Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á jafnréttismálum. Þegar ég var lítil fannst mér skemmtilegast að lesa sögur þar sem sterkar stelpur höfðu afgerandi áhrif á atburðarásina og tóku til sinna ráða,“ segir Nína Björk Jónsdóttir sem sent hefur frá sér bókina Íslandsdætur. Í bókinni er í 44 köflum sögð saga jafnmargra framúrskarandi kvenna sem hafa haft áhrif á samtíma sinn og skilið eftir sig merkilega arfleifð. Sú elsta fæddist um 830 og sú yngsta 1986. Sumar eru þekktar fyrir hugrekki og staðfestu eða fyrir að hafa upplifað ótrúlegar þrek- raunir og tekist á við þær af seiglu og áræði. Fjallað er um braut- ryðjendur, landkönnuði, stjórnmála- konur og konur sem börðust fyrir jafnrétti kynjanna, konur í atvinnu- lífinu, iðnaði og sjómennsku, menntakonur og konur sem vakið hafa athygli fyrir vísindastörf sín, íþróttaafrek, ritstörf, tónsmíðar eða aðrar listir. Skemmtilegur húmor Auður Ýr Elísabetardóttir mynd- höfundur hefur unnið portrett af öll- um konunum sem fjallað er um í bókinni. „Ég er mjög ánægð með myndirnar hennar, sem fanga vel karakter þessara ólíku kvenna. Það er greinilegt að hún ber mikla virð- ingu fyrir myndefni sínu, en á sama tíma ríkir líka skemmtilegur húmor í myndunum.“ Aðspurð segir Nína Björk hug- myndina að bókinni hafa kviknað 2018 þegar hún var að segja börn- unum sínum, Trausta Þór og Krist- ínu Hrafnhildi, frá landnámi Íslands. Á þeim tíma bjuggu þau í Genf þar sem Nína Björk starfaði sem vara- fastafulltrúi Íslands og staðgengill sendiherra, en áður hafði hún gegnt sömu stöðu í París. Í dag starfar hún sem forstöðumaður viðskiptaþjón- ustu í utanríkisráðuneytinu, en í störfum sínum fyrir utanríkisþjón- ustuna hefur hún oft unnið með jafn- réttismál, m.a. á vettvangi Samein- uðu þjóðanna, á sviði loftslagsmála og í utanríkisviðskiptum. Fór að safna konum „Ég hef alltaf haft áhuga á sög- unni og fundist gaman að leiða hug- ann að því hvernig hlutirnir voru hér áður fyrr, enda ótrúlegt til þess að hugsa hvernig lífið var á Íslandi á árum og öldum áður með tilheyrandi fátækt og harðri lífsbaráttu. Fjar- lægðin við Ísland meðan við bjugg- um erlendis hjálpaði mér að sjá bet- ur hvað væri séríslenskt og hvað væri spennandi og áhugavert í okkar sögu sem gaman væri að miðla. Með börn í útlöndum fannst mér líka mikilvægt að hjálpa þeim að læra og þekkja allt það sem íslenskt er og þekkja rætur sínar,“ segir Nína Björk, sem fór fljótlega eftir að hug- myndin kviknaði markvisst að safna sögum af áhugaverðum, sterkum og sjálfstæðum konum. „Stundum rakst ég á áhugaverðar konur fyrir tilviljun,“ segir Nína Björk og bend- ir á að í vinnuferð með erlenda gesti til Hóla í Hjaltadal hafi séra Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup sagt hópnum frá Halldóru Guð- brandsdóttur, sem á 17. öld var fyrsta konan til að stýra biskupsstóli á Íslandi. Kófið hjálpaði við skrifin „Ég notaði góðan tíma til að safna konum áður en ég fór leika mér að því að skrifa texta bókarinnar,“ seg- ir Nína Björk og upplýsir að bókar- skrifin hafi setið á hakanum þegar hún fluttist búferlaflutningum frá Genf til Íslands ásamt börnum sín- um. „Hugmyndin var samt alltaf að minna á sig, því mig langaði að til væri svona bók sem ég gæti lesið með börnunum mínum,“ segir Nína Björk og tekur fram að hún sé ekki frá því að kófið í vor hafi hjálpað sér að klára bókina. „Það mátti ekki hitta neinn og í stað þess að horfa á Netflix þegar börnin voru sofnuð settist ég við grúsk og skrif. Þetta verkefni kallaði svo sterkt á mig og mig langaði til að klára það þegar ég var búin að fá vil- yrði fyrir útgáfu,“ segir Nína Björk sem leitaði fanga víða í heimildar- öflun sinni. Nefnir hún í því sam- hengi ævisögur, sjálfsævisögur, ýmiss konar sagnfræðirit og greinar úr Lesbók Morgunblaðsins auk þess sem hún átti samtöl við ættingja og konurnar sjálfar. Algjör töffari á hestbaki Aðspurð segir Nína Björk það hafa verið erfitt að velja aðeins 44 konur inn í bókina. „Það er fullt af merkilegum konum sem ekki eru í þessari bók, en auðvitað er ómögu- legt að gera tæmandi yfirlit yfir merkar konur í Íslandssögunni og til okkar daga, sem betur fer! En í raun má líta á bókina sem sýnishorn. Ég var líka að leita að áhugaverðum sögum í kringum konurnar sem ég valdi. Ef ég