Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Árið 1986 unnu um 2.000 manns í
ullariðnaði á Íslandi. Í dag er starfs-
mannafjöldinn undir 100.
Páll Kr. Pálsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Glófa/VARMA, sem
framleiðir alls kyns ullarvörur, eink-
um úr íslenskri ull, er ómyrkur í máli
er hann ræðir um hvernig Íslend-
ingar hafi tapað samkeppnishæfni
sinni í þessum iðnaði sem og fleiri
greinum iðnaðar. Hann segir geng-
issveiflur íslensku krónunnar hafa
verið iðnaðinum dýrkeyptar, sem og
menninguna á atvinnumarkaði, sem
sé ekki á pari við samkeppnislöndin.
Hér fái atvinnurekendur t.d. mun
færri virka vinnutíma frá hverjum
starfsmanni á mánuði en í helstu
samkeppnislöndum okkar og launa-
tengd gjöld, einkum tryggingagjaldið
og greiðslur í lífeyrissjóði, séu of há.
Með því að lækka þetta mætti hækka
það sem fólk fær útborgað.
Eins og Páll útskýrir þá hefur gef-
ið á bátinn hjá Glófa/VARMA vegna
faraldursins. Félaginu hefur þó tekist
að snúa vörn í sókn með framleiðslu á
vörum úr lambsullarbandi, sem séu
mýkri en áður hefur þekkst hér á
landi. „Það rættist svolítið úr við-
skiptum okkar í júlí og ágúst,“ segir
Páll, en félagið framleiðir allar sínar
vörur í Ármúla í Reykjavík. „Okkar
markaður er annars vegar erlendir
ferðamenn og hins vegar Íslend-
ingar.“
Eins og Páll útskýrir er fyrrnefndi
markaðurinn nú í skötulíki. „Ferða-
menn eru í kringum 65% af veltu
hvers árs.“
Páll brást við faraldrinum með því
að skala niður alla starfsemi fyrir-
tækisins og nýta sér hlutabótaleiðina
og stuðningslán. „Ég sé fram á 55%
veltuminnkun á milli áranna 2019 og
2020.“
Þriggja ára þróunarvinna
Lambsullarbandið er afrakstur
þriggja ára þróunarvinnu með Ístex.
„Við pöntuðum fjögur tonn í haust og
framleiðslan úr því gengur mjög vel.
Við erum komin með þetta band í
fullt af VARMA-vörum, m.a. vörur
sem við höfum hingað til notað erlent
band í.“
Páll hófst líka handa við að kynna
bandið fyrir hönnuðum og sérvöru-
aðilum og árangurinn hefur ekki látið
á sér standa. „Allir hafa hrifist af
mýkt lambsullarbandsins og pantanir
frá stórum aðilum hafa skilað sér. Við
erum komin með nokkuð góða verk-
efnastöðu til jóla. Núna skiptir sköp-
um að halda félaginu á floti. En óviss-
an snýst um fyrstu mánuði næsta árs,
mánuðina sem erlendir ferðamenn
hafa staðið undir nánast öllum
tekjum fyrirtækisins.“
Til viðbótar við góðar viðtökur á
lambsullarbandinu hefur lægra gengi
krónunnar reynst fyrirtækinu hag-
fellt. „Það er orðið mun dýrara að
láta framleiða fyrir sig erlendis, eins
og margir hafa gert.“
Páll segir að árið 2019 hafi gengið
verið orðið allt of sterkt og fyrirtækið
átt í stökustu vandræðum með að
keppa við ullarvörur framleiddar í
Asíu og Eystrasaltsríkjunum. Á þeim
tíma hafi hann hugleitt að flytja verk-
smiðjuna til útlanda.
Páll segir að mikilvægt sé á næstu
árum að stýra gengi krónunnar svo
Íslendingar missi ekki allan iðnað úr
landi. Hann telur gengið nú vera ná-
lægt jafnvægisgengi.
Snúa vörn í sókn með
mjúku lambsullarbandi
Morgunblaðið/Eggert
Framleiðsla Páll segir að allir hafi hrifist af mýkt lambsullarbandsins og pantanir frá stórum aðilum skilað sér.
Iðnaður
» Hönnuðir og sérvöruaðilar
hafa tekið bandinu mjög vel.
» Gengi krónu er nálægt jafn-
vægisgengi.
