Morgunblaðið - 02.11.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 02.11.2020, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Haustið 1916 ræður Mundína sig til vinnumennsku á Ytri-Á. Þá eru þar í heimili Björn F. Baldvinsson og Kristín Bjarnadóttir, börn þeirra Anton, Sigurbjörn Finnur, Sigfríður og Anna og tökudrengurinn Óli Jón Magnússson. Ekki þarf að orðlengja það að fljótlega takast ástir með Mundínu og Finni og tæpu ári síðar, 24. júní 1917, eru þau gefin saman í hjónaband. Svaramenn eru feður þeirra, Þor- lákur og Björn. Á brúðkaupsdaginn er Mundína, sem er átján ára göm- ul, komin sjö mánuði á leið af fyrsta barninu, Birnu, sem fæðist 18. ágúst. Finnur er tuttugu og eins árs. Mundína fæðir börnin eitt af öðru og árið 1925 eru þau orðin sex. Elstu börnin fæðast í gamla torf- bænum á Ytri-Á og eftir því sem næst verður komist koma sextán börn Mundínu og Finns í heiminn eftir að flutt er í Ytri-Ár húsið árið 1922. Aldrei líður lengri tími en tvö ár á milli barnsfæðinga. Tuttugasta barnið fæðist árið 1945, fimm árum áður en hafist er handa við að byggja við íbúðarhúsið á Ytri-Á. Að eignast tuttugu börn á tuttugu og átta árum er sérstakur kapítuli. Tuttugu fæðingar, engir tvíburar. Almennt var Mundína heilsuhraust á meðgöngunni og hún fæddi börnin án teljandi vandkvæða. Einu sinni fór að blæða hjá Mundínu. Enginn læknir var til staðar til þess að bregðast við en Finnur greip til þess ráðs að taka stórt hvítt lak, bleyta það með ísköldu vatni og breiða yfir konu sína. Þetta ráð dugði og blæðingin stöðvaðist. Öll fæddust börnin heima á Ytri-Á og var læknir aðeins við- staddur þegar Mundína fæddi yngsta barnið, Óskar Þráin, árið 1945. Hann var í sitjandi stöðu og var talið að brugðið gæti til beggja vona. Af þeim sökum var læknir kallaður til.    Í mörg horn er að líta á stóru heimili og eins og nærri má geta þurftu allir að leggjast á árar við barnauppeldið og heimilisstörfin þegar börnin fæddust hvert á fætur öðru. Finnur gerði eldri börnunum það ljóst að lykillinn að því að koma upp þessum stóra systkinahópi væri að allir tækju höndum saman og eldri systkinin hjálpuðu foreldr- unum við uppeldi yngri systkin- anna. Þröngt máttu sáttir sitja og það skapaðist samkennd og sam- staða í þrengslunum, kröfurnar til hins daglega lífs voru lágstemmdar. Einhvern veginn gerðist það ósjálfrátt að til urðu systkinapör. Þannig tók Kristrún, næstelsta dóttirin, Evu að sér en á þeim er fimmtán ára aldursmunur. Ung að árum flutti Kristrún vestur í Fljót og þar var Eva hjá henni um tíma. Það sama má segja um Stefaníu, sem fæddist árið 1930. Henni var falið það verkefni að taka að sér Fjólu Báru, yngri systur sína, sem er níu árum yngri: Þegar ég var tíu ára fékk ég það hlutverk að sjá um Báru systur mína. Ástæðan var sú að í janúar 1941 fæddist átjánda barnið og mamma gat ekki líka hugsað um Báru, sem þá var rúmlega árs- gömul. Hún skyldi sofa hjá mér og ég átti að sinna henni á nóttunni, passa að hún væri aldrei blaut og aldrei svöng. Verkefni mitt var að skipta á henni á nóttunni, fara með hana fram og gefa henni pela. Fyrst var ég með Báru inni hjá pabba og mömmu en var síðan í herbergi með Kristínu ömmu. Ég man ekki eftir öðru en mér hafi fundist þetta vera sjálfsagður hlutur og þessi nánu tengsl við Báru gerðu það að verk- um að mér hefur alltaf fundist ég eiga hana að hluta. Það segir sig sjálft að það var Mundínu ærið verkefni að annast uppeldi alls þessa stóra barnahóps. Enginn var barnavagninn á þessum tíma og barnarúm kom ekki í Ytri-Á fyrr en fjórtánda barnið, Jón Albert, fæddist árið 1935. Rúmið smíðaði Jón Gunnlaugur Sigurjóns- son, eiginmaður Birnu, elstu dóttur- innar frá Ytri-Á. Áður en barna- rúmið kom til sögunnar lagði Mundína hvítvoðungana stundum frá sér í trékassa merktum Gula bandinu, smjörlíki sem Smjörlíkis- gerð KEA á Akureyri framleiddi, og fyrir kom að hún útbjó fleti fyrir börnin í kommúðuskúffu.    