Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 20
✝ Árni MogensBjörnsson
fæddist í Reykjavík
30. ágúst 1946.
Hann andaðist 23.
október 2020 á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi.
Árni var sonur
hjónanna Önnu
Ólafsdóttur, f. á
Upphólum í Bisk-
upstungum 10. febrúar 1916, d.
16. janúar 2005, og Björns And-
ersen, f. í Reykjavík 15. febrúar
1921, d. 6. desember 2004. Árni
átti þrjár systur, þær eru:
Hrefna, f. 29. júní 1944, Sigríð-
ur Ólöf, f. 12. september 1952,
og Birna, f. 6. ágúst 1954, d. 16.
apríl 2020.
Hinn 23. nóvember 1968
kvæntist Árni Sigþrúði Þórhildi
Guðnadóttur, f. á Ljósafossi í
Grímsnesi 10. apríl 1950. For-
eldrar hennar voru Guðni Jón
Guðbjartsson, f. 29. júní 1916, d.
20. október 2004, og Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir, f. 10. júní
1913, d. 13. september 1995.
Börn Árna og Þórhildar eru: 1)
Björn Styrmir, f. 8. nóvember
Kristjánsson, f. 26. júní 1996; b)
Tara Sól, f. 17. maí 2000; c) Míó,
f. 11. ágúst 2015. 5) Þyri Huld, f.
1. júní 1987, sambýlismaður
Hrafnkell Hjörleifsson, f. 10.
nóvember 1985, sonur þeirra a)
Birnir, f. 22. apríl 2019.
Árni ólst upp í Kleppsholtinu
og gekk í Langholtsskóla og þar
á eftir í Vogaskóla. Eftir gagn-
fræðapróf nam hann prentiðn
við Iðnskólann í Reykjavík
ásamt verknámi í prentsmiðj-
unni Hilmi. Hann útskrifaðist
sem prentsmiður/setjari í nóv-
ember 1968 og fékk meist-
araréttindi í febrúar 1974. Hann
starfaði hjá Prenthúsi Hafsteins
Guðmundssonar, Prentsmiðj-
unni Hólum og Ingólfsprenti.
Árið 1976 stofnaði hann prent-
smiðjuna og bókaútgáfuna
Prenthúsið ásamt Reyni Hlíðari
Jóhannssyni. Árni vann við
prentiðn og bókaútgáfu alla
sína starfsævi, seinustu árin í
prentsmiðjunni Litrófi.
Árni Mogens var virkur fé-
lagi í Oddfellow-reglunni í yfir
40 ár og sinnti þar trúnaðar-
störfum.
Útför Árna verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag, 9. nóv-
ember 2020 og hefst athöfnin
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna
verða einungis nánustu aðstand-
endur viðstaddir. Útförinni
verður streymt og má nálgast
virkan hlekk á: www.mbl.is/
andlat/
1967, kvæntur Jak-
obínu Björk Sig-
valdadóttur, f. 11.
nóvember 1967,
dóttir hans: A) Sa-
rah Dröfn, f. 26.
desember 1990,
sonur hennar Ant-
on Hrafn, f. 10. júlí
2016; börn þeirra:
B) Guðbjartur
Árni, f. 19. júlí
2003; C) Styrmir
Bjarki, f. 27. apríl 2006; D) Þór-
hildur Sonja, f. 21. desember
2008 2) María, f. 16. maí 1972, d.
31. maí 1972. 3) Guðni Jón, f. 29.
mars 1973, sambýliskona Hrönn
Ámundadóttir, f. 5. nóvember
1973, sonur hennar: a) Kristófer
Máni, f. 18. desember 1997, sam-
býliskona Viktoría Kristín Vikt-
orsdóttir, f. 27. október 1997;
synir þeirra: b) Anton Orri, f.
29. mars 1999, sambýliskona
Friðný María Þorsteinsdóttir, f.
11. október 1997; c) Daníel
Styrmir, f. 29. mars 1999. 4)
Árni Þór, f. 11. apríl 1975,
kvæntur Soffíu Láru Hafstein, f.
