Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 591063 KIA Picanto LX ‘16, beinskiptur, ekinn 100 þús. km. Verð: 599.000 kr. 550165 Toyota C-hr c-ult ‘19, sjálfskiptur, ekinn 50 þús. km. Verð: 3.690.000 kr. 446408 Opel Corsa Enjoy ‘15, beinskiptur, ekinn 117 þús. km. Verð: 690.000 kr. Opel Astra Innovation ‘18, beinskiptur, ekinn 80 þús. km. Verð: 2.190.000 kr. 446452 Opel Crossland X Innovation ‘18, sj.skiptur, ekinn 29 þús.km. Verð: 2.890.000 kr. 590964 446230 446525 446471 BMW X5 Xdrive ‘11, sjálfskiptur, ekinn 187 þús.km. Verð: 3.490.000 kr. 590500 112900 Notaðir bílar Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Bílasala Suðurnesja Sími: 420 3330 Opnunartímar: Virka daga 12-17Meira úrval á notadir.benni.is Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 * Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. Öryggi á góðum bíl í vetur! Nissan Navara Np300 Tekna ‘17, sj.skiptur, ekinn 103 þ. km. Verð: 5.590.000 kr. Jeep Grand Cherokee Laredo ‘09. sj.skiptur, ekinn 139 þús. km. Verð: 1.690.000 kr. SsangYong Tivoli DLX ‘18, sjálfskiptur, ekinn 9 þús. km. Verð: 2.990.000 kr. SsangYong Rexton DLX ‘18, sjálfskiptur, ekinn 53 þús. km. Verð: 4.790.000 kr. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Kristinn H. Þorsteinsson neitaði því ekki að titla mætti hann sem bankastjóra í birkibankanum þeg- ar haft var samband við hann í vikunni. Hann er framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Kópavogs og í húsakynnum félagsins í Guð- mundarlundi hefur verið mynd- arlegur bingur af fræjum sem bíða þess að vera sáð víða um land. Þar var tekið á móti um 30 milljónum fræja af höfuðborg- arsvæðinu, sem af gætu sprottið milljónir birkitrjáa ef öll skilyrði verða fræinu hagstæð en árang- urinn kemur í ljós á næstu árum. Kristinn er ánægður með árang- urinn í landsátaki í söfnun birki- fræja í haust og segist sannfærður um að framhald verði á með mik- illi þátttöku almennings. Fjölskyldur og hópar „Mjög mikið var um að fjölskyldur, vinnustaðahópar og skólafólk legði okkur lið. Ótrúlega margir voru tilbúnir að taka þátt í þessu verkefni til að klæða landið skógi og endurheimta fyrri gæði og um leið vinna að heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna,“ seg- ir Kristinn um þessa nýju almenn- ingsíþrótt. Tugir sjálfboðaliða dreifðu fræi í landi Kópavogsbæjar í Selfjalli við Lækjarbotna tvo laugardaga í haust. Kristinn segir að aft- urkippur hafi komið í sáningu vegna kórónuveikinnar því ekki hafi verið hægt að stefna fólki saman í þeim aðstæðum. Þráðurinn verður tekinn upp við sáningu næsta vor í samvinnu Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar. Kristinn segir að slíkt hið sama verði gert víða á landinu og þá er talsverð inni- stæða til að taka út úr fræbank- anum. Fræin sem eftir eru verða þurrkuð og geymd í kæli eða frysti í bækistöðvum Landgræðsl- unnar. Einstaklingar og hópar dreifðu fræi á eigin vegum víða um land í haust. Til að mynda söfnuðu og dreifðu margir skólahópar, allt frá leikskóla upp í framhaldsskóla, og átján Lionsklúbbar réðust í fræ- söfnun og dreifingu nú í haust. Nú þegar hefur verið sáð tölu- verðu af fræi á Hekluskógasvæð- inu. Í ráði er að nýta birkifræ þar og á Hólasandi samhliða kjöt- mjölsdreifingu í svæði sem auðguð hafa verið með gori eða moltu. Mikið var af birkifræjum í ár, sérstaklega á Suður- og Vest- urlandi. Áberandi var hversu mikið fræ var á tilteknum svæðum, svo sem í Þórsmörk og í Steinadal í Suð- ursveit og á birki ættuðu úr Bæj- arstaðaskógi. Sums staðar var lítið sem ekkert fræ að finna, sér- staklega á stöðum þar sem birki er mjög lágvaxið og kræklótt svo sem í Hítardal á Vesturlandi. Möguleg skýring er sú að eftir því sem birki er meira blandað fjall- drapa treystir það meira á dreif- ingu og endurnýjun með rótar- skotum frekar en með fræi, samkvæmt upplýsingum frá Skóg- ræktinni. Fræsöfnunarverkefnið var skipulagt af Landgræðslunni og Skógræktinni í samstarfi við Bón- us, Terra, Prentmet Odda, Lions og Landvernd. Síðar komu ýmsir aðrir aðilar myndarlega að verk- efninu, til að mynda Skógrækt- arfélag Kópavogs og Kópavogs- bær. Mikið af fræjum í bankanum  Ánægjulegt og árangursríkt átak við söfnun birkifræja í haust  Gæti skilað milljónum birkitrjáa ef skilyrði verða góð  Gott fræár á Suður- og Vesturlandi Ljósmynd/Kristinn Þorsteinsson Verk að vinna Ívar Kristinsson og Fany Larota Catunta tóku þátt í birkiverkefninu ásamt dætrum sínum þremur; Gabrelíu Sif, Andreu Lind og Júlíu Líf, og sáðu birkifræi í Selfjalli. Sú yngsta í hópnum var aðeins tveggja mánaða. Morgunblaðið/Eggert Bankastjórinn Kristinn Þorsteinsson við bing af fræjum úr söfnun haustins. Sjávarútvegsráðherrar Íslands og Færeyja náðu fyrr í vikunni sam- komulagi um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lög- sögu fyrir næsta ár og um gagn- kvæman aðgang að veiðum í lög- sögu landanna fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna. Flest er með líkum hætti og í síðasta samningi þjóðanna hvað varðar kolmunna, síld og loðnu. Heimildir Færeyinga til veiða á botnfiski verða þær sömu og í ár eða 5,600 tonn og hámark þess sem veiða má af þorski verður óbreytt eða 2,400 tonn. Vegna bágs ástands keilustofnsins voru ráðherrarnir sammála um að keiluafli Færeyinga yrði minni en verið hefur. Heimildir þeirra til veiða á keilu lækka því úr 650 tonnum í 400 tonn. Samið við Færey- inga um fiskveiðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.