Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 13
Ég nýt þess, ég tek það fram, en
þegar ég var farin að taka upp
myndbönd og senda fólki til að
sýna því hvernig ætti að gera sá
ég að þetta væri snilldarleið til að
kenna fólki að prjóna.“ Tinna segir
að þetta sé fimm vikna námskeið
þar sem hver og einn geti farið á
sínum hraða. „Við reynum samt að
halda hópinn á þessum fimm vik-
um og vera nokkurn veginn sam-
ferða. Námskeiðið inniheldur 30
leiðbeiningamyndbönd en ég býð
auk þess öllum upp á klukkustund-
ar langt myndsamtal einu sinni í
viku í þessar fimm vikur. Þess á
milli geta þeir sem eru á nám-
skeiðinu varpað fram spurningum
til mín á lokuðum facebookhópi
svo fólk sé aldrei stopp í sínu
verkefni. Í lok námskeiðs verða
svo allir búnir að prjóna húfu og
peysu á sig eða sína.“
Námskeiðið er á vegum vef-
verslunar Tinnu, Tiny Viking, sem
er barnavöruverslun. „Þar seldi ég
upphaflega barnafatnað sem ég
prjónaði og heklaði sjálf. Allt byrj-
aði það á rauðum kraga sem ég
heklaði á dóttur mína, Viktoríu
Lind, en eftirspurn eftir honum og
öðru sem ég gerði í höndunum á
hana varð svo mikil að ég ákvað að
opna vefverslun. Kraginn var áður
í sölu hjá okkur en síðar gaf ég
uppskrift að honum með mynd-
bandi,“ segir Tinna og bætir við að
hún hafi ekki haft undan í prjóna-
skapnum og því láti hún núna
framleiða fyrir sig þær vörur sem
eru til sölu á Tiny Viking.
„Þar sem Tiny Viking er
barnavöruverslun hugsaði ég
þetta prjónanámskeið fyrst fyrir
mæður sem væru heima hjá sér
með lítil börn og kæmust lítið frá.
En ég áttaði mig á að miklu fleiri
en eingöngu mæður ungra barna
langar að læra að prjóna, í mig
hringja til dæmis 19 ára unglingar
sem þurfa leiðbeiningu með að
prjóna peysu á sjálfa sig.“ Tinna
var nýlega með prufunámskeið og
prjónanámskeið til að sjá hvort
allt virkaði, hverju þyrfti að
breyta eða bæta.
„Þetta ætti því að vera alveg
smurt þegar þetta fer af stað á
mánudaginn. Ég ætla að vera með
annað prjónanámskeið í janúar,
því eftirspurnin er mikil. Mig
langar líka að vera með sauma-
námskeið, heklunámskeið og alls
konar. Þetta á eftir að vinda upp á
sig.“
Þeir sem hafa áhuga á að fara
á námskeiðið sem hefst nk. mánu-
dag 9. nóvember geta skráð sig á
heimasíðu vefverslunar Tinnu:
tinyviking.net.
Upphaf Viktoría Lind með
kragann sem Tinna heklaði
og varð svo vinsæll að hún
ákvað að opna vefverslun-
ina Tiny Viking. Slaufan í
hárinu fæst einmitt þar.
Fallegt Svona peysur og
húfur, fyrir börn eða
fullorðna, ætlar Tinna að
kenna fólki að prjóna á
netnámskeiðinu.
Fær aldrei leiða Tinna við
uppáhaldsiðju sína, að
prjóna eina flíkina enn.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Þriggja manna verk Að fanga stork er ekki létt verk, hér freista þrír starfsmenn dýragarðs þess að ná einum slíkum fugli garðsins.
Namm Hann fúlsaði ekki við graskeri þessi fíll í dýragarði í
Danmörku sem fékk að gæða sér á slíku eftir hrekkjavökuna.
Rómó Þessir svanir röltu um á ströndinni á frönsku rivíerunni
í Nice í Frakklandi, alls ómeðvitaðir um heimsfaraldur.
AFP
mjolka.is
Fylgdu okkur á