Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 12

Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með ára- langa reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Þjónustuaðilar IB Selfossi Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Undanfarin ár hafa indversk stjórnvöld lagt ríka áherslu á að styrkja efnahagsleg tengsl lands- ins við Ísland, hinar Norðurlanda- þjóðirnar og Eystrasaltsríkin. T. Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á Íslandi, segir að þetta starf hafi þegar borið mikinn ár- angur og m.a. ný viðskiptasam- bönd orðið til á milli íslenskra og indverskra fyrirtækja. Hann nefnir að í pípunum sé samstarfssamn- ingur um fram- leiðslu á trefja- plastbátum á Indlandi og áhugaverð jarð- varmavirkjana- verkefni í fjalla- héruðum Indlands. „Fólk í efstu stigum ind- verskrar stjórnsýslu hefur heim- sótt Norðurlandaþjóðirnar og Eystrasaltsríkin til að efla tengsl- in, og nú síðast að forsætisráð- herra Indlands fundaði með leið- togum Noðurlandanna árið 2018 og forseti Indlands heimsótti Ísland 2019. Þrátt fyrir að miðað hafi í rétta átt þá er það mat indverskra stjórnvalda að þessi heimshluti eigi ennþá mikið inni þegar kemur að því að stunda viðskipti við Indland. Er sérstakur áhugi á því á Ind- landi að nýta það mikla forskot sem Norðurlöndin og Eystrasalts- ríkin hafa á sviði nýsköpunar og tækni sem grundvöll fyrir blóm- legu samstarfi,“ segir Changsan. Á fimmtudag efna Samtök iðn- aðarins á Indlandi og utanríkis- ráðuneyti Indlands til rafrænnar ráðstefnu, India-Nordic Baltic Conclave. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpun- arráðherra, mun ávarpa gesti og sex íslensk fyrirtæki flytja kynn- ingar á fundinum, en á Íslandi hafa sendiráð Indlands, Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins og Félag at- vinnurekenda unnið saman að und- irbúningi viðburðarins. Dagskrá ráðstefnunnar er viðamikil og spannar allt frá endurnýjanlegri orku og gervigreind yfir í aðfanga- keðjur og bláa hagkerfið. Áhuga- samir geta skráð sig í gegnum hlekk sem finna má á vefsíðu Ís- landsstofu. Endurmóta sjávarútveginn Að sögn Changsan kunna m.a. að felast áhugaverð tækifæri í því fyrir íslenskan sjávarútveg að ind- versk stjórnvöld hafa að undan- förnu unnið að því að taka fisk- veiðistjórnunarkerfi sitt í gegn. „Um mitt síðasta ár voru sjávar- útvegsmál færð út úr landbúnaðar- ráðuneytinu og yfir í sjálfstætt ráðuneyti og búið að ráðstafa jafn- virði u.þ.b. þriggja milljarða bandaríkjadala í fimm ára umbóta- áætlun fyrir indverskan sjávarút- veg,“ útskýrir sendiherrann. „Þar er ætlunin að bæta allt frá veiðum og vinnslu yfir í innviði og gæti verið eftir miklu að slægjast ef ind- versk og íslensk fyrirtæki í sjávar- útvegi taka höndum saman.“ Telur Changsan að í öllum kim- um íslensks atvinnulífs megi finna fyrirtæki sem eigi vannýtt tækifæri á Indlandi. Hann bendir á að ind- verska hagkerfið vaxi hratt og stjórnvöld hafi gripið til ýmissa að- gerða til að einfalda atvinnrekstur þar í landi. „Indverski markaður- inn er risavaxinn, þar er lýðræð- islegt stjórnarfar, sjálfstæðir dóm- stólar og margt fólk með góða menntun.