Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 England Brighton – Burnley ................................. 0:0  Jóhann Berg Guðmundsson var allan tímann á bekknum hjá Burnley. Southampton – Newcastle....................... 2:0 Staðan: Southampton 8 5 1 2 16:12 16 Liverpool 7 5 1 1 17:15 16 Leicester 7 5 0 2 17:9 15 Tottenham 7 4 2 1 18:9 14 Everton 7 4 1 2 15:11 13 Wolves 7 4 1 2 8:8 13 Chelsea 7 3 3 1 16:9 12 Aston Villa 6 4 0 2 15:9 12 Arsenal 7 4 0 3 9:7 12 Manch.City 6 3 2 1 9:8 11 Newcastle 8 3 2 3 10:13 11 Leeds 7 3 1 3 13:13 10 Crystal Palace 7 3 1 3 8:11 10 West Ham 7 2 2 3 13:10 8 Manch.Utd 6 2 1 3 9:13 7 Brighton 8 1 3 4 11:14 6 Fulham 7 1 1 5 7:14 4 WBA 7 0 3 4 6:16 3 Burnley 7 0 2 5 3:12 2 Sheffield Utd 7 0 1 6 3:10 1 Holland B-deild: Den Bosch – Jong PSV............................ 1:2  Kristófer Ingi Kristinsson lék fyrstu 89 mínúturnar með Jong PSV og lagði upp mark. Danmörk B-deild: Fredericia – Viborg................................. 1:1  Elías Rafn Ólafsson lék allan leikinn með Fredericia.  Patrik Sigurður Gunnarsson lék allan leikinn með Viborg.  Evrópudeildin Valencia – Olimpia Mílanó ................. 86:81  Martin Hermannsson skoraði 5 stig, tók 4 fráköst og stal 1 bolta fyrir Valencia á 14 mínútum.   Eiður Smári Guðjohnsen verður þjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu næstu tvö árin. Logi Ólafsson hætt- ir sem þjálfari liðsins en verður tæknilegur ráðgjafi knatt- spyrnudeildar félagsins. Eiður Smári og Logi tóku saman við þjálf- un liðsins í sumar eftir að Ólafur Kristjánsson hætti störfum til að taka við Esbjerg í Danmörku. FH- ingurinn Davíð Þór Viðarsson, sem lagði skóna á hilluna í fyrra, verður aðstoðarþjálfari liðsins en hann var fyrirliði liðsins um árabil og varð Íslandsmeistari sjö sinnum. Eiður Smári stýrir FH-ingum Morgunblaðið/Sigurður Ragnars Hafnarfjörður Eiður Smári Guð- johnsen stýrir FH-ingum. Ólafur Jóhannesson er hættur sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu en hann stýrði liðinu á nýliðnu Íslandsmóti ásamt Rúnari Páli Sigmundssyni. Stjarnan hafn- aði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar. Ólafur samdi við Garðbæinga í fyrra eftir að hafa stýrt Völsurum og gert þá meðal annars að tvöföld- um Íslandsmeisturum. Ólafur gerði tveggja ára samning við Stjörnuna en segir nú skilið við félagið eftir aðeins eitt tímabil. „Ég kveð félagið sáttur og með söknuði,“ er haft eft- ir Ólafi í fréttatilkynningu. Morgunblaðið/Eggert Farinn Ólafur Jóhannesson hefur sagt skilið við Stjörnuna. Ólafur yfirgefur Garðabæinn FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Sveindís Jane Jónsdóttir er besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildar- innar, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins, annað árið í röð. Sveindís fékk 21 M í 15 leikjum með Breiðabliki í sumar. Lék hún aðeins einn leik án þess að fá M og þá skor- aði hún 14 mörk í 15 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili með Breiða- bliki. Sveindís var lánuð til Kópa- vogsfélagsins fyrir tímabilið frá Keflavík og fagnaði Íslandsmeist- aratitlinum í fyrsta skipti þegar tímabilið var blásið af, en Breiðablik var með 42 stig, tveimur stigum meira en Valur, og með leik til góða þegar leik var hætt á Íslandsmótinu. Vorum langbesta liðið „Þetta var ótrúlega flott tímabil hjá okkur og við erum mjög sáttar þótt það sé leiðinlegt að hafa ekki fengið að klára tímabilið, en við sættum okkur alveg við þetta. Þetta var orðið svolítið langdregið og mað- ur var farinn að bíða eftir að tíma- bilið yrði blásið af,“ sagði Sveindís við Morgunblaðið. Hún segir að Breiðablik sé verðskuldaður Ís- landsmeistari í ár. „Við unnum báða leikina við Val með markatölunni 5:0 og ég held það sé óhætt að segja að við vorum langbesta liðið í deildinni í ár.