Sunnudaginn 20. apríl 1980 var sýnt viðtal Sigrúnar Stefánsdóttur við Mundínu og Finn í þættinum Þjóðlífi í Ríkissjónvarpinu. Þar spyr Sigrún: „Einhvern tímann heyrði ég eftir þér haft að þú hefðir aldrei haft neitt gaman af börnum, er það rétt?“ Mundína svarar: „Nei, það er alveg satt, ég hafði það ekki.“ Í við- talinu berst í tal að Guðrún systir Mundínu hafi átt tvö börn og Sigríð- ur systir hennar eitt. Í framhaldi af því er Mundína spurð hvort systur hennar hafi aldrei verið hneyksl- aðar á því að hún ætti tuttugu börn. „Auðvitað var sjálfsagt að fólk sé hneykslað á því, ég hef kannski aldrei ætlað að eiga svona mörg. Þetta er sjálfskaparvíti manns sjálfs að eiga svona mörg,“ svaraði Mund- ína þá. Í viðtali við Finn og Mundínu í Degi á Akureyri árið 1951 kemur einnig fram að hún hafi aldrei verið sérlega gefin fyrir börn: Enginn ókunnugur mundi geta sér þess til, að Mundína Freydís væri 20 barna móðir, svo ungleg er hún. Hún er fríð kona og frjáls- mannleg í framkomu og tali. Hend- ur hennar eru fíngerðar eins og á ungri stúlku. Hina ungu húsfreyju á Ytri-Á grunaði ekki, þegar hún lagði fyrsta hvítvoðunginn við brjóst sér fyrir 34 árum, að á næstu 28 ár- um mundi hún fæða 19 börn til við- bótar. – Nei, mér flaug það ekki í hug, sagði hún, ég var nefnilega aldrei neitt sérlega gefin fyrir börn. Í því er óneitanlega þversögn að kona sem ól tuttugu börn hafi aldrei verið sérlega gefin fyrir börn. Ekki er vitað með vissu hvað Mundína átti nákvæmlega við með þessum orðum og afkomendur hennar hafa átt erfitt með að ráða í þau. Þeir eru sammála um að Mundína hafi bæði verið sérlega hlý og umhyggjusöm móðir og amma og hún hafi fjarri því sýnt að hún hafi ekki haft gam- an af börnum. Í framangreindu sjónvarpsviðtali sagði Mundína; „ ... ég hafði það ekki“ þegar hún var spurð hvort það ætti við rök að styðjast að hún hafi ekki haft gam- an af börnum. Var hún e.t.v. að vísa til þess að hún hafi ekki verið gefin fyrir börn áður en hún sjálf fór að eiga börn? Þessari spurningu verð- ur væntanlega aldrei svarað.    Finnur á Ytri-Á var ríflega meðalmaður á hæð, þrekmikill og hafði skarpa andlitsdrætti. Skóla- gangan var fábreytt, eins og almennt var á þessum tíma. Hann ólst upp við mikla vinnu frá blautu barnsbeini og gerði ríkar kröfur til sjálfs sín og annarra. Við börn sín sagði hann gjarnan: „Vinnan drepur engan.“ Hann ávítaði þau ekki en ætlaðist til að þau gegndu og gerðu eins og fyrir var lagt. Finnur var skapríkur og hafði skoðanir á mönnum og málefnum og lét þær óspart í ljós ef honum þótti ástæða til. Þegar honum var mikið niðri fyrir hrutu blótsyrði af vörum í ríkum mæli. Aldrei varð Finni og Mundínu sundurorða og þau voru samstíga í heimilishaldinu og upp- eldi barnanna. Finni hefur verið lýst sem marg- breytilegum persónuleika. Á yfir- borðinu gat hann virst eilítið hrjúf- ur en undir var blíðlyndi, umhyggja og hjálpsemi. Ef dauðsfall varð í byggðarlaginu var oft leitað til Finns með að búa lík til greftrunar. Þá klæddi hann sig jafnan í hvíta skyrtu.    Það má ráða af orðum Finns í við- tali við Íslending, málgagn sjálf- stæðismanna á Akureyri, árið 1965, í tilefni af sjötugsafmæli hans 16. september það ár, að hann taldi það hafa verið gæfu að ala börnin upp á Kleifunum en ekki inn í bænum: Þau hjálpuðu hvert öðru til lífs- ins, er óhætt að segja. Annars er mikill munur að vera svona út af fyrir sig með börnin. Þau lærðu ekki illt af öðrum. Svo var ekki bíó eða þess háttar. Allir voru samt ánægðir, kannski ánægðari en margur nú. Í viðtali við Vísi í ágúst 1978 er Finnur spurður um börn þeirra Mundínu og hvort þau hafi almennt verið hraust: Já, þetta fólk var ekki alið upp á dósamat eins og nú tíðkast. Og þessi samlagsmjólk, það er ekki einu sinni hægt að ala upp kálfa á henni hvað þá mannfólk. Það er eins og þeir skilji það ekki þessir háu herrar að við það að hita mjólkina fara öll dýrmætustu efnin for- görðum. Undanrenna er betri en mjólkin.    