23. janúar 1976, börn þeirra: a)
Eva Örk, f. 26. október 1996,
sambýlismaður Kristján Steinn
Elsku pabbi. Takk fyrir allar
góðu minningarnar sem streyma
svo sterkt í gegnum mig þessa
dagana. Þú varst ótrúlegur maður
með hjartað á réttum stað.
Ég man þegar mamma fór til
útlanda með afa og við vorum bara
tvö í Grundargerðinu. Þú keyptir
handa mér grettudúkku sem mig
langaði svo mikið í, ég man enn þá
eftir tilhlökkuninni og hamingj-
unni sem ég fann.
Þegar við fórum tvö að kaupa
sólgleraugu fyrir þig og þú leyfðir
mér að velja. Ég var svo sátt við
valið: blá gleraugu með svörtu
gleri. Traustið sem þú gafst mér.
Ég fékk alltaf að vera skapandi
og velja mína leið í gegnum lífið og
það er ég þér og mömmu svo
þakklát fyrir. Þið mamma voruð
búin að vera saman í 54 ár, unnuð
saman og voruð alltaf saman.
Þessa ást og umhyggju sem ég
lærði af ykkur tek ég með mér út í
lífið.
Við áttum margar góðar stund-
ir síðustu árin þín. Þegar Birnir
fæddist og allir töluðu um að þið
væruð alveg eins og það fékk þig
til að brosa. Utanlandsferðirnar
þegar við vorum um jólin hjá Árna
og Soffíu í Svíþjóð og þegar þið
mamma komuð með okkur til Var-
sjár að hitta foreldra Hrafnkels.
Það var ómetanlegur tími og þú
hafðir svo mikinn áhuga á að
koma til Póllands enda margt að
skoða. Það var líka ómetanlegt
fyrir mig að þið komuð til Noregs
og sáuð mig dansa í fyrsta skipti
eftir að ég átti Birni. Þú varst
mjög hrifinn af þessari sýningu
enda í óvenjulegu rými í Vigeland-
safninu þar sem höggmyndir voru
um allt og við dönsuðum í kring-
um þær.
Þú varst nefnilega alltaf fyrir
hluti sem voru aðeins öðruvísi. Að
hugsa út fyrir kassann passaði vel
fyrir þig.
Takk elsku pabbi fyrir að
kenna mér að vera skapandi. Ég
mun halda áfram að skapa fyrir
þig.
Ég veit þú munt hugsa um mig
og gefa mér orku og styrk. Ég sé
þig alltaf í skýjunum þegar ég fer
út að labba eða hjóla. Þú munt
alltaf vera hjá mér og með mér.
Þyri Huld Árnadóttir.
„Það er engin synd þótt búk-
urinn leysi vind,“ heyrðist hvern
páskadag í Grundargerðinu, þá
vissi maður að röðin var komin að
afa að lesa upp málsháttinn sinn,
það var alltaf stutt í grínið. Ég
minnist þess vel að hafa séð afa
annaðhvort alveg þöglan, horfandi
yfir herbergið að hlusta, eða þá í
ákaflega djúpum samræðum við
næsta mann um eitthvað sem var
oftast svo miklu merkilegra en
veðrið eða gengið. Þannig var
nefnilega afi, hann hafði svo ein-
lægan áhuga á næsta manni, sama
hver það var eða hvað hann var að
gera í lífinu. Hann var ótrúlega
góður í því að láta hverjum sem er
líða eins og stórstjörnu. Mér
fannst ég allavega oft vera á leið-
inni að sigra heiminn eftir eitt gott
spjall með afa.
Afi var alltaf svo hógvær og
hefði alveg mátt tala meira um
sjálfan sig, en það kemur mér ekk-
ert á óvart að ég sé fyrst núna að
heyra að hann hafi byrjað að vinna
í sveit aðeins sex ára gamall eða
siglt til Rússlands sextán ára.