“ Breiðablik tapaði ekki leik á síð- ustu leiktíð en þurfti þrátt fyrir það að sætta sig við annað sætið á eftir Val. Sveindís segir liðið hafa verið hungrað í að fara einu skrefi lengra í ár. „Þær töpuðu ekki leik í fyrra en náðu samt ekki að verða Íslands- meistarar. Við töpuðum einum leik núna en sem betur fer misstum við ekki af titlinum. Þær voru mjög hungraðar í þennan titil núna.“ Fall í fyrra, meistari í ár Sveindís var lánuð til Breiðabliks eftir að hún féll úr efstu deild með Keflavík á síðasta ári, en það var hennar fyrsta ár í efstu deild. Fyrstu tvö árin í deild þeirra bestu hafa því verið afar ólík; fall og meistaratitill. „Þetta hafa verið tvö mjög ólík sumur hjá mér. Ég er á toppnum núna en akkúrat á hinum endanum á síðasta tímabili. Það var mjög svekkjandi að falla í fyrra og að sjálfsögðu ekkert sem við ætl- uðum okkur. Það er gaman að sjá að þær fóru beint aftur upp, það var mikilvægt,“ sagði Sveindís, en Keflavík hafnaði í öðru sæti 1. deild- arinnar í sumar og tryggði sér því sæti í efstu deild á ný. Sveindís er ánægð með eigin frammistöðu á tímabilinu, eins og gefur að skilja, en eina markmiðið sem hún setti sér fyrir tímabilið var að komast í liðið. Hún gerði það og töluvert betur. Sátt við eigin frammistöðu „Ég get alveg sagt að ég er frekar sátt. Ég bjóst ekki alveg við að byrja alla leikina en ég vann mig inn í liðið og fannst ég eiga skilið að vera í byrjunarliðinu. Ég er mjög ánægð með mína frammistöðu. Markmiðin mín snerust um að kom- ast í liðið og ná góðu sambandi við stelpurnar. Það voru svoleiðis mark- mið hjá mér, en ég setti mér ekki markmið um hversu mörg mörk ég ætlaði að skora. Ég ætlaði að koma mér inn í liðið og spila eins mikið og ég gæti.“ Framherjinn var aðeins 14 ára þegar hún lék sinn fyrsta leik með Keflavík og voru leikirnir í deild og bikar orðnir 80 þegar hún fór til Breiðabliks. Hún viðurkennir að það sé auðveldara að spila með Breiða- bliki þar sem hún fær meiri þjón- ustu en hjá Keflavík. „Það eru að- eins betri leikmenn hjá Breiðabliki en hjá Keflavík. Breiðablik spilar öðruvísi bolta og meiri sóknarbolta. Ég fékk ekki mikla aðstoð hjá Keflavík, þær voru mjög aftarlega og ég var oft ein frammi og þurfti að gera mikið sjálf. Ég fékk meiri að- stoð í Blikaliðinu og það er helsti munurinn.“ Þrennan stóð upp úr Sveindís gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 4:0-heimasigri Breiðabliks á Val í toppslag 21. júlí á Kópavogsvelli. Hún segir það topp- inn á góðu tímabili, ásamt útisigr- inum á Val 3. október, en það reynd- ist síðasti leikurinn á tímabilinu. „Það er held ég hápunkturinn að skora þessa þrennu. Það var geggj- að að skora þrennu á móti Val og svo að vinna þær á útivelli var líka rosalega gaman. Þá vorum við eig- inlega búnar að tryggja okkur tit- ilinn og það hefði verið gaman að fá að taka á móti honum þá,“ sagði Sveindís og hló. „Þá var þetta næst- um því komið hjá okkur. Toppurinn á þessu tímabili var að vinna Val í bæði skiptin og sérstaklega á heimavelli þegar ég skora þrennu.“ Æðislegt að fá tækifæri með landsliðinu Gott ár varð enn betra þegar Sveindís var valin í A-landsliðið fyr- ir heimaleikina við Lettland og Sví- þjóð í undankeppni EM í sept- ember. Hún byrjaði landsliðsferilinn með látum því eftir 32 mínútur í fyrsta landsleiknum gegn Lettum var Sveindís búin að skora tvö mörk. Hún var verðlaunuð með byrjunarliðssæti gegn Svíþjóð þar sem hún lagði upp mark í 1:1- jafntefli. Sveindís var svo enn og aftur í byrjunarliðinu er Ísland þurfti að sætta sig við 0:2-tap á úti- velli gegn Svíþjóð í síðasta mánuði. Sveindís, sem er enn þá bara 19 ára, var ánægð með upplifunina. „Það var æðislegt að fá tækifærið með landsliðinu. Ég var smá stress- uð fyrst en ég þurfti þess ekki, þetta eru frábærar stelpur og frábær hóp- ur. Þær tóku vel á móti mér og ég var mjög ánægð með þetta. Ég var aðeins stressuð þegar ég kom inn í Breiðabliksliðið, en ég þekkti svo margar þar úr yngri landsliðum. Það var meira stress að koma inn í A-landsliðið. Ég er ótrúlega ánægð með þessa byrjun hjá landsliðinu og að fá þetta traust frá Jóni Þóri. Það er alls ekki sjálfgefið að vera í byrj- unarliðinu í öllum þessum leikjum og ég var mjög ánægð með það.