Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 ✝ Karl ÓskarAgnarsson fæddist í Reykjavík 19. júní 1952. Hann lést á Landspít- alanum Fossvogi 22. október 2020. Foreldrar hans voru Agnar Líndal Hannesson, f. 16. júlí 1931, d. 10. jan- úar 1983 og Guð- ríður Lillý Karls- dóttir, f. 3. sept 1930, d. 18. maí 1988. Systkini Karls eru: Gísli Líndal, f. 13. júlí 1954, Sig- urður, f. 7. ágúst 1955, Sig- urrós, f. 18. des. 1956, gift Jóni Kristbergssyni, f. 13. sept. 1951. Samfeðra er Daníel Agnarsson, f. 11. júlí 1960. Sammæðra er Ragnar Ragnarsson, f. 16. júní 1962. Sambýliskona hans er Sig- rún Árnadóttir, f. 30. maí 1950. Föðuramma Karls var Sigurrós Jó- hannsdóttir, f. 23. ágúst 1895, d. 18 ágúst 1986. Maður hennar var Hannes Gíslason, f. 17. júní 1890, d. 17. des. 1963. Móðuramma Karls var Jóna Gíslína Sigurð- ardóttir, f. 2. sept. 1910, d. 6. apríl 1998. Móðurafi Karls hét Karl Óskar Sigmundsson, f. 25. mars 1910, d. 4. ágúst 1937. Karl ólst upp í Reykjavík hjá föðurömmu sinni og alsystkinum sínum. Karl var mikill KR-ingur. Hann starfaði fyrir KR í meira en 30 ár. Útför Karls verður streymt frá Seljakirkju í dag, 2. nóv- ember 2020, kl. 13 á seljakirkja.is. Minningin um þig er ávallt yndisleg elsku bróðir. Þú komst alltaf í hvaða veðri sem var þegar ég lá á fæðingar- deildinni í þrjá mánuði, það var ómetanlegt að fá þig. Mikið varstu glaður þegar Beggi frændi þinn kom loksins í heim- inn, þú hljópst frá sjúkrahús- inu alla leið heim í Bjarnaborg til að tilkynna fæðingu hans. Það var alltaf skemmtilegt og mikið ævintýri að vera með þér og Adda í veiðitúrum. Ég gleymi ekki þegar Addi festist uppi í tré með veiðigirnið. Þú komst hlaupandi með fastan öngulinn í fingrinum á þér sem var allur í blóði. Eina sem þú hugsaðir um var að bjarga bróður þínum úr þessari klípu. Þegar við keyptum sumarland- ið okkar þá komst þú með grasfræ og sáðir fræjunum og sagðir að þetta væri KR-túnið hans enda sprettur grasið endalaust. Addi slær KR-gras- ið átta sinnum á sumri hverju. Elsku Kalli minn, takk fyrir hvað þú hefur reynst börnun- um mínum yndislegur frændi. Ég mun aldrei gleyma þér og ég mun varðveita allar góðu minningarnar um þig í hjarta mér. Hvíldu í Guðs friði, við mun- um passa upp á Adda bróður okkar. Saknaðarkveðjur, Sigurrós Agnarsdóttir (Sigga systir). Elsku Kalli bróðir, takk fyrir öll árin okkar saman. Það var gaman þegar við fórum í gamla daga í veiðitúrana. Gaman þeg- ar við fórum í sumarbústaði og spiluðum mínígolf. Við fórum alltaf saman á KR-völlinn að styðja okkar lið. Við horfðum mikið á Liverpool-leiki saman og var oft heitt í hamsi. Það var oft spenna í loftinu þegar gaml- árskvöld kom, við keyptum mikið af KR-flugeldum, þá var mikið fjör. Kveð þig með miklum sökn- uði elsku bróðir. Minning þín lifir í hjarta mínu. Sjáumst síð- ar elsku bróðir. Kveðja, Sigurður Agnarsson (Addi). Elskulegi mágur minn. Ég vil minnast þín í nokkrum orð- um. Ég man þegar við fórum til Stöðvarfjarðar, þá sagðir þú allt í einu: „Jón, þú getur alls ekki borðað þessar kótilettur.“ Af hverju ekki Kalli? „Af því þær eru svartar og brenndar.“ Svo leið smá stund, þá heyrðist aftur í þér: „Nú veit ég af hverju þú ert svona lítill.“ Af hverju? „Það er viti hérna sem er svo lítill að þú hlýtur að hafa fæðst inni í honum.