Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 56

Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 56
25% afsláttur af völdum vörum Kringlukast 552 2201 Söngkonan Hera Björk og meðleikari hennar, Benni Sig., stjórna samsöng frá menningarhúsinu Hannesarholti á morgun, sunnudag, klukkan 14 og vegna samkomu- bannsins verður hann í streymi á fésbókarsíðu Hann- esarholts. Hvetja þau alla til að taka undir í söngnum heima í stofu. Í Hannesarholti hefur undanfarin ár verið hlúð að sönghefðinni með því að bjóða upp á fjöldasöng í salnum Hljóðbergi tvisvar í mánuði, með ólíkum söngv- urum. Hera Björk og Benni hyggjast syngja saman mörg sín eftirlætislög við dillandi harmónikkuleik. Hera Björk og Benni Sig. stjórna samsöng í streymi Hannesarholts LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Þetta var bara lánssamningur hjá Breiðabliki og ég er komin aftur til Keflavíkur. Ég hef ekki ákveðið hvað ég ætla að gera en mér finnst mjög ólíklegt að ég spili með Keflavík næsta sumar,“ segir Sveindís Jane Jóns- dóttir, landsliðskona í knattspyrnu, en hún er í ítarlegu viðtali í blaðinu í dag. Sveindís Jane varð efst í einkunnagjöf Morgunblaðs- ins í Pepsí Max-deildinni, M-gjöfinni, annað árið í röð og hún var einnig kjörin besti leikmaður Íslandsmótsins af leikmönnum deildarinnar. »48 Sú besta ekki tekið ákvörðun varðandi næsta keppnistímabil ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hjónin Dýrleif Hallgríms og Gunnar Ólafsson hafa verið gift lengst ís- lenskra hjóna eða í 76 ár og 157 daga, samkvæmt samantekt Jón- asar Ragnarssonar, sem heldur úti vefnum Langlífi á Facebook. „Þetta er eina metið mitt,“ segir Dýrleif forviða, þegar henni er sagt frá því. „Ég skil þetta ekki en þetta er þokkalegur tími,“ eru fyrstu við- brögð Gunnars. „Ég sem reiknaði ekki með að ég myndi lifa stríðið af.“ Aðeins fjögur önnur dæmi eru um að hjón hafi verið gift í 75 ár eða lengur. Agnar Bjarnason og Krist- rún Guðmundsdóttir voru gift í 76 ár og 156 daga, Gunnar Jónsson og Dallilja Jónsdóttir í 75 ár og 299 daga, Kristján Kristjánsson og Svanfríður Jónsdóttir í 75 ár og 297 daga og Sigurður Magnússon og Ingibjörg Daðadóttir í 75 ár og 140 daga. Hjónavígslan fór fram í kirkjunni á Þingeyri við Dýrafjörð 3. júní 1944. Dýrleif var þá 21 árs og Gunn- ar að verða 23 ára. Hann var stýri- maður á togaranum Júpiter og sigldi með aflann til Fleetwood á Eng- landi. Einu sinni stungið inn „Ég lenti einu sinni í fangelsi á stríðsárunum, var haldið yfir nótt en sleppt svo án skýringa og ekki var ég beðinn afsökunar.“ Hann segir að flugvél hafi verið skotin niður í grennd við skipið og þegar þeir hafi komið til Fleetwood hafi verið spurt hver kynni á byssu um borð. „Ég sagðist halda að ég kynni á hana og því var ég tekinn, þeir héldu að við hefðum skotið vélina niður.“ Dýrleif segist hafa haft nóg að gera við að ala upp fjögur börn og ekki óttast um mann sinn á stríðs- árunum. „Ég átti framtíðina fyrir mér og 21 árs velti ég því ókomna ekki fyrir mér heldur naut hvers dags. Hver stund var góð stund og við nutum þess að hittast aftur eftir hverja siglingu hans.“ Gunnar fór oft á síld með föður sínum, skipstjóranum á Eldborg, en var á togurum þess á milli. „Hann var mikill síldarmaður, enginn troll- aramaður, og maður þénaði vel á síldinni,“ rifjar Gunnar upp, en hann tók við skipstjórninni af föður sín- um. Ekki voru sömu uppgrip á Eld- borg eftir að hún var leigð 1952 til að sinna vöru- og fólksflutningum á milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness, á Hvítá og Akraborg- inni, sem tók við þjónustunni 1956. „Það var engin sjómennska,“ segir hann, en Gunnar var fyrst stýrimað- ur og síðar skipstjóri á síðastnefnda skipinu. Eftir að Gunnar fór í land stund- uðu hjónin síldarsöltun í Mjóafirði í tvö sumur. „Þetta dróst fram á haustið og annað árið komum við heim á Þorláksmessu en jólin gengu samt sinn vanagang,“ segir Dýrleif. „Þetta voru tvö góð ár en það vit- lausasta sem hægt var að gera því þarna var ekkert til neins,“ segir Gunnar. Dýrleif segir að þau hafi átt gott og áfallalaust líf, hún lesi og grípi í prjóna, en hafi ekki verið upptekin við að tæknivæðast, hafi hvorki áhuga á því að vita allt um náungann né segja allt um hann. „Einu tækin sem ég glími við eru síminn, sjónvarpið og útvarpið, og hrærivélin ef mér dettur það í hug. Einveran er samt hundleiðinleg,“ segir hún og vísar til samkomu- bannsins í faraldrinum og þess að Gunnar flutti á Hrafnistu fyrir skömmu. „Það þýðir samt ekkert annað en að vera bjartsýn.“ Ljósmynd/Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir Met Gunnar Ólafsson og Dýrleif Hallgríms á 75 ára brúðkaupsafmælinu. Lengsta hjónabandið  Dýrleif og Gunnar hafa verið gift í 76 ár og 157 daga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.