Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur haft yfrið nóg að starfa
að undanförnu en sérð nú fram á að eiga
tíma aflögu fyrir sjálfan þig. Hlutirnir eru í
góðu lagi, þótt þeir séu ekki alfullkomnir.
20. apríl - 20. maí
Naut Samskiptahæfni þín er með mesta
móti. Málaðu skærar myndir með orðum
og endurtaktu hvað eftir annað, við sjálf-
an þig og aðra í kringum þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að hemja löngun þína
til að vanda um við aðra í dag. Dálæti þitt
á fallegum stöðum og hlutum vex til
muna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki kaupa neitt af fljótfærni í
dag. Ef það er ekki hægt má reyna að
víkka sjóndeildarhringinn á einhvern hátt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert jarðbundinn og nákvæmur í
öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur.
Láttu ekki álit annarra trufla störf þín.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú veist ekki hvernig þú átt að
snúa þér í vinnunni og félagslífinu. Njóttu
þess á meðan það varir því það er ekki
alltaf svo.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn hentar vel til framtíðar-
áætlana. Um þessar mundir er sandkass-
inn þinn bara nægilega stór fyrir þig ein-
an og það er líka allt í lagi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mundu að þú hefur sjálfur
mikið um það að segja hvernig mynd aðr-
ir fá af þér. Kannski þarftu að læra að
vera ósammála án þess að reiðast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skoðanir þínar eru afar per-
sónulegs eðlis í dag. Gerðu áætlun og
láttu óttann við hið óþekkta ekki ná tök-
um á þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nýjar upplýsingar leiða til þess
að þú átt erfitt með að taka ákvörðun.
Hugaðu frekar að því hver þú ert og
hvernig þú kemur fram við þína nánustu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Samtöl við kunningja og vini
eru gefandi í dag. Reyndu að átta þig á
hvað býr undir spurningu eða beiðni sem
þér berst.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt komast að því að hæfi-
leikar þínir liggja á mörgum sviðum.
Láttu ekki öfund samstarfsmanna þinna
hafa áhrif á þig.
Ó
ttarr Arnar Halldórsson
fæddist á Akureyri
7.11. 1940 en fluttist
með móður sinni til
Reykjavíkur tveggja
ára að aldri. Þar bjuggu þau í vestur-
bæ Reykjavíkur og gekk Óttarr í
Melaskóla og Gaggó Vest. Þaðan lá
leiðin í Verzlunarskóla Íslands þar
sem Óttarr útskrifaðist með versl-
unarpróf 1958. Óttarr fór svo í nám í
The London School of Foreign
Trade í London þar sem hann lærði
rekstur og tryggingar skipa, vöru-
tryggingar o.fl. og útskrifaðist með
diplómu í „shipping“ árið 1960.
„Þetta var skemmtilegur tími og þar
sem við kunnum lítið að elda keypt-
um við „Irish stew“ í dósum og það
var hitað upp í öll mál.“
Eftir heimkomu frá London hóf
hann störf hjá Almennum trygging-
um og fór svo að vinna hjá föður sín-
um í heildverslun hans, Halldóri
Jónssyni ehf. Þar sem Óttarr var
dúx í þýsku úr Verslunarskólanum
var ákveðið að senda hann til Þýska-
lands í eitt ár til að afla umboða fyrir
heildsöluna. Hann kom svo heim
með umboð fyrir nokkur góð vöru-
merki, m.a. Wella-hárvörumerkið,
sem síðar varð hryggjarstykkið í
rekstrinum.
Þá kom þýskan sér vel
Á heimleiðinni með Gullfossi
kynntist Óttarr eiginkonu sinni, Ing-
rid. Ekki voru margir þýskumælandi
um borð og því leituðu Ingrid og vin-
kona hennar til Óttars með ýmislegt.
Þannig voru fyrstu kynni hjónanna.
Eftir komuna til Íslands hittust þau
oft fyrir tilviljun hér og þar, t.d. í
Vesturbæjarlauginni, í Klúbbnum, á
Akureyri og víðar.
Svo virðist sem örlagadísirnar hafi
ætlað þeim að ná saman og giftu þau
sig árið 1964 í heimabæ Ingridar í
Suður-Þýskalandi.
Fjölskyldufyrirtækið Ísflex ehf.
Árið 1976 stofnaði Óttarr sína eig-
in heildverslun, Ísflex ehf., með Ing-
rid. Þau byrjuðu smátt og var hinn
vinsæli Milupa-barnamatur ein af
fyrstu innflutningsvörunum. Lager-
inn var í bílskúrnum heima og Óttarr
sá sjálfur um allan rekstur og keyrði
m.a. sjálfur út vörurnar í búðirnar.
Eftir að þau fengu umboð fyrir
Margaret Astor-snyrtivörurnar varð
mikil uppsveifla, en Astor var mest
selda merkið hérlendis í fjölda ára.
Vegna þessarar velgengni löðuðust
fleiri toppmerki að fyrirtækinu, t.d.
Jil Sander, Lancaster, Adidas o.fl.,
að ógleymdu hinu virta La Prairie.