“ Og í þeim töluðum orðum þá sprungum við úr hlátri í bílnum. Takk fyrir allar góðu stund- irnar með mér og fjölskyld- unni. Kveðja, þinn mágur, Jón Kristbergsson (Nonni). Þegar ég fæddist fyrir 46 ár- um varstu sá fyrsti sem sást mig og auglýstir það um alla Bjarnaborg að þú hefðir verið að eignast svartan frænda! Ástæðan var sú að ég fæddist með svo dökkt hár. Þú vildir vera fyrstur með fréttirnar. Þegar ég var fjögurra ára ólst ég upp við að hlusta á BBC-íþróttafréttir með þér á laugardögum þegar enski bolt- inn var í gangi og horfðum við á leikina í svarthvítu sjónvarpi en þá var Liverpool oft á dag- skrá. Þú gerðir mig að „pool- ara“ en ekki að KR-ingi þó svo þú hafir reynt mikið. Takk fyrir allar stundirnar sem þú kenndir mér að spila pílu og kynntir mig fyrir pílu- vinum KR. Ég mun halda áfram að spila pílu og halda minningu þinni á lofti, innan vallar sem utan. Elsku Kalli minn, þú lifir ávallt í hjarta mínu og mun ég aldrei gleyma þér. Guð blessi minningu þína. Þinn frændi, Kristbergur Jónsson (Beggi). Í dag kveð ég Kalla frænda. Við höfum brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Kalli hafði gam- an af því að fara í veiði þegar tími gafst til. Aflinn var sjaldn- ast mikill í þessum ferðum, enda voru þessar ferðir farnar til gamans. Hugur hans var meira á íþróttasviðinu, enda var Kalli sannur stuðningsmað- ur KR. Hann vann fyrir félagið í nokkra áratugi. Mest hafði hann gaman af því að sjá um vallarklukkuna á knattspyrnu- leikjum, bæði kvenna og karla, á sumrin. Svo lét hann sig ekki vanta á körfuboltaleikina á vet- urna. Hann hjálpaði til við upp- setningu og frágang auglýs- ingaskiltanna. Mest fannst honum þó spennandi að vera í dyravörslu og taka við að- göngumiðum við innganginn. Kalli var líka félagi í Píluvina- félagi KR. Þar náði hann sér í nokkra verðlaunapeninga. Síð- an má ekki gleyma áhuga hans á KR-getraunum. Hann var mættur eldsnemma á þriðju- dögum til Íslenskrar getspár til að skoða getraunaseðilinn þá vikuna. Hann undirbjó sig vel fyrir laugardagsmorgnana. Við Kalli náðum saman að landa bikar í hópakeppninni. Tvisvar fórum við saman til Englands að horfa á leik. Önn- ur ferðin var á Old Trafford í Manchester. Þar sátum við lengst uppi í rjáfri og náðum varla að njóta leiksins sökum lofthræðslu. En við skemmtum okkur vel. Hin ferðin var til London á Arsenal-leik. Kalli var mikill Liverpool-maður. Það var alltaf á döfinni að fara á Anfield. Oft var honum strítt á titlaþurrð Liverpool og KR í 30 ár. Hans viðkvæði var: „Þetta gengur betur á næstu leiktíð.“ Þú náðir að upplifa þetta tvennt, elsku Kalli. Það verður skrýtið að mæta á KR-völlinn, því alltaf tókstu á móti mér með liðsuppstill- inguna. Það liggur við að þú hafir fengið þessar upplýsingar á undan þjálfarateyminu. Ég sakna þín sárt, elsku Kalli minn. Minningin um þig lifir í hjarta mínu. Aðalsteinn Líndal Gíslason. Elsku Kalli minn, fyrstu kynni mín af þér voru árið 2005 þegar ég krækti mér í Steina frænda þinn. Það er mikið búið að bralla á þessum 15 árum. Þú varst mjög gamansamur og einhvern tím- ann þegar ég var að keyra með þér Vesturlandsveginn voru ferðamenn að húkka far og þá sagðir þú: „Þetta eru nú puttal- ingar og pokadýr.“ Mér fannst þetta svo skemmtilegt hvernig þú sagðir þetta. Ég var svo heppin að fara eina ferð með þér til London á leik í enska boltanum, reyndar ekki með okkar liði. Við fórum á Arsenal-leik og það var mjög gaman og þú skemmtir þér mjög vel í þessari ferð. Í þess- ari ferð fórum við út að borða á kínverskan veitingastað og þú vildir ólmur fá fisk og franskar. Síðan þegar diskurinn kom á borðið áttir þú ekki til orð yfir þessum fiski með haus og sporð og ekkert nema beinahrúga! Það sem við gátum hlegið yfir þessum fiski. Það var alltaf gaman að vera með þér á KR-vellinum, þú lifð- ir fyrir félagið þitt, enda kall- aður Kalli meistari. Þig dreymdi mikið um að heim- sækja Anfield-völlinn, heima- völl Liverpool, og talaðir þú um það nú í sumar hversu mikið þig langaði að komast út með okkur til að horfa á liðið okkar. Það eru margar góðar stund- ir sem við höfum átt saman í gegnum tíðina. Ég mun halda áfram að vera Adda bróður þín- um innan handar. Elsku Kalli minn, hvíldu í Guðs friði og takk fyrir allar þær yndislegu stundir sem við höfum átt saman. Ég mun varð- veita minningu þína í hjarta mínu. