Morgunblaðið - 02.11.2020, Page 32

Morgunblaðið - 02.11.2020, Page 32
Alhliða lausnir fyrir stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki Umferðarstýring afmarkanir/hindranir DVERGARNIR R BÍLASTÆÐALAUSNIR Langhólmi og Borgarhólmi einfalda merkingu bílastæða og afmörkun akstursleiða UMFERÐAREYJAR Henta vel til að stýra umferð, þrengja götur og aðskilja akbrautir. Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / islandshus.is NJÖRVI & NJÖRVI+      Öflugur stólpi til að verja mannvirki og gangandi fólk. Hentar líka vel til skyndiloka AFMARKANIR & HINDRANIR Fjölbreyttar lausnir til afmörkunar á ferðamannastöðum, göngustígum og bílaplönum. Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran kemur ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara fram á hádegistónleikum Hafnarborgar á morgun, þriðjudag, kl. 12. Á tónleik- unum sem bera yfirskriftina „Dísætir tónar“ verða fluttar aríur úr óperunum La Bohème og Tosca eftir G. Puccini og Adriana Lecouveur eftir F. Cilea. Vegna að- stæðna í samfélaginu verður tónleikunum streymt beint á netinu. Slóðina má finna á heimasíðu Hafnar- borgar og á Facebook-síðu safnsins. Dísætir tónar í boði á hádegistón- leikum Hafnarborgar á morgun MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Manchester United er í 15. sæti ensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu eftir sjö umferðir og hefur ekki unnið leik á heimavelli til þessa. Í gær tapaði liðið á heimavelli fyrir Arsenal, 0:1. Arsenal þurfti einnig á stigum að halda en er nú í 9. sæti með jafn mörg stig og liðin í næstu þremur sætum fyrir ofan. Arsenal þurfti að bíða lengi eftir sigri á Old Trafford því það gerðist síðast árið 2006. Liðinu hefur ekki gengið vel á útivelli upp á síðkastið gegn liðunum sem höfnuðu í efstu sætum deildarinnar 2020. »27 Fyrsti sigur Arsenal á Old Trafford síðan 2006 kom á góðum tíma ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Um 150 ára gömul altaristaflan í Akraneskirkju verður væntanlega sett á sinn stað í dag eða á morgun, en listmál- arinn og forvörðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, kallaður Baski, vann að hreinsun og viðgerð á henni undanfarnar vikur. Hann málaði olíumálverk eftir altaristöflu Gustavs Wegeners í Dómkirkjunni í Reykjavík líkt og Sigurður Guðmundsson málari gerði 1867, og hefur það verið í Akra- neskirkju á meðan tafla Sigurðar hefur verið í meðhöndlun. Eftirmyndir altaristöflu Wegeners eftir íslenskra list- málara, þar á meðal tíu eftir Sigurð Guðmundsson málara, prýða nokkrar kirkjur landsins. „Ég hef stúderað myndir og handbragð Sigurðar málara og málaði eftirmyndina í sumar,“ segir Baski en fresta varð viðgerðinni þar til í haust vegna kórónuveirufaraldursins. Baski er frá Akranesi og bjó þar til tvítugs en hefur átt heima í Hollandi undanfarinn aldarfjórðung og á þar konu og þrjú börn. Þegar hann var í Myndlistarskólanum dreymdi hann eitt sinn ömmu sína. Hún kom til hans í skól- ann og rétti honum þríhyrning þar sem á stóð Baski. „Ég merkti fyrstu myndina mína með þessu nafni og þegar ég fór í framhaldsnám í Hollandi og lærði meðal annars for- vörslu áttu heimamenn auðvelt með að segja Baski. Nafnið hefur fylgt mér síðan.“ Baski segir að altaristaflan hafi verið illa farin og mikla nákvæmnisvinnu hafi þurft til þess að koma henni í samt horf. „Ég fékk hollenska konu mér til aðstoðar fyrstu sjö dagana og við notuðum eldgamla aðferð, sem fáir kunna, til þess að leggja grunninn,“ segir hann. Aðferðin felst meðal annars í því að blanda býflugnavaxi og trjákvoðu saman í réttum hlutföllum og strauja efnið á dúk. „Þetta er mikil kúnst og tveggja manna verk,“ áréttar hann. Bætir við að síðan hafi hann auk annars þurft að mála yfir fölnaða liti og fylla í sprungur og skipta hafi þurft um striga á bakhliðinni. Altaristafla Kjarvals Altaristafla Jóhannesar Kjarvals í Innra-Hólmskirkju var líka skemmd og tók Baski að sér að gera við hana. „Það var mun minna verk,“ segir hann og bætir við að skemmti- leg saga sé á bak við myndina. Sumarliði Halldórsson frá Krossi hafi fengið mikla magakveisu um 1930. Hann hafi þurft að gangast undir aðgerð í Reykjavík og hafi ástand hans þótt tvísýnt um tíma. Listamaðurinn Jóhannes Kjar- val hafi legið í næsta rúmi og þeir hafi samið um það að lifði Sumarliði af þessa raun myndi Kjarval gera altaristöflu fyrir hann og Sumarliði síðan gefa í Innra-Hólmskirkju. „Aðgerðin tókst vel, hann lifði og Kjarval stóð við heitið, málaði altaristöfluna og Innra-Hólmskirkja eignaðist hana 1931.“ Breyting Altaristaflan fyrir og eftir meðferð Baska. Baski Skagamaður í fótspor meistaranna  Bjarni Skúli Ketilsson, öðru nafni Baski, hefur gert við altaristöflur Akranes- kirkju og Innra-Hólmskirkju Listmálari Baski við eigin altaristöflu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.