Finnur Björnsson stýrir land- vinnslunni af röggsemi. Fljótt og vel þarf að gera að aflanum eftir að Agnar kemur í land. Stærri fiskur- inn er flattur en minni fiskurinn er ristur út úr hliðinni rétt aftan við gotraufina, dálkurinn tekinn en stirtlan látin halda sér. Fiskurinn er saltaður í stór timburker í sjóhúsinu og staflað í stæður eftir kúnstar- innar reglum. Síðan vaskaður með burstum og aftur settur í stakk. Á sólríkum dögum er saltfiskurinn þurrkaður á fjörugrjótinu. Ytri-Ár fjaran er gjörbreytt frá fyrri tíð. Þá var breidd hennar 60- 70 metrar og því nægt rými til þess að sólþurrka fiskinn. Frá miðri tutt- ugustu öld hafa sjávaröflin skorið drjúga sneið af fjörunni og hún er því ekki svipur hjá sjón. Fiskurinn er verðmætur og hann þarf að nýta að fullu. Lifrin er flutt á árabátnum yfir í Hornið til Víg- lundar Nikulássonar bræðslutjóra í Lifrarbræðslunni við Vesturhöfn- ina. Á bátnum er segl og það kemur sér vel undan hafgolunni. Þegar vel aflast er báturinn hlaðinn og sjórinn alveg við keipana. Finni líður best þegar báturinn hallast nógu mikið, þá er mesta ferðin. En ef í óefni stefnir gefur hann eftir spottann í seglið og báturinn reisir sig á ný. Lokaskref saltfiskverkunarinnar er pökkun í fimmtíu kílóa striga- pakkningar sem heimafólk sníður og saumar. Síðan er beðið flutninga- skipsins sem lætur sjá sig þegar komið er fram á haust. Það liggur við akkeri á firðinum og er saltfisk- urinn fluttur á árabátnum að skips- hlið. Að stórum hluta endar hann á borðum neytenda á Spáni.    Finnur á Ytri-Á var heyskapar- maður fram í fingurgóma, hann fylgdist vel með veðurskeytunum í útvarpinu og velti vöngum yfir ýmsu í náttúrunni sem gæti gefið vísbendingar um veðurfarið. Grípa þyrfti gæsina þegar hún gafst til að þurrka heyið og þá var eins gott að vera klár í bátana. Finnur var iðinn og féll aldrei verk úr hendi og vildi að unga fólkið væri tilbúið til að taka til hendinni í góðum þurrki. Grasið á takmörkuðu slægju- landinu var dýrmætt og það þurfti að umgangast af virðingu og nær- gætni. Þegar Marinó Haraldsson, unnusti Evu og verðandi tengda- sonur Finns og Mundínu, kom með Evu í fyrsta skipti í Ytri-Á lagðist hann í óslegið grasið til þess að njóta kyrrðarinnar og náttúru- fegurðarinnar. Það kunni Finnur lítt að meta, ekki mætti fyrir nokk- urn mun bæla grasið, það væri dýr- mætara en svo. Þá kom Mundína til skjalanna og sagði með hægð við verðandi tengdason: „Taktu þetta ekki alvarlega, Marinó minn, hann lætur stundum svona.“ Karlpeningurinn á Ytri-Á ann- aðist sláttinn en stúlkurnar komu út á tún til að snúa og á góðviðris- dögum var sjón að sjá allt að þrjátíu manns, unga sem aldna, með hríf- urnar á lofti í flekknum. Þegar svo háttaði tók ekki langan tíma að klára flekkinn. Reynt var að ljúka heyskapnum fyrir göngur um miðjan september en tíðarfarið gat sett strik í reikn- inginn og því var oft ekki unnt að ljúka heyskap fyrr en eftir göngur. Barnalán á Ytri-Á Bókarkafli | Hjónin Mundína Þorláksdóttir og Sig- urbjörn Finnur Björnsson bjuggu á Ytri-Á á Kleif- um við vestanverðan Ólafsfjörð. Þau eignuðust tuttugu börn á tuttugu og átta árum og komust sextán barnanna til fullorðinsára. Óskar Þór Hall- dórsson rekur sögu hjónanna í bókinni Á Ytri-Á. Ljósmynd/Úr einkasafni Barnalán Mundína Þorláksdóttir og Sigurbjörn Finnur Björnsson á Ytri-Á eignuðust tuttugu börn á tuttugu og átta árum. Hér eru þau með þeim sextán börnum þeirra sem komust til fullorðinsára. Saga hjónanna er rakin í nýrri bók.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.