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Þín Margrét Reynisdóttir. Ég kynntist þér Kalli minn fyrir 14 árum þegar ég byrjaði með honum Begga frænda þín- um. Ég hlakkaði mikið til jólanna til þess að eiga stundir með þér og Adda bróður þín- um. Það var mikið fjör þegar við opnuðum allt pakkaflóðið undir trénu. Það var mikið fjör hjá okkur á gamlárskvöld, þá lifnaði yfir okkur sprengjuóða fólkinu. Ég er svo heppin að hafa kynnst þér Kalli minn og takk fyrir allar góðu stundirn- ar. Ég mun alltaf geyma þessar góðu minningar í hjarta mér. Kveðja, þín Anna Sveinlaugsdóttir (Anna Kittý). Nú er vinur okkar Kalli fall- inn frá og er erfitt að ímynda sér að fá aldrei faðmlag frá honum aftur. Við kynntumst Kalla við störf okkar sem hús- verðir í KR-heimilinu þar sem við allar störfuðum um árabil. Hann tók alltaf á móti okkur með opinn faðminn og með klappi á bakið, sagði okkur frá því hvað á daga hans hafði drif- ið og við honum sömuleiðis. Hann var alltaf glaður að sjá okkur og mætti segja að hann hafi verið okkar helsti stuðn- ingsmaður í vinnu okkar í KR. Eftir að við hættum að vinna sem húsverðir, og urðum hefð- bundnir KR-ingar, mættum við á fótbolta- og körfuboltaleiki og þar beið okkar Kalli alltaf með útbreiddan faðminn að venju og ef það vantaði eina okkar þá spurði hann alltaf um hana. Það verður skrýtið að koma í KR-heimilið og að þar bíði okkur enginn Kalli, en við erum fullvissar um að hann fylgist með okkur í fjarska og heldur áfram að hvetja okkur til dáða í lífinu. Við þökkum þér, elsku Kalli okkar, fyrir samfylgdina og vonum að þú sért á góðum stað þar sem KR vinnur alltaf! Aðstandendum vottum við okkar dýpstu sam- úð, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur. Þínar vinkonur, Hafrún, Sandra og Sigga. Kveðja frá Knatt- spyrnufélagi Reykjavík- ur Kalli vinur okkar og félagi er fallinn frá. Hann var einn af dyggustu stuðningsmönnum og sjálfboðaliðum KR. Í mörg ár sá hann um vallarklukkuna í knattspyrnuleikjum þegar strákarnir og stelpurnar voru að spila. Kalli var alltaf mættur löngu fyrir leiki, tók á móti öll- um fagnandi sem voru að mæta á KR-leiki, gjarnan með liðs- uppstillinguna tilbúna á blaði til að sýna manni. Kalli var oft- ar en ekki mættur í dyragætt- ina til að taka við miðum þegar karfan var að spila áamt því að hjálpa við undirbúning og frá- gang í kringum leiki KR. Hann var dyggur stuðningsmaður Píluvina KR og lét sig ekki vanta á viðburði Pílunnar. Hann tók líka þátt í getrauna- starfi KR í gegnum tíðina. Árið 2012 þegar Kalli varð sextugur fékk hann sérstaka viðurkenn- ingu fyrir sjálfboðaliðastarf sitt fyrir gamla góða KR. Við KR-ingar minnumst Kalla með miklu þakklæti fyrir allt sem hann gerði fyrir gamla góða KR og þökkum honum samfylgdina í gegnum tíðina. KR-ingar senda ættingjum Kalla innilegar samúðarkveðj- ur. Gylfi Dalmann Aðal- steinsson, formaður KR. Karl Óskar Agnarsson yfirmaður vinnuflokka Vega- gerðarinnar. Vel verðskuldað eftir öll árin í harkinu sem fylgdi brúarvinnunni. Vinna fjarri fjölskyldu virka daga í öll- um veðrum og vindum tekur á, og því var kærkomið að vera kominn heim í hús. Því miður fékk hann ekki að njóta eins lengi og hann átti svo sannar- lega skilið því krabbameinið bankaði upp á stuttu seinna. Elsku fjölskylda, ykkar miss- ir er mikill og ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Minning um góðan dreng og frábæran félaga lifir með okkur öllum sem vorum svo heppin að eiga vin í Halli. Hans verður sárt saknað. Ingunn Loftsdóttir. Góður samstarfsmaður, Sig- urður Hallur Sigurðsson, er fallinn frá í blóma lífsins. Það má segja að Sigurður Hallur eða Hallur eins og hann var kallaður hafi verið fæddur inn í brúargerð og Vegagerðina. Afi hans, Guðmundur Gísla- son, rak brúarvinnuflokk Vega- gerðarinnar á Hvammstanga frá árinu 1945 og þar til Guð- mundur bróðir