“ Merki um öflugan viðsnúning Er það til marks um æ sterkari stöðu Indlands að þrátt fyrir þau skakkaföll sem kórónuveirufarald- urinn hefur valdið í alþjóðahag- kerfinu þá var erlend fjárfesting frá apríl til og með ágúst 13% meiri en árið á undan og sérstakt ánægjuefni fyrir stjórnvöld að miklu af þessari fjárfestingu hefur verið varið til að efla iðnfram- leiðslu. Greinendur hafa bent á að hér kunni Indland að vera að njóta góðs af vaxandi spennu á milli Kína og Bandaríkjanna en Changsan leggur ríka áherslu á að það sé stefna Indlands að hagnast ekki á óförum annarra heldur vaxa í krafti eigin styrkleika. Þá virðist Indlandi ætla að tak- ast að komast nokkuð vel út úr kórónuveirufaraldrinum. Changsan segir stjórnvöldum hafa tekist ágætlega að leiða almenning í gegnum skakkaföll undafarinna mánaða með fræðslu og almennum tilmælum frekar en með ströngum boðum og bönnum. Benda hagtölur nú til þess að hjól atvinnulífsins séu farin að snúast með nokkuð eðlilegum hætti. „Víðast hvar á Indlandi gengur lífið nokkurn veg- inn sinn vanagang. Fyrirtækin í landinu hafi líka brugðist hratt við og stóraukið framleiðslu andlits- gríma og lyfja sem nýtt hafa verið um allan heim til að hjálpa fólki sem veikst hefur af völdum veir- unnar,“ segir hann og bætir við að árið hafi verið mjög gott fyrir ind- verskan landbúnað sem leiði til aukins kaupmáttar hjá fólki í dreif- býli. „Sala á bæði ökutækjum og dráttarvélum er að nálgast eða er þegar orðin meiri en á sama tíma í fyrra sem er ein vísbending til við- bótar um ágætan eftirspurnarvöxt innanlands. Um leið sjáum við 15% aukningu í fragtflutningum með lestum og 4% aukningu í raforku- notkun þegar september á þessu ári er borinn saman við sama mán- uð í fyrra, sem er til marks um hve viðsnúningurinn í atvinnulífinu er víðtækur.“ Tæknilegar hindranir til ama Spurður hvað Ísland og önnur vestræn ríki gætu gert til að hjálpa Indlandi og öðrum þróunarríkjum til að fást við efnahagsleg eftirköst veirufaraldursins segir Changsan að hvað brýnast sé að Vesturlönd opni hagkerfi sín meira. „Það á við um bæði Indland og önnur lönd að þó gerðir hafi verið fríverslunar- samningar reka kaupendur og selj- endur sig á ýmsar tæknilegar hindranir sem koma í veg fyrir eðlileg viðskipti. Útkoman er við- skiptaumhverfi þar sem gagnsæi skortir og framleiðendur sitja ekki allir við sama borð,“ segir hann. „Ætti líka að hafa í huga að fátæk- ari ríki heims skortir stundum þá sérfræðikunnáttu og reynslu sem þarf til að manna stjórnsýsluna sem skyldi og geta fyrir vikið stað- ið verr að vígi þegar þau eiga í verslunarviðræðum við vestrænar þjóðir.“ Eiga enn mikið inni á Indlandi AFP Bið Fiskveiðimenn hvílast í bátum sínum á Ganges. Íslenskur sjávarútvegur ætti að athuga hvaða möguleikar bjóð- ast til að efna til samstarfs við indversk fyrirtæki nú þegar verið er aðendurskipuleggja fiskveiðar þar í landi.  Efnahagslíf Indlands braggast hratt  Tækifæri fólgin í þeim miklu umbótum sem eru að eiga sér stað í indverskum sjávarútvegi  Tæknilegar hindranir draga úr gagnsemi fríverslunarsamninga T. Armstrong Changsan ● Netverslunar- risinn Amazon hef- ur ákveðið að aug- lýsa ekki útsölur í kringum afsláttar- daginn svarta föstudag (e. Black Friday) í Frakklandi af tillitssemi við þær verslanir þar í landi sem hefur þurft að loka tímabundið vegna hertra smitvarnaaðgerða. Frönsk stjórnvöld gerðu athugasemd við nýhafna auglýsingaherferð Amazon og sögðu hana ekki sanngjarna gagnvart seljendum sem hefðu farið illa út úr kórónuveirufaraldr- inum, að því er Reuters greinir frá. Á föstudag var í annað sinn gripið til strangra smitvarnaaðgerða í Frakklandi og fela þær m.a. í sér að verslunum sem ekki selja nauðsynjavöru verður lokað. Munu um 200.000 frönsk fyrirtæki þurfa að stöðva rekstur sinn af þeim sökum. ai@mbl.is Segja ósanngjarnt að Amazon auglýsi tilboð Annir Útsölur Ama- zon eru að bresta á. STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.