leggja þau niður.    Ríkið blæs út og þegar færi gefstverður að leggja niður stofn- anir sem hafa runnið sitt skeið. Og ráðherrum ber skylda til að leita sí- fellt þessara færa. Katrín Jakobsdóttir Ráðið sem missti hlutverk sitt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ FALLEG LJÓS Í ÚRVALI Ármúla 24 • rafkaup.is Skoski leikarinn Sean Connery er látinn, níræður að aldri, en tilkynnt var um andlát hans á laugardaginn var. Connery var ein mesta kvik- myndastjarna Bretlandseyja og öðl- aðist heimsfrægð og aðdáun fyrir frammistöðu sína í hlutverki James Bond. Thomas Sean Connery fæddist 25. ágúst 1930 í verkamannahverfinu Fountainbridge í Edinborg. Ferill hans var áratugalangur og vann hann til fjölda verðlauna, þar á með- an einna Óskarsverðlauna, tvennra Bafta-verðlauna og þrennra Golden Globe-verðlauna. Connery var stoltur Skoti og studdi hann Skoska þjóðarflokkinn sem hefur barist fyrir aðskilnaði Skotlands og Bretlands. Connery var jafnframt fyrsti leikarinn til þess að fara með hinn ógleymanlega frasa „Bond, James Bond“. Alls lék hann í sex Bond-myndum en njósnarinn var hugarsmíð rithöfundarins Ians Flemings. Connery Hans verður minnst fyrir hlutverk sitt í Bond-myndunum. Sean Connery lát- inn, níræður að aldri  Túlkaði Bond á einstakan hátt Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir marga bændur uggandi um sinn hag vegna riðuveiki sem greinst hefur í firðinum. Stað- fest tilfelli eru á fjórum sauðfjárbú- um í Skagafirði, þ.e. Stóru-Ökrum 1, Syðri-Hofdölum, Grænumýri og Hofi í Hjaltadal. „Þetta er fjárhagslegur skaði og hefur áhrif á afkomu bænda. Menn velta því fyrir sér hvort þetta geti vofað yfir á fleiri bæjum eða ekki. Auðvitað er mörgum brugðið og margir eru uggandi um sinn hag,“ segir Sigfús. Á næstu dögum mega bændur vænta frekari niðurstaðna um smit á sínum bæjum, en til þess að greina smit verður að aflífa féð, skera á efsta hálslið þess og taka sýni úr mænukylfu og litla heila. Að því loknu eru sýnin send á tilraunastöð á Keldum. Liggi fyrir smit verður að skera niður allan stofninn, til þess að hindra frekari útbreiðslu. „Menn fá bætur en það er misjafnt hvernig þær bætur hafa verið. Ríkis- stjórnin virðist vera tilbúin til þess að styðja við bændur vegna þessa, þeir munu missa tekjur af þessu næstu tvö árin,“ segir Sigfús. Þá þarf að fara í viðamikla hreinsun á bæj- unum, sem getur einnig reynst kostnaðarsamt. veronika@mbl.is „Margir uggandi um sinn hag“  Sveitarstjóri Skagafjarðar segir riðu- veikina hafa mikil áhrif á afkomu bænda Morgunblaðið/Árni Sæberg Sauðfé Umfang riðusmitsins í Skagafirði er enn óljóst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.