fann skemmtilega sögu um það hvernig konan komst í nám eða lét draum sinn rætast fannst mér gaman að draga það fram. Dæmi um þetta er Kristín Jóns- dóttir myndlistarkona sem var algjör töffari og ferðaðist ein um Ísland á hestbaki, með trönurnar sínar, pensla og liti í leit að mynd- efni. Eftir að hún stofnaði fjölskyldu varð erfiðara fyrir hana að fara í langar ferðir um Ísland og þá flutti hún náttúruna inn í stofu til sín og fór að mála myndir af blómum sem hún ræktaði sjálf,“ segir Nína Björk, sem dáist að hugmyndaauðgi og sjálfsbjargarviðleitni kvennanna. Margar hugmyndir í kollinum „Mér fannst líka mikilvægt að bakgrunnur og viðfangsefni kvennanna væru ólík, þannig að les- endur fyndu eitthvað við sitt hæfi sama hvert þeirra áhugasvið er. Það er svo mikilvægt að hvetja börn, bæði stelpur og stráka, til að gera það sem þau langar að gera og vera þau sjálf, hvort sem það felur í sér að vera með nefið ofan í bókum eða allt- af úti að spila fótbolta. Þegar fyrir hendi eru góðar fyrirmyndir er miklu auðveldara að láta sig dreyma og hugsa stórt,“ segir Nína Björk og áréttar að fjöldi frambærilegra kvenna í Íslandssögunni sé það mikill að hæglega væri hægt að skrifa framhaldsbók. Þótt Íslandsdætur sé fyrsta bók Nínu Bjarkar er hún ekki ókunnug skrifum, enda hefur hún skrifað bæði stuttverk og leikrit í fullri lengd sem leikfélagið Hugleikur og önnur leikfélög hafa sýnt. Spurð hvort hún hyggist í auknum mæli einbeita sér að skapandi skrifum segist Nína Björk vera með margar hugmyndir í kollinum, sérstaklega að barnabókum. „En ég er náttúr- lega í fullri vinnu við annað, sem er bæði gefandi og skemmtileg, auk þess að ala upp tvö börn. Það verður því bara að koma í ljós hvort og hve- nær ég sest einhvern tímann niður og kem öllum þessum hugmyndum á blað. Kannski dembi ég mér í það að skrifa barnabækur þegar ég fer á eftirlaun!“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Mæðgur Kristín Hrafnhildur og Nína Björk Jónsdóttir með nýju bókina. Víðförul Guðríður Þorbjarnar- dóttir séð með augum Auðar Ýrar Elísabetardóttur myndhöfundar. Mikilvægt að þekkja rætur sínar  Íslandsdætur eftir Nínu Björk Jónsdóttur fjallar um 44 framúrskarandi konur í Íslandssögunni  „Það er svo mikilvægt að hvetja börn til að gera það sem þau langar að gera og vera þau sjálf“ Ken Hensley, gítar- og hljómborðs- leikari rokksveitarinnar Uriah Heep, sem naut mikill vinsælda á áttunda áratugnum, er látinn 75 ára að aldri. Er hans meðal annrs minnst fyrir að hafa átt mikinn þátt í að gefa hljómborðinu mikilvægan sess í þungarokki þess tíma. Hensley var höfundur margra af þekktustu laga Uriah Heep og fé- lagi hans úr sveitinni, Mick Box, segir í minningarorðum að þau undirbyggi tónlistarlega arfleifð sem muni lifa í hjarta aðdáenda. Hensley samdi til að mynda og söng eitt þekktasta lag Uriah Heep, „Lady in Black“ og hann samdi líka annan vinsælan slagara, „Easy Livin’“. Það var árið 1969 sem Hensley gekk í hljómsveitina Spice sem breytti nafninu fljótlega eftir það í Uriah Heep. Hann lék með sveitinni allan áttunda áratuginn og á þeim tíma sendi hún frá sér 13 plötur. Hann hætti í Uriah Heep 1980. Ken Hensley úr Uriah Heep látinn Ljósmynd/Wikipedia Rokkari Ken Hensley samdi sum vinsæl- ustu laga Uriah Heep á sínum tíma. Nýjar og áhuga- verðar bækur fyrir börn og unglinga sem eru að koma út þessa dagana verða til umfjöllunar í „Fjölskyldustund á laugardögum“ í Bókasafni Kópavogs næstu laugardaga. Guðrún Lára Pétursdóttir bókmenntafræðingur ræðir þá við höfunda nýútkominna bóka og þeir lesa úr verkum sínum og segja frá. Viðburðirnir verða sendir út á facebooksíðum Menningarhúsanna í Kópavogi og Bókasafns Kópavogs og verða einnig aðgengilegir eftir að útsendingu lýkur. Til umfjöllunar í dag verður bók- in Vertu þú! Litríkar sögur af fjöl- breytileikanum eftir þær Ingileif Friðriksdóttur og Maríu Rut Krist- insdóttur. Höfundarnir lesa úr bók sinni og ræða við Guðrúnu Láru um fjölbreytileikann í allri sinni dýrð. Dagskráin hefst klukkan 13 í dag. Höfundar segja frá og lesa úr Vertu þú! Ingileif Friðriks- dóttir og María Rut Kristinsdóttir. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is . . Full flottu efni fyrir alla aldurshópa Jólablað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.