Afi var alltaf tilbúinn til þess að
hjálpa með allt, hvað sem manni
datt í hug, og hann átti alltaf allt til
alls. Hann var algjör þúsundþjala-
smiður með ótrúlegan sköpunar-
kraft. Afi á stóran þátt í því að ég
öðlaðist kjark til þess að rækta þá
hæfileika sem hann var alltaf að
benda mér á, afi var alltaf að segja
mér hversu mikill listamaður ég
væri. Þegar ég byrjaði að vinna af
einhverri alvöru í listsköpun minni
fannst mér afi alltaf einhvern veg-
inn vera með mér, við hverja efa-
semd eða við hvern fögnuð, og er
það ein sú dýrmætasta gjöf sem
mér hefur verið gefin.
Sem barn eyddi ég miklum
tíma í Prenthúsinu, Eden barna-
barna ömmu og afa. Þangað gat
maður komið og gleymt sér í
pappírnum, bókunum og alls kyns
tækjum og tólum. Ef ég loka aug-
unum heyri ég í prentvélunum,
bjöllunni í anddyrinu og símhring-
ingunni. Finn lyktina af blekinu
og kaffinu og sé afa fyrir mér þar,
með bros á vör, alltaf allur svartur
á puttunum. Ég gleymi því aldrei
þegar ég uppgötvaði að afi minn
og amma prentuðu skriftarbæk-
urnar sem flestir krakkar landsins
notuðust við, það gerðist ekki mik-
ið svalara en það. Það er líka núna
sem ég sé, með aðdáunaraugum,
hversu samtvinnuð amma og afi
voru ávallt og hversu mikill kær-
leikur og sterk vinátta ríkti þeirra
á milli.
Elsku afi, það er erfitt að setj-
ast hérna niður og renna í gegnum
þessar dýrmætu minningar, því
þær eru einmitt það, svo dýrmæt-
ar að það er erfitt að sætta sig við
að þær verði ekki fleiri. En það er
í rauninni ekki svo einfalt, því ég
veit að þær munu lifa áfram hjá
mér í listinni og ég veit að þær
munu lifa áfram hjá okkur barna-
börnunum og öllum sem þú snert-
ir, í hverju því sem þau taka sér
fyrir hendur.
Ég er svo lánsöm að hafa haft
þig, elsku afi, í svona stóru hlut-
verki í lífi mínu. Lífssýn þín, speki
og sköpunarkraftur hafa kennt
mér svo margt og mun ég alltaf
búa að því. Það er nokkuð sem
hefur og mun drífa mig áfram í að
halda alltaf áfram að vera ég sjálf.
Bless elsku afi minn, ég veit að
þú verður alltaf hjá okkur.
Eva Örk.
Þau voru gæfurík sporin sem
ég tók inn á Kaffibarinn að kvöldi
dags 11. júní 2011. Trúlega er það
í fyrsta og eina skiptið sem gæfan
var mér samferða þangað inn en
það kvöld hitti ég fyrst Þyri Huld
Árnadóttur. Svo liðu vikur og
mánuðir þangað til ég hafði loks-
ins fundið kjarkinn til að hitta
tengdafjölskylduna yfir kvöldmat.
Árni tók mér fagnandi það kvöld,
bauð mér bjór alveg med det
samme og rifjaði upp með mér
þegar hann var sjálfur í sömu
sporum hálfri öld áður. Mér leið
strax vel í návist hans þá og allar
götur síðan. Árni var enda ein-
staklega þægilegur og vandaður
maður sem vildi sínu fólki allt það
besta. Fyrir mér var hann þó allt-
af fyrst og síðast léttur og góður á
því, og þannig fólk er gott að vera í
kringum.
En þetta líf er síður en svo
sanngjarnt. Árni fékk ekki notið
eftirlaunanna sem hann átti þó svo
skilið eftir langa og stranga
starfsævi, heldur varð að lokum
að játa sig sigraðan af krabban-
um, þeim óbilgjarna andstæðingi.