“ Eins og áður hefur komið fram var Sveindís lánuð til Breiðabliks frá Keflavík. Lánssamningurinn er nú á enda og er hún orðin leikmaður Keflavíkur á nýjan leik. Hún reikn- ar ekki með að spila með Keflavík næsta sumar. „Þetta var bara láns- samningur hjá Breiðabliki og ég er komin aftur til Keflavíkur. Ég hef ekki ákveðið hvað ég ætla að gera en mér finnst mjög ólíklegt að ég spili með Keflavík næsta sumar,“ viðurkenndi Sveindís. Vill spila með besta liði heims Hún er ekki viss hvað tekur við, en Sveindís hefur verið orðuð við fé- lög fyrir utan landsteinana og þá sérstaklega í Svíþjóð, en hún virðist hafa heillað sænsk félög með frammistöðu sinni í landsleikjunum. „Ég veit ekki hvort ég held áfram hjá Breiðabliki eða fer út. Þetta er allt í vinnslu. Ég hef ekki fengið neitt sent á mig persónulega þar sem umboðsmaðurinn minn sér um allt svona. Ég er ekki mikið að skoða þetta núna þar sem ég ætlaði að skoða þetta eftir tímabilið og það er mjög stutt síðan tímabilið klár- aðist. Umboðsmaðurinn hefur sagt mér að einhver lið hafi sýnt áhuga en ég veit ekki hvaða lið það eru.“ Sveindís ætlar sér að fara alla leið í fótboltanum og er hann nú í algjör- um forgangi eftir að hún útskrif- aðist úr Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. „Ég veit mig langar í háskóla en á meðan ég veit ekki hvað mig langar að læra er fótbolt- inn númer eitt, tvö og þrjú. Ég ætla mér að ná eins langt og hægt er og komast í besta lið í heimi,“ sagði Sveindís Jane Jónsdóttir ákveðin. Ætla mér að ná eins langt og hægt er Morgunblaðið/Árni Sæberg Hápunktur Sveindís Jane skoraði þrennu í sigri á Val í toppslag 23. júlí á Kópavogsvelli. Breiðablik vann 4:0-sigur og svo 1:0-sigur í útileiknum.  Sveindís best annað árið í röð  Verðlaunuð með sæti í landsliðinu  Anton Sveinn McKee synti 100 metra bringusund á ISL-mótaröðinni í Búdapest í Ungverjalandi í gærmorgun og hafnaði í fjórða sæti. Anton synti á tímanum 57,71 sekúndu í gær en ein- ungis 13 dagar eru liðnir frá því hann setti nýtt Íslands- og Norðurlandamet í greininni á tímanum 56,30.  Varalið PSV Eindhoven vann sinn fjórða leik á tímabilinu í hollensku B- deildinni í fótbolta í gærkvöld er liðið lagði Den Bosch á útivelli, 2:1. Krist- ófer Ingi Kristinsson var í byrjunarliði PSV-liðsins og lagði upp fyrsta mark leiksins á Fodé Fofana á 9. mínútu, en hann gerði bæði mörk PSV. Kristófer fór af velli á 89. mínútu.  Knattspyrnumaðurinn Jóhann Lax- dal hefur lagt skóna á hilluna en hann er þrítugur. Jóhann hefur alla tíð leikið með Stjörnunni, alls 240 keppnisleiki. Í leikjunum 240 skoraði Jóhann 14 mörk. Bakvörðurinn lék sjö leiki með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni á ný- liðinni leiktíð. Hann er annar leikja- hæsti leikmaður félagsins í efstu deild, á eftir bróður sínum, Daníel Laxdal.  Forráðamenn Manchester United eru í viðræðum við Mauricio Pochett- ino um að verða nýr knattspyrnustjóri liðsins en núverandi stjórinn, Ole Gunnar Solskjær, er orðinn valtur í sessi. Samuel Luckhurst, fréttamaður Manchester Evening News, segir frá því að United sé í viðræðum við Arg- entínumanninn sem stýrði síðast Tott- enham með góðum árangri, kom liðinu meðal annars í úrslit Meistaradeild- arinnar. Eitt ogannað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.