Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU Gunnar Kristjánsson Grundarfirði Grundarfjörður er vettvangur átta þátta sjónvarpsþáttaraðar sem væntanlega kemur fyrir almenn- ingssjónir árið 2022. Það er kvik- myndafyrirtækið Glassriver sem stendur að þessari þáttaröð ásamt erlendum aðilum. Myndataka, aðallega utanhúss, hefur staðið yfir frá því í byrjun september en lauk um síðustu mán- aðamót. Þáttaröðin ber vinnuheitið Vitjanir og fjallar um líf söguper- sóna í litlu sjávarþorpi. Það verður spennandi að sjá hvernig til hefur tekist þegar þættirnir birtast á skjánum en vænta má að kunn- ugleg andlit birtist í einhverjum senunum sem gerast í þorpinu Hólmafirði.    Það má segja að tilkoma þessa kvikmyndahóps hafi verið himna- sending þeim sem boðið hafa upp á gistingu í Grundarfirði því þeir sem að verkinu komu, fyrir utan leik- arana sjálfa, voru 40-50 manns sem dvöldu hér allan tímann meðan á tökum stóð og það var nóg af auðu gistirými fyrir alla.    Norðurgarður hefur lengst um 130 metra á einu ári og hefur Borg- arverk skilað af sér sínum verk- hluta en Almenna umhverfisþjón- ustan í Grundarfirði tekið að sér næsta verkhluta sem er m.a. frá- gangur á bryggjukanti auk þess að ganga frá viðeigandi lögnum og steypu á þekju og er áætlað að þessum verkhluta ljúki næsta sum- ar og höfnin verði þá tilbúin til að taka á móti fleiri og stærri skipum. Hvort þar á meðal verði einhver skemmtiferðaskip verður tíminn að leiða í ljós.    Rökkurdagar hafa verið árleg- ur viðburður hér til fjölda ára. Í ár voru þeir með breyttu sniði í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu en vörpuðu samt birtu og yl í hjarta íbúa en þar bar hæst söngstund sem varpað var út á youtube. Þar kom berlega í ljós enn og aftur hversu Grundarfjörður er ríkur að hæfileikafólki á sviði sönglistar. Slíkt væri þó ekki hægt ef tæknikunnátta væri ekki fyrir hendi en þar munar mest um hljóð- tæknimanninn og upptökustjórann Þorkel Mána Þorkelsson sem er al- gjör listamaður á þessu sviði. Hann er einnig organisti við Grund- arfjarðarkirkju, það má sjá á messuhaldi á Covid-tímum en mess- ur og helgistundir eru nú sendar út á youtube nánast hvern sunnudag.    Vélsmiðja Grundarfjarðar hefur í sumar verið að stækka hús- næði sitt með viðbyggingu og var sú aðstaða tekin í notkun um síð- ustu helgi. Í hinu nýja húsnæði verður almennt bifreiðaverkstæði með allri almennri verkstæðisþjón- ustu en varahlutaverslun verður þar sem bifreiðaþjónustan var áður. Vélsmiðjan er til húsa austast í bænum, inn við steypustöð Al- mennu umhverfisþjónustunnar.    Jólavertíð fer nú senn af stað og kannski fyrr en ella vegna hins undarlega ástands sem við búum við á þessum tímum. Grundfirskir þjónustuaðilar hafa tekið höndum saman og benda fólki á að styðja við þá sem sinna þjónustu við íbúana hver á sínu sviði og hleypa jólavertíðinni af stokkunum nú um helgina. Sjónvarpsþættir teknir upp í Hólmafirði Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður Tökur hafa staðið yfir síðustu vikur á sjónvarpsþáttaröð sem ber vinnuheitið Vitjanir og gerist í litlu sjávarþorpi. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Þorgerður J. Einarsdóttir, prófess- or í kynjafræði við stjórnmálafræði- deild Háskóla Íslands, og fulltrúar á vegum Textílmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eru meðal þátttakenda í alþjóðlega verk- efninu CENTRINNO sem nýlega hlaut 8,2 milljóna evra styrk úr Horizon 2020-áætlun ESB, jafnvirði um 1,3 milljarða króna. Í hlut Háskóla Íslands koma tæp- ar 28 milljónir en heildarstyrkur ís- lensku þátttakendanna er í kringum 130 milljónir íslenskra króna. Að verkefninu standa 26 stofnanir og fyrirtæki í níu löndum og verða miðstöðvarnar í Amsterdam, Barce- lona, Genf, Kaupmannahöfn, Mílanó, París, Tallinn, Zagreb og á Blöndu- ósi. Þar verður í Textílmiðstöð Ís- lands, gamla Kvennaskólanum, sett á fót miðstöð nýsköpunar og þekk- ingar í stafrænni textílframleiðslu sem byggð er á menningararfi og handverkskunnáttu íslenskra kvenna með sérstakri áherslu á ull og umhverfisvæna nýtingu hennar. Verkefnið hófst 