Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020
SVIÐSLJÓS
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Starfsmenn slökkviliðs Brunavarna
Suðurnesja (BS) eru nú í óðaönn að
koma sér fyrir í nýrri slökkvistöð
sem reist var við Flugvelli í Reykja-
nesbæ. Að sögn Jóns Guðlaugssonar
slökkviliðsstjóra er aðstaðan í nýju
stöðinni mikil bylting fyrir starfs-
menn, enda hafi nýtt húsnæði verið
aðkallandi í rúm 30 ár. Húsnæðið var
í byggingu í rúm tvö ár og nú er unn-
ið að standsetningu.
„Héðan liggja vegir til allra átta
og leiðin er greið jafnt innanbæjar
sem til nágrannasveitarfélaganna.
Ég segi að þetta sé langbesta stað-
setningin í bænum, jafnt í dag sem
til framtíðar, því auðvitað vorum við
að byggja til framtíðar,“ segir Jón
Guðlaugsson slökkviliðsstjóri í sam-
tali við fréttaritara Morgunblaðsins.
Sjö staðir skoðaðir
Alls hafði ný slökkvistöð verið mát-
uð á sjö mismunandi stöðum í bænum
þegar fallist var á að byggja nýja við
Flugvelli í Reykjanesbæ. Jón segir
kostinn ekki síður hafa verið þann að
stjórnendur fengu að velja lóð undir
nýju slökkvistöðina þegar verið var
að skipuleggja svæðið.
Byggingin, sem er 2.252 fermetrar
að stærð, rúmar alla þá nauðsynlegu
aðstöðu sem slökkvilið af þessari
stærðargráðu þarf. Slökkvilið BS
þjónar sveitarfélögunum Reykja-
nesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum en
þar búa hátt í 25 þúsund manns. Þeg-
ar Jón er spurður að því í hverju
mesta byltingin sé fólgin er svarið
einfalt: „Í öllu.“
„Við erum að fara úr algjörlega
óviðunandi húsnæði, sem byggt var
árið 1967, yfir í nútímann,“ segir Jón
og bætir við að nýja húsnæðið sé fyrst
og fremst mikil bylting fyrir starfs-
menn. „Við erum með gott rými fyrir
fundi og námskeið, sem áður fóru
fram í loftlausum kjallara. Hér er
rýmra athafnasvæði sem gefur okkur
tækifæri til að hafa smærri æfingar í
húsinu, þó aðalæfingasvæði okkar sé
við gömlu sorpeyðingarstöðina við
Hafnarveg. Starfsmenn hafa eigin
æfingasal en allt slíkt þurftu þeir áður
að sækja annað, þó að starfsmönnum
sé vitaskuld frjálst að stunda líkams-
rækt annars staðar,“ segir Jón.
Svæði fyrir bílana er þrefalt stærra
en í gömlu stöðinni. Jón segir hvílda-
raðstöðu og kaffistofu mun betri og
rýmri í nýja húsinu.
„Þá munum við hafa hér tvö gufu-
böð sem er nauðsynlegt fyrir slökkvi-
liðsmenn að hafa aðgang að eftir
reykköfun, því aðeins útgufun með
svita hreinsar óhreinindin sem setjast
á húðina við köfun í reyk. Svo má
nefna að við fáum stóra hópa af leik-
skóla- og grunnskólabörnum reglu-
lega til okkar og í gömlu stöðinni voru
starfsmenn kannski að koma úr mjög
erfiðu útkalli meðan heimsóknin stóð
yfir. Þetta tvennt átti alls ekki saman,
þar sem aðstaða til þrifa var léleg, en
nú erum við með sérstakt rými til
þess.“
Vakt allan sólarhringinn
Með tilkomu nýju slökkvistöðv-
arinnar verða bílar ekki lengur gerð-
ir út frá slökkvistöðinni í Sandgerði
en húsnæðið verður nýtt undir
fræðslu og þjálfun sjúkraflutninga-
manna í umboði Sjúkraflutnings-
skólans. Slökkvilið Sandgerðis sam-
einaðist slökkviliði BS þegar stofnað
var byggðasamlag um rekstur
slökkviliðanna að undirlagi Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum
árið 2015. Við breytingar á sveit-
arstjórnarlögum árið 2010 var gert
ráð fyrir að samstarfsverkefni sveit-
arfélaga yrðu í formi byggða-
samlaga. Alls 31 starfsmaður er í
fullu starfi í slökkviliði BS en 20 í
hlutastarfi. Að jafnaði eru sex starfs-
menn á vakt í einu og vakt er allan
sólarhringinn.
Færa slökkvistöð til nútímans
Slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja í nýtt húsnæði við Flugvelli Leysir húsnæðisvanda sem
slökkviliðið hefur glímt við í rúm 30 ár Tvö gufuböð til að hreinsa húðina eftir reykköfun
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ný stöð Nýja slökkvistöðin í ljósaskiptum á miðvikudag. Aðstaðan í nýju stöðinni , sem hefur verið í byggingu í 2 ár, er mikil bylting fyrir starfsmenn.
Útisvæði Jón Gunnlaugsson slökkviliðsstjóri við útisvæðið sem starfsmenn
eru að setja upp sjálfir í frítíma sínum; sánatunna og heitur pottur.
Þægindi Slökkviliðsmennirnir Sturla Ólafsson, Björn Ingvar Björnsson,
Bjarni Rúnar Rafnsson og Yngvi Þór Hákonarson í æfingasalnum.
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
Brotist var inn í ný húsakynni út-
varpsstöðvarinnar Útvarp 101 í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags
og voru öll tæki til útvarpssend-
inga tekin ófrjálsri hendi.
Forsvarsmenn útvarpsstöðv-
arinnar biðla til fólks á Facebo-
ok-síðu sinni að hafa samband við
lögreglu búi það yfir upplýs-
ingum um málið.
„Maður áttar sig bara ekki al-
veg á þessu. Þetta eru alls konar
græjur: upptökubúnaður, bún-
aður til útvarpssendinga, hljóð-
nemar, tölvur og alls kyns annað.
Eitt það versta er líka að tölvan
sem keyrir stöðina sjálfa er horf-
in, á þeirri tölvu var öll tónlistin
sem við spilum, öll leyfi og annað.
Það er því gríðarleg vinna far-
in í vaskinn ef þessi búnaður
finnst ekki. Það er búið að stela
heilum fjölmiðli,“ var haft eftir
Loga Pedro Stefánssyni, útvarps-
stjóra Útvarps 101, á mbl.is í
gær.
Öllu stolið úr nýju
húsnæði útvarps-
stöðvar í Reykjavík