Sú barátta var nokkuð löng og oft
á tíðum strembin þótt Árni hafi
alltaf mætt henni af æðruleysi og
óbilandi og aðdáunarverðri bjart-
sýni gagnvart framtíðinni. Og við
sem eftir stöndum erum bæði
rænd návist hans en einnig mun-
um við aldrei fá svör við spurning-
unni hverju fullfrískur Árni Mog-
ens Björnsson hefði afkastað með
allan heimsins tíma til að brasa í
skúrnum, hvunndags- og atorku-
skáldið sem hann var.
Árna féll einmitt aldrei verk úr
hendi. Til marks um það henti
hann upp sólpalli í garðinum
heima undir það allra síðasta, rétt
sí svona og vildi allra helst enga
hjálp enda væri þetta ekkert verk
(að hans sögn). Það gefur augaleið
að fyrir verkkvíðinn tengdason er
slíkur tengdafaðir mikil himna-
sending. Og í þau skipti sem hann
kom til okkar með verkfæra-
töskuna meðferðis var hann líka
upp á sitt allra besta. Sjálfur fékk
ég léttan kvíðahnút vitandi af hon-
um á leiðinni með borvélina þar
sem framkvæmdagleðin var svo
mikil að mér fannst á stundum
eins og ég væri að reyna að halda
aftur af viljugum hesti. Ég veit
ekki hvort það sé kynslóðaein-
kenni eða persónueinkenni okkar
Árna en mér var tamt að humma
og hugsa en Árna að vita og gera.
Og Árni vissi líka alltaf upp á hár
hvað þyrfti að gera og hvernig.
Ég er þakklátur fyrir margt í
þessu lífi en þakklátastur er ég
fyrir kvöldið afdrifaríka þegar
leiðir okkar Þyri lágu saman og ég
fékk stóra og samhenta fjölskyldu
í kaupbæti, þ.m.t. tengdaföður
minn Árna. Ég þakka honum sam-
fylgdina og vináttuna í þennan
tæpa áratug sem síðan er liðinn.
Þótt tíminn hefði með réttu átt að
vera lengri þá lifir minningin um
óvenjugóðan og vandaðan mann.
Hrafnkell Hjörleifsson.
Nú er komið að kveðjustund,
allt of snemma finnst okkur. Við
vonuðum svo innilega að við ætt-
um lengri tíma saman, Árni sem
var alltaf svo bjartsýnn og bros-
andi og kvartaði aldrei undan
veikindum sínum, að þetta væri
allt að færast í rétta átt og það
væri ekkert að sér.
Þegar við hugsum til baka er
margs að minnast, teljum okkur
eiga smá þátt í því að Árni gerði
prentverk að ævistarfi, þar sem
við unnum m.a. í sömu prent-
smiðju fyrstu starfsár hans. Við
minnumst skemmtilegrar fyrstu
sólarlandaferðar okkar til Spánar
með Árna og Tótu, byggðum sum-
arbústaði nánast hlið við hlið í
landi prentara í Miðdal og eftir-
minnileg ferð til Englands á
prentsýningu. Einstaklega
ánægjulega heimsókn sem við átt-
um ásamt vinahjónum til þeirra í
húsið sem þau áttu á Suður-Spáni,
þar sem við nutum mikillar gest-
risni eins og alltaf er við heimsótt-
um þau. Ótal mörg afmæli koma
upp í hugann þar sem við kynnt-
umst vel tengdafjölskyldu Árna.
Allt þetta og margt annað hefur
veitt okkur ómælda ánægju, sem
er okkur ómetanlegt.
Við dáðumst að dugnaði Árna
og Tótu í prentsmiðjurekstri og
bókaútgáfu hjá Prenthúsinu sem
þau ráku í mörg ár ásamt vin-
ahjónum sínum.
Undanfarin ár höfum við systk-
inin og makar hist í kringum af-
mæli foreldra okkar og átt
ánægjulegar stundir, sem okkur
hefur þótt afar vænt um.
Við kveðjum kæran bróður og
mág og þökkum fyrir allar fallegu
minningarnar sem við eigum um
Árna, þennan góða dreng, og vott-
um Tótu og fjölskyldu okkar inni-
legustu samúð.