Báðar dætur Óttars störfuðu með
honum í fyrirtækinu um árabil og
var þetta því sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki.
Sterkasti strákurinn í bekknum
„Strax í Melaskólanum þótti ég
efnilegur í íþróttum, enda alltaf
sterkasti strákurinn í bekknum. Ég
hafði lengi dáðst að júdóíþróttinni og
skráði mig í byrjendaflokk hjá Júdó-
deild Ármanns haustið 1968. Ég
stundaði æfingar og félagsstörf af
kappi og var fljótlega beðinn að taka
að mér fjármál deildarinnar og var
gjaldkeri hennar í fjölda ára.
Á þessum árum vorum við alltaf
með hámenntaða japanska þjálfara
og féll það aðallega í minn hlut að
hafa samskipti við þá, greiða þeim
laun og reka íbúð fyrir þá. Júdó-
deildin var á þessum árum með „frú-
arleikfimi“ til að fullnýta salina yfir
daginn. Júdóæfingar byrjuðu ekki
fyrr en um kvöldmatarleytið og
hafði deildin þess vegna fjárráð til
að borga húsaleigu, starfsfólki og
góðum þjálfara.“ Óttarr varð síðar
fulltrúi deildarinnar í stjórn Júdó-
sambands Íslands og kosinn gjald-
keri frá upphafi og sá mikið um sam-
skiptin við japanska þjálfara vegna
fyrri reynslu.
Óttarr og Ingrid hafa alla tíð verið
mikið skíðafólk og fóru þau í margar
skíðaferðir með dætrum sínum til
Austurríkis. Í 15 ár fóru þau í árleg-
ar skíðaferðir til Aspen í Colorado
með sama góða vinahópnum. Einnig
eiga þau íbúð við ströndina í Sara-
sota í Flórída og dvelja þar alltaf vor
og haust í nokkrar vikur í senn. Þau
hjónin hafa alla tíð verið mjög sam-
stiga í að hreyfa sig og má þar nefna
sund, gönguferðir, skíði og hjól-
reiðaferðir.
Óttarr gekk í Frímúrararegluna
snemma, árið 1974, og er í stúkunni
Eddu.
Fjölskylda
Eiginkona Óttars er Ingrid Elsa
Halldórsson, f. 6.6. 1943, meðeigandi
Óttarr Arnar Halldórsson stórkaupmaður og framkvæmdastjóri – 80 ára
Frímúraraball Óttarr gekk í Frímúrararegluna 1974. Þau hjónin hafa alla
tíð tekið virkan þátt í leik og starfi reglunnar og eru hér á leiðinni á ball.
Kynntist konunni á Gullfossi
Fjölskyldan Óttarr og Ingrid með dætrum sínum og fjölskyldum þeirra.
Frá vinstri: Óttarr Bergmann, Ólafur, Esther, Alexandra Ingrid, Leifur, Ír-
is, Matthías Dagur og Þorsteinn Arnar. Óttarr og Ingrid fremst á myndinni.
Í dag eiga
hjónin Erna
Magnúsdóttir
og Gunnar
Páll Jakobs-
son 50 ára
brúðkaups-
afmæli. Þau
gengu í hjóna-
band 7. nóv-
ember 1970 í Garðakirkju á Álftanesi. Lengst af
bjuggu þau í Hafnarfirði en búa nú í Reykjavík.
Erna og Gunnar eiga fjögur börn og átta barna-
börn.
Gullbrúðkaup
Til hamingju með daginn
30 ára Heiðdís ólst
upp í Reykjavík en býr
núna í Kópavogi. Heið-
dís er leiðbeinandi á
ungbarnaleikskól-
anum Korpukoti í
Grafarvogi. Hún hefur
mikinn áhuga á börn-
um, hreyfingu og samskiptum við fjöl-
skyldu og vini. Fjölskylduútilegur eru
mjög vinsælar.
Maki: Anton Bjarni Alfreðsson, f. 1990,
ljósmyndari og vinnur í ljósmynda-
vöruverslun.
Barn: Íris Emilía Jónasdóttir, f. 2015.
Foreldrar: Anna Lóa Sigurjónsdóttir, f.
1968, rekstrarstjóri Pizza Hut í Smára-
lind, og Gunnar Árnason, f. 1966, hljóð-
maður.
Heiðdís
Gunnarsdóttir
30 ára Tandri ólst upp
í Kópavoginum en býr í
Reykjavík núna. Tandri
er dreifingarstjóri hjá
MS Ís, en er núna í
fæðingarorlofi og er
menntaður sagnfræð-
ingur. Sem stendur er
hann að flísaleggja baðherbergið. Helstu
áhugamál Tandra eru bóklestur, tónlist
og útivist og öll hreyfing.
Maki: Drífa Atladóttir, f. 1981, eigandi
Jógastúdíós, er jógakennari og rekur
netverslun með jógavörur.
Börn: Kjalar, f. 2016, og Móa, f. 2019.
Foreldrar: Halldór Valdimarsson, f.
1950, vinnur á þjónustuskrifstofu FS, og
Elísabet Hákonardóttir, f. 1952, fv. flug-
freyja. Þau búa í Kópavogi.
Stefán Tandri
Halldórsson