Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Andrés Magnússon andres@mbl.is Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Joe Biden verði 46. forseti Banda- ríkjanna í janúar, þrátt fyrir að Don- ald Trump Bandaríkjaforseti dragi kosningaúrslit í sumum ríkjum í efa og fyrir liggi dómaraúrskurður um að póstatkvæði í Pennsylvaníu séu höfð til hliðar, reynist þau hafa áhrif á landsvísu. Atkvæðamunurinn er svo mikill, að einstaklega ósennilegt er að endurtalning eða endurmat á gildi atkvæða hafi þar áhrif á. En þó svo að flestir telji sigur Bid- ens í höfn, þá verður ekki hjá því lit- ið, að þar var mjög mjótt á munum og í ljós kom að Donald Trump átti mun meiri stuðning og víðtækari en flestir höfðu gert ráð fyrir í kosn- ingabaráttunni, bæði stjórnmála- skýrendur og skoðanakönnuðir. Það veikir umboð Bidens. Biden sigraði en það gerðu repúblikanar líka Demókratar fagna því að Trump sé á förum, en þeir eru samt hnuggn- ir yfir úrslitunum. Mörgum þeirra brá yfir hve naumlega forsetinn féll og fékk raunar fleiri atkvæði en Bar- ack Obama í miklum kosningasigri sínum 2008. Repúblikanar unnu óvænt sæti í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings, en verra þykir demókröt- um þó að hafa ekki náð meirihluta í öldungadeildinni. Eins höfðu þeir búist við að fella meirihluta repúblik- ana í 10-14 ríkjaþingum, en það gekk síður en svo eftir. Reyndar er tæplega hægt að lesa annað úr úrslitunum en að dágóður hluti kjósenda hafi hafnað Trump en ekki Repúblikanaflokknum. Sennilega var enn meira um það meðal hefðbundinna kjósenda en sú tala segir til um, því kjörsókn var mun meiri en vant er og rannsóknir benda til þess að meðal hinna „nýju“ kjósenda hafi ekki aðeins verið á ferðinni fólk, sem vildi losna við Trump. Margir hafi kosið Trump með hálfum huga til að láta í ljós andstöðu við hugmyndir menningar- byltingarsinna á vinstri jaðri Demó- krataflokksins. Verður Joe Biden þó seint sakaður um að vera vinstriöfgamaður. Öðru nær, hann er miðjumoðari og mask- ínupólitíkus með gamla laginu, sem hafði varla fyrir því að kynna stefnu- mál sín í kosningabaráttunni, svona fyrir utan að minna á að hann væri ekki Donald Trump. Sem virðist hafa dugað til. Það kann hins vegar að veitast honum flóknara í embætti. Vinstri vængurinn í flokknum, með sjálfa AOC, Alexandriu Ocasio-Cortez, í broddi fylkingar, lítur svo á, að um- boð sitt og áhrif hafi aukist mjög í kosningunum, þó að erfitt sé að lesa það úr kosningaúrslitum. Að hluta til er títtnefndum könnunum um að kenna, sem spáðu Biden afgerandi kosningasigri, sem svo kom ekki. Reynir á sáttfýsi Bidens Árangur repúblikana mun þó reynast honum þyngri í skauti í upp- hafi, sérstaklega í öldungadeildinni. Demókratar hafa að vísu fræðilegan möguleika á að merja jafnan hlut þar með sigri í aukakosningum í Georgíu í janúar, en þá fær varaforsetinn oddaatkvæði í deildinni. Það er ekki gefin veiði. Biden verður því mögu- lega fyrsti forseti Bandaríkjanna síðan George Bush eldri tók við emb- ætti 1989, sem ekki hefur báðar deildir þingsins á sínu bandi í upp- hafi kjörtímabils. Það mun skipta verulegu máli fyr- ir nýja forsetann, sem þarf að bera ráðherraefni sín undir öldungadeild- ina þeim til staðfestingar. Þar mun reyna mjög á yfirlýsta sáttfýsi Bid- ens, sem segist vilja græða sárin á þjóðarlíkamanum. Vill hann teygja sig yfir ganginn í þinginu og semja við repúblikana um ráðherrana og þá að líkindum um stefnuáherslur líka? Það kæmi repúblikönum líka vel að sýna sáttfýsi. Flokkurinn þarf að jafna sig eftir Trump og taka stefnu sína til endurskoðunar. Að því leyti koma úrslitin því repúblikönum ekki illa, þeir þurfa næði til þess að koma sér í lag fyrir kosningarnar 2024, þegar Kamala Harris varaforseta- efni verður mjög sennilega forseta- frambjóðandi demókrata. Barátta Bidens rétt að byrja  Naumur sigur Joes Bidens veikir umboð hans  Repúblikanar héldu velli og vel það í þingi og ríkjum  Biden kann að þurfa að semja við repúblikana um ráðherralista  Reyna mun á sáttfýsi beggja flokka AFP Fagnað Frá vinstri: Douglas Emhoff, maður varaforsetaefnisins, Kamala Harris varaforsetaefni, Joe Biden forsetaefni og dr. Jill Biden eiginkona hans. Joe Biden 46. forseti Bandaríkjanna HELSTU STEFNUMÁL HVAÐ GERIST NÆST? 14 20 EMBÆTTISTAKA FORSETANS DESEMBER 2020 KJÖRMANNA- FUNDUR HALDINN Kjörmennirnir 538 kjósa forsetann í takt við kosninga- úrslit ríkja þeirra. Biden hefur tryggt sér meirihluta nema dómar gangi um annað JANÚAR 2021 Heimildir: AFP Photos/National Archives/vefsvæði frambjóðenda Hefur tvívegis áður sóst eftir embættinu, 1988 og 2008 LÖNG LEIÐ Fyrrum varaforseti Fyrrverandi öldunga- deildarþingmaður Sá elsti sem er kjörinn forseti Kamala Harris Öldunga- deildar- þingmaður fyrir Kalí- forníu NÆSTI VARAFORSETI Talin vinstri- sinnaðri en Biden Fyrsta konan og fyrst hörunds- dökkra í embætti varaforseta 56 ára Ég heiti því að verða forseti allra Bandaríkjamanna 77 ára Kórónuveiran: Ókeypis bóluefni til allra. Samræma skimunar- og smitrakningar- áætlun Byggja upp „nýtt bandarískt hagkerfi.“ Hækka lágmarkslaun í 15 dali á tímann Ganga á ný að Parísar- samkomu- laginu um loftslagsmál Setja reglur um ríkisborgararétt fyrir 11 milljónir óskráðra innflytjenda Endurreisa „forystu Bandaríkjanna“ í heiminum og styrkja tengsl Það er tímabært að græða sárin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.