Hrefna og Ólafur (Óli).
Látinn er mágur minn og félagi
til sextíu ára, gegnheill og vænn
drengur.
Árni lést á líknadeild Landspít-
alans föstudaginn 23. október síð-
astliðinn eftir erfið veikindi.
Blessuð sé minning hans. Árna
hitti ég fyrst fyrir rúmum sextíu
árum þar sem við vorum í sveit í
Flóanum, hann í Bár en ég í Sölv-
holti, þau kynni áttu eftir að
styrkjast og vara alla tíð eftir það.
Árni var félagslyndur og átti mörg
áhugamál og marga vini. Eftir að
Árni og systir mín stofnuðu til ná-
inna kynna sem síðar leiddi til
hjónabands og stofnunar fjöl-
skyldu lágu leiðir okkar enn frek-
ar saman.
Árni, sem var prentari (hand-
setjari) að mennt, starfaði við iðn
sína fyrst hjá öðrum og síðan sinni
eigin prentsmiðju um áratuga
skeið eða bróðurpart starfsævinn-
ar. Hann var vinsæll bæði meðal
samstarfsmanna sinna og við-
skiptavina. Við Árni brölluðum
ýmislegt saman. Árni var laghent-
ur og skipti ekki máli hvað hann
tók sér fyrir hendur, það lék flest í
höndum hans, sama hvort það var
úr mjúku eða hörðu efni, tré eða
járni. Þá eins og nú var ekki
þrautalaust að koma þaki yfir fjöl-
skylduna. Margir brugðu á það
ráð að byggja sjálfir eða kaupa
íbúð í byggingu og ljúka við smíð-
ina sjálfir. Við Árni vorum í þeim
hópi sem gerðum það sem við
mögulega réðum við svo sem múr-
verk, tréverk, pípulögn, rafmagn,
glerjun, dúklögn og málningu.
Eins og gefur augaleið var ekki
farin auðveldasta leið að settu
marki en í mark var samt komist
þótt það kostaði oft svita og tár.
Oft hjálpuðum við hvor öðrum í
þessu byggingarbraski.
Árni átti mörg áhugamál og var
duglegur að stunda mörg þeirra,
eitt þeirra var laxveiði og leigði
Árni ásamt félaga sínum laxveiðiá
í nokkur ár og stunduðu hann og
félagar þeirra og þar á meðal ég
laxveiðar í ánni þeirra. Árni var
áhugamaður um hesta og hesta-
mennsku og átti hesta og hesthús í
Hafnarfirði þar sem ég hafði hesta
hjá honum í nokkra vetur og naut
þaðan útreiða.
Við Árni og fjölskyldur okkar
fórum í ferðalög saman bæði um
landið og einnig til útlanda þar
sem margar samverustundir eru
mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um. Síðasta ferðalag okkar
hjónanna með Árna og Tótu var til
Spánar síðastliðið vor þar sem við
nutum samvista í tvær vikur.
Ferðin varð styttri en til stóð
vegna Covid 19-samkomutak-
markana og algjörs útgöngu-
banns sem sett var á Spáni. Við
tóku spennuþrungnir síðustu dag-
arnir þar sem við leituðum að flug-
fari heim á frón sem tókst og ferð-
in heim gekk að óskum. Þrátt fyrir
veikindi Árna og spennu í lok ferð-
ar held ég að Árni og Tóta hafi
notið ferðarinnar eins og við
Bryndís. Ég vil þakka Árna fyrir
allar ánægjustundirnar sem við
áttum saman og bið ég þess að
hann megi hvíla í friði.
Ásgeir Guðnason.
Góður vinur er látinn, rifinn
burt frá vinum, ættingjum og fjöl-
skyldu, prentvélum og samstarfs-
fólki. Það syrgja allir svona mann.
Hvernig er annað hægt? Elsku
Tóta, börn og barnabörn, ég votta
ykkur öllum dýpstu samúð mína.