1. september 2020 og stendur yfir til 2024. Því er stýrt frá Mílanóborg. Þorgerður J. Einarsdóttir mun ásamt Laufeyju Axelsdóttur, ný- doktor í kynjafræði, kanna og kort- leggja umgjörð, bakgrunn og sögu textíliðnaðar á Íslandi. Í því felst að skoða núverandi landslag á sviði textíls, þróun í sögulegu samhengi, samfélagslegt umfang og mikilvægi, menningarlegar rætur og kynja- sjónarmið. M.a. verður spurt hvern- ig textíllinn og handverkið geta tek- ið skrefið inn í framtíðina á umhverfisvænan og sjálfbæran hátt, eins og fram kemur í tilkynningu frá HÍ. Blönduós Miðstöð nýsköpunar verður í Textílmiðstöð Íslands. Miðstöð nýsköpunar í textíliðnaði „Núna erum við að bíða eftir því að stjórnvöld komi hressilega til móts við greinina svo að það fari ekki illa, sérstaklega hjá fyrirtækjum í veit- ingarekstri í miðbænum,“ segir Birgir Örn Birgisson, forstjóri Dom- inós á Íslandi. Hann bindur vonir við að Samtök fyrirtækja á veitinga- markaði geti beitt sér á þeim erfiðu tímum sem fram undan séu. Stærstu aðilarnir í geiranum séu í samtökun- um, sem létu KPMG vinna skýrslu um launakostnað í veitingageiran- um. Birgir segir að það hafi komið sér mest á óvart í skýrslunni hversu veitingageirinn var á erfiðum stað áður en kórónuveirufaraldurinn hófst. „Hann var kominn í mjög þrönga stöðu en það er augljóst að Covid-19 er búið að fara með grein- ina á mun verri stað,“ segir Birgir Örn en miðað við skýrsluna lítur út fyrir að staðan verði enn verri eftir tvö ár þegar lífskjarasamningurinn hefur runnið sitt skeið. Hann segir að það hafi einnig verið athyglisvert í skýrslunni að hér á landi séu langhæstu launin í veit- ingageiranum miðað við í hinum nor- rænu ríkjunum. „Það sýnir hvað það er skringilega gefið í þessu öllu sam- an.“ Greindur var launakostnaður í veitingageiranum til að varpa ljósi á launa- og afkomuþróun í geiranum frá árinu 2014 og draga saman sér- stöðu veitingarekstrar. Þar kemur fram að veitingageirinn á Íslandi hefur ekki náð að velta launahækk- unum út í verðlag og því má áætla að launahækkanir næstu ára sem voru samþykktar í lífskjarasamningnum muni lækka enn frekar arðsemi af veitingarekstri. Hann segir veitingastaði hafa komið mjög illa út úr síðustu kjara- samningum. „Við höfum góðan skiln- ing á því að það þurfi að hækka lægstu launin en að sama skapi er það augljóst af lestri skýrslunnar að það var gengið of langt hvað varðar getu greinarinnar til að borga þau laun,“ bætir hann við. Nánar er fjallað um þetta á mbl.is. freyr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Veitingahús Erfiðir tímar eru fram undan í veitingageiranum á næstunni. Þröng staða blasir við veitingahúsum  Kjarasamningar reyndust þungir Hof 1 Austurhús, Öræfum Fasteignamiðstöðin er með til sölu jörðina Hof 1 Austurhús. Hof 1 Austurhús á um 1/5 hluta heildarjarðarinnar. Húsakostur er mjög glæsilegt einbýlishús og sumarhús. Einbýlishúsið er um 120,1 m2 auk þess sambyggt sérstakt gestaherbergi 28 m2 og geymsla 10,2 m2. Einbýlishúsið skiptist í alrými með eldhúsi, 2 svefnherbergi, bað- herbergi og þvottahús. Sumarhúsið er 32,2 m2 stakstætt fullbúið hús með 1 svefnherbergi, alrými með eldhúskróki og baðherbergi. Hlíðasmára 17 - Til leigu/sölu Til leigu 181.7 m2 verslunarhúsnæði og/eða skrifstofuhúsnæði á götuhæð. Húsnæðið er laust. Sérinngangur inn í rýmið á tveimur stöðum frá götu. Húsnæðið skiptist upp í móttöku við aðalanddyri, ásamt þjónusturými sem er með litlu eldhúsi og salerni. Við mót- töku er aðgengi að góðu opnu rými með góðum gluggum. Á bak við móttöku er rúm- góður lager, salerni, ræsting og skrifstofa. Á lager eru lagerdyr og góð aðkoma til að taka á móti vörum. Mögulegt er að skipta húsnæðinu upp í tvær einingar til útleigu. Lækargata 4, skrifstofuhúsnæði Áhugavert skrifstofuhúsnæði á annari hæð við Lækjargötu 4 í Reykjavík auk þess tvö bílastæði í lokaðri bílageymslu. Um er að ræða sex skrifstofuherbergi, elhúskrók og snyrtingu. Lyfta og vel um gengin sameign. Tvö stæði í lokuðu bílastæðishúsi. Gæti verið laust við kaupsamning. Tilboð óskast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.