Halls tók við flokknum árið 1978. Hallur hóf störf undir stjórn bróður síns árið eftir fermingu, 1981. Leiðin lá síðan í húsasmíði í Iðnskól- anum en samningstíminn var tekinn hjá brúarvinnuflokknum. Tvítugur að aldri útskrifaðist Hallur með sveinspróf í húsa- smíði. Hallur starfaði sem flokks- stjóri og verkstjóri hjá brúar- vinnuflokknum á Hvammstanga í margvíslegum brúarverkefn- um um allt land þar til vista- skipti urðu hjá Guðmundi bróð- ur hans en þá tók hann við stjórn flokksins. Haustið 2019 tók Hallur svo við sameinuðum vinnuflokkum Vegagerðarinnar nokkrum mánuðum áður en ill- víg veikindi gerðu vart við sig. Hallur var einstakur sam- starfsmaður og sterkur stjórn- andi. Hann bauð af sér góðan þokka, var rólegur og yfirveg- aður en jafnframt ákveðinn, skoðanafastur og sérlega vinnu- samur. Það var ekki í kot vísað að leita til hans með hin ýmsu úrlausnarefni. Samstarfsmenn hans treystu þekkingu og út- sjónarsemi hans við lausn oft flókinna mála. Þessir eiginleik- ar Halls komu oft berlega í ljós enda getur ýmislegt óvænt komið upp á við byggingu og þá ekki síður viðhald brúa á ýms- um aldri. Hallur var fremstur meðal jafningja í umfangsmiklum verkefnum þegar sýna þurfti snör handtök í kjölfar þess að náttúruhamfarir stórskemmdu eða tóku af brýr og lokuðu þannig þjóðveginum. Þetta á við um verkefni á við Gígjukvísl 1996, Múlakvísl 2011 og Steina- vötn 2017. Í þessum verkefnum var ómetanlegt að hafa yfirveg- aðan og reynslumikinn mann eins Hall sem gekk að þessum bráðu verkum fumlaust og ákveðið. Enda var það svo að ekki er á nokkurn mann hallað þegar sagt er að fáir hafi staðið honum á sporði í þekkingu á brúarsmíði. Við fráfall Halls er mikið skarð höggvið í raðir okkar starfsmanna hjá Vegagerðinni og óhætt að segja að ekkert okkar skilur tilgang æðri mátt- arvalda þegar við horfumst í augu við orðinn hlut. Við minn- umst hans með þakklæti og hlýju fyrir góð og gefandi sam- skipti á löngum starfsferli. Konu hans Stellu Ingibjörgu Steingrímsdóttur, börnunum Evu Björgu og Sigurði Erni, móður hans Ásu Guðmunds- dóttur og fjölskyldunni allri sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsmanna Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og tengdamóðir, AÐALBJÖRG VAGNSDÓTTIR frá Minni-Ökrum, Blönduhlíð, lést í faðmi sinna nánustu síðastliðinn miðvikudag, 28. október, eftir hetjulega baráttu við krabbamein á Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki. Útförin fer fram 12. nóvember klukkan 14 í Sauðárkrókskirkju. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en streymt verður frá athöfn sem verður auglýst síðar. Stefán Kristján Alexandersson Jóhanna Harpa Svansdóttir Jón Símon Fredericksson Stefán Ingi Svansson Eva Dögg Pétursdóttir Fjóla Sigríður Stefánsdóttir Heiðar Logi Sigtryggsson Ingi Björgvin Kristjánsson Brynhildur Jóhannsdóttir Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir, Kári Marísson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, STELLA MAGNÚSDÓTTIR Ferjubakka 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en streymt verður frá athöfninni á https://youtu.be/vE8jGqR_9wA Svafar Ragnarsson Svava Margrét Blöndal Pia Kousgaard Gunnar Már Ragnarsson Hrafnhildur H.K. Friðriksdóttir Stefán Ragnarsson Árný Lára Karvelsdóttir og barnabörn Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts elskulegs sambýlismanns míns, föður og sonar, HUGO FILIPE VIANA SANTOS, Eiðum. Útförin hefur farið fram að viðstöddum nánustu aðstandendum. þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning barna hans 0308-26-1687, kt. 2012492449. Jóna Bjarney Hreinsdóttir Kamilla Rós Davíðsdóttir Davíð Páll Svavarsson Hreinn Elí Davíðsson Jose Filip Hugosson Júlíana María Hugosdóttir Daníel Filip Hugosson Madalena Viana Santos

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.