Þið hafið misst mest.
Ungur varð hann minn besti
vinur og ég vil meina að hann sé
það enn. Við hittumst strax þegar
okkur var hleypt einum út úr húsi
í Efstasundinu og urðum vinir við
fyrstu kynni. Við vorum saman í
bekk í Langholtsskóla í mörg ár
og fylgdumst að í gegnum æsku-
og unglingsár. Þau voru viðburða-
rík og ævintýraleg eins og við er
að búast. Eftir að við fullorðnuð-
umst minnkuðu samskiptin stund-
um um tíma en alltaf fundum við
leið til að endurnýja þau og
treysta þá vináttu sem alltaf bjó
með okkur. Um tíma vorum við
nánir samstarfsmenn og brösuð-
um ýmislegt saman í útgáfumál-
um.
Það sem mér fannst alltaf ein-
kenna Árna, alveg frá fyrstu
stund, var hve traustur og vand-
aður hann var. Heiðarleikinn var
miklu meiri en tíðkaðist hjá ung-
um drengjum þess tíma, ráð-
vendnin og samviskusemin. Hann
var hjálpsamur og ráðagóður ef
aðra vantaði aðstoð og úrræða-
góður í öllum sameiginlegum
verkum. Hann var jákvæður og
átti auðvelt með að slá málunum
upp í grín og glens. Snemma varð
hann afskaplega handlaginn og
með mikið verksvit, lærði að nota
öll verkfæri sem hann komst í tæri
við. Mér er minnisstætt þegar við
vorum að byggja saman hús í
garðinum heima úr kassafjölum.
Þar tók hann forystuna, skipu-
lagði verkið og sá það fyrir sér frá
byrjun, stjórnaði verkinu, kenndi
mér á verkfærin og útlistaði fyrir
mér hvað þurfti að gera. Ég skildi
ekki hvaðan honum kom þessi
kunnátta og þekking, 10 ára göml-
um, og bar mikla virðingu fyrir
honum. Sú virðing hélst alla ævi
því hann átti eftir að kenna mér
margt. Húsið í garðinum varð
tveggja hæða og við bjuggum
hvor á sinni hæðinni.
Árni var íþróttagarpur í æsku
og Kleppstúnið var vettvangur
mikilla afreka og áreynslu í frjáls-
íþróttum. Heima á lóð var svo
Árni Mogens
Björnsson
HINSTA KVEÐJA
Bestu þakkir, kæri vinur.
Á hljóðlátri stundu er hugur minn
sorg
harmur að kveðinn um gjörvalla
borg.
Horfinn er maður sem magnaður
var
meistari í höndum, á hrósið ei spar.
Ég þakka þér, vinur, þitt vináttuþel
vandaða sálu sem þekkti svo vel.
Já, nú ertu farinn handan um heim
þar hittirðu fjölskyldu og dvelur hjá
þeim.
Víst er að þakkir og vináttu fær
frá vegferðarfólki fjarri sem nær.
Við söknum þín öll og syrgjum í
dag
söknum og styðjum þinn eilífð-
arhag.
Ég þakka þér, Árni, árin þín öll
öndin þín geymdi boða og fjöll.
Blessuð er ferð þín þótt brá þín sé
köld
þú bíður mín, vinur, við hittumst í
kvöld.
Guðmundur Kristinn
Sæmundsson.
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát ástkærrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
HEIÐRÚNAR HULDU A.
JÓNASDÓTTUR,
Karlagötu 17,
sem lést á líknardeildinni í Kópavogi 17.
október.
Útför hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk líknardeildar fyrir
hlýhug og góða umönnun.
Margrét Ósk Sölvadóttir
Hulda Sigurmarsdóttir
Sigurður Arnar Sölvason
Okkar ástkæra
GUÐBJÖRG BRYNDÍS SIGFÚSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
föstudaginn 30. október. Jarðsungið verður
í Seljakirkju 10. nóvember klukkan 13:00.
Útförinni verður streymt á seljakirkja.is.
Aðstandendur