Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-,�rKu Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Formála að bókinni skrifar Björn Ingólfsson, fyrrverandi skólastjóri á Grenivík, og segir þar meðal annars: „Þær voru ekki margar konurnar sem stóðu upp úr í fjöldanum ef litið er til fyrri alda. Þær voru þó til og minningu þeirra þarf að halda á lofti. Sú sem hér er til umfjöllunar var ekki venjuleg kona. Hún storkaði valdinu og lét hvorki háa né lága eiga nokkuð hjá sér, lét aldrei í minni pokann fyrir neinum. Ekki er auð- velt að bera sam- an öld Látra- Bjargar (1716- 1784), átjándu öldina, og þá tutt- ugustu og fyrstu. Þar eru tveir gjörólíkir heim- ar. En mannlegt eðli er þó harla líkt. Þeir sterku ráða, þeir veiku lúta. Karlaveldið var algjört og er enn töluverður veggur þótt vissu- lega séu farnar að koma í hann gluf- ur. Björg hjó í þann vegg. Hún á ennþá erindi við heiminn og þess vegna er bókin um hana nú gefin út aftur eftir sjötíu ár. Hér er að finna heillegustu heimild sem til er um Björgu og einnig stærsta safn ljóða hennar á einum stað. Sögusviðið er að stærstum hluta Látur, ysti bær á Látraströnd. Á Látraströnd og í Fjörðum, ystu byggðum Gjögraskaga, sem nú eru löngu farnar í eyði, voru á þessum tíma oft um 200 manns á 20 bæjum. Bærinn á Látrum var samt af- skekktur, jafnvel á þeirra tíma mæli- kvarða. Þaðan voru 7 km í Grímsnes og 9 km í Keflavík og gat orðið ófært í báðar áttir vikum saman yfir vet- urinn. Lífið byrjaði snemma að sýna Björgu í tvo heimana. Barn að aldri stóð hún uppi ein meðal vandalausra á þessum afslekkta bæ á Látra- strönd, skilin eftir og faðir hennar farinn. Hún hafði þá dvalið á þessu heimili með honum í þrjú ár og þekkti heimilisfólkið. Það þekkti hana ekki síður. Einhverjar töggur hefur það séð í þessu níu ára stúlku- barni, annars hefði hún verið send umsvifalaust yfir um fjörð á sína heimasveit. Á Látrum átti hún heima alla tíð síðan þótt hún færi víða á flakki sínu seinni hluta ævinn- ar enda festist nafn bæjarins við hennar. Látra-Björg. Björg var ekki af kotungum kom- in, báðir afar hennar voru prestar og í ættum hennar er að finna stór- bændur, presta og sýslumenn. Menntastétt þjóðarinnar. Faðir hennar, Einar Sæmundsson stúdent, var skáld gott en með óeirð í blóðinu og er að sjá að Björg hafi erft hvort tveggja. Af skáldskap hennar má ráða að hún hafi verið vel að sér, í það minnsta hafði hún orðaforðann í lagi og kunni að beita honum. Og nasa- sjón hafði hún af heimsbókmennt- unum. Hún vitnaði í Óvidíus, róm- verskt skáld sem lést árið 17, og hún gaf ríkum hrossabónda nafnið Guddi- lon eftir lítilfjörlegum manni í sögu Karlamagnúsar keisara. Hún gat leikið sér með bragar- hætti, dróttkvæði sem rímnahætti, og kunni að beita sléttuböndum þannig að þau breyttu merkingu hvort lesið er áfram eða afturábak. Og hún orti aldýr kimblabönd sem aðeins flinkustu orðlistamenn ráða við: „Uxann vaxinn exin loksins sax- ar, ýtar nýtir éta ket í vetur.“ Snillistökur Látra-Bjargar Brot úr í texta Helga Jónssonar: Margar af snillistökum Látra- Bjargar eru ortar við brimgarð Látrastrandar. Þannig kveðjur hún um hamfarir brimsins: Grundir, elfur, salt og sandar, sjós með dunum undir skelfur allt af fjandans ólátunum. Svo er sagt að Björg reri móti röskum karlmanni. Ætt Bjargar var stórlynd og stórskorin og svo var hún einnig. Hefur ægimáttur brims og bjargastrandar verið henni vel að skapi meðan kraftarnir brunnu og geðið logaði. Björg hefur kveðið kröftugustu lýsingar á dýrsta rími okkar skálda, um hamfarir sjóarins, fullar af gleði áreynslunnar, án alls ótta. Vísur Bjargar um siglingu og sjógang bera það ótvírætt með sér, að þær eru ort- ar í tvísýnum leik við hafið. Í eftirfarandi vísu gerir Björg sér gaman að öldunni og kallar hana frúna Blóðughöddu: Fald upp réttir föl á brún frúin Blóðughadda. Þetta líkingamál botnar hún með öðru. Þar sér lesandinn hryssu sem skeiðar tún og fellur freyðandi við skeiðs enda: Rennur sprettinn Ránar tún, Rafns á kletti brotnar hún. Formaður í Fjörðum hæddist að Björgu og kvað: Finnst á Hóli faldaeyk fallega skjót á láði. Hún er um dagmál heiman veik, hádegi að Botni náði. Vegurinn milli nefndra bæja er sem svarar 20 mínútna gangi. Björg kvað á móti: Latur maður lá í skut, latur var