» Vinnuveitendur greiða fyrir
um 2.000 vinnustundir á hvert
stöðugildi á ári, en fá af því að-
eins um 1.300 virka tíma.
» Eina stóra verksmiðjan sem
framleiðir úr íslenskri ull.
» Unnu vörur fyrir Ófærð 2.
55% tekjusamdráttur 65% tekna frá ferðamönnum Gengið hagstætt núna
7. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.42
Sterlingspund 181.06
Kanadadalur 105.96
Dönsk króna 22.01
Norsk króna 15.076
Sænsk króna 15.94
Svissn. franki 152.9
Japanskt jen 1.3345
SDR 196.77
Evra 163.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.4426
Hrávöruverð
Gull 1916.8 ($/únsa)
Ál 1877.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.96 ($/fatið) Brent
● Icelandair Gro-
up flutti 7.502 far-
þega milli landa í
októbermánuði og
eru það 98%
færri farþegar en í
sama mánuði í
fyrra. Þá var
sætanýting í
ferðum þess í
október aðeins
35,7% og lækkaði
úr 85,2% í októbermánuði 2019.
Framboð félagsins dróst saman um
96% miðað við fyrrgreint samanburð-
artímabil og nam 47,3 milljónum sæt-
iskílómetra.
Það sem af er ári hefur Icelandair
flutt 741,5 þúsund farþega milli landa
og er það 81% minna en yfir fyrstu
10 mánuði ársins 2019.
Innanlandsflug hefur ekki dregist
eins mikið saman. Farþegar á þeim
vettvangi voru 6.751 í október og
fækkaði um 72% frá sama mánuði í
fyrra. Í ár hafa 111.694 farþegar tekið
sér far með innanlandsfluginu það
sem af er ári og nemur samdrátt-
urinn milli ára 54%. Það sem af er ári
hafa vöruflutningar fyrirtækisins
dregist nokkuð saman eða um 16%
og var hlutfallið svipað í október eða
15%.
7.502 farþegar hjá Ice-
landair í októbermánuði
Flugstarfsemin er í
raun í lamasessi.
STUTT
Einkahlutafélagið Árni Oddur Þórð-
arson ehf. hagnaðist um 512,7 millj-
ónir króna í fyrra. Félagið er að öllu
leyti í eigu Árna Odds Þórðarsonar,
forstjóra Marel. Árni Oddur Þórðar-
son ehf. heldur á 1,3% hlut í Eyri In-
vest sem er stærsti einstaki hluthaf-
inn í Marel. Eyrir Invest hagnaðist
um 327 milljónir evra á nýliðnu ári
sem er jafnvirði nærri 50 milljarða
króna. Árni Oddur Þórðarson á hins
vegar stærri hlut í Eyri Invest en
þann sem vistaður er í Árna Oddi
Þórðarsyni ehf. og nemur heildar-
eign hans um 17,9%. Samkvæmt árs-
reikningi félagsins var það gengis-
munur hlutabréfa, en það er
mismunur á kaupverði og bókfærðu
verði hlutarins en líkt og hagnaður
Eyris Invest vitnar um hækkuðu
bréf Marels gríðarlega í verði á ný-
liðnu ári.
Gríðarleg hækkun Marels
Eignarhlutur Árna Odds Þórðar-
sonar ehf. í Eyri Invest var bókfærð-
ur á 1.204 milljónir króna í árslok
2019 og hafði aukist úr 633,8 millj-
ónum árið áður. Eigið fé félagsins er
hins vegar aðeins 36,9 milljónir
króna en hafði verið neikvætt sem
nam 475,7 milljónum króna í árslok
2018. Skuldir við lánastofnanir eru
936,2 milljónir og fram kemur í skýr-
ingum með reikningnum að þær séu
í íslenskum krónum með einni af-
borgun höfuðstóls á árinu 2022.
Vextir af þeim eru breytilegir og
greiðast árlega og námu þeir 76,6
milljónum króna á árinu 2019. Eig-
andi félagsins hefur sett tryggingar
fyrir láninu með handveði í eignar-
hlutum þess í Eyri Invest ásamt
sjálfskuldarábyrgð.
Morgunblaðið/Eggert
Marel Árni Oddur Þórðarson hefur
verið forstjóri frá 2013.
Hagnast um hálf-
an milljarð króna
Félag sem held-
ur á 1,3% hlut í
Eyri Invest ehf.