hann þegar hann sat, latur hreppir lítinn hlut, latur þetta kveðið gat. Sagt er að Björg rataði í ástar- ævintýr á ungum aldri. Um það segir Gísli [Konráðsson]: „Maður nokkur þar á ströndinni var í tygjum við Björgu um hríð, en var þá riðinn við aðra konu eða fleiri. Yfirgaf hann þá Björgu með öllu. Mælt er að hann héldi við gifta konu ina þriðju og væri rekinn til að eiga hina ógiftu. Kvað Björg þá um allt þetta: Komst í vanda kokkállinn, kviðarbrandinn hristi. Látrastrandar læsingin lykils fjandann misti. Í átthögum Bjargar lifa enn sagnir um, að unnusti Bjargar væri útlend- ur. Þykir það ekki ósennilegt. Faðir Bjargar var lærður og hafði dvalið í útlöndum. Í fyr greindri vísu kennir hún sig við Látraströnd en ekki Lát- ur, og bendir það til þess, að unnusti hennar væri lengra að. Gísli getur þess, að Björg hafi eitt sinn orðið ölvuð og komið þá á báti frá frönsku skipi. Hafi Björg þá verið að fylgja unnustanum um borð er drykkja hennar skiljanlegri. Þegar Björg reri frá skipinu kvað hún: Farið þið nú rétta rás á reiðadýri, flandrískri á flæðarmeri, fullhugarnir hvals á veri. Ekki er ósennilegt að hin gáfaða þrekkona, Látra-Björg, hafi kunnað þá list að leyna djúpum sárum undir kaldri brynju. – – – Látra-Björg þjóðtrúarinnar hefur verið álitin flökkukona frá upphafi vega. Þessu fer þó mjög fjarri. Öll sín þroskaár og, að líkindum, alllangt fram eftir ævi er hún húskona á Látrum og býr þar á sinn hátt. Alla þá tíð stundar hún sjóróðra og letur lítt til stórræða. Hún er svo veiðisæl að varla þykir einleikið. Stundum dregur hún fisk þótt enginn annar á báti hennar verði var. Þessi atvik eru fyrsti vísirinn til þeirrar trúar á fjöl- kynngi Bjargar, sem verður seinna landfræg í sambandi við vísur henn- ar. Fólkið hræðist hana og dáir. Ber margt til þess: Svipur hennar og vöxtur, áræði og aflraunir, orðsnilli hennar og bragkynngi, sem eru hröð með afbrigðum og hitta markið í flug- hasti. Og síðast en ekki sízt dular- gáfa, sem menn ekki skilja, en grunar að eigi sér engin takmörk. Ráða má af vísum Bjargar, frá bú- skaparárum hennar, að hún unir hag sínum dável og hefur gnótt matar, sem líklegt er um fjölkunnuga konu. Þegar ekki fæst bein úr sjó, seiðir hún á öngul sinn lúðu, sem er alin fyrir sporð. Það var einhverju sinni, að róið var með haukalóð á báti Bjargar. Þá var fiskleysi og var róðurinn gerður að áeggjan hennar. Þegar lóðin voru lögð, merkti Björg sér einn öngulinn og kvað: Sendi drottinn mildur mér minn á öngul valinn flyðru þá, sem falleg er, fyrir sporðinn alin. Þegar lóðin var dregin inn voru all- ir önglar berir, nema sá, er Björg merkti sér. Á honum var lúða svo stór, að undrun sætti. Segja Höfð- hverfingar, að Björg skipti lúðunni milli skipverja. – – – Haustið 1785 er Björg komin að einhverjum bæ á Ufsaströnd og deyr þar 26. september. Svo sagði gamalt fólk, að Björg kvæði þannig á bana- sænginni: Hjá þrælum ódáða þurt er vott, þreyting, friður með láni, æra þjófnaður, illt er gott, englar fólk, sól er máni. Undirdjúp, vötn sjó, augnablik, allt, sem guð skapti og hefur kvik. Fantarnir, frá ég, smáni. Þegar Bólu-Hjálmar var orðinn roskinn kom hann eitt sinn í Kirkju- garðinn í Höfða í Höfðahverfi og kvað: Dauð, frá Látrum, borin Björg byggir leg að Höfða. Að „Gimla“ sátrum gáfnamörg gekk með hlátrum sálin fjörg. Litlar líkur eru til, að Björg væri flutt að Höfða til greftrunar. Síra Sæ- mundur afi hennar var jarðaður við suðvestur hornið á Ufsakirkju. Mundu bein Bjargar vera þar. Ekki er vitað, að Björg fengi önnur eftirmæli en þessa einu vísu Hjálm- ars. Eru þau vel við hæfi. Björg hló hátt jafnan og duldi eldinn með kald- hæðni. Mundi hún heilsa með hlátri hinum heiðna gildaskála á himnum og fagna þar fundi forfeðra sinna: Torfa í Klofa, Hrólfi sterka og niðjum hans. Stórlynd og stórskorin Látra-Björg Bókarkafli | Fyrir stuttu gaf Bókaútgáfan Hólar að nýju út bókina Látra-Björgu, eftir Helga Jónsson frá Þverá í Dalsmynni (1890-1969), en hún kom í fyrra skiptið út árið 1949. Á Grenivík Minnisvarði um Látra-Björgu á Grenivík. Sögur af skáldkonunni hafa lifað þar á svæðinu. Minnisvarði Látra-Bjargar er minnst á fæðingarstað hennar við Stærri- Árskógskirkju á Árskógsströnd í verki eftir Sigurð Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.